Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1989, Side 8
8
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1989.
Útlönd
Andrei Sakharov faðmar hér rektor Bofogna háskólans eftir að skólinn
hafði veitt honum heiöursdoktorsnafnbót i stjömufrœði.
Simamynd Reuter
Sovéski mannréttmdafrömuðurinn Andrei Sakharov sakaði í gær Sovét-
ríkin um aö hafa bóið til nýja „samviskufanga" og sagði að stjómvöld í
Kreml yrðu að tryggja jafhrétti til handa fólki af öllu þjóðemi.
Sakharov bað í ræðu, sem hann flutti viö Bologna háskóla 1 gær, um
að armenskir andófsmenn yrðu látnir lausir. Síðar sagði hann viö stúd-
enta að alþjóðlegri baráttu til lausnar samviskufanganna yrði að hrinda
af stað.
„Nú, þegar nær ailir gömlu samviskuíangamir í landi okkar hafa verið
látnir lausir, eru skyndilega komnir nýir,“ sagöi Sakharov eftir aö hann
tók við heiðursdoktorsnafnbót við Bologna háskóla.
Allnokkrir armenskir andófsmenn hafa veriö settir í fangelsi fyrir að
vera í forsvari fyrir baráttu til að fá Nagorno-Karabakh undir stjórn
Armeníu.
Blandað móteffní gegn eydni
Lífefnafræðifyrirtæki í Kaiifomíu tilkynnti í gær að þar hefði tekist aö
þróa blandað mótefhi sem kunni að verða nytsamlegt við að hamla út-
breiðslu eyöniveirunnar í fólki sem er smitað.
Gentech fyrirtækið tiikynnti að þar hefðu menn tengt saman mólekúl
úr CD4, sem er náttúrulegt eggjahvítuefni sem vísindamenn telja að sé
mikilvægt í baráttunni gegn eyðni, og GP120 sem er veirueggjahvítuefhi.
Árangurinn er að sögn fyrirtækisins sá að hið nýja efni læsir sig viö
eyðniveiruna og kemur í veg fyrir aö hún eyðileggi hvítu bióðkomin sem
eru ómissandi fyrir ónæmiskerfi líkamans.
Fyrirtækiö segir að áframhaldandi þróun geti leitt tii þess aö hægt veröi
að framleiöa lyf sem hægt verði að nota á lflcan hátt og insúlín hjá sykur-
sjúkum. Lyfiö myndi ekki endilega lækna sjúkdóminn heldur aðeins gera
veirnna skaðlausa, að sögn vísindamanna fyrirtækisins.
Kviddómur valimt í dag
Dómarinn i íran-kontramálinu mun í dag láta kviðdómendur í máiinu
sverja eiða sína og verður þá tekið til við réttarhöldin yfir Oliver North,
fyrrum starfsmanni þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna Dómarinn hafiiaði
þeim rökum Bandaríkjastjómar að hætt væri við að ríkisleyndarmál
yrðu gerö opinber. Með þeirri ákvörðun var hrundið úr veginum síðustu
hindruninni á því að hægt væri að seija réttarhöldin af stað.
Erfitt hefur veriö að fá kviðdómendur sem uppfylla þau skilyrði sem
kviðdómendum eru sett. Ástæðan er sú aö kviðdómandi má ekkert vita
um málið og því síður hafa myndað sér skoðun um það áður en réttar-
höldin hefjast. Telja verður ólfklegt að fimdist hafi kviðdómendur í þessu
máli sem uppfylli þessi ströngu skilyrði þar sem bandaríska þjóðin stóð
á öndinni meðan á yfirheyrslum þingsins í þessu máli stóð sumarið 1987.
Þeim yfirheyrslum var sjónvarpað á öllum helstu sjónvarpsstöðvum.
Dómarinn hefhr tilkynnt málsaðilum að þeir geti búist viö að þurfa að
flytja inngangsorð sín í dag.
Ríkissffjómin í vafa um
gikli viðrædna við Samstöðu
Pólska rfkisstjómin hefur varpað
fram spuraingum um hversu skyn-
samlegt það sé að ræða við Samstöðu
um framtíð Póllands eftír að kola-
námumenn, sem eru á bandi Sam-
stöðu, hafa neitaö aö hætta verkfalli
sínu.
Jerzy Urban, talsmaöur sfjómar-
innar, sagöi í gær að verkfallið viö
Belchatow, sem er um eitt hundraö
og fimmtíu kílómetra frá Varsjá,
hefði vakið áhyggjur hjá mönnum
um hvort raunhæfir möguieikar
væru á því að vinna með Samstöðu
að því að finna leiðir til aö koma
Póllandi út úr þeim ógöngum sem
landið er í.
Pólskir kolanámumenn i vericfalli
snæða nesti sitt Fyrir aftan þá
stendur „Verkfall" og „Viö viíjum
peninga en ekk) eymd“.
Slmamynd Routor
bann á Suðnr-Afríku
Landstjómin í Færeyjum ætlar að selja viðskiptabarm á Suður-Afríku
og Namibíu. Er þetta gert vegna þrýstings frá Uffe Elleman- Jensen, utan-
ríkisráðherrá Danmerkur, og einnig hafa Grænlendingar hótað að skerða
fiskveiðikvóta Færeyinga ef þeir setja ekki bann á Suður-Afrfku.
Reuter
DV
Eitt hundrað fjöru-
tíu og fjórir farast
Björgunarmenn bera frá flakinu lik af einum hinna eitt hundrað fjörutíu og
fjögurra farþega sem fórust með bandarískri leiguilugvél er hún flaug á fjall
á Azoreyjum. Simamynd Reuter
Bandarísk farþegavél, sem var að
flytja ítalska ferðamenn í frí til
Karíbahafsins, brotlenti á Azoreyj-
um á Atlantshafi í gærdag. Allir þeir
sem voru um borð, eitt hundrað
fjörutíu og fjórir, fórust, að sögn
embættismanna.
Bandaríska Boeing 707 leiguvélin
rakst á fjallstind, sem var hulinn
mistri, á eyjunni Santa Maria og kom
upp mikill eldur í vélinni er hún
nálgaðist flugvöllinn þar sem hún
hafði ætlað að lenda vegna bilunar.
Vélin var á leið frá Ítalíu til Dóminik-
anska lýðveldisins.
Embættismaður á Azoreyjum, sem
heyra undir Portúgal, sagði við
fréttamann Reuters: „Við erum ekki
hættir leit en kraftur sprengingar-
innar og sá fjöldi af gersamlega lim-
lestum líkum, sem fundist hafa,
bendir til þess að allir hafi farist.“
„Ég sá aðeins eitt heilt lík... hin
voru í tætlum," sagði fréttamaður
Portúgalska ríkisútvarpsins sem fór
á slysstaðinn á fjallinu Pico Alto sem
er fimm hundruð áttatíu og sjö metra
hátt.
Fjórum stundum eftir slysið höfðu
fúndist fimmtíu lík, flest alvarlega
sködduð.
Svo virðist sem slysið hafi orðið
þegar flugmaður vélarinnar reyndi í
annað sinn að koma inn til lendingar.
Viera da Silva, formaður flug-
mannafélags Portúgals, sagði að
flugvöllurinn á eynni væri fullkom-
lega öruggur og að óskiljanlegt væri
hvers vegna vélin hefði verið nálægt
fjallinu.
„Flugbrautin snýr að sjó við báða
enda svo að það er undarlegt að slys-
ið skyldi verða á fjallinu," sagði
hann.
Flugfélagið sem rak vélina er stað-
sett í Smyma, Tennessee. Talsmenn
þess sögðu að allir um borð hefðu
farist.
Reuter
Nýjar ásakanir
á hendur Tower
Steimmn Böðvaradóttir, DV, Washingtan:
Atkvæðagreiðslu um samþykki
vamarmálanefndar Bandaríkja-
þings á útnefningu John Tower í
embætti vamarmálaráðherra hefur
veriö frestaö um að minnsta kosii
tvær vikur í kjölfar nýrra ásakana á
hendur honum, Atkvæðagreiðslunni
var frestað í síðustu viku á meðan
alríkislögregla Bandaríkjanna kann-
aði ásakanir um óreglu og kvennafar
hans. Fyrr í þessari viku komu nýjar
ásakanir upp á yfirborðið, í þetta
sinn varða þær fiármál Towers er
hann átti sæti í öldungadeildinni.
Opinberlega hefur ekki verið skýrt
frá því í hverju þessar nýju ásakanir
felast en ljóst þykir að þær varða að
einhverju leyti fiármál Towers á ár-
•unum 1981 til 1986. CBS sjónvarps-
stöðin skýrði frá því í gær að nafn
Towers hefði komið upp í yfirstand-
andi rannsókn alríkislögreglunnar á
fiármálahneyksli innan varnarmála-
ráðuneytisins. Aðrir fiölmiðlar hafa
nefnt að um sé að ræða vafasöm
framlög í kosningasjóö Towers er
hann átti sæti í vamarmálanefnd
öldungadeildarinnar.
Eins og stendur vita fáir um hvað
þessar ásakanir snúast. En ljóst er
að þær þykja nógu alvarlegar til að
útnefning Towers telst nú tvísýnni
en áður.
Tower hefur verið umdeildur frá
því að hann var útnefndur sem vam-
armálaráðherra um miðjan desemb-
ermánuð síðastliðinn. Ásakanir um
áfengisvandamál, kvennafar og
hugsanalega hagsmunaárekstra hafa
staðið í vegi fyrir atkvæðagreiðslu
þingsins um staðfestingu á útnefn-
ingunni. Tower starfaði um rúmlega
tveggja ára skeið sem ráðunautur
helstu hergagnafyrirtækja Banda-
ríkjanna sem eiga mikil viðskipti við
varnarmálaráðuneytið. Margir telja
að sökum þessa sé hætta á hags-
munaárekstrum.
En það er einkalíf Towers sem virð-
ist einna helst koma 1 veg fyrir sam-
þykki vamarmálanefndarinnar.
Ásakanir um óhóflega áfengisneyslu
uröu þess valdandi að Sam Nunn,
formaður nefndarinnar, spurði Tow-
er við yfirheyrslumar yfir honum
nýverið hvort hann ætti við áfengis-
vandamál aö stríða. Svar Towers,
sem var neitandi, virðist ekki hafa
sannfært Nunn. Formaðurinn sagði
að hann hefði áhyggjur af þessum
ásökunum og sæi sér ekki fært að
styðja útnefningu Towers fyrr en
ljóst væri að þær ættu ekki við rök
að styðjast.
Bush Bandaríkjaforseti kveðst enn
styðja ráðherraefni sitt. En margir,
sér í lagi demókratar, telja að rétt sé
af Tower að draga sig í hlé. Þeir segja
að þó að nafn hans verði hreinsað
af öllum ásökunum verði erfitt fyrir
hann að starfa sem virkur vamar-
málaráöherra.
Töfin á útnefningu Towers hefur
þegar haft erfiðleika í för með sér.
Hálfgert ófremdarástand ríkir í
vamarmálaráðuneytinu þar sem
ákvörðunum um mörg mikilvæg
málefni hefur þegar verið frestað.
Einn embættismaður sagði í viðtali
við Washington Post að starfsemi
ráðuneytisins væri í ládeyðu. Hafni
þingið útnefningu Towers, sagöi
annar, getur töfin, sem óhjákvæmi-
lega fylgir leitun á nýju ráðherra-
efni, haft alvarlegar afleiðingar.