Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 12. MAf 1989. Fréttir Skýrslugerð um hvalveiðar í vísindaskyni hefur stöðvast: Getum ekki skilað öllum skýrslunum - á fimdi vísindanefndar Alþjóða hv?% ^eiðiráðsins 20. maí Vegna verkfalls náttúrufræðinga mun ekki takast að ljúka skýrslugerð um hvalveiðar okkar íslendinga í vísindaskyni, sem unnið hefur verið að. Fundur vísindanefndarinnar hefst 20. maí næstkomandi. Jakob Jakobsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, sagði í samtali við DV að enn væri ekki útséð um hve miklu verður hægt að skila en það væri ljóst að ekki tækist að skila öllu því sem til stóð. Sumar skýrsl- umar eru alveg strand vegna verk- Hermann Sveinbjömsson: Styrkur án formerkja „Styrkurinn var ekki veittur með neinum formerkjum. Við styrktum Magnús þar sem við töldum okkur geta notað þaö sem hann var að fást við okkur tíl góða. Við höfðum ekki hugmynd um aö hann væri að vinna að hvalamynd eða mynd er mundi skapa þvílíkan óróa sem raun ber vitni," sagði Hermann Sveinbjöms- son, aðstoðarmaður sjávarútvegs- ráðherra, við DV. Hermann sagði að styrkurinn hefði verið veittur úr sjóði sem veitt væri úr til ýmissa verkefna sem ráðuneyt- ið vildi „veðja á“. Þar á meöal hefði veriðmyndagerðMagnúsar. -hlh Forseti Alþingis: Lygi, svik og falsanir Til deilna kom á Alþingi í gær í tengslum við fyrirspum um íjár- stuðning sjávarútvegsráðuneytís við framleiðanda kvikmyndarinnar Láfsbjörg í norðurhöfum. Eftir að sjávarútvegsráðherra hafði upplýst á alþingi í gær að ráðuneyti hans hefði veitt kvikmyndaframleiðandanum fjögur hundmð þúsund króna styrk tók Guðrún Helgadóttir til máls og var hvassyrt. Lauk Guðrún máh sínu með svo- felldum orðum; „Þetta mál er satt að segja ein raunasaga. Það getur vel verið að hún hafi gagnast íslending- um í þeirra ranga málstað varðandi umhverfismál í heiminum. Það fer þá vel á því að lygi og svik og falsan- ir séu notað til styrktar röngum málstað. Það er við hæfi og hæfir þar skel kjafiti.“ Eiður Guðnason átaldi Guðrúnu harðlega fyrir þennan munnsöfnuð og sagöist ekki minnast þess að slíkt orðbragð hefði verið látið átölulaust afþingforsetumáður. -hv falls háskólamanna. Jakob sagði að unnið hefði verið aö gerð margra skýrslna og væri gerð sumra þeirra þegar lokið. „Við munum skila inn þeim skýrsl- um sem tilbúnar verða þegar fundur- inn hefst. En þetta lítur alls ekki vel út, því rniður," sagði Jakob. Af þeim sex vísindamönnum, sem unnið hafa að hvalarannsóknunum og skýrslugerð um þær, eru þrír í verkfalli. Þeir þrír sem eru í vinnu starfa aö skýrslugerðinni og sagði Jakob það gefa u ieið að þeir önn- uðu ekki sex manna verki. Sem fyrr segir hefst fundurinn í vísindanefnd Alþjóða hvalveiðiráðs- ins 20. maí en fundurinn í sjálfu Al- þjóöa hvalveiðiráðinu hefst svo í byrjun júní. Þaö er til vísindanefnd- arinnar sem skila á þessum rann- sóknaskýrslum. Hún fer yfir skýrsl- urnar og skilar síðan niðurstöðum inn á fund Alþjóða hvalveiðiráðsins. Þó svo hægt verði að skila inn ein- hveijum skýrslum er hætt við að það veiki stöðu okkar íslendinga hjá ráð- inu að geta ekki skilað inn öllum þeim skýrslum sem til stóð. Einnig óttast margir að andstæðingar hval- veiða okkar í vísindaskyni muni not- færa sér þetta og leggja allt út á verri veg fyrir okkur íslendinga, jafnvel þótt hægt sé að skýra út fyrir hval- veiðiráðinu ástæðuna fyrir því að ekki var hægt að ljúka skýrslugerð- inni. S.dór Ríkisendurskoöun: Samningur um Sigló er afar sérstæður í skýrslu ríkisendurskoðunar um málefni lagmetisverksmiðj- unnar Sigló hf. kemur fram að stofnunin telur að þeir greiöslu- skilmálar, sem Albert Guð- mundsson, þáverandi fjármála- ráðherra, veitti fyrirtækinu séu afar sérstæðir. í samkomulagi, sem gert var daginn áður en Albert hætti sem fjármálaráðherra og varð iðnaö- arráðherra, er um 50 miDjón króna skuld Sigló hf. við ríkissjóð vegna kaupa á fyrirtækinu færð yfir á skuldabréf til 18 ára. Eig- endur fýrirtækisins þurftu ekki aö greiða vexti af bréfinu fyrstu þijú árin og afborganir ekki fyrr en eftir fimm ár. Rfkisendurskoð- un segir að þessir greiðsluskil- málar „megi teljast afar sérstæð- ir í viðskiptura sem þessum og eigi sér vart hliðstæðu hjá ríkis- sjóði“. Þó Albert hafi gert þetta sam- komulag daginn áður en hann fór úr ráðuneytinu var ekki gengið frá þessu skuldabréfi fyrr en í febrúarl986. -gse Húsbréíafrumvarpiö: Áfram til þriðju umræðu Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðheiTa kvaöst í gær bjart- sýn á að húsbréfafrumvarp ríkis- stjómarinnar yröi endanlega af- greitt fyrir lok yfirstandandi þings en stefnt er að því að þing- störfum ljúki eftir liðlega viku. „Ef menn vinna af krafti á þaö að takast,“ sagði ráðherra í sam- tali við DV. Húsbréfafrumvarpið var í gær afgreitt til þriðju umræðu á Al- þingi með tuttugu og einu at- kvæði gegn þrera. Tillaga um að frumvarpinu yröi vísað aftur til ríkisstjórnar var felld raeð tuttugu og einu atkvæði gegn nítján. Breytingartillaga Kristins Péturssonar var felld með tuttugu atkvæðum gegn fimmtán. Breytingartillaga, sem borin var fram af Jóni Sæmundi Sigur- jónssyni, var hins vegar sam- þykkt með tuttugu og sex sam- hljóða atkvæðum. -hv Njarövík: Innbrot í Fristund Brotist var inn í verslunina Frístund í Njarðvík aðfaranótt fimmtudags. Þaðan var mynd- bandsspólum, öllum gerðum og tegundum af skafmiðum og fleira stolið. Verðmæti þýfisins er um 200 þúsund krónur. Rannsóknarlögreglan í Kefla- víkfermeðrannsóknina. -sme u '"V 1 1 sKá\ \ Félagar úr Kennarasambandi Islands voru með kröfustöðu við Alþingishúsið í gærdag. Þeir mynduðu hópa, sem skiptust á um að standa með kröfuspjöld fyrir framan þinghúsið frá hádegi til klukkan 17.00. í dag verður svo haldinn samningafundur hjá samninganefndum Kennarasambandsins og ríkisins. Hér á myndinni er Guðrún Agnarsdóttir alþingismaður að ræða við kennara í kröfustöðunni i gær. DV-mynd BG Skoöanakönnun Umferöarráös: Helmingur þjóðarinnar í fermingarveislum í vor - en nær enginn fékk bjór Samkvæmt skoðanakönnun, sem Gallup gerði fyrir Umferðarráð dag- ana 21. til 24. apríl síðastliðinn, er nánast óþekkt að bjór sé veittur í fermingarveislum hér á landi. Skoð- anakönnunin náði til 696 manna. Tæpur helmingur þeirra hafði farið í fermingarveislu á þessu vori og aðeins 3 prósent aðspurðra höföu verið í veislu þar sem bjór var veitt- ur. Sex prósent þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnuninni sögöust hafa setið í bíl eftir 1. mars þar sem öku- maðurinn hefði drukkið bjór. 93,5 prósent höfðu ekki setiö í bíl þar sem ökumaðurinn hafði drukkið bjór. Langflestir, eða 95,3 prósent, vissu hver boðskapur lagsins „Ég held ég gangi heim“ er. -sme Magnús Guðmundsson líkir þingforseta við óknyttinn götustrák: Fjárstyrkurinn „Þessar 400 þúsund krónur, sem ég fékk í styrk, í tvennu lagi, frá sjáv- arútvegsráðuneytinu fóru að lang- mestum hluta til í gerð myndar sem enn er ófuUgerð og ber vinnuheitið í kjölfar víkinganna. Það vildi reynd- ar þannig til að ég notaði örfáar tök- ur frá gerð þeirrar myndar í mynd- inni Lífsbjörg í norðurhöfum. En styrkurinn var veittur án nokkurra skilyröa af hálfu ráðuneytisins. Þetta gefur ekki tilefni til orðbragðs þess sem þingforseti notaði um mig og þessa styrki á Alþingi í gær. Mér finnst ekki sæma forseta Alþingis að haga sér eins og óknyttinn götustrák- ur,“ sagði Magnús Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður ■ 1 samtali viðDV. Magnús segist hafa sótt um styrk til sjávarútvegsráðuneytisins í fe- brúar í fyrra. I umsókn um styrkinn sagðist hann ekki hafa orðað hvala- mynd sérstaklega heldur sagðist ffór ekki til Ufsbjargar hann vera að vinna að gerð myndar um útveg og lífsháttu við hafið. „Þegar ég fékk styrkinn fór mestur hluti hans í kostnað og ferðalög í sambandi við upptökur á bátsferð yfir Atlantshafið. Ég hafði þá lagt hvalamyndina á hilluna í bili og tók ekki upp þráðinn við gerð hennar fyrr en að loknum tökunum fyrir hina myndina. Þess vegna hef ég neitaö þegar ég hef verið spurður hvort ég hafi fengið opinberan styrk til gerðar Lífsbjargar.“ Magnús segist vonast til að geta klárað myndina um víkingana í sum- ar en hasarinn í kringum hvala- myndina hefur tafið mjög fyrir gerð hennar. Magnús var einmitt á ferö til Kaupmannahafnar í gær. Þar hitt- ir hann félagsfræðinga sem hafa mikinn áhuga á að ræða áhrif mynd- arinnar á umhverfisvemdarumræð- una í Danmörku og hvemig ýmis náttúmvemdarsamtök hafa snúið baki við Greenpeace. f næstu viku hggur leiðin síðan á stóra umhverfis- vemdarráöstefnu í Frakklandi þar sem Greenpeacemenn mæta og býst Magnús við einhverjum átökum. Hvað varðar fjárhagsstöðuna í kring- um gerð Lífsbjargar sagði Magnús að enn væri langt í land þrátt fyrir sölukipp eftir kvikmyndahátíðina í Cannes. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.