Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Qupperneq 12
28
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1988.
Nýjar bækur
GYLLTU SKORNIR
Else-Marie Nohr
Bróöir hennar er eftirlýstur fíkniefna-
smyglari sem lögreglan leitar aö. Eitt
kvöldiö hverfur hún og lögreglan er á
þeirri skoöun aö samtökin, sem bróöir
hennar er í. hafi rænt henni.
184 bls.
Skuggsjá.
Verö: 1725 kr.
£e*
Skuggsja
AÐEINS UM EINA HELGI
Theresa Charles
Moma, eldri systir Margrétar Milford,
hafði tekiö fyrsta elskhuga Margrétar frá
henni og gifst honum. Nú var Morna sjúk
af dularfullri veiruveiki og gat ekki hugs-
aö um börn sín eða starf sitt. Gat Margr-
ét neitað henni um hjálp?
192 bls.
Skuggsjá.
Verð: 1725 kr.
SPORÐDREKARIMONTE
CARLO
Ib H. Cavling
Bækur Cavlings hafa um langa hriö no-
tiö vinsælda íslenskra lesenda og þessi
nýjasta bók hans mun ekki valda þeim
vonbrigðum.
176 bls.
Bókaútgáfan Hildur.
Verð: 1795 kr.
FÁLKINN FLYGUR
FALKINN FLYGUR
Wiibur Smith
Bókin greinir frá Afríkuleiðangri systk-
inanna Zougas og Robyn Ballantyne.
Lengst inni í myrkviöum Afríku kemur
í Ijós ólíkur tilgangur þeirra svo aö leiðir
skilja. Áður eru komnar út eftir Wilbur
Smith sögumar Menn með mönnum og
Englar gráta. Fálkanum fylgir kort af
sögustöðum bókanna þriggja.
550 bls.
ísafold.
Verð: 2300 kr.
ANTTI TULM
VETRAR
STRÍÐIÐ
• • - -
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaxáds 1985
VETRARSTRÍÐIÐ
Antti Tuuri
Þýðing: Njörður P. Njarðvík
Bókin segir frá því hvernig óbreyttur
hermaður upplifir veturinn 1939^0 þegar
finnska þjóöin þurfti að verjast innrás
Sovétmanna. Vetrarstríðiö stóð einungis
105 sólarhringa en var mikil orrahríð.
Höfundurinn hlaut bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs 1985 fyrir skáldsöguna
Dagur í Austurbotni sem Setberg gaf út
í íslenskri þýðingu sama ár.
205 bls.
Setberg.
Verð: 2480 kr.
ÁSTKÆR
niUTZER-VmtHAUNlN 1988
ÁSTKÆR
Toni Morrison
Sethe er strokuþræll sem flúið hefur með
bömum sínum undan kvölurum þeirra.
Til að forða dóttur sinni frá því aö hljóta
örlög þrælsins deyðir -hún hana. En
minningin ásækir Sethe alla tíð - minn-
ingin um dótturina sem á sér ekki annað
nafn en það sem letrað er á legstein henn-
ar - Ástkær. Bókin hefur hlotið Pulitzer-
verðlaunin, virtustu bókmenntaverölaun
Bandaríkjanna. Úlfur Hjörvar þýddi.
251 blaðsíða.
Forlagið.
Verð: 2575 kr.
FORSETAFLUGVÉLINNI
RÆNT
Alistair MacLean
Flugvél Bandaríkjaforseta er á leiö til
Washington með sex mestu áhrifamenn
í heimi. Skyndilega hverfur hún af rat-
sjárskjám og finnst aftur á flugi - yfirgef-
in draugavél sem allt í einu breytist í
glóandi eldhnött. Hvað varð af áhöfn og
farþegum? Á bak við þetta bíræfna rán
er slunginn glæpamaður sem þyrstir í
hefnd en jafnvel hann veit ekki um öll
launráö sem bmgguö em á bak við tjöld-
ÁSTOG ÁTÖK
Sigge St^rk
Stúlkur í selkofa úr alfaraieið urðu óttas-
legnar því þær fréttu af smyglarahópi í
nágrenninu. Enn taugaóstyrkari urðu
þær eftir að hundur þeirra fann bakpoka
með miða sem á stóð: „Miðvikudag kl.
ellefu." Hvað átti að gerast þá?
168 bls.
Skuggsjá.
Verð: 1725 kr.
HELTEKini
■ P.D. James
í kirkju í London finnast tvö illa útleíkin
lik, annað af umrenningi en hitt af fyrr-
verandi ráöherra. Lögreglumaðurinn
góðkunni, Adam Dalgliesh, tekur að sér
að rannsaka þetta dularfulla mál. Leit
hans að morðingjanum leiðir hann á
óvæntar slóðir. Spennusaga og mannlif-
slýsing. Álfheiður Kjartansdóttir þýddi.
441 bls.
Mál og menning.
Verð: 2575 kr.
PARADÍSAREYJAN
Victoria Holt
Rómantískar örlagasögur em sérgrein
Victoriu Holt. Annalice, ung kona af góð-
um ættum, flækist inn í ævintýralega
atburðarás sem hafist hefur fyrir hundr-
að árum. Hún yfirgefur heitmann sinn
og ferðast til fjarlægra staða að leita svars
við gátunni en þar fer öömvísi en ætlað
UNG OG
ÁSTFANGIN
UNG OG ÁSTFANGIN
Erling Poulsen
Elísa Holm var 16 ára þegar hún missti
fóður sinn. Móðir hennar giftist aftur.
Nýi maöurinn reyndi meö valdi aö koma
fram viija sínum við Elísu. Hún ákvað
aö flýja að heiman og kynntist þá Tom
Tanning sem er afbrotaunglingur. Þetta
er bók um ungmenni og samskipti þeirra
viö eldri kynslóðina sem áhtur þau of ung
til að elska.
174 bls.
Hörpuútgáfan.
Verö: 1680 kr.
207 bls.
Iðunn.
Verð: 1780 kr.
346 bls.
Vaka-HelgafeU.
Verð: 1680 kr.
DORIS LESSING
DAGBÓK GÓÐRAR
GRANNKONU
Doris Lessing
Þuríöur Baxter þýddi. Jane Somers er
ung kona í ábyrgðarstöðu og hugsar fyrst
og fremst um starf sitt, útlit og frama.
Af tilviljun kynnist hún gamalli konu,
Maudie, og dregur smám saman lærdóm
af lífi hennar, endurmetur eigið lif og
öðlast þroska. Lýsing á sámm tilfmning-
um þess sem er sviptur getu sinni og rétti
tU aö varðveita mannlega reisn.
304 bls.
Forlagið.
Verð: 2175 kr.
Kilja: 975 kr.
JÁRNGRESIÐ
WilUam Kennedy
Aðalpersóna Jámgresisins er fyrmm
hafnaboltaleikari, Francis Phelan að
nafni. Hann hefur í blóma lífsins yfirgef-
ið fjölskyldu sína eftir að hafa ölvaður
misst nýfæddan son sinn á gólfiö með
þeim afleiðingum að barnið dó. í upphafi
sögunnar, sem gerist 1938, er hann kom-
inn aftur á heimaslóðir með vinkonu
sinni, Helenu, sem er róni - eins og hann.
Guðbergur Bergsson þýddi.
233 bls.
Almenna bókafélagið.
Verð: 2237 kr.
1 ^iviujnnKni
PASKVAL DVARTE OG HYSKI
HANS
Camilo José Cela
Þetta er kunnasta bókmenntaverk
spánska rithöfundarins Camilo José Cela
í þýðingu Kristins R. Ólafssonar, út-
varpsmanns á Spáni. Hér á ógæfumaður-
inn Paskval Dvarte í stöðugri baráttu við
umhverfi sitt og eigiö innræti. Persóna
hans birtir okkur ýkta mynd af siöferði
samfélagsins. Útgefm víðar en nokkurt
annað spænskt skáldverk á þessari öld.
150 bls.
Vaka-HelgafeU.
Verð: 2286 kr.
Dnnielle Steel
ÖRLAGA
ÞRÆÐIR
ástarinnar
■N
ÖRLAGAÞRÆÐIR
ÁSTARINNAR
DanieUe Steel
Þýðandi: Skúli Jensson
Bemie Fine þarf að vera á stööugum
þeytingi milU stórborga heimsins vegna
viðskipta. í San Francisco hittir hann
Jane, Utla 5 ára hnátu, og kynnist móður
hennar, Liz. En einmitt þegar hamingjan
og ástin em aUsráðandi í lífi Bernie taka
örlögin í taumana.
208 bls.
Setberg.
Verð: 1785 kr.
FJALLAVIRKIÐ
Desmond Bagley
Þetta er spennusaga sem gerist í Andes-
fiöllunum. Flugstjóri er neyddur tU að
nauðlenda og þeir sem af komast lenda
í átökum við harðsvíraðan bófaflokk sem
stefnir að mannráni. Nokkrir af áhöfn-
inni snúast til varnar en aðrir leggja af
stað að leita hjálpar.
311 bls.
Suðri.
Verð: 1680 kr.
ÖRLAGAÞRÆÐIR
Barbara Cartland
Idona Overton hafði orðið furðu lostin
þegar hún komst að því að faðir hennar
hafði, áður en hann var drepinn i ein-
vígi, tekiö þátt í veðmáli. Og það sem
hann hafði lagt undir var húseign hans,
allt sem í húsinu var - og þar með talin
dóttir hans.
176 bls.
Skuggsjá.
Verð: 1725 kr.
Bmúmkgrásarimm
BRÆÐRALAG ROSARINNAR
David Morrell
Sami höfundur skapaði bardagahetjuna
Rambó. Þessi bók segir frá Saul og Chris
sem em fóstbræður, bardagamenn,
leyniþjónustumenn og launmorðingjar.
Þeir treysta aðeins einum manni, mann-
inum sem þjálfaði þá og breytti þeim í
drápsvélar...
320 bls.
Iðunn.
Verð: 1980 kr.