Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1989, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1989, Síða 32
44 MÁNUDAGUR 29. MAÍ 1989. Andlát Sigriður Pétursdóttir, Melstað v/Ný- býlaveg, lést á Vífilsstöðum 26. maí. Taxdarfarir Steinunn Bergþóra Guðlaugsdóttir lést 13. maí. Hún fæddist að Gísla- stöðum í Grímsnesi 15. maí 1903. Foreldrar hennar voru Guðlaugur Runólfsson og Margrét Jónsdóttir. Árið 1923 réðst Steinunn í vist til hjónanna Sigfúsar Blöndahis aöal- ræðismanns og konu hans, Áslaugar Þorláksdóttur Johnson. Tveimur árum síðar, er Áslaug lést, varð Steinunn ráðskona Sigfúsar. Sigfús lést 1965. Útför Steinunnar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Magnhildur Ólafsdóttir, Höföabraut 3, Akranesi, lést í Sjúkrahúsi Akra- ness miðvikudaginn 17. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fjóla Brynjólfsdóttir frá Hrísey verð- m- jarðsungin í Árbæjarkirkju þriðjudaginn 30. maí kl. 15. Björn Pálsson, Bræðraborgarstíg 49, Reykjavík, lést í Landspítalanum 15. maí. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Gunnar Nielsen, fyrrverandi skrif- stofustjóri, Tjamargötu lOc, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 30. maí kl. 13.30. Útför Halldórs Odds Árnasonar,fyrr- verandi skipstjóra, frá Sóleyjart- ungu, Akranesi, fer fram frá Ákra- neskirkju þriðjudaginn 30. maí kl. 11 f.h. Karl Pétursson lést 20. maí. Hann fæddist í Grafamesi við Grundar- fiörð 18. maí 1913. Foreldrar hans vora hjónin Pétur Finnsson og María Matthíasdóttir. Karl lærði rafvirkjun í Reykjavík hjá Kristmundi Gíslasyni rafvirkjameistara og lauk sveins- prófi 1932. Starfaði hann viö rafmagn og vélar ætíð síðan. Hann hóf störf hjá Jóhanni Rönning 1940 og starfaði þar í 20 ár. Eftir að hann hætti þar vann hann sjálfstætt og þá mest fyrir Landssíma íslands við fjarskipta- stöðina í Gufunesi. Karl kvæntist Jóhönnu Gísladóttur en hún lést 30. desember sl. Þeim hjónum varð fjög- urra bama auðið. Útför Karls verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15. Sigurður G. Elefsen, Suðurgötu 65, Siglufirði, verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju þriðjudaginn 30. maí kl. 14. Guðmundur Agnarsson, leigubif- reiðarstjóri, sem lést 19. maí sl., verð- ur jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. maí kl. 15. Hólmfríður María Guðsteinsdóttir, Laugavegi 34, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 30. maí kl. 13.30. Fyrirlestrar Prófessor Lars Huldén frá Helsinkiháskóla flytur opinberan fyr- irlestur í boði heimspekideUdar Háskóla íslands þriðjudaginn 30. maí 1989 kl. 17.15 í stofu 101 í Lögbergi. Fyrirlesturinn nethist „Nordens gudar í finlandssvensk diktning" og verður tluttur á sænsku. Lars Huldén hefur fengist við rannsóknir á ömetnum, mállýskum og skáldskapar- list m.a. Hann er víðkunnur fyrir skáld- skap sinn. Fyrirlesturinn er öllum opinn. Kötturinn Grettir - þrjár nýjar bækur á Islandi Bókaútgáfan Forlagið hefur sen frá sér þijár nýjar bækur um teiknmyndahetj- una vinsælu, köttinn Gretti, eftir teiknar- ann Jim Davis. Bækumar heita: f blíðu og stríðu, Oddi er besta skinn og Elsk- huginn mikli. Bjami Fr. Karlsson þýddi. „Grettir er feitur, latur, undirfórull, hrekkjóttur, eigingjam, morgunsvæfur og matgráðugur," segir í kynningu For- lagsins. Bækumar um Gretti em prent- aðar í Englandi. NJARÐVÍKINGAR! Fréttir DV Bamakennsla á Djúpavogi 100 ára Siguxður Ægissan, DV, Djúpavogi: Grunnskólanum á Djúpavogi var shtið laugardaginn 13. maí sl. I ræðu skólastjórans, Freyju Friðbjarnar- dóttur, kom fram að vetrarstarfið heföi gengið sérstaklega vel og full- yrti hún að leitun væri á nemenda- hópi með færri vandamál. Því til stuðnings gat hún þess aö enginn nemenda reykti. Einnig nefndi hún að það sem helst vantaði til aö gera skólann enn betri væri leikaðstaða úti fyrir. Taldi það standa til bóta þar sem nýstofnað foreldrafélag heföi tekið það mál upp á arma sína, hygðist setja upp slíkan völl við skólann fyrir næsta vetur í sjálfboðavinnu. Skólastarf í 100 ár Um haustið 1888 var ráðinn hingað bamakennari, Bjarni Sigurðsson búfræðingur frá Þykkvabæjar- klaustri í V-Skaftafellssýslu. Starfaði hér í 4 ár. Kennsla fór fram hin fyrstu ár í Hótel Lundi en það hús brann 1986. Þá var kennt í Suðurkaupstaðn- um, tvílyftu timburhúsi, sem nú er líka horfið. Gamli skóhnn var síðan byggður í kringum 1914 og notaöur til ársloka 1952. í ársbyrjun 1953 var nýtt skólahús tekið í notkun, byggt við það 1977 og það hús er nú skóh þorpsbúa. i * ti * '' /V, 'jmm V/// y/ Tertan góða. Á hana var letrað Barnakennsla á Djúpavogi 100 ára. Bakar- arnir standa i fjarlægö, Guðný Ingimundardóttir, til vinstri, og Álfheiður Ákadóttir. DV-mynd SÆ Freyja Friðbjarnardóttir skólastjóri ávarpar foreldra og skólabörn við skólaslit. DV-mynd SÆ Það eru þess vegna 100 ár hðin í vetur frá því að bamakennsla hófst á Djúpavogi. Eftir skólashtin áður- nefndu 13. maí var fólki boðiö að skoða heimavistina nýju og auk þess var kaffi í tilefni afmæhsins. Þar blasti við sjónum manna sú lengsta terta sem um getur frá upphafi veisluhalda á Djúpavogi. Er varla þörf að ræöa frekar endalok þess gómgætis. Egilsstaðir: Sjúkrahúsið fær góðar gjafir Hulda Þorbjörnsdóttir Hjallavegi 1A sími 92-14180 sér um umboð DV frá 23/5 '89 til 15/6 '89. Nýr umboösmað 1989 til 15. ágú S Drangsnes ur á Drangsnesi fr st 1989. »ólrún Hansdótti Kvíabala 5 Sími 95-3224 á og með 1. júní r Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egflsstöðum: Sjúkrahúsinu á Eghsstöðum vom nýlega færð tvö tæki að gjöf frá Lionsklúbbnum Múla á Héraði. Ólaf- ur Stefánsson yfirlæknir, Helga Sig- urðardóttir hjúkmnarforstjóri og Jan Derk Jansen veittu gjöfunum viðtöku, skýrðu notkun þeirra og þökkuðu þann hlýhug og velvilja sem Lionsmenn hafa sýnt sjúkrahús- inu fyrr og síðar. Hér er um að ræða dropateljara sem notaður er þegar þarf að gefa visst magn af lyfi eða vökva á af- mörkuðum tíma. Þarft tæki og hand- hægt sem auðvelt er að taka með í flugvél. Hitt tækið er svokallað TNS raförvunartæki. Þaö gefur rafboð gegnum húð og er notað til að deyfa sársauka. Einnig til að fá lamaöan vöðva til að vinna og má þannig minnka vöðvarýrnun. Þetta tæki er svo htið að hæglega má hafa það í vasa. Verðmæti þessara tækja er um 180 þúsund krónur. Sjúkrahúsið flutti á þessu ári í nýtt og glæshegt húsnæði og hefur það gjörbreytt ahri starfsaðstöðu viö að- hlynningu sjúkhnga. Frá afhendingu tækjanna. Frá vinstri Ástráður Magnússon, formaöur Múla, Elnar Rafn Haraldsson, framkvæmdastjóri sjúkrahússins, Helga Sigurðar- dóttir hjúkrunarforstjóri, Ólafur Stefánsson yfirlæknir og Jan Derk sjúkra- nuddari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.