Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1989, Side 32
F R ÉTTAS KOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fulirar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Rifstjórn - AucjBýsingar - Áskrift- Dreifing: Sími 27022 FÖSTUDAGUR 12. MAÍ 1989. Kennarasambandið: Á samninga- fund í dag Samningafundi Kennarasam- bandsins og samninganefndar ríkis- ins, sem halda átti í gær, var frestaö þar til klukkan 11 í dag. Ástæöan fyrir frestuninni var mótmælastaða félaga í Kennarasambandinu við Al- þingishúsiö sem stóö frá klukkan' 13 í gær og fram eftir degi. Samkvæmt heimildum DV liggja fyrir svo að segja fullbúin samnings- drög fyrir Kennarasambandið. Ástæðan fyrir því að ekki hefur ver- ið gengið frá samningum er sú að Kennarasambandið hefur ekki viljað ganga frá samningum meðan Hið ís- lenska kennarafélag er í verkfalli. Nú er aftur á móti farið að þrýsta ■íast á stjórn Kennarasambandsins að ljúka samningum og um leið á að reyna að hafa kjarasamning Kenn- arasambandsins þannig að leið opn- ist fyrir háskólamenntaða kennara aðgangaaðhonum. S.dór Átök á fflemmi: Lögregluþjónn Hfbeinsbrotnaði — Til átaka kom á milli þriggja lög- reglumanna og fólks sem verið var . að vísa úr biðskýlinu á Hlemmi síð- degis í gær. Lögreglan var að vísa konu og manni úr biðskýlinu þegar þriðji maður kom þar aö. Hann réðst að lögreglumönnunum og brátt urðu mikii átök í skýlinu á milh lögreglu- mannanna þriggja og fólksins. Lög- reglan óskaði eftir aöstoð þeirra sem voru viðstaddir en enginn lagði lög- reglunni lið. Slagsmálin tóku enda þegar fleiri lögreglumenn komu á vettvang. Fólkiö var fært í fangageymslur og málið er nú hjá Rannsóknarlögregl- unni. Einn lögreglumaður rifbeinsbrotn- ^ði og skaddaðist á úlniið í átökun- *Tim. -sme Regnboginn upp í ÖHcina Jón Ragnarsson, veitingamaöur í Hótel Valhöll og eigandi kvikmynda- hússins Regnbogans, hefur fest kaup á Hótel Örk í Hveragerði. Jón greiðir 265 milljónir fyrir fasteignina. Innbú og lausamunir hótelsins fylgja ekki með í kaupunum. Samkvæmt heimildum DV greiðir Jón Framkvæmdasjóði, sem var eig- andi Hótel Arkar, hluta kaupverðs- ins meö Regnboganum. Jón tekur við -^rekstri hótelsins 1. júní en sam- kvæmt kaupsamningi er honum heimilt að hefja lagfæringar og fram- kvæmdiráhótelinustrax. -sme Maður féll í gjá á Þingvöllum: Ekki hræddur en smeykur - segir Þorvarður Jónsson sem slapp lítið meiddur „Við vorum að fara í sumarbú- stað Seðlabankans, en þar er ég starfsmaður, þegar óhappiö varð. Vegna þess að það var sujór á veg- inum og við ekki með skóflu urðum við aö fara aðra leið og ganga hluta hennar. Þegar við áttura stutt eför ógengiö komum við að litlum skafli. Ég hoppaði yfir skaflinn en Þorvarður steig á brúnina á honum og þá skipti engum togum að hann hrapaði niður í gjá sem var undir skaflinum. Fallið var um 10 metr- ar. Ég hljóp strax að gjánni en sá Þorvarð ekki. Gjáin er bæði mjó og újúp. Við gátum talað saman og ég sagði honum að ég færi eftir hjálp,“ sagði Sigríður Ingólfsdóttir. Sigríður var hér að lýsa aðdrag- andanum að því er maður hennar, Þorvaröur Jónsson, féll niður í djúpa gjá í Kárastaðanesi á Þing- völlum um miöjan dag í gær. „Það varð Þorvarði til happs að snjór var í gjánni og hann skall því ekki í bert bergiö. Eins var hann ólýsanlega heppinn er hann stöðv- aðist í gjánni þar sem hann kom niður á sillu. En það var vatn beggia megin við silluna," sagði Sigríður. „Ég var það heppinn að ég kom standandi niður. Þetta var óvænt lífsreynsla. Ég var ekki hræddur en óneitanlega varð ég smeykur," sagði Þorvarður Jónsson. „Ég fór strax að Valhöll og hitti. þar tvo menn sem voru að mála hótelið. Þeir brugöust strax við sem og stúlkan á símanum. Lögreglan á Selfossi og hjónin á Kárastöðum komu fljótlega á vettvang og öllu þessu fólki kunnum við þjónin bestu þakkir. Það gekk vel að ná Þorvarði úr gjánni. Einn mannanna seig niður og setti á hann bönd. Þaö var mik- ið blóð á höfði hans og var hann fluttur á slysadeild Borgarspítal- ans. Þar var hann saumaður bæði á enni ogá hnakka,“ sagði Sigríður Ingólfsdóttir. -sme Þessir fjórir menntaskólanemar úr Hamrahlíð, Sigurður H. Páisson, Þorsteinn Stefánsson, Aðalbjörn Þórólfsson og Leifur Geir Hafsteinsson, hafa unnið að því í kennaraverkfallinu undanfarið að búa til háhita ofurleiðara sem veitir rafstraumi ekkert viðnám. Þeir hafa gert þetta aigerlega á eigin spýtur en höfðu aðstöðu hjá dr. Þorsteini I. Sigfússyni i rannsóknastofu í eðlisfræði við Raunvísindastofnun Háskólans. Dr. Þorsteinn I. Sigfússon, sagði að þetta væri mikið afrek hjá nemendum á þessu skólastigi. Að búa til ofurleiðara, sem fundinn var upp fyrir tveimur árum, væri afskaplega mikið vandaverk sem þarfnaðist bæði þekkingar og nákvæmni. Hann sagðist telja afrek piltanna mjög svo athyglisvert. DV-mynd BG Séra Hjálmar Jónsson: Ekki tilbúinn að fara til Reykjavíkur „Ég hafði gert ráð fyrir aö vera 10-15 ár á landsbyggðinni og snúa þá aftur til Reykjavíkur ef færi gæf- ist. En áætlanir geta breyst. Starf mitt hér í Skagafirði, sem prestur og prófastur, og starfsvettvangur á meiri ítök í mér en ég hafði gert ráð fyrir þannig að ég er hreinlega ekki tilbúinn að fara héðan, hvað sem síð- ar verður,“ sagði Hjálmar Jónsson, prófastur í Skagafirði, í samtali við DV. Hjálmar var einn tíu umsækjenda um starf Dómirkjuprests í Reykjavík sem vahnn verður á kjörnefndar- fundi í sókninni 19. maí. Hann dró sína til baka 9. maí. En höfðu heima- menn í Skagaflrði einhver áhrif á ákvörðun Hjálmars? „Það voru sterk viðbrögð gegn því að ég leitaði brott en ég tók algerlega sjálfur þá ákvörðun að hætta við. Við prestar höfum þann starfa að boða guðsorð og sóknin hér í Skaga- flrði er jafngóður starfsvettvangur og hver önnur sókn í veröldinni. Það er ómögulegt að vita hver niðurstaða kjörfundar hefði oröið. Það er ekkert sjálfgefið aö fara til Reykjavíkur. En ég vil taka skýrt fram í því sambandi að þeir sem ég hef haft samskipti við vegna umsóknar minnar fyrir sunn- an eru prýðismanneskjur og ekkert út á starfsvettvanginn aö setja." -hlh Fóöiirámílutriingur: Óvíst að þurfi leyfi náttúru- fræðinganna Ólafur Ragnar Grímsson fjármála- ráðherra mun leita álits lögmanna í dag á hvort það sé löglega skylt að nátttúrufræðingar veiti leyfi til inn- flutnings á fóðri og sáðkorni. Fisk- eldismenn hafa haldið því fram að samkvæmt lögum sé einungis nauð- synlegt að fá leyfi þegar ný vara er flutt til landsins í fyrsta skipti. Ef leyfi fæst þá sé heimilt að flytja þá vöru inn áfram. Ólafur mun taka ákvörðun í þessu máli að fengnu áliti lögmanna. Þetta mál fellur undir Ólaf þar sem hann er ráðherra tollmála. Stöðvun innflutnings á fóðri og sáðkorni byggir ekki á reglugerðum heldur starfsvenjum hjá tollstjóraembætt- um. í lögunum er einungis kveðið á um að leyfi Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins þurfi til innflutn- ings. Sú hefð hefur skapast að túlka þetta þannig að leyfi þurfi fyrir hverja sendingu. -gse LOKI Þetta eru sannkallaðir Ofurstrákar! Veðrið: Skil yfir landinu Hæg suðaustanátt verður ríkj- andi um allt land. Skil verða yfir landinu í dag. Þeim fylgir einhver úrkoma, fyrst á sunnan- og vestan- verðu landinu og síðar austantil. Lítillega hlýnar. Veðuntpár DV. eru étcki byseðar ó upplýsingum frí Voöurstofu (slands. t>wr oru fcngrtar arlendts i gagrrnm vaöurfcorta- T > I M A N N A BÍIALEIGA v/Flugvallarveg 91-61-44-00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.