Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988.
23
FIMM Á DIMMUDRÖNGUM
Enid Blyton
Ný bók um félagana fimm. Það fyllist
allt af gestum heima hjá Georgínu í fríinu
svo að faðir heimar fær engan vinnufrið.
Þess vegna eru fimmmenningarnir send-
ir til dvalar í gamla vitanum á Dimmud-
röngum ásamt eiganda vitans, Billa, og
apanum hans, Gutta. Þar hitta þau gaml-
an mann sem segir þeim sögur af strand-
þjófnum Eineyrða Jóa og fjársjóði hans.
Krakkarnir komast á sporið - en tveir
ósvifnir þorparar eru líka á höttunum
eftir fjársjóðnum.
163 bls.
Iðunn.
yerð: 1180 kr.
CHRISTINE .NÖSTUNGER
JOE
JÓIOG UNGLINGAVEIKIN
Christine Nöstlinger
Jói er alinn upp af sjö konum og hefur
aldrei séð foður sinn. Unglingaveikin
sækir á hann og loks ákveður hann að
taka til sinna ráða.
Jórunn Sigurðardóttir þýddi.
158 bls.
Mál og menning.
Verð: Innbundin 975 kr. - Kilja 775 kr.
KÓNGAR í RÍKISÍNU OG
PRINSESSAN PETRA
Hrafnhildur Valgarðsdóttir
Kóngar í ríki sinu og prinsessan Petra
er barnabók eftir Hrafnhildi Valgarös-
dóttur og er bókin sjálfstætt framhald af
sögunni Kóngar í ríki sínu sem kom út
árið 1986. Bókin fjallar um tvo tápmikla
stráka og dularfulla stelpu sem á heima
í næsta húsi.
Brian Pilkington myndskreytti bókina.
97 bls.
Fijálst framtak.
Verð: 880 kr.
HAMINGJUBLÓMIN
Guðjón Sveinsson
Bama- og unglingabækur Guðjóns hafa
notið mikilla vinsælda undanfarin ár.
Hamingjublómin eru ætluð yngstu les-
endunum og er bókin myndskreytt af
Pétri Behrens.
Bókaforlag Odds Björnssonar.
Verð: 1250 kr.
LÍTILL ÍSBJÖRN EINN í
VANDA
Hans de Beer
Helga Einarsdóttir bókavörður þýddi.
Bókin segir frá Lassa litla ísbjamarhúni
sem verður viðskila við pabba sinn og
berst á ísjaka suður í höf, alla leið til
Afríku. Það gerast ótal ævintýri á þeirri
löngu leið.
28 bts.
Öm og Örlygur.
Verð 790 kr.
LEIKUR AÐ LÆRA
1., 2. og 3. hefti
Kirsten og Ebbe Schiler
Leikur að læra em þijár vinnubækur,
ætlaðar forskólabömum. Bækumar
innihalda fondurefni til að þjálfa börn í
aö fara með blýant, liti, skæri og lim og
eiga verkefnin eiimig að kenna notkun
ýmissa hugtaka. Olga Guðrún Ámadóttir
þýddi.
Mál og menning.
Verð: 340 kr., hvert hefti.
Á FLÆKINGI
Indriði Úlfsson
Á flækingi er sjálfstæð saga og ein af
hans bestu bókum. Hún segir frá ekkju
með tvö böm, Súsönnu 10 ára og Jóni
Áma 6 ára. Móðirin og bömin þurfa að
ganga í gegnum ýmsa erfiðleika. Þau
dvelja viða um stuttan tíma, festa hvergi
rætur vegna óvæntra atvika.
160 bls.
Skjaldborg.
'Verð: 1.185 kr.
RITSAFN H. C. ANDERSENS
Ævintýri og sögur eftir H. C. Andersen,
ævintýraskáldið góða, i úrvalsþýðingu
Steingríms Thorsteinsonar. Myndir em
eftir heimsþekkta Ustamenn. Ritsafnið
er þrjú bindi, samtals 647 blaðsíður. Það
fæst nú einnig í öskju.
647 bls.
Æskan.
Verð: 2625 kr.
í öskju: 2950 kr.
RAUÐHETTA - PÉTUR PAN -
HANSHUGPRÚÐI
Ævintýri bamanna er nýr bókaflokkur
fyrir yngstu bömin. Hér em sögð sígild
ævintýri sem böm hafa skemmt sér við
kynslóð fram af kynslóð. Ævintýrin em
endursögð við hæfi yngstu barnanna og
myndskreytt af nokkmm þekktustu
listamönnum Spánverja í dag.
Þorsteinn frá Hamri þýddi. Forlagið.
Verð: 388 kr.
SJÓN, HEYRN, LYKT,
BRAGÐ, TILFINNING
Þýðandi Rannveig Löve
Fimm myndskreyttar bækur, ætlaðar til
að vekja áhuga yngstu barnanna á skiln-
ingarvitunum. I öllum bókunum er að
finna greinargóða, „fræðilega" smákafla
sem auðvelda foreldrum og fóstmm að
svara spurningum barnanna.
32 bls. hver bók.
ísafold.
Verð: 300 kr:
Nýjar bækur
GÓÐUR, BETRI, BESTUR
Heiðdís Norðfjörð
Heiðdís NorðQörö rithöfundur er löngu
kunn fyrir bamaþætti sína í Ríkisútvarp-
inu, svo og upplestur ævintýra á hljóð-
snældur. Þetta er hennar 4. bók. Jóhann
Valdemar Gunnarsson myndskreytti
bókina. Góður, betri, bestur er spennandi
bók um þrjá hressa stráka.
120 bls.
Skjaldborg.
Verð: 1.185 kr.
FÓLSKUBRÖGÐí
FYRIRRÚMI-Sammi
MAMMA MÆTT í SLAGINN -
Sammi
Fólskubrögð í fyrirrúmi greinir frá nýrri
uppgötvun - kláðasýklinum ógurlega.
Sammi og Kobbi ætla aö klófesta formúl-
una. En þeir em ekki einir um hituna
og fólskubrögðin láta ekki á sér standa...
Bókin um Bryndísi Schram er nákvæmlega eins og söguhetjan hefur alltaf
verið: HISPURSLAUS og HRESS! Ólíná Þorvarðardóttir kemur glaðværð
Bryndísar og einlægni skemmtilega 01 skila þegar hún ræðir um sjálfa sig,
fjölskyldu sína, samferðamenn á mörgum sviðum þjóðiífsins og það afl sem
hún segir mestu skipta í lífi sínu - ástina.
Bryndís hefur komið ótrúlega víða við. Leikhúsmál, skóiamál, stjórnmál,
margvísleg störf á fjölmiðlasviði og ótal margt fleira kemur við sögu þegar
iífshlaup Bryndísar er rakið. Oft er einnig vitnað í dagbækur hennar og
fjölmargir kaflar úr bréfum Bryndísar ogýmissa annarra eru birtir.
Þessi bók skyggnistá bak við þá mynd sem þorri almennings hefur hingað
01 séð af Bryndísi Schram. Þetta er bók sem
JSSHBHRH
■MHHHHHHI
m
GB AUGtySINGAÞJÚNUSTAN / SIA