Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1989, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1989, Qupperneq 32
r F R ÉTT/X.S KOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. i ----------------------------------------------------- Rilstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 1989. Þúsund skammtar ' af LSD? Fíkniefnadeild lögreglunnar hefur lagt hald á 692 skammta af ofskynj- unarlyflnu LSD. Búið er að úrskurða þann sem flutti efnið til landsins í gæsluvarðhald til 1. maí. Grunur er um að maðurinn hafl flutt um 1000 skammta til landsins og tekist að koma hluta þess í umferð. „Við bregöumst hart við þegar við fréttum af þessu efni í umferð. Viö gerðum leit á sjö stöðum og hand- tókum ellefu manns,“ sagði Arnar Jensson hjá fíkniefnadeildinni. Ekki ^þótti ástæða til að óska eftir að fleiri yrðu úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Efnið var keypt í Hollandi. Sá sem kom með efnið, en hann er 27 ára gamall, hefur áður komið lítillega við sögu hjá fíkniefnadeildinni. Rann- sókn málsins er ekki endanlega lok- ið. Arnar Jensson var ófáanlegur til að gefa upp markaðsverð á LSD hér á landi. Hann sagði að sem betur fer væri það frekar fátítt að LSD væri á markaðnum hér. Hann sagði enn- fremur að svo virtist sem nýir aðilar ■ ^stæðu að dreifingu og innflutningi efnisins þegar upp um þessi mál kemst. -sme Benedikt vill biðlaun: Hélt að þetta væri bara grín - segir þingforseti Benedikt Gröndal, sendiherra ís- lands í Stokkhólmi, hefur farið þess á leit við forseta Alþingis að hann fái greidd sex mánaða biðlaun frá þeim tíma þegar hann lét af þingmennsku árið 1982 og tók við starfi sendiherra. Krafa Benedikts hljóðar upp á um 800 þúsund krónur. Benedikt rökstyður kröfu sína á þá leið að lög um biðlaun alþingis- manna séu nú túlkuð á annan hátt en þegar hann hætti á þingi. Þá hafi verið litið á biðlaun sem tækifæri fyrir þingmenn til að hætta þing- mennsku án þess að verða fyrir at- vinnu- eða tekjuvandræðum. Nú fengju þingmenn þessi biðlaun þó þeir færu beint í önnur embætti á vegum ríkisins. í því sambandi má benda á þá Sverri Hermannsson og Albert Guðmundsson. _ „Ég vil ekkert segja um þetta mál. Ég hélt að þetta væri bara grín hjá Benedikt. Annars er Friðrik Ólafs- ’Ton skrifstofustjóri með þetta í at- hugun,“ sagði Guðrún Helgadóttir, forseti sameinaðs þings. -gse Fær stuðning í þingliði krata Á þingflokksfundum stjómar- flokkanna í gær var rætt um tillögu forsætisráðherra um lausn á hus- bréfadeilunni. Meginhugmyndin í þeirri lausn er aö frumvarpið verði afgreitt sem lög frá Alþingi í vor en gildistöku laganna frestaö. Er þá rætt um að fresta gildistökunni um nokkra mánuði eða alla vega fram til 1. nóvember, ef ekki leng- ur. Einnig vilja framsóknarmenn að fastmælum sé bundið að ekki fari hærri upphæð en 10% af kaup- skyldu lífeyrissjóðanna í húsbréfa- kerfið fyrst í stað. Þá verður skipuð milliþinganefnd sem tekur við ágreiningsefnum og þá sérstaklega hliðarfrumvarpinu um vaxtabætur sem framsóknarmenn segja að sé óunnið enn. Með þessum hætti verður Alþingi á ný gefinn kostur á að ræða um húsbréfakerfið. Er stuðningur við þessa lausn í þing- flokki Alþýðuflokksmanna. Þessi lausn dugar til að sætta sjónarmið Guðmundar G. Þórar- inssonar, Guðna Ágústssonar og Ólafs Þ. Þórðarsonar. Afstöðu Alexanders Stefánssonar verður ekki breytt, hann er á móti hús- bréfum. Þá er talið hugsanlegt að Stefán Valgeirsson komi til liðs við frumvarpið en hann sagðist í morg- un geta stutt frumvarpið með nokkrum breytingum. Hann sagð- ist ætla að skrifa félagsmálaráð- herra bréf i dag að hennar eigin ósk. Þar kæmi meðal annars fram sú krafa Stefáns að þeir sem væru i forgangshópi nytu áfram niður- greiddra vaxta og aö reynt yrði aö örva byggingarframkvæmdir á landsbyggðinni. Það er þvi ljóst að framgangur frumvarpsins veltur áfram á stjórnarandstöðunni og horfa þá stjórnarliðar sérstaklega til Kvennalistans. Er talið liklegt að hann styðji málið eða alla vega tryggi framgang þess með hjásetu. Að sögn Guðrúnar Agnarsdóttur hafa þær kvennalistakonur enn opinn huga í þessu máli. Þær hafi þó efasemdir sem hafi ekki verið eytt en í hádeginu funda þær meö sérfræðingum um málið. Að sögn Jóns Sæmundar Sigur- jónssonar, formanns félagsmála- nefndar, kemur húsbréfafrum- varpið ekki frá henni fyrr en í fyrsta lagi á fimmtudag éða föstu- dag. -SMJ Allnokkuð er stðan rauðmagaveiðin hófst sunnan fjalla en grásleppuvertíðin er aftur á móti nýhafin. Karlarnir eru byrjaðir að hengja grásleppuna upp en mörgum þykir sigin grásleppa herramannsmatur. Sumir kalla það vor- boða þegar farið er að hengja grásleppuna upp á hjallana við Ægisiðuna i Fteykjavik þar sem þessi mynd var tekin. DV-KAE Guömundur J. Guðmundsson: Stefnir í alls- herjarverkfall „Það er alveg á hreinu, eftir þennan makalausa Dagsbrúnarfund í gær, að við ætlum ekki í langar og til- gangslausar samningaviðræður. Það er alveg nóg komið af þeim. Við vilj- um samninga strax. Það er komin slík undiralda í Dagsbrún að hún verður ekki stöðvuð nema samning- ar fáist. Og það er alveg á hreinu að ef við fáum ekki samninga strax verður verkfallsvopninu beitt og það fylgja fleiri verkalýösfélög með í því,“ sagði Guðmundur J. Guð- mundsson, formaður Verkamanna- félagsins Dagsbrúnar, í morgun. Guðmundur átti í gær fundi með Steingrími Hermannssyni forsætis- ráðherra og Ólafi Ragnari Grímssyni fjármálaráðherra. Auk þess ræddu þeir Guðmundur og Þórarinn V. Þór- arinsson, framkvæmdastjóri Vinnu- veitendasambandsins, saman í gær eftir félagsfund Dagsbrúnar. „Ég gerði ráðherrunum grein fyrir stöðunni og fór fram á það að þeir gerðu það sem í þeirra valdi stæði til að koma alvörusamningaviðræð- um í gang aftur. Ég gerði þeim líka grein fyrir því hvað myndi gerast ef við fáum ekki samninga strax. Og ég held að þeir skilji það að þessi ríkis- stjórn lifir ekki af allsherjarverkfall verkalýðsfélaganna í landinu. Ég tel að í það stefni ef ekki nást samningar á næstu dögum,“ sagði Guðmundur. Á morgun hafa samninganefndir Alþýðusambandsins og Vinnuveit- endasambandsins verið boðaðar til samningafundar. S.dór Skattamál Þýsk-íslenska: Aukaskattarnir til innheimtu Kæru Þýsk-íslenska vegna 50 millj- óna króna álagðra aukaskatta á ár- inu 1985 að undangenginni skatt- rannsókn hefur verið vísað frá og þarf fyrirtækið því að greiða þessa aukaálagningu. Ríkisskattanefnd kvað upp úrskurðinn. Málið er nú hjá ríkissaksóknara sem ákveður hvort gefin verður út ákæra á hend- ur forráðamönnum Þýsk-íslenska. „Með þessum úrskurði er málinu lokið og krafan stendur því enn og er til innheimtu hjá gjaldheimtu- stjóra,“ sagði Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóri í morgun. Skattrannsókn fór fram á Þýsk- íslenska á árinu 1985 á eignum og tekjum ársins 1984 sem varð til þess að ríkisskattstjóri bætti 50 milljónum króna við skatta fyrirtækisins. Þenn- an úrskurð kærði Þýsk-íslenska. Sér- stakur ríkisskattstjóri kvað upp úr- skurð 1987. Þá kærði fyrirtækið til ríkisskattanefndar. -JGH LOKI Heimur versnandi fer: nú fá prestarnir bara köllun frá sóknarnefndum! Veðrið næsta sólarhring: Kalt áfram í dag verður frekar kalt í veðri á landinu. Bjart veður verður sunnanlands en hætta er á ein- hverri úrkomu fyrir norðan. Ekki mjög vorlegt. Veourspér DV eru ekkl byggðar« upplýslngum frá VeOurstofu (slonds. Þaar eru fengruir erlendis BÍIALEIGA v/FlugvalIarveg 91-61-44-00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.