Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.1989, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 1989.
29
listasmiðja Bókasafns Kópavogs:
Steinn og stál
I Listastofu Bókasafns Kópavogs
stendur nú yfir sýning á verkum eft-
ir Grím M. Steindórsson er ber heitið
Steinn og stál. Á sýningunni eru tutt-
ugu verk sem unnin eru á síðustu
tveimur árum og hafa ekki áður
komið fyrir almenningssjónir. Þau
eru úr stáh og steini, bæði vegg- og
standmyndir.
Grímur M. Steindórsson hefur
fengist við myndlist frá unga aldri.
Hann fæddist 25. maí 1925 í Vest-
mannaeyjum en býr nú í Kópavogi
þar sem hann hefur verið síðastliðin
þijátíu ár. Grýnur sótti námskeið í
Myndhstarskóla Reykjavíkur og hef-
ur meðal annars notið handleiðslu
Ásmundar Sveinssonar, Kjartans
Guðjónssonar og Þorvaldar Skúla-
sonar.
Hann hefur tekið þátt í mörgum
sýningum, síðast með Myndhöggv-
arafélagi Reykjavíkur að Kjarvals-
stöðum 1987. Grímur hefur fengið
viðurkenningar fyrir verk sín og
unnið í samkeppnum um hstaverk.
Eitt verka Gríms M. Steindórssonar
á sýningunni Steinn og stál.
Kjarvalsstaðir:
Halldór Ásgeirsson
sýnir í austursal
Á morgun kl. 16.30 mun Halldór
Ásgeirsson opna myndhstarsýningu
Halldór Ásgeirsson.
í austursal og á gangi Kjarvalsstaða.
Myndhst Hahdórs byggist á sjón-
rænu hugarflæði sem hann skráir
ósjálfrátt niður. Efniviðurinn er tek-
inn úr umhverfi og lífsreynslu hsta-
mannsins hverju sinni og eru meðal
annars ferðalög ríkur þáttur í hinni
sjónrænu upplifun, hvort sem auga
og penni ferðast um óbyggðir íslands
eða sigla upp ána NO.
Þegar kemur að úrvinnslu hug-
myndanna staldrar Halldór við,
ígrundar efni og form gaumgæfilega
þar th teikningamar, sem hann
skeytir saman á óhkan hátt, faha inn
í efnið. Verkin eru máluð á pappír
eða léreft, skorin út eða höggvin í
tré. Þar finnast bein og sviðin hurð,
svart flauel, brotið gler o.fl. Sum
myndverkin eru samsett úr ólíkum
efnum og spanna bæöi vegg og gólf.
Hahdór Ásgeirsson er fæddur 1956
og nam myndhst við Parísarháskóla
nr. 8 á árunum 1977-80 og 1983-86.
Þetta er sjötta einkasýning Hahdórs
á íslandi en hann hefur sýnt og starf-
að að myndhst undanfarin ár bæði
heima og erlendis.
Tvær sýningar verða hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Iðnó um helgina á
Sveitasinfóníunni eftir Ragnar Arndals. Sú fyrri í kvöld og siðari á sunnu-
daginn. Góð aðsókn hefur verið að sýningunni og gerður að henni
góður rómur. Þá verður sýning á Sjang-Eng á laugardagskvöld. Á
myndinni er Örn Árnason í hlutverki sínu í Sveitasinfónían
Ævintýri Hoffmanns er viðamesta verkefni Þjóðleikhússins á þessum vetri.
Þjóðleikhúsið:
Ævintýri Hoffmanns
Brösuglega hefur gengið að halda
úti sýningum á Ævintýrum Hoff-
mans. Hefur orðið að fresta sýning-
um hvað eftir annað vegna ófyrirsjá-
anlegra orsaka. Sýningar hófust aft-
ur um síðustu helgi og verða næstu
sýningar í kvöld, laugardag og
sunnudag. Aukasýningum hefur
veriö bætt við sýningarskrána vegna
ahra þeirra sýninga sem fella hefur
þurft niður.
Ein breyting hefur orðið. Kristinn
Sigmundsson hefur tekið við hlut-
verki Lindorfs leyndarráðs í stað
Guðjóns Óskarssonar sem farinn er
til útlanda. Kristinn syngur jafn-
framt þrjú önnur einsöngshlutverk,
Coppehus í 1. þætti, Dapertutto í 2.
þætti og Doktor Miracle í þeim
þriðja.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Dagferðir sunnudaginn 29. jan.:
1. kl. 13: Skiðaganga í Bláfjöllum.
2. Kl. 13: Lambafell - Lambafellshnúk-
ur, gönguferð.
í skíðagönguferðinni verður ekið að þjón-
ustumiðstöðinni í BláfjöUum og gengið
þaöan en gönguhópurinn ekur áfram í
Þrengslin og þar hefst ganga. Verð kr.
600. Brottfór frá Umferðarmiðstöðinni,
austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir
böm aö 15 ára aldri. Ferðaáætlun fyrir
árið 1989 er komin út. Næsta mynda-
kvöld Ferðafélagsins verður í Sóknar-
salnum miðvikudaginn 8. febrúar.
Útivistarferðir
Þorrablótsferð í Skóga 27.-29. jan.
Gist í nýju félagsheimili. Fjölbreyttar
göngu- og skoðunarferðir undir EvjafjöU-
um og í Mýrdal. Sundlaug í nágrennini*
Byggðasafnið skoðað. Þorrablót Útivistar
og kvöldvaka á laugardagskvöldinu. Far-
arstjórar: Kristján M. Baldursson og Lo-
vísa Christiansen sem jafnframt er
veislustjóri þorrablótsins. Nokkur sæti
laus vegna forfaUa. Uppl. og farm. á
skrifst., Grófinni 1, símar 14606 og 23732.
Sunnudagsferð 29. jan. kl. 13.
Gömul verleið: Hraunssandur Þór-
kötlustaðanes - Hópsnes. Gengið með
ströndinni að austan til Grindavíkur.
SkemmtUeg leið. Óvenjumikið fuglalíf.
Komið við hjá strandstað danska flutn-
ingaskipsins. Verð 900 kr. frítt f. böm
m. fuUorðnum. Brottfor frá BSÍ, bensín-
sölu. Gullfossferð er frestað þar tíl klaki
er kominn á fossinn. Munið árshátíð Úti-
vistar 18. febr. í Skíöaskálanum í Hvera-
dölum.
Tilkyimingar
Kvennalistinn
Opið hús laugardaginn 28. janúar. Dag-
skrá frá kl. 11. Sigríður Dúna Krist-
mundsdóttir talar um hugmyndafræði.
Allir velkomnir.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, laugardag-
inn 28. janúar. Lagt af stað frá Digranes-
vegi 12 kl. 10. Hvort sem er á stjörnubjört-
um morgni á þorra eða í vetrarham er
jafngott að hittast á góðravinafundi á
Digranesvegimun og drekka saman ný-
lagað molakaffi og rölta síðan um bæirrn.
Laugardagsgangan er fyrir aUa, unga og
eldri.
Húnvetningafélagið
SpUað verður á morgun, laugardag, kl.
14 í Húnabúð, Skeifunni 17. AUir vel-
komnir. Árshátið félagsins verður í
Glæsibæ 4. febrúar.
Neskirkja-félags-
starf aldraðra
Samvemstund verður á morgun, laugar-
dag, kl. 15 í safnaðarsal kirkjunnar.
Þorramatur. Gestur er Ámi Bjömsson
þjóðháttafræðingur.
í Mokkakaffi,
Skólavörðustíg
sýnir Guðmundiu Thoroddsen vatnshta-
myndir. Sýningin ber nafnið Einlýsingar
eftir einni myndröðinni. Sýningin er opin
virka daga kl. 16-20 og um helgar kl. 14-20
og stendur hún tU 29. janúar. Þetta er
áttnnda einkasýning Guðmundar.
Myntsafn Seðlabanka
og Þjóðminjasafns,
Einholti 4
er opiö á sunnudögum kl. 14-16.
Norræna húsið
v/Hringbraut
Víkingar í Jórvik og vesturvegi nefnist
sýning í Norræna húsinu og Þjóðminja-
safninu. Þetta er fyrsta stóra vikingasýn-
ingin sem haldin er á íslandi. MikiU hluti
sýningarefnisins kemur frá Jórvfk eða
York á Englandi. Sýningin í Norræna
húsinu byggist á gripum frá Jórvík. Hún
stendur til 3. aprU. Þá verður opnuð á
morgun sýningin Börn norðursins (ChU-
dren of the North). Er þama um að ræða
sýningu á myndskreytingum úr norræn-
um bamabókum.
Nýhöfn,
Hafnarstræti 18
Kristín Þorkelsdóttir sýnir verk sín í
Ustasalnum Nýhöfn. Á sýningunni, sem
ber yfirskriftina Birta, em vatnshta-
myndir málaðar á ámnum 1987-88.
Myndir sínar málar Kristin úti í náttúr-
unni í öUum veðrum. Þetta er fjórða
einkasýning Kristínar en hún hefur einn-
ig tekið þátt í fjölda samsýnmga. Sýning-
in, sem er sölusýning, er opin virka daga
kl. 10-18 og um helgar kl. 14-18. Henni
lýkur 8. febrúar.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Stofnunar Áma Magn-
ússonar er í Ámagarði við Suðurgötu á
þriðjudögum, fimmtudögum og laugar-
dögum kl. 14-16.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8,
Hafnarfiröi
Opiö laugardaga og sunnudaga kl. 14-18.
Vinnustofa Ríkeyjar,
Hverfisgötu
Til sýnis og sölu postuhnslágmyndir,
málverk og ýmsir htlir hlutir. Opið á
verslunartima þriöjudaga, miðvikudaga,
fimmtudaga og fóstudaga og á laugardög-
um kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga kl. 11-16. Sýningin
Víkingar í Jórvík og vesturvegi stendur
yfir þar.
Myndlistarsýning í SPRON
Sunnudaginn 29. janúar kl. 14-17 mun
verða opnuð myndhstarsýning í Spari-
sjóði Reykjavikur og nágrennis, útibúinu
Aifabakka 14, Breiðholti. Sýnd verða
verk eftir Sigurð Þóri Sigurðsson. Sýn-
ingin verður opin frá mánudegi til
fimmtudags kl. 9.15-16 og föstudaga kl.
9.15-18. Sýningin, sem er sölusýning,
stendur til 31. mars!
Kvikmyndir
Ný sovésk kvikmynd í MÍR
Vegna illviðris og ófærðar varð að fella
niður kvikmyndasýningu í bíósal MÍR,
Vatnsstíg 10, sl. sunnudag. Kvikmyndin,
sem þá átti að sýna, hin umtalaða og
umdeilda sovéska mynd Pisma mjortava
tsjelovéka (Bréf látins manns), verður því
sýnd á sunnudaginn kemur, 29. janúar,
kl. 16. Myndin er með skýringartah á
ensku. Ahir veikomnir meðan húsrúm
leyfir. Aðgangur ókeypis.
Tónleikar
Musica Nova
- ný tónlist fyrir tvö píanó
Sunnudaginn 29. janúar halda píanóleik-
aramir Astmar Ólafsson og Sveinbjörg
Tónleikar í Gerðubergi
Söngfélagar 1 & 8 (einn og átta) syngja í
Gerðubergi í Breiðholti sunnudaginn 29.
janúar nk. kl. 16. Á söngskránni eru
Vilhjálmsdóttir tónleika á vegum Musica
Nova í Norræna húsinu kl. 20.30. Þar
munu þau flytja tuttugustu aldar tónlist
fyrir tvö píanó. Á efnisskránni eru verk
eftir Lennox Berkeley, Benjamin Britten,
Mariko Kabe, Wihem Pijper og nýtt verk
eftir John Speight sem hann samdi sér-
staklega fyrir þau
Orgeltónleikar í
Fríkirkjunni
Nk. sunnudag, 29. janúar, kl. 17 stendur
Listvinafélag Hahgrimskirkju fyrir org-
eltónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Hörður Áskelsson, organisti Hallgríms-
kirkju, leikur íslenska og franska orgel-
tónhst. Þessir tónleikar áttu upphaflega
að vera í Kristskirkju en vegna viðgerða
á orgelinu þar voru þeir fluttir í Fríkirkj-
una. Ahur aðgangseyrir rennur í orgel-
sjóð Hahgrímskirkju. Aðgöngumiðar
verða seldir Við innganginn.
bæði íslensk og erlend lög. Söngstjóri
hópsins er Helgi R. Einarsson, en undir-
leikari Áslaug Bergsteinsdóttir. Miðasala
við innganginn.
Leikhús
Alþýðuleikhúsið
sýnir leikritið Koss kóngulóarkonunnar
á laugardagskvöld kl. 20.30 og sunnudag
kl. 16. Leikrit þetta hefur verið sýnt við
góðar undirtektir síðan í október og er
þetta næstsíðasta sýningarhelgi.
Nemendaleikhúsið
sýnirOg mærin fór í dansinn eftir Debbie
Horsfield á laugardags- og sunnudags-
kvöld kl. 20 í Lindarbæ.
Þjóðleikhúsið
Fjalla-Eyvindur og kona hans sýnd á
stóra sviðinu í kvöld kl. 20.
Ævintýri Hoffmanns, ópera eftir Offen-
bach, sýnd í kvöld, laugardags- og sunnu-
dagskvöld kl. 20.
Óvitar, bamaleikrit eftir Guðrúnu
Helgadóttur, verða frumsýndir á laugar-
dag kl. 14. 2. sýning á sunnudag kl. 14.
Leikfélag Reykjavíkur
Sveitasinfónia eftir Ragnar Amalds.
Sýningar í kvöld og á sunnudagskvöld
kl. 20.30.
Heimsmeistarakeppnin i maraþon-
dansi, söngleikur eftir Ray Herman,
sýndur á Broadway í kvöld og á laugai;-
dagskvöld kl. 20.30. Síðasta sýningar-
helgi.
Gríniðjan hf.
sýnir N.Ö.R.Ð. í Islensku óperunni,
Gamla bíói, á laugardagskvöld kl. 20.30.
Aðeins tvær sýningarhelgar eftir.
Leikfélag Hafnarfjarðar
sýnir gamanleikinn Allt í misgripum í
kvöld og á laugardagskvöldið kl. 20.30.