Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Page 6
po 22 Nýjar bækur LJÓÐSPOR Saf i ljóöa frá 19. og 20. öld. Ljóöin eru eftir 138 ljóðskáld og er það yngsta fætt 1967. Ljóðin eru valin með það í huga að vekja áhuga ungra lesenda á ljóðum og kynna fyrir þeim sem flölbreytilegust ljóiiform. Ljóöunum er skipað niður eftir viðfangsefnum skáldanna. Myndir eftir 11 islenska myndlistarmenn. Söfnun og niðurröðun önnuðust Kolbrún Sigurðar- dóttir, Sverrir Guðjónsson og Þórdís S. Mósesdóttir. Námsgagnastofnun. Verð: 1275 kr. LÚLLI leitar að bangsa LÚLLI verður ánægður LÚLLI og gula kerran Ulf Löfgren. Áður hafa sex bækur um Lúlla komið út á íslensku. í þessum segir frá því þegar Lúlli týnir bangsa prakkara, þegar hann reynir að smíöa og fær hamarshögg á fingurinn og þegar hann eignast fína kerru. Þórgunnur Skúladóttir þýddi. Iðunn. Verð: 297 kr. hver bók. FRJÁLS EÐA FJÖTRUÐ Liz Berry Þegar Cathy fellst á að giftast rokkstjörn- unnt frægu, Paul Devlin, stigur hún um leið mn í glitrandi ævintýraheim frægöar og ríktdæmis. En Cathy er bara sautján ára og gengur illa að venjast lífinu í sviðs- ljósinu. Hún berst fyrir frelsi sínu og sjálfstæði - en böndin, sem tengja hana Dev og vini hans, söngvaranum Chrís, eru sterkari en hana grunar, og ef til vill getur frelsið orðið of dýrkeypt. 177 bls. Iðunn. Verð: 1180 kr. " ;>.ý.pi g 5! HM5R3TT"JTFTTDSOinnva]M MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988. JÓLAFÖNDURBÓKIN Karolína M. Jónsdóttir, Guðbjörg Péturs- dóttir, Gerður Helgadóttir og Olga Lísa Garðarsdóttir Hundraö uppskriftir og sniö af þjóðlegu jólaföndri sem er auðvelt í vinnslu: jóla- sveinar, jólakort, jóladagatöl, jólatré, grjónasveinar og margt fleira. 160 bls. Kiljuforlagið/Fjölsýn, sími 68 92 70 Verð: 1840 kr. --Illli---- I mmmmm P/Jfrœð< fyrU bófn oo un&inga p; pwy 5, 0 M Slfe” J* IÉ k HEIMUR í HNOTSKURN Jane Elliot og Colin King Fjölfræðibók fyrir börn og unglinga. Þessi litríka bók hefur að geyma ógrynni af hagnýtum fróðleik við hæfi barna og unglinga. Hér er aö finna ítarlega kafla um jörðina, dýralif og gróður á hnettin- um, sögu mannkyns og þróun vísind- anna. Fjörlegar htmyndir á hverri blað- síðu eiga ríkan þátt í að gera flókna hluti auðskilda. Bjarni Fr. Karlsson þýddi. 128 bls. Forlagið. Verð: 1575 kr. KOPPURINN Jonathan Langley og Anne Civardi Myndabók fyrir yngstu börnin. Sagt er frá henni Möggu litlu sem er að venja sig íif að nota bleiu. Iðunn. Verð: 492 kr. ÍÆVINTÝRALÖNDUM Paul Wanner endursagði Nikolai Ústinov myndskreytti í þessu safni eru tólf e vrópsk úrvalsævin- týri, fagurlega myndskreytt. Mörg ævin- týrin eru ný fyrir íslenskum lesendum. Sigurjón Guðjónsson þýddi. 200 bls. Mál og menning. Verð 1775 kr. MIDAS KONUNGUR ER MEÐ ASNAEYRU Jens Sigsgaard Þetta er sami höfundur og skrifaði Palli var einn í heiminum, sem út kom 1942 í Danmörku, á íslandi 1948, og hefur verið þýdd á 37 tungumál. Litmyndir á hverri opnu eftir Jon Ranheimsæter. Vilbergur Júliusson, fyrrv. skólastjóri, þýddi. Bókaútútgáfan Björk Verð: 625 kr. ALBIN OG SJÓRÆNINGJARNIR Ulf Löfgren Margir krakkar kannast við Albin úr sjónvarp.inu og af fyrri bókum um hann. Að þessu sinni er hann að grafa eftir fjár- sjóði í fjörunni og rekur skófluna í eitt- hvað hart, kannski gulltunnu? Þá koma sjóræningjar eins og Simbi síkvefaði, Anton ægilegi og fleiri á vettvang. Þórg- unnur Skúladóttir þýddi. Iðunn. Verð: 598 kr. THE FISHERMANS B0Y ANDTHE SEAL Johannes ur Kotium Ragnheiður Gestsdóttir GRÍMUR OG GJAFIRNAR TÓLF Ríkulega myndskreytt jólasaga eftir Mauri Kunnas. Þorsteinn frá Hamri þýddi. Iðunn. Verð kr, 697. THE FISHERMAN’S BOY AND THE SEAL Gömlu ævintýri snúið í Ijóð af Jóhannesi úr Kötlum Þýtt á ensku. Litmyndir á hverri opnu: Ragnheiður Gestsdóttir Inngangsorð: Vigdís Finnbogadóttir ALVEG MILLJÓN Andrés Indriöason Fjórtán ára strákur verður vitni að ráni á Laugaveginum. Vandinn er hvort hann á að láta lögguna vita eða ekki. Hann kemst svo óvænt á slóð ræningjans og þá er gott að vera nýbúinn að eignast hugrakka vinkonu og vera kominn inn í klíkuna. 188 bls. Mál og menning. Verð: 1675 kr. Jan Mogensen ísak óánægði ÍSAK ÓÁNÆGÐI Jan Mogensen ' Hér segir frá litlum strák sem er óánægð- ur með allt sem foreldrar hans gefa hon- um vegna þess að hlutimir passa ekki fyrir hann. Textinn sýnir notkun and- stæðra hugtaka, s.s. litill/stór, hátt/lágt, svo auöveldlega lærist. Sigrún Árnadótt- ir þýddi. Mál og menning. Verð: 475 kr. Tónlistarsaga æskunnar TÓNLISTARSAGA ÆSKUNNAR Kenneth og Valerie McLeish Bók þessi er nýjung á íslandi því i fyrsta skipti eiga íslensk börn og unglingar kost á að fræðast um tónlist á móðurmáli sínu í vönduöu alfræðiriti. Fjallað er um si- gilda tónlist Vesturlanda, fræg tónskáld, popptónlist, djass og tónlist framandi þjóða. Einnig er leiðbeint um tónlist á hljómplötum til að hlusta á. Bókin hefur að geyma rúmlega 1000 myndir. Eyjólfur Melsted þýddi. 192 bls. Forlagið. Verð: 2.188 kr. KUGGUR TIL SJAVAR OG SVEITA Sigrún Eldjárn Nýjar sögur um Kugg og vini hans, þær Málfríði og mömmu hennar - kostulegar kerlingar sem ekki kalla allt ömmu sína, aö ógleymdum Mosa - glaölyndu og hrekkjóttu kríli sem býr yfir ótrúlegum hæfileikum. Rúmlega 40 litmyndir eftir höfundinn. 32 bls. Forlagið. Verð: 988 kr. Bama- og unglingabækur KRISTÍN STEINSDÓTTIR III FALLIN SPÝTA Kristín Steinsdóttir Verðlaunahöfundurinn Kristín Steins- dóttir birtir nú sjálfstætt framhald bókar- innar Franskbrauö með sultu sem hún hlaut íslensku barnabókarverðlaunin fyrir árið 1987. Sagan gerist í kaupstað á Áustfjörðum þar sem sögupersónan, Lilla, er kornin til aö vera hjá ömmu sinni og afa. Með leikfélögum sínum á Lilla margar skemmtilegar stundir. 114 bls. Vaka-Helgafell. Verð: 886 kr. Healbar Amefy og Ötepfien Cartwftyht Myndskreytt orOabók handa börnum ... .. .1 s JXÍttffcWfcnfcN ORÐABELGUR - Myndskreytt orðabók handa bömum. Þar er að finna þúsund orð fyrir unga lesendur og mikið af litprentuöum mynd- um. Stefán Jökulsson þýddi. Endurút- Örn og Orlygur. Verð: 990 kr. SVALUR í NEW YORK GESTIR Á GORMASLÓÐ KÚNSTIR OG KLÆKJABRÖGÐ Hér em gamlir kunningjar á ferð - engir aðrir en blaöamennirnir snjöllu, Svalur og Valur, fyirum félagi þeirra, Gormur, sem nú hefur fengiö sérstakan bókaflokk fyrir sig, og hrakfallabálkurinn Viggó viöutan. Svalur og Valur komast í hann krappan í höfuöborg heppninnar og gós- enlandi glæpaflokkanna. Gormdýrin þurfa að kljást við indíána, mannætu- fiska, hlébarða og svo veiöimanninn Bring M. Backalive og Fimbulfamba. Iðunn. Verð: 880 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.