Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1989, Side 9
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1989.
9
Utlönd
Hertar árásir
á Kabúl
Sjö manns biðu bana í eldflaugaár-
ás sem gerð var á miðborg Kabúl í
gær. Skæruliðar hafa nú hert mjög
baráttu sína til að tefja fyrir brott-
flutningi sovéskra hermanna frá
Afganistan en brottflutningi á að
vera lokiö á miðvikudag í næstu
viku.
Eldflaugin sprakk í hópi fólks sem
var í biöröð að bíða eftir hveiti og
matarolíu frá dreifingarmiðstöð.
Afganska sjónvarpiö sakaði skæru-
liða, sem reyna nú að bola stjóm
Najibullah forseta frá, um að bera
ábyrgð á eldflaugaárásinni.
Þetta var fyrsta meiri háttar eld-
flaugaárásin í borginni eftir rólegt
timabil en að undanfömu hefur verið
mun minna um skotbardaga og stór-
skotahðsárásir í borghuú en vepju-
legt er.
Sovéska fréttastofan Tass sagði í
gær að skæruliðar hefðu gert árásir
á varðstöðvar meðfram tveimur veg-
um út úr Afganistan þar sem sov-
éskir hermenn em í óða önn að víkja
fyrir afgönskum félögum sínum.
Reuter
Lurie telur að brottför Sovétmanna frá Afganistan eigi eftir að verða
þeim erfiðari en þá grunar.
Niðurskurður
áþorskkvðta
staðfestur
Ágúst Hjörtur, DV, Ottawa:
Sjávarútvegsráðherra Kanada,
Tom Siddon, staðfesti í gær að
heildarkvóti Labradorþorskstofns-
ins yrði skorinn niður um 31 þús-
und tonn á þessu ári. í fréttatil-
kynningu frá sjávarútvegsráðu-
neytinu kemur fram að skipting
þorskkvótans milli einstakra fyrir-
tækja liggur ekki enn fyrir. Þó er
skýrt tekið fram að kvóti báta und-
ir 30 metrum að lengd verður ekki
skertur frá því sem ákveðið hafði
verið. Hann verður 115 þúsund
tonn en þess ber að geta að síðustu
ár hefur bátaflotinn ekki veitt full-
an kvóta.
Niðurskurður þessi mun að öll-
um líkindum koma harðast niður
á Fishery Products Intemational,
stærsta fiskvinnslufyrirtæki Ný-
fundnalands. Undanfarin ár hefur
það fengið úthlutað um 75 prósent
af þeim kvóta sem úthlutað hefur
verið til togaraflotans. Þá mun
kvótaskerðingin einnig koma illa
við National Sea Products Limited
sem einnig hefur fengið úthlutað
úr þessum kvóta.
Óánægðir
Stórfyrirtækin tvö mega þó að
einhverju leyti vel við una þar sem
skerðingin er einungis brot af því
sem ráðgjafarnefnd fiskifræðinga á
Atlantshafssvæðinu lagði til. Út-
gerðarmenn og sjómenn á smærri
fiskiskipum eru á hinn bóginn
mjög óánægðir með ákvörðun ráö-
herrans. Um nokkurra ára skeið
hafa þeir kvartað yfir því að aukn-
ar togveiðar á djúpmiðum væm að
þurrka upp þeirra eigin þorskmið.
Afli smábátanna fór stöðugt
minnkandi frá 1982 til 1986 þegar
hann var aðeins 72 þúsund tonn. Á
sama tíma jókst togaraafli úr 117
þúsund í 179 þúsund tonn. Síðustu
tvö árin hefur þó aðeins rofaö til
og afli smábátanna var á siðasta
ári 102 þúsund tonn.
Að sögn Toms Siddon var ákvörð-
unin um minnkun kvótans nvjög
erfið. Annars vegar mæltu fiski-
fræðingar með því að hann yrði
skorinn niður um helming. Hins
vegar ylti afkoma mörg þúsund
Nýfundnalendinga á því hversu
mikið þeim væri heimilt að veiða
úr þessum stofni. En þrátt fyrir að
skerðingin sé mun minni en fiski-
fræðingar mæltu með þykir næsta
víst að nokkur hundmð manns
missi vinnuna á þessu ári vegna
þessa. .
Skýringar
í skýrslu ráðgjafanefndar fiski-
fræðinga á Atlantshafssvæðinu,
sem gerð var opinber í gær, em
gefnar nokkrar samverkandi skýr-
ingar á því hvers vegna Labrador-
þorskstofninn er nú áætlaður mun
minni en fyrri spár höfðu gert ráð
fyrir. Aðalskýringin felst í nýjum
og nákvæmari gögnum sem aflað
hefur verið síðustu tvö árin. Sam-
kvæmt þessum nýju gögnum hafa
Kanadamenn veitt mun stærri
hluta Labradorstofnsins á hverju
ári en áður var áætlað og talið er
æskilegt. Frá 1984 hafa ákvarðanir
um kvótastærð miðast við að veiða
um það bil 16 prósent af heildar-
stofninum á hverju ári. Síðustu tvö
til þijú árin hefur raunveruleg
veiði hins vegar nálgast það að vera
um 30 prósent af heildarstofninum.
Afleiðing þessa hefur verið sú að í
stað þess að vaxa um 10 til 15 pró-
sent á ári hefur Labradorþorsk-
stofninn í raun minnkað úr 1,2
milljónum tonna árið 1984 í um
milljón tonn á síðasta ári.
Nefnd
Séu þessar nýju áætlanir um
stofnstærðina réttar verða veiðar í
ár um 25 prósent af heildarstofnin-
um sem er mun meira en fiskifræð-
ingar telja ráðlegt. Hins vegar segir
í fréttatilkynningu ráðuneytisins
að þessi minnkun á kvóta Labrad-
orstofnsins í 135 þúsund tonn
„muni tryggja að stofnstærðin
haldist óbreytt.“
Tom Siddon tilkynnti einnig í gær
að hann hefði skipaö nýja nefnd
sem ætlaö væri það hlutverk aö
endurskoða öll gögn sem varða
stofnstærðamælingar á Atlants-
hafssvæðinu og endurmeta þær
aðferðir sem notaðar eru við mæl-
ingamar. Nefndin verður ekki ein-
ungis skipuð fiskifræðingum frá
Kanada heldur hafa fiskifræðingar
frá öðrum löndum verið beðnir um
að taka sæti í nefndinni.
Sendum í póstkröfu
»hummel^
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40, Reykjavík, sími 83555
Eiöistorgi 11,2. h., Seltj., sími 611055
r
ISHOKKI VORUR
í ÚRVALI
Kylfur,................kr.
Hanskar................kr.
Brynjur................kr.
Olnbogahlífar..........kr.
Hnéhlífar.............. kr
Hjálmar................kr.
Buxur m/st.............kr.
Pekkir.................kr,
Peysur m/st............kr.
Tjörulímband...........kr,
Sokkalímband...........kr,
Reimar.................kr.
650
-1.950.
4.550.
1.990.
1.550.
.1.990.
1.090.
2.750.
50.
2.800.
300.
300.
240.
ATH. mjög hagstætt verð!
(greiðslukjör á heilum hokkísettum)
Listskautar
á börn og fullorðna
- konur - karla.
Verð frá kr. 2.680.-
Sendum um allt
póstkröfu
land
Hokkískautar
Verð frá kr. 2.370.-
STÖÐIN
v/Leiruveg, sími 96-21440,
Akureyri.