Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1989. Utlönd Kosningar undirbúnar George Bush Bandaríkjaforseti: Perónistinn Cario Menem, einn forsetaframbjóðenda í Argentiu, í kosn- ingaferð i Buneos Aires i gær. Simamynd Reuter Forsetaframbjóðendumir í Argentínu bíða nú sunnudagsins þegar um 20 milljónir kjósenda ganga að kjörboröinu. Klukkan átta í morgun að staöartíma gekkí gildi bann við frekari opinberri kosningabaráttu og lögöu frambjóöendurnir og stuðningsmenn þeirra sig alla fram í gær. Perónistinn Carlo Menem er taiinn sigurstranglegastur frambjóðenda og samkvæmt síðustu könnunum var hann með átta prósent forskot. Frambjóðandi stjómarflokksins, Eduardo Angeloz, hefur átt erfitt upp- dráttar vegna mikilla efiiahagsörðugieika. Harðar aðgerðir Raul Alfonsin forseta til að minnka verðbólgu hafa engan árangur borið. Aðstoðarmaður Wright segir af sér Einn helsti aöstoðarmaður Jim Wright, forseta bandarísku fulltrúa- deildarinnar, iét af störfúm í gær í kjölfar mikiliar umræðu um fortíð mannsins. John Mack sagði af sér eftir að dagblaðið Washington Post birti langa grein um árás hans á tvítuga stúlku árið 1973 þegar Mack var nítján ára gamall. Mack var fundinn sekur og fékk átta ára dóm. Honum var sleppt eftir 27 mánaða fangelsisvist og var fljótlega ráðinn til starfa hjá Wright. Wright segir að hann hafi ekki vitað öll tildrög glæps Mack. Öll umfjöllun fiölmiðla um Mack léttir ekki á Wright en siðanefnd bandarisfca þingsíns lýsti þvi yfir nýverið aö hann hefði líklega brotið gegn siðareglum. Skrifstofur Samstöðu hleraðar? Fulltrúar Samstöðu, óháðu verkalýðssamtakanna í Póilandi, sögðu í gær að þeir hefðu fundiö nýtísku hlerunartæki í eiimi af héraösskrifstofum samtakanna. Einn frambjóðanda samtakanna til þingkosninga sagði að liklegt væri að öryggislögregla hefði komið hlerunartækjunum fyrir. „Ef svo er mun reynast erfitt að finna þann er framkvæmdi verkið," sagði Anna Skowronska, frambjóðandi Samstöðu tíl þingkosninga. Yfirvöld hófu rannsókn á málinu á miðvikudag, daginn eftir að hle- runarútbúnaðurinn fannst. Líkið í heimsreisu Um eitt þúsund vinir og vandamenn Jag Mohan Singh komu til að vera viðstaddir jaröarfór hans í Fiji en var þá tilkynnt að líkið væri ekki tii staðar. Singh iést í Ástralíu en vinir höfðu komiö því svo fyrir að líkið yrði sent til Fiji. Fuiltrúar ástralska flugfélagsins Qantas sögðu að fyrir mistök hefði líkið verið sent í heimsreisu Kistan lenti undir farmi af fersk- u grænmetí og starfsmönnum flugfélagsins yfirsást hún. Lík Sings komst loks á leiðarenda en hafði í millitíðinni ferðast tii Ta- híti og Los Angeles svo eitthvað sé nefht. Passtoors sleppt Helene Passtoors með bamabarn sltt vlð fangelsið I Suður-Afrlku. Sfmamynd Reuter Belgíska konan Helene Passtoors kom í gær heim til Belgíu eftír að hafa setið í fangelsi í Suður-Afríku í þijú ár. Passtoors hafði verið dæmd til tíu ára fangelsisvistar fyrir að hafa útvegað biökkumönnum vopn. Við komuna til Belgíu hét Passtoors því að halda áfram baráttunni fyr- ir blökkumenn í Suður-Afríku. En þegar hún var látin laus hafði hún lofaö aö á engan hátt hvetja til ofbeldisaðgeröa blökkumanna. Hún var einnig látin lofa að koma aldrei aftur til Suður-AfrSku né nágrannaríkja landsins. Eldgos á Iturup-eyju Eldfjall á sovésku eyjunni Iturup hafur vaknaö tU lífsins að sögn sov- éskra fiölmíðla og er það í fyrsta sinn í aldaraðir sem eldfjallið á þessari eyju gýs. Eidfiahið hefur tvívegis spúið eldi og ösku síðustu daga. Sendir herlið til Panama Ráðamenn í Panama ásökuðu Bush Bandarí1 "brseta í gærkvöldi nær um að s, Panama stríð á hendur en forseuun tilkynnti í gær að hann myndi senda tæplega tvö þúsund manna herhð til Panama. Um 11 þúsund bandarískir hermenn eru fyrir í landinu. Hermennirnir eiga að gæta öryggis bandarískra borgara og hermanna sem eru í landinu og vinna aö lýðræði. Þá hvatti forsetinn stjómarhermenn Panama til að hætta stuðningi við Noriega hershöfðingja sem í raun er einráður í Panama. Ákvörðun Bandaríkjaforseta kem- ur í kjölfar mikils óróa í Panama vegna kosninga sem haldnar voru þar á sunnudag. Forsetinn sagöi í gær aö hermennimir fæm til Pa- nama innan sólarhrings. í gærmorgun ógilti kjörstjórn í Panama úrslit forseta- og þingkosn- inganna og bar við m.a. íhlutan er- lendra ríkja og kosningasvikum. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar, sem kveðast fullvissir um að hafa unnið sigur í þessum kosningum þrátt fyrir yfirlýsingar stjómarinnar um sigur, segjast munu halda áfram baráttunni fyrir lýðræði í Panama. Skoðanakannanir kirkjunnar í Pa- nama og stjómarandstöðunnar sýna Bush Bandaríkjaforseta var mikið niðri fyrir í gær en þá tilkynnti hann að hann myndi senda um tvö þús- und manna herlið til Panama vegna mikils óróa í landinu. Simamynd Reuter að fulltrúar stjómarandstöðunnar hafi unniö mikinn sigur. Forseta- og varaforsetaframbjóðendur stjórnar- andstöðunnar voru í gær barðir af liðsmönnum Noriegas þegar mikil mótmæli bmtust út í Panamaborg. Bandaríkjamenn og mörg önnur ríki hafa ásakaö Noriega um að reyna að hunsa vilja þjóðarinnar með því að ógilda niðurstöðurnar. Ráðamenn í Panama funduðu í gær um ástandið í landinu en ekkert er vitað um niðurstöður þess fundar. Bush kallaði bandaríska sendi- herrann í Panama heim í gær og hóf brottflutning Bandaríkjamanna bú- settra í landinu á öruggari staði eða úr landi í mörgum tilvikum. Um 50 þúsund Bandaríkjamenn eru búsett- ir í Panama. í landinu em 14 banda- rískar herstöðvar og nú um 11.000 hermenn. Þeirra hlutverk er að gæta Panama-skurðarins en samkvæmt samningi ríkjanna munu Banda- ríkjamenn láta Panama í té yfirráð yfir skurðinum árið 1999. Samkvæmt upplýsingum hermála- sérfræðinga eru bandarískir her- menn um fjögur þúsund fleiri en stjórnarhermenn Panama og að auki mun betur vopnaðir. En auk stjórn- arhersins eru um tólf þúsund liðs- menn Noriegas hershöfðingja vopn- um búnir. Bandaríkjamenn hafa árangurs- laust reynt að koma Noriega frá völd- um síðan í febrúarmánuði árið 1988 þegar bandarískur dómstóll fann hann sekan um aðild að fíkniefna- sölu. Reuter Bandarískir hermenn í Panama eru nú vel vopnum búnir og vakta innganga í allar fjórtán herstöövar Bandaríkjanna í landinu. Símamynd Reuter fran-kontra vopnasölumálið í Bandaríkjunum: Fleiri ákærur á hendur Secord Richard Secord, fyrrum major í bandariska flughernum, var í gær ákæröur um níu ákæruatriði auk þeirra sex sem hann á þegar yfir höfði sér vegna aðildar sinnar að íran-kontra vopnasölumálinu. Simamynd Reuter Sérstakur saksóknari í íran-kontra vopnasölumálinu í Bandaríkjunum tilkynnti í gær aö hann myndi leggja fram frekari ákærur á hendur Ric- hard Secord fyrir aðpd hans að ólög- legri sölu vopna til írans. Saksóknarinn, Lawrence Walch, sagði að níu nýjar ákærur hefðu ver- ið lagðar fram á hendur Secord, fyrr- um major í flughemum, auk þeirra sex sem hann hefði þegar verið ákærður um. Walch sagði að ákær- umar, sem era meinsærisákærur, kæmu til vegna framburðar Secords í þingyfirheyrslum vegna vopnasölu- málsins sumarið 1987. Hann var fyrsta vitnið í þeim þingyfirheyrsl- um. Walch sagði meðal annars að Secord hefði ekki sagt satt frá hversu mikinn ágóði hann hefði hlotið af sölu vopnanna. Secord á þegar yfir höfði sér sex ákærur vegna aðildar sinnar að þessu máli. Einu réttarhaldanna í þessu máli er nú lokið. Ohver North, fyirum embættismaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjaforseta, var fundinn sek- ur um þrjú af tólf ákæruatriðum. North og Secord unnu saman að sölu vopna til írans á árunum 1985- 1986. Hluti ágóðans af þeirri sölu var síðar veittur á laun til kontraskæru- liðanna í Nicaragua á þeim tíma er bandaríska löggjafarþingið hafði bannað frekari aðstoð til þeirra. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.