Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1989, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1989, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989. 19 Dansstaðir Abracadabra, Laugavegi Bigfoot sér um tónlistina um helgina. Amadeus, Þórscafé, Brautarholti, sími 23333 Hljómsveitin Aukinn þrýstingtn: leikur fyrir dansi um helgina. Benson sér um fjörið á neðri hæðinni. Ártún, Vagnhöfða 11 Gömlu dansamir fostudagskvöld kl. 21-3 og laugardagskvöld kl. 22-3. Hljómsveitin Danssporið leikur fyrir dansi bæði kvöldin. Broadway, Álfabakka 8, Reykjavík, sími 77500 Leikfélag Reykjávíkur sýnir Mara- þondansinn á fóstudags- og laugar- dagskvöld kl. 20.30. A laugardags- kvöldiö hefst Stjömuball eftir leik- sýningu og er það útvarpsstöðin Stjaman sem stendur fyrir ballinu. Rokkkeppni og fl. Hljómsveitin Brimkló leikur fyrir dansi bæði kvöldin. Húsið opnað fyrir almenn- ing kl. 23.30. Casablanca, Skúlagötu 30 „Hip-hop house acid“ danstónlist fóstudags- og laugardagskvöld. Duus-hús, Fischersundi, sími 14446 Diskótek fóstudags- og laugardags- kvöld. Glæsibær, Álfheimum Hljómsveitin í gegnum tíðina leikur gömlu og nýju dansana fostudags- og laugardagskvöld. Hollywood, Ármúla 5, Reykjavík Söngskemmtimin Gæjar og glanspíur hefur verið færð í nýjan búning, sér- sniðinn að Hollywood, og verður sýn- ing á laugardagskvöld kl. 23.30. Kynning á vinsældalistanum á sunnudagskvöld og þar að auki mæt- ir flokkur dansara úr Gæjum og glanspíum sem tekur, ásamt söngv- aranum Hafsteini Hafsteinssyni, söng- og dansatriði úr þeirri söng- skemmtun. Hótel Borg, Pósthússtræti 10, Reykjavík, simi 11440 Diskótek fóstudags- og laugardags- kvöld. Hótel Esja, Skálafell, Suðurlandsbraut 2, Reykjavik, simi 82200 Dansleikir fostudags- og laugardags- kvöld. Lifandi tónlist. Tískusýningar öll fimmtudagskvöld. Opið frá kl. 19-1. Hótel ísland Rokkskór og bítlahár, sýningar fostu- dags- og laugardagskvöld. Stjómin, hljómsveit Hótel íslands, leikur fyrir dansi á aðalsviði. Á Café Island leikur hljómsveit Guðmundar Steingríms- sonar og í norðursal hótelsins leikur Ragnar Bjamason og hljómsveit. Hótel Saga, Súlnasalur, v/Hagatorg, Reykjavik, sími 20221 Einkasamkvæmi í kvöld. Hljómsveit- in Einsdæmi leikur fyrir dansi á laug- ardagskvöld. Cuba, Borgartúni 32 Diskótek fostudags- og laugardags- kvöld. Aldurstakmark 18 ár. Tunglið og Tunglkjallarinn, Lækjargötu 2, simi 621625 Dansað frá 10-3 um helgina. Heitur jass í kjallaranum frá kl. 12-2. Vetrarbrautin, Brautarholti 20, sími 29098 Opiö um helgina. Zeppelin rokkklúbburinn, Borgartúni 32 Royal Rock, húshljómsveit, leikur fyrir dansi um helgina. ölver, Álfheimum 74, s. 686220 Opiö fimmtudags-, fóstudags-, laugar- dags- og sunnudagskvöld. Sýningum á hinum vinsæla gam- anleik NÖRD, sem hefur verið sýndur í íslensku óperunni við góða aðsókn síðan í haust, er nú að Ijúka. Gríniðjan, sem færir leik- inn upp, fær aöeins húsnæðið til afnota næstu tvær helgar. Það fer því hver aö verða síðastur að sjá gamanleikinn. Sýningar næstsíð- ustu sýningarhelgi verða á föstu- dags- og laugardagskvöld. Á myndinni sjáum við sjálfan Nörd- inn sem Þórhallur Sigurðsson (Laddi) leikur. Hljómsveitin All Arounds kemur beint frá Alpafjöllunum. Akureyri: Alpahátíð í Sjallanum Það verður mikið um dýrðir í Sjallanum á Akureyri tvær næstu helgar en þá fara þar fram „Alpa- hátíðir" á vegum Sjallans, Ferða- skrifstofu Reykjavíkur og Flug- leiða. Hátíðimar verða í kvöld og annaö kvöld og sömu daga um næstu helgi. Svissneski matreiðslumeistarinn Erwin Derungs útbýr „gnægta- hlaðborð" að hætti helstu skíðahót- elanna í Ölpunum. Heitir og kaldir réttir verða á boðstólum, svissne- skir uppáhaldsréttir og margt fleira góðgæti. Hljómsveitin All Arounds, skipuð sprellfjörugum körlum úr Ölpun- um, skemmtir gestum en hljóm- sveitin kemur sérstaklega hingað til lands til þess að skemmta á þess- um hátíðum og gefa þannig fors- mekkinn fyrir þá sem hyggja á Alpaferð af þeirri tónhst sem hljómar á krám og skíðahótelum í Ölpunum. Ýmislegt fleira verður á boðstólum, s.s. sýning af útifatnaði fyrir vetraríþróttafólk, vélsleða- fatnaður verður sýndur og einnig vélsleðar, skíði, skautar og fleira sem tengist vetraríþróttum. Þá verður kynning á vetrarferðum Ferðaskrifstofu Reykjavíkur. Um næstu helgi fá gestir óvænta heimsókn en þá koma fegurðar- drottningar Norðurlanda Fram í Sjallanum, flytja eigin skemmti- dagskrá, sýna fórðun og tísku og koma fram í sundbolum og kvöld- klæðnaði. Alpahátíðinni lýkur ávallt með dansleik þar sem hljóm- sveitin Karakter frá Akureyri leik- ur fyrir dansi. Miðaverð er 2.800 krónur með mat og húsiö er opnað kl. 19.30. Heiti potturmn: Náttúruvemdarfélag Suðvesturlands: Vettvangsferð um Hópsnes og Þor- kötlustaðanes Farið verður í skoðunarferð á vegum Náttúruvemdarfélags Suð- vesturlands á morgun kl. 13.30 frá Oddsbúð, björgunarskýli austan við höfnina í Grindavík. Gengið verður út Hópsnesið og inn með Þorkötlustaðanesinu og tjl baka að Oddsbúð. Hugað verður, undir leiðsögn náttúrufræðinga og staðfróðra manna, að botnþörungum, botn- dýrum, fjörufiskum, fiskseiðum og vetrarfuglum og náttúru og mann- vistarsögu svæðisins og bent á ör- nefni. Þá verður kannað hvemig gasolían úr fraktskipinu Marianne Danielsen dreifist. í Sjómannastofunni Vör verða stuttar umræður kl. 16. Þar veröur fiaUað um það sem fyrir augu bar í vettvangsferðinni og svarað spurningum. Á sunnudagsmorgun kl. 10 verð- ur lagt í gönguferð umhverfis Bessastaðanes. Lagt verður af stað frá Bessastaðakirkju og gengið út á Skansinn með Seilunni og austur með ströndinni til baka að Bessa- staðakirkju. Takiö bömin með. Til- gangur ferðarinnar er að kynna skemmtilega gönguleið með óvenjulegu útsýni en auk fróðleiks um Bessastaöanes munu þátttak- endur njóta hressandi útivem og ánægjulegrar samveru. Venjulega taka vettvangsferðim- ar og stuttu gönguferöimar um einn og hálfan tíma. Öllum er heimil þátttaka í ferðum félagsins. Þátttökugjald er ekkert í ofan- greindum ferðum. Skriðjöklar norðan af Akureyri munu heimsækja höfuðborgina um helg- ina og leika í Þórscafé í kvöld og annað kvöld. Skriðjöklar eru kunnir af að geta skemmt danshúsgestum af miklu fjöri og leik og vafalaust munu þeir hafa eitthvað nýtt í pokahorninu fyrir gesti helgarinnar í Þórcafé. Friðrik Theódórsson ásamt Agli B. Hreinssyni, Tómasi R. Einarssyni, Davíð Guðmundssyni og Guðmundi R. Einarssyni er þeir léku síðast í Heita pottinum. Að venju verður djassað á sunnudagskvöld í Heita pottinum í Duus húsi. Heiti potturinn, sem er á öðm ári, er vettvangur unnenda sveiflunnar og þeirra tónlistar- manna sem öðm fremur vilja leika djass. Á sunnudagskvöld mun Friðrik Theódórsson stjóma sveit sinni sem skipuð er valinkunnum hljóð- færaleikurum. Munu þeir leika djass af gamla skólanum, klassíska standarda og önnur stef sem láta ættu kunnuglega í eyrum áhorf- enda. Friðrik Theó- dórsson og félagar ‘

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.