Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1989, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1989.
3
DV
Bankastjórastöður stjómmálaflokkanna í ríkisbönkunum síðan 1930:
Fréttir
Atján þingmenn hafa
fengið bankasljórastól
Bankastjórastólar flokkanna
A þessari mynd má sjá hvernig pólitískar veitingar bankastjórastóla skiptast á milli stjórnmálaflokkanna. Hvítir pipuhattar tákna fyrrverandi þingmenn
viðkomandi flokka en þeir svörtu aðra flokksmenn.
Af þeim 43 mönnum sem skipaðir
hafa verið bankastjórar frá 1930 má
rekja skipun 41 beint til tengsla
þeirra við ákveðna stjórnmála-
flokka. Af þeim höfðu 18 setið á þingi.
Eins og fram kom í DV fyrir
skömmu hafa fimmtán þingmenn
verið gerðir að sendiherrum á und-
anfómum áratugum. Oftast hefur
skipun þeirra verið til þess að tryggja
þeim virðulega útgöngu af vettvangi
stjómmálanna. í leiðara DV var
þetta orðað svo að stjórnmálamönn-
um væri með þessum hætti „sparkað
út og upp“.
En stjómmálaflokkamir hafa yfir
öðmm embættum að ráöa en sendi-
herrastöðum til að tryggja þing-
mönnum útleið af þingi. Þar er
skemmst að minnast skipunar Sverr-
is Hermannssonar sem bankastjóra
Landsbankans og þeirra Geirs Hall-
grímssonar og Tómasar Árnasonar
sem bankastjóra Seðlabankans.
Allt frá því aö skipting þeirra
stjómmálaflokka sem við þekkjum í
dag á bankakerfmu tók við af helm-
ingaskiptum heimastjórnarmanna
og Valtýinga hafa stjómmálaflokk-
amir átt sína bankastjórastóla. Þeir
hafa hver um sig útdeilt þessum
embættum til sinna félagsmanna.
Helmingur bankastjóra
Útvegsbankansvoru
fyrrverandi þingmenn
Þegar Útvegsbankinn fór á hausinn
árið 1987 sátu þrír bankastjórar í
bankanum. Þeir voru fulltrúar
Framsóknarflokksins, Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðubandalagsins.
Láras Jónsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins frá 1971 til 1985, var
skipaður bankastjóri árið 1985. Hann
settist þá í stól Jónasar G. Rafnar,
sem haföi setið á þingi fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn frá 1949 til 1971. Jónas
var skipaður bankastjóri árið 1963
og tók við af Jóhanni Hafstein, síðar
formanni Sjálfstæðisflokksins. Jó-
hann varð bankastjóri árið 1952. Þá
var fyrir einn sjálfstæðismaður í
bankastjóm Landsbankans, Valtýr
Blöndal. Valtýr tók við af Jóni Ólafs-
syni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins
frá 1927 til 1937, árið 1936. Sjötti sjálf-
stæðismaðurinn, Gunnar Viðar fyrr-
um bankastjóri Landsbankans, var
bankastjóri á árunum 1956 til 1957.
Sjálfstæðisflokkurinn átti því sex af
bankastjórum Útvegsbankans. Þar
af vom fjórir þingmenn flokksins.
Halldór Guðbjarnason, núverandi
framkvæmdastjóri Sam-korta, var
skipaður bankastjóri árið 1984 þegar
Bjarni Guðbjömsson lét af störfum.
Bjarni sat á þingi fyrir Framsóknar-
flokkinn frá 1967 til 1974 og var gerð-
ur að bankastjóra árið eftir. Bjarni
tók við af Jóhannesi Elíassyni, fyrr-
um formanni ungra framsóknar-
manna og miðstjórnarmanni í
flokknum. Jóhannes varð banka-
stjóri árið 1957. Þá var liðinn aldar-
fjórðungur síðan að tryggur fram-
sóknarmaður sat í bankastjórastóli
Landsbankans en Helgi P. Briem,
síðar sendiherra, hætti eftir tveggja
ára störf árið 1932. Talið er að fram-
sóknarmenn hafi stuðlað að skipun
Helga Guðmundssonar árið 1931 í
stól bankastjóra en Helgi gerðist síð-
ar hallur undir Sósíalistaflokkinn.
Af fjórum bankastjórum Framsókn-
ar hafði einn þeirra setið á þingi fyr-
ir flokkinn.
Ólafur Helgason tók við banka-
stjórastóli Ármanns Jakobssonar
árið 1984 og sat þar þegar Útvegs-
bankinn varð gjaldþrota. Ármann,
sem var sveitarstjórnarmaður á
Siglufirði fyrir Sósíalistaflokkinn,
tók við af Finnboga Rúti Valdimars-
syni árið 1972. Finnbogi sat á þingi
fýrir sósíalista frá 1949 til 1963. Finn-
bogi varð bankastjóri árið 1957. Þá
vora tvö ár hðin síðan Helgi Guð-
mundsson, faðir Ólafs, hætti sem
bankastjóri en Helgi var hallur undir
sósíalisma. Helgi varð bankasljóri
árið 1931 eins og áður sagði. Affjórum
bankastjórum sósíalista og Alþýðu-
bandalagsins haföi einn setið á þingi.
Þegar Útvegsbankinn varð gjald-
þrota átti Alþýðuflokkurinn engan
bankastjóra. Þegar bankinn var
stofnaður árið 1930 úr rústum ís-
landsbanka var Jón Baldvinsson,
formaður Alþýðuflokksins, hins veg-
ar geröur að bankastjóra. Þegar
hann dó árið 1938 tók Ásgeir Ás-
geirsson, þingmaður flokksins og
síðar forseti, við stóh Alþýðuflokks-
ins í bankanum. Eftir að Asgeir hætti
árið 1952 komst enginn krati að í
bankanum. Þessir tveir sátu báðir á
þingi fyrir flokkinn.
Jöfn skipti á
Landsbankastjórum
milli þriggja flokka
Nú sitja þrír bankastjórar í Lands-
bankanum. Björgvin Vilmundarson
krati, Sverrir Hermannsson sjálf-
stæðismaöur og Valur Arnþórsson
framsóknarmaður.
Valur, sem er miðstjórnarmaður í
Framsóknarflokknum, tók við af
Helga Bergs um áramótin. Helgi sat
á þingi fyrir Framsóknarflokkinn á
árunum 1963 th 1967. Hann varð
bankastjóri árið 1971 og tók þá við
af Svanbirni Frímannssyni. Svan-
björn varð bankastjóri árið 1957. Þá
var fyrir í bankastjórn Landsbank-
ans annar framsóknarmaður; Vh-
hjálmur Þór. Vhhjálmur varð banka-
stjóri árið 1940 og gegndi því embætti
til 1945. Þá varð Vhhjálmur forstjóri
Sambandsins og Jón Árnason, mið-
stjórnarmaður í Framsókn, tók við
bankastjórastólnum. Þegar Vh-
hjálmur hætti hjá Sambandinu tók
hann aftur við bankastjórastólnum
af Jóni. Vilhjálmur sat í bankanum
til 1961. Framóknarflokkurinn hefur
því átt fimm af bankastjórum Lands-
bankans. Þar af hefur einn þeirra
setið á þingi.
Sverrir Hermannsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins frá 1971 til 1988,
tók í fyrra við bankastjórastóh Sjálf-
stæðismanna í Landsbankanum. Þar
hafði Jónas Haralz, miðstjórnarmað-
ur í Sjálfstæðisflokknum, setið sem
bankastjóri síðan 1969. Jónas tók þá
við af Pétri Benediktssyni, þing-
manni Sjálfstæðisflokksins frá 1967
Fréttaljós
Gunnar Smári Egilsson
th 1969. Pétur varð bankastjóri árið
1956 þegar hann tók við stólnum af
Gunnari Viðar. Gunnar hafði tekið
við starfi bankastjóra árið 1948 af
Pétri Magnússyni sem sat á þingi
fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 1930 til
1948. Pétur varð bankastjóri árið
1941. Af fimm bankastjórum Sjálf-
stæðisflokksins í Landsbankanum
hafa því þrír þeirra setið á þingi fyr-
ir flokkinn.
Alþýðuflokksmaðurinn Björgvin
Vilmundarson tók við bankastjóra-
stóli Alþýðuflokksins í Landsbank-
anum af Jóni Axel Péturssyni, sem
átti meðal annars sæti í stjórn flokks-
ins. Jón tók við embættinu árið 1961
þegar Jóhannes Nordal var gerður
að Seðlabankastjóra. Jóhannes varð
bankastjóri Landsbankans árið 1959
fyrir tilstuðlan Alþýðuflokksins.
Forveri Jóhannesar var Emil Jóns-
son, þingmaður Alþýðuflokksins og
síðar formaður hans. Emh var
bankastjóri frá 1957 th 1958. Hann tók
þá við af Jóni G. Maríassyni, fyrrum
bæjarfuhtrúa Alþýðuflokksins á
ísafirði. Jón varð bankastjóri árið
1943. Af fimm bankastjórum Al-
þýðuflokksins í Landsbankanum sat
einn þeirra á þingi fyrir flokkinn.
Ópólitískar veitingar
í embætti banka-
stjóra Búnaðarbankans
Fyrstu bankastjórar Búnaðar-
bankans voru framsóknarmaðurinn
Páll Eggert Ólason og sjálfstæðis-
maðurinn Pétur Magnússon. Þeir
voru skipaðir árið 1930. Pétur sat á
þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá
1930 til 1948. Þegar Páll Eggert hætti
í bankanum árið 1932 tók Tryggvi
Þórhahsson við. Tryggvi hafði þá
setið á þingi fyrir Framsóknarflokk-
inn frá 1923 og gerði það þar th hann
stofnaði Bændaflokkinn ári eftir að
hann settist í stól bankastjóra. Þegar
Tryggvi hætti árið 1935 tók Hhmar
Stefánsson framsóknarmaður við og
sat th 1962. Þá tók sonur hans Stefán
Hhmarsson við starfinu og gegnir því
enn.
Pétur Magnússon hætti sem
bankastjóri árið 1937. Enginn var
ráðinn í hans stað fyrr en Magnús
Jónsson frá Mel varð bankastjóri
árið 1961. Magnús sat á þingi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn frá 1951 til 1974.
Hann hætti í bankanum árið 1965
þegar hann geröist ráðherra. Þá var
Þórhallur Tryggvason, sonur
Tryggva og starfsmaður bankans th
langs tíma, ráðinn í hans stað. Þegar
viðreisnarstjórnin féll árið 1971 kom
Magnús aftur í bankann og tók viö
bankastjórastólnum af Þórhahi.
Frá því aö Magnús hætti í bankan-
um hafa tveir menn verið ráðnir
bankastjórar, þeir Jón Adolf Guð-
jónsson og Stefán Pálsson. Ráðning-
ar þeirra hafa ekki verið túlkaðar
sem pólitískar stöðuveitingar.
í Búnaðarbankanum hafa setið
fimm framsóknarmenn og þar af
einn þingmaður og tveir sjálfstæðis-
menn sem báðir voru þingmenn
flokksins.
Framsóknarmenn
fjölmennastir í
Seðlabankanum
Skipti flokkanna á stólum banka-
stjóra Seðlabankans hafa ekki verið
jafnskýr og th dæmis í Landsbanka
og Útvegsbanka. Af þeim níu mönn-
um sem gegnt hafa störfum Seðla-
bankastjóra era fjórir framsóknar-
menn, tveir sjálfstæðismenn, tveir
kratar og einn alþýðubandalagsmað-
ur.
Framsóknarmennirnir eru Vh-
hjálmur Þór, fyrram bankastjóri
Landsbankans og forstjóri Sam-
bandsins, Sigtryggur Klemensson,
ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneyt-
inu og miðstjómarmaður í flokkn-
um, Svanbjörn Frímannsson, fyrr-
um bankastjóri Landsbankans, og
Tómas Árnason, fyrram þingmaður
og ráöherra flokksins.
Sjálfstæðismennirnir tveir eru
Davíð Ólafsson og Geir Hallgrímsson
en þeir sátu báðir á þingi fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn.
Eins og áður sagði var ráðning Jó-
hannesar Nordal í Landsbankann,
meðan Seðlabankinn var undirdeild
í þeim banka, talin vera fyrir th-
verknað Alþýðuflokksins. Auk þess
varð Jón G. Maríusson, fyrram
bankastjóri Landsbankans og sveit-
arstjórnarmaður Alþýðuflokksins,
Seðlabankastjóri.
Guðmundur Hjartarson, fyrrum
formaður Sósíahstafélags Reykjavík-
ur, hefur verið eini fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins og forvera þess í stóli
Seðlabankastjóra.
Ellefu þingmenn
Sjálfstæðisflokksins hafa
komist í bankastjórastól
Af þessari upptalningu má sjá að
af 49 bankastjóraskiþunum frá 1930
má tengja 47 þeirra beint til þeirra
fjögurra flokka sem lengst af hafa
setið að völdum hér á landi. í nítján
tilfellum hafa fyrram þingmenn við-
komandi flokka verið skipaðir.
Sumir þessara manna hafa setið í
fleiri en einum banka. Ahs era það
41 maður sem má þakka banka-
stjórastól sinn stjórnmálaflokkun-
um. Þar af eru 18 fyrrum þingmenn.
Framsóknarílokkurinn hefur feng-
ið 18 sinnum bankastjórastól í sinn
hlut af þessum 47 tilfellum. Fíórir
fyrram þingmenn þeirra hafa fengið
bankastjórastarf.
Sjálfstæðismenn hafa fengið 15
bankastjórastóla. Þeir hafa látið íyrr-
um þingmenn sína fá starfið í 11 th-
fehum.
Alþýðuflokksmenn hafa níu sinn-
um fengið að ráða stöðuveitingum
bankastjóra og látið þijá af þing-
mönnum sínum njóta þess.
Alþýðubandalagið og forverar þess
hafa fengið fimm sinnum banka-
stjórastól í sinn hlut. Einn þingmað-
ur þeirra hefur hreppt hnossið.