Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Síða 12
12
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1989.
Spumingin
Hvað ætlarþú að gera um
hvítasunnuna?
Sveinn Kristjánsson: Ég veit það ekki
enn, ætli maður verði ekki bara
heima hjá sér.
Hrafn Vilbergsson tamningamaður:
Ég býst við að ég verði heima hjá
mér.
Sigurður Jónsson nemi: Ég ætla að
hggja í leti.
Bjarni Þórisson nemi: Ég ætla að fara
til vinar míns og við ætlum að fara
saman upp í sveit að veiða.
Anna Margrét Rögnvaldsdóttir nemi:
Ekkert sérstakt nema ef vera kynni
að ég brygði mér út að hlaupa.
Magnea Ósk Sigursveinsdóttir nemi:
Ég ætla á hestbak en ég fékk hest í
fermingargjöf.
Lesendur
BHMR-verkfallið pólitísk árás:
Armar Alþýðubanda-
lags undirrótin?
Páll Halldórsson, formaður BHMR. - Leiksoppur í stríðinu innan Alþýðu-
bandalagsins milli armanna tveggja?
Kristinn Einarsson skrifar:
Það er orðið ógnvekjandi að búa í
þessu landi þar sem þjóðlífið ræðst
frá degi til dags ef svo má að orði
komast .og enginn veit hvar hann
stendur fjárhagslega, jafnvel ekki
atvinnulega. Þeir sem kosnir eru til
að ráða fram úr vandamálum þjóðar-
innar, ríkisstjóm og ráðherrar henn-
ar, eru gjörsamlega ráðalausir og
þora ekki að taka á neinum vanda. -
Ríkisstjórnin jafnvel ólöglega til
komin þegar öllu er á botninn hvolft.
Forsetavaldið ekkert vald í raun og
þarf að kyngja þvi að hafa veriö
blekkt þegar fullyrt var að meiri-
hluti Alþingis styddi ríkisstjómina.
Og nú hefur verkfall BHMR staðið
í rúmlega 5 vikur og enginn hreyfir
hönd né fót til að slá á þær aðgerðir
sem þessi hópur hefur tekið upp til
aö lama þjóðhflð. Helst er það fjár-
málaráðherrann sem hefur þó sýnt
ábyrgð með því að standa fast á því
að semja ekki um meiri launahækk-
anir til eins hóps en annars.
Ég get ekki annað en trúað einum
kunningja mínum (enda engin raun-
hæf eða betri skýring komið á þeirri
heift sem einkennir þetta verkfall)
sem heldur því fram í fullri alvöru,
að hér sé um að ræða harðvítuga
árás jafnvel uppreisn innan Alþýðu-
bandalagsins að ræða. Innan Al-
þýðubandalagsins kvað vera ákveðið
„flokkseigendafélag" (ekki síður en
í öörum flokkum) sem, ekki hefur séð
til sólar síðan Ólafur Ragnar Gríms-
son var kosinn sem formaður flokks-
ins. Þjóðviljinn reynir að halda uppi
andófi gegn formanninum með fyrir-
sögnum og innskotum dyggra fylgis-
manna fráfarandi formanns („Hvik-
um ekki spönn“ segir t.d. á forsíðu
þess blaðs 10. þ.m. og innskotsgreinin
„Ég hló í Sóknarsalnum" kemur frá
kennara nokkrum í blaðinu daginn
áður).
í stuðningshópi flokkseigendafé-
lagsins eru margir menntamenn sem
vilja sjá fjármálaráðherra misstíga
sig póhtískt. Menntamálaráðherra
kvað eiga um sárt að binda eftir
brottfor úr formannsstóli og vera
ekki eins leitt vegna verkfallsins og
hann láti. Öllum syndum er kastað
aftur fyrir sig til fjármálaráðherra
og honum sagt að hans sé ábyrgðin.
- Próf í skólum á hinum og þessum
tíma í sumar eru t.d. vonlaus, hvað
sem yfirlýsingum menntamálaráð-
herra hður og eru þær yfirlýsingar
einungis til þess fallnar að vekja fal-
skar vonir hjá skólafólki.
Það sem kórónar svo allt saman,
segir svo kunningi minn, er að for-
maður BHMR er kosinn til að hafa
að leiksoppi í stríðinu innan Al-
þýðubandalagsins og ætlar hvergi að
gefa sig fyrr en hann hefur skilað
sínu hlutverki í þessari pólitísku
baráttu milli flokkseigendafélagsins
og fyrrverandi formanns gegn íjár-
málaráðherra sem er núverandi for-
maður flokksins. - Það er bara engan
veginn útséð um hver niðurstaðan
verður í þeirri baráttu.
Landvarsla í Heröubreiöarlindum:
Góðum dreng haf nað
Utanríkisráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson. - „Hann bar höfuð og herðar
yfir aðra ræðumenn," segir bréfritari.
Eldhúsdagsumræðumar:
Skýringar skorti
Jónina Björnsdóttir skrifar:
Er hinar árlegu eldhúsdagsumræð-
ur fóru fram munu ýmsir hafa lagt
við hlustir, mest þó af gömlum vana.
Fáir munu líka hafa búist við að þar
kæmi fram eitthvað bitastætt, enda
að mestu þjarkað þarna um alkunn
mál.
En þarna eigast við menn sem telja
sig ekki neina „venjulega kontór-
ista“, svo að vitnaö sé til oröa forseta
þingsins, núverandi. - í þeim orðum
speglast viðhorf sem skáldið Jón S.
Bergmann (1874-1927) vék aö í al-
kunnri vísu:
Auður, dramb og falleg föt
fyrst af öllu þérist,
og menn sem hafa mör og kjöt
meira en almennt gerist.
En þótt ekki væri mikið á þessum
ræðum að græöa mátti heyra aö
sumir þingmanna eru allvel máh
farnir, enda atvinnumenn á þessu
sviði. Höfuö og herðar yfir aðra
ræðumenn bar þó utanríkisráðherr-
ann, Jón Baldvin Hannibalsson. -
Virtist honum kippa mjög í kyn til
hins þekkta föður síns sem mestur
hefur verið „folketaler" íslenskra
stjórnmálamanna.
Ástæðan til þess að ég stakk hér
niður penna er annars fyrst og
fremst sú aö vekja athygli á því að
mjög skorti á aö ráðherrar skýrðu frá
því á hvern hátt þeir hygöust bregð-
ast við þeim mikla vanda sem viö
blasir i efnahags- og atvinnumálum.
- Heföi forsætisráðherra verið skylt
að skýra stefnu stjórnarinnar í þeim
málum.
Unnar M. Andrésson skrifar:
Fyrir ekki löngu las ég grein í DV.
Þar var haft eftir góðvini mínum og
„fjallafélaga", Hreini Skagíjörð, að
hann væri bæði bálreiöur og sár
vegna óréttlætis sem honum hefur
verið sýnt, er honum var hafnað sem
landverði í Herðubreiðarlindum.
Ég hélt satt að segja að þetta hlyti
að vera einhver misskhningur. En
það reyndist því miður ekki vera (eða
hvað?). Þegar mér skhdist að svo var
ekki varð ég líka reiður, meira að
segja fjúkandi vondur. En þar sem ‘
reiðin er hin neikvæði hluti tilfinn-
inga okkar og leiðir ekkert gott af sér
ákvað ég að stilla mig og hugsa mál-
ið áður en ég léti þessa athugasemd
mína frá mér fara.
Forsendur þær sem á viröist byggð
sú ákvörðun að reka rýtinginn í bak-
ið á Hreini vini vorum eftir sjö ára
dygga og óeigingjarna þjónustu, sem
alhr landveröir ættu að taka sér til
fyrirmyndar (og sumir eflaust gera),
eru hlægilegar og hreint og beint
aumkunarverðar vegna þess hve
haldlausar og ómerkilegar þær eru.
Að bera það á borð að sjálfur
„fjalla-Eyvindur" Herðubreiðarlinda
(Hreinn) þurfi allt í einu að fara að
sækja námskeið til að kynna sér
þann stað, sem hann hefur annast
af ástúð og með ánægju í 7 ár, er álíka
fáránlegt og að senda háskólamennt-
aðan mann aftur í barnaskóla.
Ég veit að flestir þeir starfsfélagar
mínir sem vinna við að sýna ferða-
mönnum landið okkar fagra eru mér
hjartanlega sammála þegar ég full-
yrði að á fáa staði á hálendinu hefur
verið eins gott að koma og í lindirnar
til Hreinsa. Þar hafa hlýjar móttökur
og frábær þjónusta á alla lund aldrei
brugðist.
Ég vh að lokum lýsa undrun minni
á eindæma heybrókarhætti forstöðu-
manna Ferðafélags Akureyrar í
þessu máli. Ég hef alltaf skilið orðið
„félag“ sem samtök margra aðha
með ákveðinn styrk, stefnu og at-
kvæðarétt að markmiði. Ef styrkur
ykkar er ekki meiri en svo að þið
látið einhvern „allsherjargoða" í
Reykjavík sparka einum ykkar besta
manni út úr umhverfi sínu þá er
skömm ykkar mikil en lítil virðing.
Hreinn Skagfjörð á ekki að gjalda
þess þótt Náttúruverndarráð þurfi
að losna við einhverja „óþægðar-
peyja“ úr Skaftafelli noröur fyrir
jökla. Þetta mál hefur mikiö verið
rætt í okkar hópi, svo og að manna-
val Náttúrverndaráðs í landvarðar-
stöður síðustu 3^4 ár hefur ekki allt-
af verið til aö hrópa húrra fyrir.
Geymi kvittanir
frá RÚV
G.G. skrifar:
Ég las í DV hinn 5. þ.m. grein frá
K.Á. um inheimtu Ríkisútvarpsins,
þar sem henni er ekki vönduð
kveðjan.
í þessu sambandi minnist ég þess
er ég þurfti fyrir um þremur eða
fjórum árum að fá leiðréttingu á
ársgreiðslu en ég haföi verið skuld-
færður og greitt töluvert umfram
tilskilda ársgreiðslu.
Ég fór með mínar kvittanir þessu
til sönnunar en innheimtustjóri og
starfsfólk brást við meö ólíkindum
og var mér að lokinni 15-20 mín-
útna biö loks endurgreitt það sem
ég átti inni og peningunum nánast
kastað í mig.
~\Það var langur vegur frá að ég
væri beöinn afsökunar. - Síðan
geymi ég ahar kvittanir, frá þessari
stofnun einni, í sex ár.
Hringiðísíma 27022
millikl. 10ogl2eðaskrifið