Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Page 8
24
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988.
Nýjar bækur
MARGARETA STRÖMSTEDT
Ðagur i desember
MARTA - dagur í desember
Margareta Strömstedt
Fyrsta bók þessa sænska barnabókahöf-
undar á íslenskum markaði. Margareta
Strömstedt hefur m.a. hlotið Astrid Lind-
gren-verðlaunin fyrir framúrskarandi
barnabókmenntir. Marta er kunnasta
söguhetja hennar. Hún er einkar hress
og hefur óvenjuauðugt ímyndunarafl
sem oft kemur henni í klípu.
120 bls.
Vaka-Helgafell.
Vepð: 796 kr.
trantl ofl frikki i wvwityrunt
GUU N7ÓSNARINN
oc íumttB
FJÖGUft
FIiÆKNU
GULINJÓSNARINN-
Frosti og Frikki
HIN FJOGUR FRÆKNU
OG ILLFYGLIÐ
ÓGNIR í UNDIRDJÚPUNUM
- Háskaþrennan
Guli njósnarinn er kominn á kreik og
ógnar heimsfriðnum. Frbsti og Frikki
stofna björgunarsveit og ráðast inn í höf-
uðstöðvar óvinarins. Auðmannsdóttirin
Pamela er horfin í Suöur-Ameríku. Var
herrni rænt? Er risakondórinn úr sögum
indíána til? Hvaða leyndardóm geymir
Astekó-fjall? Þetta er fyrsta bókin í nýjum
flokki um Háskaþrennuna.
Iðunn.
Verð: 880 kr.
MEIRIHÁTTAR STEFNUMÓT
Eðvarð Ingólfsson
Svenni, fimmtán ára Akumesingur,
verður hrifinn af tveimur stelpum og á í
basli með að gera upp á milli þeirra þeg-
ar þær svna honum báðar áhuga.
155 bls.
Æskan.
Verð: 1675 kr.
TÁNINGAR OG TOGSTREITA
Þórir S. Guðbergsson
Heimildaskáldsaga fyrir unglinga, byggð
á dagbókarbrotum Eyvindar, unglings
sem lent hefur utangarös. Hún vakti
mikiar deilur, þegar hún kom út fyrir
allmörgum árum árum, þvi orðbragð og
siðferði Eyvindar þótti ekki til fyrir-
myndar. Öðrum fannst sagan tímabær
áminning til samfélagsins.
Virkni.
Verð: 1500 kr.
HXINN
BARNAORÐABÓKIN
Sigurður Jónsson
Bókin skýrir orð og merkingu þeirra fyr-
ir bömum og öðmm sem eru að læra
íslensku og eykur orðaforða þeirra. Jafn-
framt er hún kennslubók í notkun orða-
bóka. Bókin er miðuð við þarfir bama á
aldrinum 8-12 ára og í henni em um 2300
algengustu orð íslenskrar tungu. Hverju
uppflettiorði fylgja málfræðiupplýsingar
auk þess sem merking þess er skýrð og
sýnd dæmi um notkun. Mikill fjöldi skýr-
ingarmynda er í bókinni.
280 bls.
Iðunn.
Verð: 1980 kr.
BARNAGULL
Jón Ámason
Þýddar, áður óútgefnar sögur, teknar
saman um miðja 19. öld af Jóni Arnasyni
þjóðsagnasafnara og í þýðingu hans.
Skyldi vera lestrarbók handa bömum og
unglingum. Umsjón hefur dr. Hubert See-
low sem jafnframt ritar í eftirmála um
efnið og þýðandann, Jón Ámason, en 4.
september 1988 var öld liðin frá dauða
hans.
255 bls.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Verð: 2750 kr.
Braðum koma
blessuð jólin
BRÁÐUM KOMA BLESSUÐ
JOLIN
Þetta er bók um jól og jólaundirbúning.
Hún er ætluð ungum börnum til að lesa
sjálf eða láta lesa með sér eða fyrir sig.
Hér em léttar og einfaldar sögur um jóla-
undirbúning, jólatilhlökkun, jólagleði,
jólahald, jólavísur, jólasálma og leiki.
Sumar frásagnirnar em rímaðar undir
þekktum lögum svo að foreidrar, afar og
ömmur og aðrir barnavinir geti raulað
þær með börnunum. 160 blaðsíður með
Öölda mynda. Stefán Júlíusson þýddi og
endursagði.
Setberg.
Verð: 1375 kr.
PÚSLUSPIL
Hrafnhiidur Valgarðsdóttir
Púsluspil er unglingasaga eftir Hrafn-
hildi Valgarðsdóttur. Hrafnhildur vakti
athygli með unglingabók sinni, Leður-
jakkar og spariskór, sem út kom í fyrra.
Bókin fjallar um tvær vinstúlkur í 9. bekk
grunnskóla, væntingar þeirra og ástar-
skot og baráttu annarrar stúlkunnar.við
fortíð sína.
142 bls.
Fijálst framtak.
Verð: 1180 kr.
FUGL í BÚRI
Kristín Loftsdóttir
Sagan sem hlaut íslensku bamabóka-
verðlaunin 1988 komin í bók. Afdrifaríkir
viðburðir gerast í lífi tápmikilla skóla-
krakka, einkum vinanna Kittu og Elíasar
sem em aðalpersónur bókarinnar. í um-
sögn dómnefndar sagði m.a.: Hugljúf,
heillandi og spennandi saga sem leiftrar
af frásagnagleði.
116 bls.
Vaka-Helgafell.
Verð: (kilja) 948 kr.
VÍST ER ÉG FULLORÐIN
Iðunn Steinsdóttir
Bókin Víst er ég fullorðin gerist í smábæ
úti á landi upp úr 1950. Á þeim tíma sátu
stúlkur og vermdu bekki heilu böllin,
allir bílstjórar með ábyrgðartilfinningu
flautuðu fyrir horn og hver einasti kenn-
ari hljóp yfir „dónalega kaflann" í heilsu-
fræðinni þó að það væri eini kaflinn sem
nemendur töldu sig einhverju varða...
167 bls.
Almenna bókafélagið.
Verð: 1880 kr.
ÁRMANN KRSmnSSON
GULLSKIPIÐ FUNDIÐ
Ármann Kr. Einarsson
Sjöundi titilhnn í vinsæla bókaílokknum
Ævintýraheimur Ármanns. Félagarnir
Óli og Maggi halda enn út á Skeiðarár-
sand að leita gullskipsins, hollenska
kaupfarsins sem strandaði þar árið 1667.
í farmi skipsins var gull og ýmis önnur
verðmæti sem ekki varð bjargað.
144 bls.
Vaka-Helgafell.
Verð: 1186 kr.
FALINN FJÁRSJÓÐUR -
FINNDU HANN
Ritröðin VERTU MEÐ
E. Sotillos og J. Nabau
Bókaröðin „Vertu með! Vertu með!“ er
algjör nýjung. Teiknisögur þar sem les-
andinn verður sjálfur þátttakandi í at-
burðarásinni. Hann tekur mikilvægar
ákvarðanir sem ráða gangi sögunnar.
Gerist meðlimir í ævintýraklúbbnum
með Þrössa, Össa og Erlu. Tvær bækur:
Tímavélin - taktu þér far og Falinn fjár-
sjóður - finndu hann.
48 bls.
Fjölvi.
Verö: (kilja) 598 kr.
PRINS VALIANT,
HÚNAVEIÐARARNIR
Hal Foster
Hin mikla teiknisöguröð um ungu. og
hjartfólgnu hetjuna Prins Valiant hefur
löngum verið talin í fremstu röð. Fjölvi
hefur byrjað að gefa út nýja heildarút-
gáfu og eru komin út Qögur fyrstu bind-
in: 1. Flóttamenn í fenjum, 2. Syngjandi
sverðið, 3. Riddari hringborðsins og 4.
Húnaveiöaramir.
48 bls.
Fjölvi.
Verð: (kilja) 598 kr.
NÝJU FÖTIN KEISARANS og
aðrar gamansögur
H.C. Andersen o.fl.
Glæsilegar myndir í 4 Utum
eftir Karen Milone
Bók þessi hefur farið sigurfor um mörg
lönd. í henni eru eftirgreindar þrjár gam-
ansögur: hið þekkta ævintýri H. C. And-
ersens, Nýju fótin keisarans, og tvær
enskar þjóðsögur, Óskimar þrjár og
Meistari meistaranna. Stefán Júlíusson
rithöfundur íslenskaði bókina. Hún er
fyrir böm á öllum aldri.
48 bls.
Bókaútgáfan Björk.
Verð: 625 kr.
Grímur Mauri Kunnas
og gja£lmar tólf
GRÍMUR OG GJAFIRNAR
TÓLF
Ríkulega myndskreytt jólasaga eftir
Mauri Kunnas. Þorsteinn frá Hamri
þýddi.
Iðunn.
Verð kr. 697.
TRILLURNAR ÞRJÁR FARA í
LEIKSKÓLA
M. Company & R. Capdevila
Það var skemmtileg tilviljun! Sama dag-
inn og þríburasystur fæddust á fæðingar-
deildinni komu út hjá Fjölva fyrstu bæk-
urnar í bókaröðinni um Trillurnar. Þess-
ar þrjár stelpur em sannarlega kerlingar
í krapinu. Fyrstu tvær Trillubækumar
em Sæl og bless! og Trillurnar þtjár fara
í leikskóla.
14 bls.
FjöM.
Verð: 598 kr.
Hljóðsnældur
LYaVSCX>UR
BARONS
VGXÚS Önu-XSON
I.1.IKARI 1.1.s
JR ,AR
m < .1 K
XUDLXA
LYGASÖGUR
MUNCHAUSEN BARONS
Magnús Ólafsson les.
Sögusnældan.
Verð: 943 kr.
ÆVINTÝRIOG
MÖMMUSÖGUR
Heiðdís NorðQörð les.
Hörpuútgáfan.
EINU SINNIVAR
Ævintýri og sögúf eftir H.C. Andersen
Emil Gunnar Guðmundson les.
Litla leikhúsið.
Verð: 600 kr.
íslenskar
skáldsögur
BYGGINGIN
Jóhamar
Framúrstefnuskáldsaga þar sem hefð-
bundið form er brotið upp og höfundur
gefur hugmyndaflugi sínu lausan taum-
inn, umbyltir máli og stil og fer ekki
troðnar slóðir. Áður hafa út komið eftir
Jóhamar bækumar Taskan, Brambolt og
Leitin að Spojjíng.
Tæpar 140 bls.
Smekkleysa.
Verð: 2143 kr.