Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Side 15
FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1989. 15 Einkavæða hluta af kjaradeilunni? Kjaradeilur eru mjög alvarlegt mál á íslandi. Nú eru uppi deilur sem virðast vera komnar í hálfgerða „pattstöðu“. Ekki dettur mér í hug að halda því fram að lífskjör þeirra sem eiga í kjaradeilu nú séu nægi- lega góð. Mér kemur til hugar að eitthvað af þessum deiium megi leysa með aukinni einkavæðingu, þ.e. ein- hverjir þeirra sem nú standa í deil- um stofni sér fyrirtæki og selji þjónustu sína i útseldri vinnu með svipuðum hætti og t.d. verkfræði- stofur, bifreiðaverkstæði, rafvirkj- ar o.fl. Þetta er engin alhæfmg og ég bið fólk í guðanna bænum að skoða hugmyndina með jákvæðu hugar- fari. Það er mín persónulega skoð- un að einkarekstur sé heppilegri heldur en ríkisrekstur og þar sé framleiðni pr. starfsmann hærri sem gefi aftur möguleika á betri launakjörum. Vandamálið er verðbólgan Kjaradeilur með þeim hætti sem nú er eru farnar að skapa alls kyns vandræði. Ef deilurnar leiða til tjóns þá skerðast einfaldlega mögu- leikamir til að bæta lífskjör. Góöur maður sagði eitt sinn: „Tveir menn róa til fiskjar. Þeir fiska tíu fiska. Þessir menn skipta aldrei nema tíu fiskum í fjörunni." Það versta við verkföll eins og nú er að þau eru farin að valda þriðja aðila verulegu tjóni í mörgum til- fellum. Til dæmis nemendum, kornbændum, fiskeldismönnum o.fl. Verkfóll með þessum hætti eru orðin úrelt baráttuaðferð. Þetta KjaUarinn Kristinn Pétursson alþingismaður skilar ekki bættum lífsjörum. Vandamálið á íslandi er verð- bólgan og óstjórnin i efnahagsmál- um. Verðbólgu og peningalegri óstjórn fylgir síðan svimandi hátt verðlag, offjárfesting vegna alls kyns spákaupmennsku eins og væntingar um gengisbreytingar, sífelldra verðhækkana, hraða og stress við allar framkvæmdir (áður en allt hækkar) o.fi. Allt veldur þetta síðan þenslu og vaxtahækk- unum. Þetta er hið raunverulega vandamál. Besta kjarabót, sem hægt væri að fá, yæri stjórn á efnahagsmálum þjóðarinnar þannig að jafnvægis- ástand næðist á fjármagnsmörkuð- um og jafnvægi næðist í utanríki- sviðskiptun (engin viðskiptahalli). íslendingar eiga svo miklar auð- Besta kjarabótin Komum aftur að upphafmu. Ég vil biðja verkfallsfólk og fleiri að hugleiða það jákvætt að kannski megi bæta launakjör einhverra með aukinni einkavæöingu þar sem í því felst aukin framleiðni. Þaö gæti a.m.k. hentað einhvers staðar. En annars staðar hentar það ekki, það er mér ljóst. Þar sem svo er er besta kjarabótin heilbrigð stjórn efnahagsmála sem aftur leið- ir til lægra vöruverðs. Vona ég svo að þessi verkfallsdeila megi leysast sem fyrst. Kristinn Pétursson „Handstýrð" umferð. - Týpískt dæmi ríkisafskipta, segir m.a. í greininni. lindir að þetta er vel hægt. Staðreyndin er bara sú að stjórn efnahagsmála hér á landi hefur verið of sósíalísk (of mikil miðstýr- ing). Ástæðan fyrir því er sú að fijálslynd stjórnmálaöfl hafa ekki fengið nægilegt fylgi hér á landi. Ríkið í umferðinni Ég heyrði góða sögu af ríkisaf- skiptum um daginn. Á ákveönum gatnamótum í Reykjavík (fjölförn- um gatnamótum) bila stundum umferðarljósin. Nú, önnur gatan er aöalbraut en biðskylda í hinum áttunum. Málið er þetta: Ef enginn lögregluþjónn lætur sjá sig þá skrönglast þetta einhvern veginn. Ef hins vegar lögreglan fer að „handstýra" umferðinni þá mynd- ast langar umferðarstíflur! Týpískt dæmi ríkisafskipta. „Það versta við verkföll eins og nú er að þau eru farin að valda þriðja aðila verulegu tjóni 1 mörgum tilfellum.“ Sönglagakeppnin og þjóðlög í síðustu söngvakeppni Eurovisi- on brá svo við að íslendingar voru lægstir, fengu ekkert atkvæði. Höfðum við þó aldrei verið hátt skrifaðir þar. Hvaða ályktun er hægt að draga af þessu um íslend- inga sem tónlistarþjóð? Þéttbýli og dans í dómnefndum Eurovision er fólk úr öllum aldurshópum og þjóðfé- lagshópum. Því verður tóniistin að höfða til þeirra allra, fara milliveg- inn milli þeirra tónlistarstrauma sem það hefur ahst upp við, svo sem valsa, popptónlistar, klassískrar tónlistar, lúðratónlist- ar og þjóðlaga. Hér nýtur ísland þess ekki að vera bókmenntaþjóð, fiskveiðiþjóð, ósökkvandi flugmóöurskip eða efnahagslega þróað land. Það sem hefði þurft fremur væri þéttbýli um aldaraðir. Þannig hefði þurft að þróast fjölbreytt dansmenning til forna, ásamt undirspili á hljóðfæri. En hér var fremur lítiö um dans og þá oftast bara sungið með; tilefn- in voru fá þar eð fólkið var svo dreift að það gat ekki komið saman daglega heldur bara nokkrum sinnum á ári. Árangurinn er sá að við sitjum uppi með rímur og hringdansa- söngva og langspilstónlistin er týnd. í kjölfarið verður frumsamda dægurlagatónlistin síðan fullmikiö í ætt við rímnasöngl: mikil áhersla lögð á laglínu og texta en fábreytt KjaUariim Tryggvi V. Líndal þjóðfélagsfræðingur undirspil. Auðvelt hefur verið að greina hina áberandi einstreng- ingslegu rímnasöngsarfleið okkar í framlögum okkar til Söngva- keppni evrópskra útvarpstöðva. sérstaklega hjá Sverri Stormsker. Hinum þátttökuþjóðunum hefur tekist að byggja á miklu fjölbreytt- ari arfleið en okkur. Tóniistin jafngömul útvarpinu? Auðvelt er að fallast á að sú teg- und af tónlist, sem við þurfum fyr- ir Eurovision-keppnina, þ.e. borg- menningartónlist, hafi ekki náö fótfestu hjá íslenskum almenningi fyrr en með tilkomu útvarpsins 1930. Eftir það hafi orðið grundvöll- ur fyrir innlendri þróun, í formi frumsaminna verka danshljóm- sveita og annarra tónskálda sem gátu nú náð til dreifðs almennings gegnum útvarpið og með hljóm- plötum. Hér er um aö ræða hálfrar aldar sögu meðan hinar þjóðirnar í Euro- vision-keppninni hafa margra alda sögu að baki, svo sem Finnland, eða margra árþúsunda, svo sem Grikk- land. Að vísu var langspilið spilað eitt- hvað hér frá því það kom frá Skandinavíu um 1700 og í lok 19. aldar spiluðu margir bændur á fiðlu fyrir dansi, eftir skandinav- ískri fyrirmynd. Þá voru líka píanóin og orgelin að koma inn á heimilin og kórstarf að tíðkast. Frá þeim tíma koma fyrstu þekktu tón- skáldin okkar. Fornmenningog milljónaþjóðir Löndin, sem við keppum við, eru öll milljónaþjóðir með gömlum þéttbýliskjörnum. Þar er gömul hljóðfæratónmenning. Óþarfi er að riija upp helstu Evrópulöndin, svo sem Þýskaland og Ítalíu. En Grikk- land hefur gróskumesta þjóðlaga- grunninn í dægurlögum af öllum Evrópulöndum. Kýpur, lítil milljónaþjóð, býr að sömu arfleifð og Grikkland og Tyrkland. Tyrkland hefur haft stöðug menningaráhrif á Grikk- land í árþúsundir. Skandinavar hafa frá 17. öld a.m.k. haft danslög, hljóðfæraspil og tónskáld. Brons- aldarlúðrar Dana voru ekki síður merkileg hljóðfæri en langspilið okkar. Helst væri aö leita að jafnokum íslendinga í þjóðlagatónlist hjá fá- mennum eyþjóðum, svo sem Fær- eyingum, Grænlendingum, Ný- fundlendingum og Grænhöfðaey- ingum. En þær, eins og flestar aðr- ar smáþjóðir, eru hlutar af stærri þjóðríkjum eða eru utan Evrópu og því ekki í Eurovision. Þótt íslendingar séu svo áhugas- amir um kórstarf og tónlistarskóla- starf sem raun ber vitni þá er það ekki það sama og sköpunarkraftur eða hefð. Flest ríki Afríku hafa trú- lega úr meiru slíku að ausa þótt þau séu frumstæðari. Enda er vest- ræn dægurtónlist undir miklum afrískum áhrifum, svo sem jass og blues. Kannski þráum við tónlist öðrum fremur af því hún hefur verið eitt 'það helsta sem viö höfum farið á mis við í strjálbýlinu. En það eitt skapar ekki rótgróna tónhstarþjóð. Við stæðum liklega betur að vígi í keppni um sérhæfðari og einstakl- ingsbundnari listaverk, svo sem klassískar eða framúrstefnutón- smíðar, popptónlist, myndlist eða skáldskap, heldur en í keppni eins og Eurovision er. Höldum áfram Viö höfum lent neðarlega í Euro- vision-keppninni hingað til. En það verður ekki aftur snúið nú þegar samstarf við Evrópuráðslöndin verður okkur æ mikilvægara. Við erum óvön því að þurfa að keppa í greinum sem við höfum ekki forskot í. En þessi keppni ætti að þroska pólitíska samkennd okk- ar og kenna okkur að vera sveigj- anlegir í utanríkismálum, hvort sem Eurovision eða Grænfriðung- ar eiga í hlut. Tiyggvi V. Líndal „Við erum óvön því að þurfa að keppa í greinum sem við höfum ekki forskot í. En þessi keppni ætti að þroska póli- tíska samkennd okkar..

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.