Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1989, Side 6
30
FÖSTUDAGUR 17. FEBROAR 1989.
Kvikmyndir - Kvikmyndir
Laugarásbíó:
Skálmöld
Á laugardaginn frumsýnir Laug-
arásbíó sænsku kvikmyndina
Skálmöld (Vargens tid) sem leik-
stýrt er af hinum þekkta sænska
leikara Hans Alfredson. Og i einu
aöalhlutverkinu er okkar ágæti
leikari Gunnar Eyjólfsson. Myndin
er raunsönn lýsing á afstöðu aðals-
manna og alþýðu til rótlausra sí-
gauna á 16. öld.
Hlutskipti þessa fólks var hvar-
vetna það sama í Evrópu. Viö og
við var það ofsótt og hundelt eins
og gyðingar hafa yeriö um aldirn-
ar. Á stundum þótti það réttdræpt,
hvar sem þaö fannst. Sá sem lét það
undir höfuð leggjast meðal Svía var
jafnvel réttdræpur sjálfur. Hér er
því um fróðlega aldarfarslýsingu
að ræða.
Myndin fjallar um ungan aðals-
mann, Inga, sem leitar tvíbura-
bróður síns, Arilds, er horfið hefur
að heiman. Við leitina rekst hann
á hóp sígauna undir forustu Horats
(Gunnar Eyjólfsson). Þar er honum
vel fagnað því sígaunarnir halda
að þar sé Arild kominn, en hann
hafði verið með þeim um tíma en
horfið nokkru áður...
Hér er um mynd að ræða sem
tekin er í margvíslegu umhverfi,
hrikalegu jafnt sem fögru, sem sí-
gaunarnir fara um á flótta undan
fjendum sínum. Þó ekki væri ann-
að gefur það söguþræðinum sér-
stakt myndrænt gildi.
Svíar tefla fram mörgum góðum
leikurum, svo sem Gösta Ekman,
Stellan Skarsgard, Lill Lindfors,
Benny Haag og Melinda Kinneman.
-HK
Jeff Bridges tekst vel upp i hlutverki Tuckers sem lét draum sinn rætast.
Eitt aðalhlutverkið í Skálmöld leikur Lill Lindfors en hún er vinsæl söngkona auk þess að vera ieikkona.
Bíóborgin:
Tucker
Bíóborgin hefur nýhafið sýning-
ar á nýjustu kvikmynd Francis
Ford Coppola, Tucker, sem alls
staðar hefur fengið frábærar við-
tökur og þykir Coppola vera í góðu
formi.
Myndin íjallar um bílasmiðinn
Preston Tucker sem kom með
margar nýjungar í bílaiðnaðinum
á fimmta áratugnum en stóru bíla-
framleiðendurnir voru ekki hrifnir
af framtakssemi hans og talið er
að þeir hafi gert það að verkum að
fyrirtæki hans fór á hausinn.
Jeff Bridges leikur Tucker. Tekst
honum mjög vel upp og er sam-
dóma álit manna að þessi geðugi
leikari hafi ekki áður gert betur.
Tucker er kvikmyndi sem óhætt
er að mæla með; sterk kvikmynd
um mann er átti sér draum sem
rættist en varð síðan fyrir árásum
öfundarmanna.
-HK
Frá sýningu á nýja bílnum í Tucker. Jeff Bridges í hlutverk Tuckers situr á brettinum ásamt Joan Alien.
Stjömubíó:
á meðan þú getur
Öskraðu
Stjömubíó sýnir um þessar
mundir hryllingsmyndina
Öskraðu á meðan þú getur (The
Blob) sem gerist í friðsælum
smábæ í Bandaríkjunum.
Skyndilega fara ungir sem aldnir
að hverfa á dularfullan hátt.
Óþekktur óvættur ofsækir bæj-
arbúa og enginn fær rönd við reist.
Aðalhlutverkin leika Kevin Dill-
on, Shawnee Smith, Donovan
Leitch og Joe Seneca. Leikstjóri er
Chuck Russell og brellumeistari
Hoyt Yeatman. Ef brellurnar eru
eitthvað í líkingu við þær sem Yeat-
man á að baki - en hann stjórnaði
þess konar atriðum í Nightmare on
Elm Street, The Fly og Indiana Jo-
nes and the Temple of Doom - þá
er von á góðu fyrir þá sem unna
hryllingsmyndum.
Þess má geta að þessi mynd er
endurgerð kvimyndar sem bar
sama nafn og var gerð 1958. Sú
mynd er merkileg að mörgu leyti
en kannski aðallega vegna þess að
það var fyrsta kvikmyndin sem
Steve McQueen lék í.
-HK
Shawnee Smith og Kevin Dillon leika aðalhlutverkin í The Blob.
Jack Warden og Elaine Stritch i hlutverkum sinum í September.
Regnboginn:
September
Woody Allen er afkastamikill
leikstjóri og er September hans
næstsíðasta mynd og önnur tveggja
sem hann sendi frá sér á síðasta
ári. í September íjallar Allen um
þrjú óhamingjusöm pör sem eru
að yfirgefa sveitahús þar sem þau
hafa eytt sumrinu.
Vonleysi og stormasöm sambönd
ásamt rómantík einkenna þessa
kvikmynd Allens eins og svo marg-
ar aðrar. Alvaran er blönduð gam-
ansemi sem er einkennandi fyrir
„gamanmyndir" Allens og fólkið,
sem Allen fjallar um, er fólkið á
götunni, persónur sem allir kann-
ast við.
September, sem kannski hefur
ekki fengið alveg jafngóðar við-
tökur gagnrýnenda og fyrri myndir
Allens, hefur innanborðs úrvals
leikara með sambýhskonu Allens,
Miu Farrow, í broddi fylkingar.
Aðrir leikarar eru Sam Waterston,
Elaine Stritch, Dianne Wiest, Den-
holm Elliott og Jack Warden, allt
þekktir leikarar og hafa Sam Wat-
erston og Diane Wiest leikið í
nokkrum myndum Allens áður.
-HK