Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1988, Side 14
30
MIÐVIKUDAGUJl 44. DESEMBER 1988.
Nýjar bækur
AGATHA
CHRISTIE
KtUKKURNAR
Hófundur som á 500 mílliónir aftdáenda
KLUKKURNAR
Agatha Christie
Hercule Poirot veit hvenær morðiö var
framiö. Þaö furðulega viö tímasetning-
una er aö fjórar klukkur fmnast á morö-
staðnum og allar sýna sama tíma, 4.13.
Hvers vegna? í boröstofunni er iögreglu-
foringinn Hardcastle aö yfirheyra vitnin
sem eru blind kona. ungur ritari og veg-
farandi sem átti leið um. Lesendur Agöt-
hu skipta hundruðum milljóna.
'248 bls.
Skjaldborg.
Verð: 1794 kr.
JUAN BENET
ANDRÚMSLOFT GLÆPS
Juan Benet
Guðbergur Bergsson þýddi. A auönum
Spánar hefur verið framiö morö. I nokkr-
ar vikur umtumar atburðurinn lífl
þeirra sem silast áfram í lognmollu hér-
aðsins og lesandinn er leiddur inn í „and-
rúmsloft glæpsins'1, inn í kæfandi and-
rúmsloft valdbeitingar og niðurlægingar
á tímum Francos. Höfundurinn hlaut
helstu bókmenntaverðlaun Spánar, Pla-
neta-verðlaunin, fyrir þessa bók.
160 bls.
Forlagið.
Verö: 1975 kr.
VERÖLD
Aldous Huxley
VERÖLD NÝ OG GÓÐ
Aldous Huxley
Þessi sígilda framtiðarskáldsaga gerist
eftir nokkur hundruö ár. Tæknin er orð-
in æði fullkomin, þegnamir aö vísu
hraustir og glaöir en heilaþvegnir frá
bemsku. Söguhetjan Bernard finnur
„villimann" í amerískum þjóðgarði og
flytur með sér heim þar sem hann verður
að viðundri fyrir að trúa á ást, guð og
fagrar listir. Kristján Oddsson þýddi.
212 bls.
Mál og menning.
Verð: 1975 kr.
ERNEST
HEMINGWAY
VEISLA í FARÁNGRINUM
Ernest Hemingway
Veisla í farángrinum kemur nú út í nýrri
útgáfu. Þetta er skáldverk með minn-
ingablæ, tengt þriöja tug aldarinnar er
Hemingway dvaldist í París en þar var
þá deigla lista og bókmennta. Nóbels-
skáld íslendinga. Halldór Laxness, þýddi
bókina af listfengi.
240 bls.
Vaka-Helgafell.
Verð: 2286 kr.
VOPNASMYGL
OG VALDARÁN
VOPNASMYGL OG
VALDARÁN
Hammond Innes
Ný bók eftir Hammond Innes. Á eynni
Menorcu em vopnasmyglarar og hryðju-
verkamenn farnir að láta til sín taka.
Michael Steele dregst inn í hringiðu at-
burðanna þegar kona hans verður fyrir
hrottalegri árás og sjálfur er hann gmn-
aður um morð. 226 bls.
Iðunn.
Verð: 1680 kr.
Ljóð og leikrit
NÍNA BJÖRK ÁRNADÓTTIR
HVÍTITRÚÐURINN
Nína Björk Ámadóttir
Bókin geymir þrjátiu ljóö þar sem skáld-
konan fjallar á nærfærinn og persónuleg-
an hátt um samband manna og sam-
bandsleysi, hina eilífu baráttu viö óttann
og það óskiljanlega sem býr með hverjum
manni. í heimi óvissunnar grípur hún
minningar um augnabhk Uðins tíma og
leggur þær í ljóð til að kveikja líf og gleði
á ný.
70 blaösíður.
Forlagið.
Verö: 1975 kr.
HVARFBAUGAR
Sigurður A. Magnússon
Úrval úr Ijóðum Sigurðar A. Magnússon-
ar í einu bindi. Bókin gefur heildarmynd
af þróun Sigurðar sem ljóðskálds aUt frá
því hann gaf út sína fyrstu ljóðabók,
Krotað í sand, árið 1958, þar til hann sendi
frá sér í ljósi næsta dags 1978. Skáldiö
sýnir heimsviðburði í nýju ljósi og kann-
ar jafnframt djúp sálarinnar.
182 blaðsíður.
Mál og menning.
Verð: 2375 kr.
UNDIR HÆLUM DANSARA-
Ljóðaþýðingar úr rússnesku
Geir Kristjánsson
Ljóð eftir sum af merkustu skáldum ald-
arinnar. Við kynnumst Pastemak, Maja-
kovski og Akhmatovu. Hér getum við
lesið hið afdrifaríka Ijóð Mandelstams
um Stalin og komumst í tæri við mælsku
Évtúsjenkos og ljóðveröld nóbelsverð-
launahafans Jósefs Brodskís.
Mál og menning.
Verö: 1975 kr.
Kilja: 1575 kr.
ÞORPIÐ
Jón úr Vör
Þorpið var fyrsta safn óbundinna ljóða
sem út kom á íslensku og skipar því sér-
stakan sess í bókmenntasögunni. Jón úr
Vör sækir þar yrkisefni sitt í íslenskum
veruleika. I þessari nýju útgáfu Þorpsins
eru teikningar eftir Kjartan Guðjónsson
listmálara. 67 blaðsíður.
Vaka-Helgafell.
Verð: 1948 kr.
hannes sigfússon
lágt muldur
raUMUNNáR
LÁGTMULDUR
ÞRUMUNNAR
Hannes Sigfússon'
Hannes Sigfússon mddi nýjar brautir í
íslenskri ljóðagerð með ljóðaflokkunum
Dymbilvöku og Imbmdögum. Nú em lið-
in tíu ár frá því hann gaf síðast út bók
með nýjum Ijóðum. í þessari bók yrkir
hann um tímann og ferðalög í ýmsum
myndum, auk þess persónulegri ljóð en
nokkm sinni fyrr.
Mál og menning.
Verð: 1975 kr.
Kilia: 1575 kr.
ískC^ijevíaians
JÖHANN HJÁLMARSSON
Ljóðaþyðiagar
ÍSKOLTILEVÍATANS
Jóhann Hjálmarsson
Ljóðaþýðingar frá ýmsum löndum.
111 bls.
Örlagið.
Verð: 1195.
LILJA
Ey steinn. Ásgrimsson
Gunnar Finnbogason cand. mag. annað-
ist útgáfuna
Lilja mun ort um 1350 af Eysteini Ás-
grímssyni munki. Hún var fyrst prentuð
á Hólum í Vísnabók Guðbrands Þorláks-
sonar 1612, en .nú munu Lilju-útgáfur
vera orðnar sem næst 30. Meginhluti
Lilju er saga heimsins frá sköpun til
dómsdags. Margir þekkja orðtakiö „öll
skáld vildu Lilju kveðiö hafa“.
113 blaðsíður.
Hörpuútgáfan.
Verð: 875 kr.
ÍTREKAÐ
Geirlaugur Magnússon
44 bls.
Norðan niður.
Verð: 880 kr.
Sucinn |kí rJkwijuni
L.)()Msirfii
ANDSTÆÐUR
Ljóöasafn
Sveinn frá Elivogum
Andstæður em safn ljóða og vísna Sveins
frá Elivogum (1889-1945). Þessi ljóð og
vísur gefa glögga mynd af Sveini og við-
horfum hans til lífs, listar og samtíðar-
manna. Sveinn var bjargálna bóndi í
Húnavatns- og Skagafjaröarsýslum á
fyrri hluta þessarar aldar, Hann þótti
mjög minna á Bólu-Hjálmar í kveðskap
sínum.
208 blaðsíöur.
Skuggsjá.
Verð: 2590 kr.
DV
LÝSINGARHÁTTUR
NUTIÐAR
64 bls.
Skák.
Verð: 894 kr.
KVÆÐASAFN og HEIMKYNNI
VIÐ SJÓ
Hannes Pétursson
Fyrir nokkrum ámm gaf Iðunn út
Kvæðasafn Hannesar Péturssonar
skálds. Það hefur verið uppselt um skeið,
en kemur nú í nýrri útgáfu. Ljóðabók
Hannesar, Heimkynni við sjó, kom út
árið 1980 og hefur einnig verið uppseld í
nokkur ár, en er nú endurprentuð. Hann-
es Pétursson leitast í ljóðum sínum við
að lýsa skypjun einstaklingsins and-
spænis hrynjandi náttúmnnar.
Iðunn.
Verð: 3480 kr. og 2480 kr.
Hrafn Gunnlaugsson
REIMLEIKAR
REIMLEIKAR í BIRTUNNI
Hrafn Gunnlaugsson
Ný ljóðabók Hrafns Gunnlaugssonar með
myndverkum Egils Eðvarðssonar. Eins
og á kvikmyndasviði hefur Hrafn mótaö
sér eigin stíl I ljóðagerð. Hann yrkir um
mannlegar ástríður og eigin reynslu á
persónulegan og myndrænan hátt. Ný-
stárleg bók eftir umdeildan listamann.
64 blaðsíður.
Vaka-Helgafell.
Verð: 1898 kr.
Smekkleysa
Verð: 800 kr.