Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Page 3
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1989. 3 dv Fréttir TriUukarlamir: Málið sent saksóknara - segir siglingamálastj óri „Við munum fá skýrslur frá lög- reglunni og Landhelgisgæslunni og senda gögnin til ríkissaksóknara sem ákveður um framhaldið. Það er gert samkvæmt lögum um eftirht með skipum. Við vorum að framfylgja þeim skyldum sem okkur ber. Það er síðan dómstólanna að ákvarða hvaða refsingu mennirnir fá,“ sagði Magnús Jóhannesson siglingamála- stjóri varðandi mál mannanna tveggja sem sigldu Völusteini NK100 frá Seyðisfirði þrátt fyrir að lögregl- an þar væhi búin að setja farbann á bátinn. Eins og DV skýrði frá í gær hand- tóku varðskipsmenn sjómennina tvo og drógu bát þeirra til Hafnar í Hornaflrði. Báturinn haföi ekki verið skoðaður í tvö ár og auk þess var farbann á honum. Magnús sagði að frá árinu 1986 hefði Siglingamálastofnun tekið upp harðari aðgerðir en áöur gagnvart smærri bátum. Áður var talsvert ólag á að eigendur smærri báta sinntu því að láta skoða báta sína. Magnús sagði að samstarf hefði verið haft við Landssamband smábátaeig- enda um að koma lagi á þessa hluti. Allir bátar, sem eru sex metrar eða lengri, eru skráningarskyldir og þá báta verður lögum sanikvæmt að skoða árlega. -sme Hraöfiystihús Patreksfjarðar: Greiðslustöðvun í stað uppboðs Stefán Skarphéðinsson, sýslumað- ur í Vestur-Barðárstrandarsýslu, hefur veitt Hraðfrystihúsi Patreks- fjarðar greiðslustöðvun til þriggja mánaða. Uppboði, sem vera átti í vik- unni á eignum Hraðfrystihússins, hefur verið frestað. Eigendur Hraðfrystihússins treysta á að þeir fái fyrirgreiöslu hjá Atvinnutryggingasjóði og geti með því bjargað fyrirtækinu frá nauðung- arsölu. I ljósi þess veitti sýslumaður þeim greiðslustöðvun til þriggja mánaða. -sme Verðbólgan er 26,8 prósent Hraði verðbólgunnar er nú 26,8 prósent miðaö við hækkun á fram- færsluvísitölunni milli apríl og maí. Grunnur hennar hækkaði um 2,0 prósent milli þessara mánaða. Þar af má rekja 0,6 prósent til hækkunar á tryggingargjöldum bifreiða. Miðað við hækkun vísitölunnar undanfarna þrjá mánuði er verð- bólgan nú um 31,5 prósent. Sé miðað viö hækkun síðustu sex mánaða er verðbólgan 22,5 prósent. Fram- færsluvísitalan hefur á síðustu tólf mánuðum hækkað um 22,3 prósent. Framfærsluvísitalan er í dag 122,3 stig. -gse Nýr prestur í Kaup- mannahöfn Séra Ágúst Sigurðsson lætur af starfi sendiráðsprests í Kaupmanna- höfn 1. júní eftir rúmlega sex ára þjónustu. Hefur hann veriö kallaður til starfa næstu fjögur árin í Prest- bakkaprestakalli í Hrútafirði. Hefur hann störf þar 15. júlí. Staða sendiráðsprests í Kaup- mannahöfn hefur því verið auglýst laus til umsóknar og rennur um- sóknarfrestur út 28. maí. Séra Lárus Guðmundsson í Holti við Flateyri hefur verið orðaður við stöðuna í Kaupmannahöfn. Hefur hann dvalið í fræðimannsíbúðinni í Jónshúsi í vetur. -hlh Til þess að kynnast landi og þjóð er nauðsynlegt að leita út fyrir borgirnar. Á bílaleigubíl, með lestum eða rútum, siglandi eftir skurðum og síkjum eða jafnvel gangandi. Norður-England og þjóðgarðarnir Lake District, North York Moors, Yorkshire Dales og Peak District búa yfir heillandi ósnortinni náttúrufegurð ásamt fjölskrúðugu jurta- og dýraríki sem löngum hafa heillað göngugarpa og náttúruunnendur. Comwall. Að aka milli litlu fiskiþorpanna á Cornwallskaganum er eins og að skjótast aftur í aldir. Myndræn fegurð t.d. Ciovelly, Lynton og Lynmouth er ógleymanleg og Jamaica-kráin á Bodmin Moor er jafn dulúðug og í samnefndri sögu Daphne de Maurier. Suður-England hefur sannarlega margt að bjóða þeim sem njóta vilja sólar og skemmtunar. Einkar milt loftslag, ljós strandlengja, pálmatré og annar suðrænn gróður hafa gert suðurströndina að einum vinsælasta sumarbaðstað í norðanverðri Evrópu. Wales. Óvíða er að finna jafnmarga sögufræga kastala 'og kastalarústir og í Wales. 1 grasi grónum hlíðunum, innan um sauðfé á beit eða sitjandi við \ lítið vatn með stöng, gætirðu haldið að þú værir eina manneskjan í \ heiminum. Skotland. Skosku hálöndin hafa árum saman dregið að ferðamenn, með hinu dularfulla Loch Ness, undurfagra Loch Lomond og hinu sérstæða Great Gien, ekki síður en hinir heimsþekktu skosku golfvellir. Leitaðu ekki langt yfir skammt. Fáðu nánari upplýsingar hjá söluskrifstofum Flugleiða, Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni, eða hjá ferðaskrifstofum og umboðsmönnum um land allt. jvwnæ BRESKA FERÐAMÁLARÁÐIÐ FLUGLEIDIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.