Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Síða 11
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1989. 11 Utlönd Carlsson í eldlínunni Fjórum sinnum á þremur árum hef- ur Ingvar Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóðar, sem væntanlegur er í op- inbera heimsókn til íslands þann 15. mai, stokkað upp í stjórn sinni. Og í hvert skipti hafa horflð af sjónarsvið- inu nokkrir ráðherrar Olofs Palme, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar, sem var myrtur 28. febrúar 1986. Ingvar Carlsson hefur sagt að ástæðan fyrir ráöherraskiptunum sé þörfm á endurnýjun og að sú tíð sé liðin þegar ráðherrar gátu setið á stólum sírium í áratugi. En breyting- arnar gefa einnig til kynna að Ingvar Carlsson hafi tekið til greina þá gagn- rýni sem stjórnin hefur sætt vegna meðferðar á ýmsum málaflokkum. Skyldusparnaöur Tillögur þær sem hann flutti ásamt Kjell-Olof Feldt fiármálaráðherra á þingi á miðvikudaginn um tíma- bundinn skyldusparnað einstaklinga og fyrirtækja til þess að draga úr þenslu í efnahagslífinu hafa einnig sætt gagnrýni. Carl Bildt, formaður Hægri flokksins, sagði til dæmis að stjórnin ætti að íhuga afsögn. En með tillögum sínum er Jafnað- arflokkurinn á sömu línu og Mið- flokkurinn hefur áður verið enda þótt Ingvar Carlsson fullyrði aö eng- in samvinna hafi átt sér stað. Mið- flokkurinn hefur reyndar sett skil- yrði fyrir stuðningi sínum við tillög- urnar um skyldusparnað sem gera ráð fyrir að 4 prósent af tekjuskattin- um verði lögð til hliðar. Formaður Miðflokksins, Olof Johansson, segir skilyrðin vera þau að stjórnin haldi áfram að greiða niður mjólk, auk þess sem tillagan um hækkun launa- tengdra gjalda á atvinnurekendur verði dregin til baka. Gömul hugmynd Hugmyndin um tímabundinn skyldusparnað er ekki ný. Henni var komið á framfæri af blaðinu Dagens Industri þar sem stungið var upp á því að öllum Svíum yrði gert að spara. Með því væri hægt að komast hjá því að hækka virðisaukaskattinn eins og Feldt hafði borið fram tillögur um. Olof Johansson, formanni Mið- flokksins, og flokksbróður hans, Ivar Franzén, leist vel á hugmyndina og í kjallaragrein í Dagens Nyheter kváðu þeir hana langtum betri en hækkun virðisaukaskattsins. Aðalhagfræðingur Alþýðusam- bandsins, P.O. Edin, studdi þá og sagði að skyldusparnaður hefði verið ræddur innan sambandsins sem heföi athugað hvernig Danir fóru að 1985. Það fé, sem lagt var inn á reikn- inga haustið 1985, er enn inni og má taka það út í þremur áfóngum frá júlí 1990 þar til í júlí 1992. Andvígir Hinir stjórnarandstööuflokkarnir eru andvígir skyldusparnaði. Bengt Westerberg, formaður Þjóðarflokks- ins, sagði hann koma verst niður á þeim sem ekki hefðu efni á að spara. Carl Bildt, formaður Hægri flokks- ins, sagði reyndar að allur sparnaður væri af hinu góða en allar þvinganir væru vondar. Finnum líst ekki verr á hugmynd- irnar um skyldusparnað en svo að þeir tilkynntu í gær að svipaður skylduspamaður gæti orðið aö vera- leika í Finnlandi þegar í haust ef ekki hefði tekist að komast að hófsamri lausn á vinnumarkaðnum. Ilkka Su- ominen, viðskipta- og iðnaðarráð- herra, sagði að hægri menn myndu sætta sig við skyldusparnað ef féð yrði síðar endurgreitt. Efnahags- vandræðin í Finnlandi eru svipuð og í Svíþjóð, of mikil þensla í efnahagslíf- inu, neyslan er mikil og óhagstæður viðskiptajöfnuður fer versnandi. Afsögn Þrátt fyrir áskoran Bildts á stjórn- ina um aö segja af sér telja fæstir að Heitt er nú í kringum Ingvar Carls- son, forsætisráðherra Sviþjóðar, vegna tillagna um skyldusparnað. Teikning Lurie til þess komi vegria tillagnanna um skyldusparnað. Önnur mál hafa samt leitt til afsagnar ráðherra. Þann 7. júní í fyrra tilkynnti Anna-Greta Lei- jon, sem þá hafði verið dómsmálaráö- herra í aðeins átta mánuði, afsögn sína. Það var síðdegisblaðið Expressen sem uppljóstraði að bókaútgefandinn Ebbe Carlsson hefði, með aðstoð dómsmálaráðherrans og ríkislög- reglustjórans, rannsakað upp á eigin spýtur hveijir gætu verið morðingjar Olofs Palme. Hann hafði fengið með- mælabréf frá bæöi Leijon og Nils-Erik Áhmansson, ríkislögreglustjóranum. Vegna tilmæla ríkislögreglustjórans hafði Carlsson fengið eigin lífvorð frá Stokkhólmslögreglunni. Lifvörður þessi var gripinn við tollskoðun í Helsingborg er hann reyndi að smygl- a til Svíþjóðar ólöglegum hlerunarút- búnaði. Dómsmálaráðherrar Það var meðmælabréfið til Carls- sonar sem varð fall Önnu-Gretu Lei- jon. Bréfið var stílað á bresk yfirvöld og í því stóð að rannsókn Ebbe Carls- sonar væri á vegum dómsmálaráð- herrans. Bréfið var dagsett 4. maí en var fyrst fært í bækur ráöuneytisins 1. júní, eftir uppljóstrun Expressens. Leiðtogar borgaraflokkanna þriggja kröfðust atkvæðagreiðslu um vantrauststillögu á hendur dóms- málaráðherranum og leiðtogi Vinstri flokksins kommúnistanna tók síðar einnig uridir þá kröfu. Áður en af atkvæðagreiðslunni varð tilkynnti Leijon afsögn sína. Hún var þriðji dómsmálaráðherra jafnaðarmanna sem neyddist til aö segja af sér. í nóvember 1983 dró Ove Rainer sig í hlé vegna eigin skatta- mála. Og í september 1987 hætti Sten Wickbom í kjölfar flótta njósnarans Stigs Berling. Kosningar Eftir að hafa tekið til eftir sig í ráðuneytinu hellti Anna-Greta Lei- jon sér út í baráttuna fyrir kosning- arnar sem fram fóru um haustið. Ingvar Carlsson forsætisráðherra lofaði henni mikilvægri ráðherra- stöðu í nýrri stjórn sinni ef hann sigraði í kosningunum. Það loforð hans sætti hins vegar mikilli gagn- rýni úr mörgum áttum og Carlsson gat ekki staðið við það. Leijon fékk enga ráðherrastöðu en varð í staðinn formaður fjármálanefndar þingsins. í kosningum 18. september fengu Svíar nýjan þingflokk í fyrsta sinn í rúm sjötíu ár. Umhverfisverndar- flokkurinn hlaut 5,5 prósent atkvæða og þar með 20 menn inn á þing. Jafn- aðarflokkurinn hlaut 43,7 prósent atkvæðanna en hafði í kosningunum 1985 fengið 45 prósent. Tapaði flokk- urinn 3 þingsætum. Því hafði veriö spáð að Vinstri flokkurinn kommúnistarnir næöu ekki þeim 4 prósentum sem þurfti til að komast á þing. Það kom því á óvart að fiokkurinn skyldi hljóta 5,9 prósent atkvæða og 2 menn til við- bótar þeim 19 sem á þingi voru. Mið- flokknum gekk einnig vel í kosning- unum. Hann jók fylgi sitt úr 9,9 pró- sentum í 11,4 og fékk 42 menn kjörna. Hægri flokkurinn og Þjóðarflokk- urinn voru þeir sem biðu afhroð í kosningunum. Fylgi Hægri flokksins minnkaði um 3 prósent, í 18,3, og tap- aði flokkurinn 10 þingsætum. Þjóðar- flokkurinn tapaði 7 þingsætum og hlaut 12,2 prósent atkvæðanna en haföi áður verið með 14,3. Margt þykir benda til aö hin hefö- bundna blokkpólítík í Svíþjóð, borg- araleg og sósíalísk, sé að hverfa. Þeg- ar er farið að tala um ,.hægri blokk- ina“, sem samanstendur af Hægri flokknum og Þjóðarflokknum, og „grænu blokkina" sem í eru Mið- flokkurinn og Umhverfisverndar- flokkurinn. BODI6 HERRAVÖRUR kynning í dag skin care húðsnyrtivörur fyrir herra Cool Water, nýr herrailmur "Rv T C IAUGAVEGI 46, UVyJscIC) SÍMI 24494_ Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511. Við óskum þeim 100 íslendingum sem hafa unnið milljón króna eða meira í Lottóinu hjartanlega til hamingju. Hundraðasti millj- ónamæringurinn var einstæð móðir í Bol- ungarvík, Guðmunda Sævarsdóttir. Því horfa hún og dætur hennar, Hrund og Brynja Ruth Karlsdætur, brosmildar mót nýju sumri. Þú gætir orðið sá næsti, en ... Það verður enginn LOTTO-milli án þess að vera með!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.