Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1989, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1989, Blaðsíða 8
32 FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1989. Mynd- j bönd Umsjón: Sigurður M. Jónsson Hilmar Karlssoni ^ ]l Það verða engar breytingar á tveim- ur efstu sætunum á listanum þessa vikuna. Wall Street og Fatal Attrac- tion eru öruggar þar en sakamála- mynd Roman Polanski á eftir að þrýsta á þær næstu viku. Hún stekk- ur úr tíunda sæti í það þriðja. Ann- ars er tiltölulega rólegt yfir listanum. Á óvart kemur að Baby Boom hækk- ar sig á ný. Aðeins eins ný mynd kemur inn á listann. Það er úrvals- myndin Cry Freedom sem fjallar um ástand mála í Suður-Afríku og segir sögu Stephen Biko sem lést í fangelsi þar og blaðamanns sem fylgdist með honum og skrifaöi sögu hans. Út fór DV-LISTINN 1. (1) Wall Street 2. (2) Fatal Attraction 3. (10) Frantic 4. (7) Baby Boom 5. (4) Vice Verca 6. (5) Colours 7. (4) Moonstruck 8. (9) Suspect 9. (8) Three Men and a Baby 10. (-) Cry Freedom sakamálamyndin Shakedown eftir langa veru á listanum. Skyndikraftur SUDDEN IMPACT Útgefandi: Steinar Leikstjóri og framleiðandi: Clint East- wood. Handrit: Joseph C. Stinson. Aðal- hlutverk: Clint Eastwood og Sondra Locke. Bandarísk, 1983.113 mín. Bönnuð yngri en 16 ára. Harðjaxlinn Clint Eastwood fer hér ekki langt út af hinni beinu braut sem hann hefur ákveðið að láta hetju sína, Dirty Harry, feta. Það er í sjálfu sér skiljanleg af- staða. Skítugi-Harry hefur oröið honum góð tekjulind og þar að auki ágæt málpípa fyrir hægri sinnaðar skoðanir Eastwoods. Um tíma virt- hættulegum glæpamönnum út á ist hann stefna til póhtísks frama götumar. Um leið bregst það skyld- en heldur hefur hægst á kappanum um sínum gagnvart borgurunum eftiraðhannhættisembæjarstjóri. sem verða að reiða sig á Harry og Skítugi-Harry hefur einfaldar Smith & Wesson. hugmyndir um það hvemig eigi að Því er ekki að neita að myndir glíma við glæpamenn. En auk þess Eastwoods hafa yfir sér mikinn að koma þeim í framkvæmd þarf kraft og einfalda og skýra frásagn- hann að eiga við hægfara skrif- artækni. Því eru þær oft á tíðum stofublækur og „misheppnaö" rétt- sérlega ánægjulegar fyrir unnend- arkerfi. Hvað eftir annað tjáir ur átakamynda þó að um boðskap- Harry sig um réttarfarið sem gerir inn megi efast. ekkert annað en að sleppa stór- -SMJ í röngu umhverfi OUTLAW OF GOR Útgefandi: Bergvik. Leikstjóri: John „Bud“ Cardos. Aðalhlutverk: Urbano Barberini, Rebec- ca Ferratti og Jack Palance. Bandarisk, 1987 - Sýningartími 86 mín. Outlaw of Gor er framhald kvik- myndar er bar nafnið Gor. Ekki þótti sú mynd burðug og ekki bæt- ir nýrri myndin úr. Framleiðandi Outlaw of Gor er Cannon-fyrirtæk- ið sem virðist vera lagst í gerð ódýrra mynda sem gerðar eru á nokkrum vikum og til þess ætlaðar að fara beint á myndbandamarkað- inn. Gor er pláneta þar sem lífinu svipar mest til þess tíma sem við köllum fornaldir. Aðalpersónan er Cabot sem er kennari í nútímaþjóð- félagi á jörðinni. Hann ber hring einn mikinn og er hringur sá gædd- ur þeim krafti að hægt er að kaila á Cabot út úr nútímaþjóðfélaginu og inn í fomöldina á Gor þegar mikið liggur við. Þar er hann þekktur sem frelsari borgarinnar Ko-Ro-Ba og þar bíður hans prins- essan fagra, Talena... Söguþráður sem þessi getur verið í góðu lagi í ævintýramynd sem ætluð er til afþreyingar en þegar jafnklaufalega er staðið að öllu og hér er er gamanið grátt. Greinilegt er að allt á að vera sem ódýrast og leikarar ekki valdir eftir getu heldur því hversu ódýrir þeir eru. Undanskilin er Jack Palance sem ávallt er gaman að sjá þótt hlutverkið gefi ekki tilefni til átaka. Það er helst að hægt sé að mæla með Outlaw of Gor fyrir drengi sem hafa gaman af skylmingum og öðr- um hasar og láta sig litlu varða tæknigalla og söguskort. „i.,. Kalið hjarta LEIÐSÖGUMAÐURINN Útgefandi: Myndbox Leikstjóri og handritshöfundur: Nils Gaup. Framleiöandi: John M Jacobsen. Myndataka: Erling T. Andersen. Aöal- hlutverk: Mikkel Gaup, Svein Scharffen- berg og Helgi Skúlason. Norsk 1988. 93 min. Bönnuð yngri en 16 ára. Því er ekki að neita að þessi norska Lappamynd hefur vekið mikla athygli meðal okkar íslend- inga og fékk hún töluverða aðsókn þegar hún var sýnd í kvikmynda- húsi. Áhuginn stafar af frændsemi, skyldleika við hangikjötsvestra Hrafns og síðast, en ekki síst, frammistöðu Helga Skúlasonar. Myndin er tekin við óvenjulegar aðstæður og flutt á máli sem fáir eða engir skilja. Þrátt fyrir það tekst mjög vel upp við alla tækni- vinnu. Þá er söguþráðurinn for- vitnilegur í einfaldleika sínum. Hann tjáir í raun hina eilífu bar- áttu góðs og ills, færða aftur á mið- aldir á norðurhjara. Þó að myndin tapi lítillega þokka sínum við að koma á þröngan sjón- varpsskjáinn er ekki hægt annað en að mæla með henni þó ekki væri fyrir annað en að hún er „öðruvísi“ en 95% þess efnis sem býðst í myndbandaheiminum. -SMJ Kviðristu-Kobbi á tímaflakki TIME AFTER TIME Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: Nicholas Meyer. Aðalhlutverk: Malcolm McDowell, David Warner og Mary Steenburgen. Bandarisk, 1979-sýningartími 112 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. Það er skemmtileg hugmynd sem hggur að baki Time After Time. Allir vita að H.G. Wells samdi skáldsöguna Tímavélin og einnig er vitað að Kviðristu-Kobbi (Jack The Ripper) náðist aldrei. Það eina sem þessir tveir menn áttu sameig- inlegt var aö þeir voru uppi á sama tíma. Það var því snjöll hugmynd hjá handritshöfundinum og leikstjór- anum að láta þá hittast Wells og Kobba og láta þá fara í tímaferðalag fram í nútímann. Þessi frumlega hugmynd hefði auðveldlega getað misheppnast en Meyer leysir flest vandamálin á skemmtilegan máta svo úr verður hin besta skemmtun. Sögusviðið er London 1893. H.G. Wells er aö sýna nokkrum vinum sínum tímavél sem hann hafði fundið upp. Einn af gestum Wells er Stevenson læknir. Allt í einu ryðst lögreglan inn á heimili Wells til að handtaka Stevenson sem er enginn annar en kvennamorðing- inn Kviðristu-Kobbi. Morðinginn sleppur í tímavélina og hverfur út í buskann. Vélin kemur mannlaus til baka og Wells getur séð til hvaða árs Kobbi fór og hann á engan annan kost en að elta hann. Næst erum við stödd í nútímanum.Wells hefur upp á Kobba sem kann bara vel við sig innan um margmennið og held- ur áfram fyrri iðju. Hefst nú hinn magnaðasti elt- ingaleikur. Lögreglan heldur að Wells sé skrýtinn sérvitringur og trúir honum ekki. Þetta gerir það að verkum að Kobbi er ávallt skrefl á undan... eHelsti galh við Time After Time er aö of mikið er um ofbeldissenur sem gera það að verkum að ekki er um hreina ævintýramynd að ræða og söguþráðurinn er of óraunverulegur th að hægt sé að tala um sakamálamynd. Skemmt- anagildi myndarinnar er samt mik- ið og leikarar góðir með þá Mal- colm McDowell og David Warner í broddi fylkingar. Engin er samt betri en Mary Steenburger sem er sérlega góð í hlutverki nútíma- stúlku sem Wells gerir að trúnað- arvini. -HK £1 Hetja í kreppu OGNVALDURINN Útgefandi: Myndbox Leikstjóri: William Tannen. Handrit: Dennis Shryack og Michael Blodgett. Framleiöendur: Golan-Globus. Aöal- hlutverk: Chuck Norris, Brynn Thayer og Steve James. Bandarisk 1988. 98 mín. Bönnuö yngri en 16 ára. Norris er kraftakarl eins og flest- um er kunnugt. Af því mótast myndir hans og ekkert nema gott um það að segja svo langt sem það nær. Hann hefur aflað sér nokkuð margra aðdáenda sem eltast við myndir hans sem birtast með reglulegu mhhbhi - þökk sé þeim frændum Golan-Globus. Sjaldnast hefur þetta verið merkileg framleiðsla og því er margt ánægjulegt að finna í þessari mynd. Handrit er th dæmis mun betur úr garði gert en oft áður. Nokkuð sannfærandi vefur er of- inn í kringum hefbundið sögusvið. CASUAL SEX Útgefandi: Laugarásbíó. Leikstjóri: Genevieve Robert. Aðalleikarar: Lea Thompson og Victoria Jackson. Bandarísk, 1988-sýningartími 97 mín. . Casual Sex er gamanmynd um tvær hressar stelpur sem hafa að- eins eitt áhugamál, karlmenn. í byrjun eru þetta aðeins draumórar en fljótlega veröur önnur þeirra djarftækari en góðu hófi gegnir og fær hún mikla eftirsjá þegar um- ræða um eyðni nær hámarki. Stöll- urnar fara því í sumarbúðir til að hressa andann en þar tekur ekkert betra við. Casual Sex inniheldur nokkur spaugheg atriði en í heildina tekst ekki að halda þeim léttleika sem til þarf og eiga aðalleikararnir Lea Thompson og Victoria Jackson nokkra sök. -HK Morðóður fáviti brýst út af hæli og leitar skjóls í leikhúsi með mörgum ranghölum. Hetjulegur lögreglu- maður er eina von mannkynsins gagnvart ógnvaldinum. Bara alls ekki sem verst. -SMJ «» # l Tvær úr Tungunum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.