Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 1989. Fréttir Guðni í Sunnu sækir um leyfi til áætlunarflugs: Beint flug til Evrópu frá Akureyri og Egilsstöðum - hyggst þar að auki flytja Spánveija til íslands „A Spáni búa 50 miHjónir manna og þar hefur velmegun vaxið miMð aö undanfömu. Spánverjar ferðast mikiö nú þegar og það á eftir að aukast,“ sagði Guðni Þórðarson hjá Sólarflugi eða betur þekktur sem Guöni í Sunnu. Hann hefúr sótt um leyfi til áætlunarflugs til nokkura staða í Evrópu og þar á meöal á milli Keflavíkur og Barcelona og Keflavíkur og-Madrid. Með þvi aö hefja áætlunarflug á þessum leiö- um sagðist Guðni sjá möguleika á því að flytja Spánvexja til íslands. Hingað til hefðu flugsamgöngur viö Spán byggst á leiguflugi sem heföi ekki opnað neina raöguieika fyrir ferðalög Spánveija hingaö. „Þar að auki má nefna að á Spáni er einn mesti ferskfiskmarkaöur Evrópu og með slíku áætlunarflugi má opna leiðir fyrir markaössetn- ingu margra nýrra fisktegunda þar,“ sagði Guðni. Einnig hefur Guðni sótt um leyfi til áætlunarflugs á milli Akureyrar og London og Akureyrar og Kaup- mannahafnar. Þá sagðist Guðni hafa tekið með í dæmið að fljótlega verður til millflandaflugvöllur á Egilsstöðum og því hefði hann sótt ura leyfi til áætlunarflugs þaöan til London og Kaupmannahafnar. Guðni sagöi að Flugráð hefði þeg- ar afgreitt umsóknina til sam- gönguráðherra en hann sagðist steftia að því að fljúga með flugvél af gerðiimi Bœing 727 en það eru sams konar flugvélategund og Flugleiðir nota nú. „Það eru flug- vélar með þrjá flugmenn og þrjá hreyfla,“ sagði Guðni. Hann sagöist ráögera aö hafa eina flugvél í ferö- um til aö byija með og væri stefnt að þvi aö hafa eina áætlunarferð frá hveijum þessara staða á viku. Áætlunarferðum myndi sföan fjölga á annatímum. „Eg tel að það séu miklir mögu- leikar á að hafa fastar áætlunar- ferðir frá stöðum úti á landi. Það má benda á að 20% landsmanna búa í þeirri fjarlægð frá Akureyri að hægt er aö bjóða upp á áætlunar- flug þaðan. Þar eru nú öil skilyröi fyrir alþjóðlegan flugvöll,“ sagði Guðni. -SMJ DV-mynd Ragnar Minkabúið að Miðengi 2 eftir brunann Bruninn 1 minkabúinu: Dýrin eni enn að drepast Júíia Imsland, DV, Ho&v „Dýrin eru enn að drepast og ég get átt von á að það haldi eitthvað áfram. Um eitt þúsund dýr eru dauð og af þeim drápust fá í sjálfum elds- voðanum. Einum til tveimur tímum síðar byrjuðu þau aö hrynja niður vegna reykeitrunar," sagöi Þrúðmar Þrúðmarsson, eigandi minkabúsins að Miöengi 2 í Austur-Skaftafells- sýslu en sl. fmuntudagskvöld kom eldur upp í búinu og er fjón eiganda mikið. Þetta var 350 læðu bú með tæplega tvö þúsund dýrum. 111 læð- ur voru í morgun lifandi. Enginn var í minkabúinu þegar eldurinn kom upp og varð hans fyrst vart þegar reyk lagði upp frá húsinu sem er skammt frá bænum. Kallað var í slökkviliðið á Höfn en bærinn er um 18 km frá Höfn og tók um þrjá- tíu mínútur að komast á staðinn. Vel gekk að slökkva eldinn og ekki varð mikiö tjón á húsinu sjálfu. Hús og dýr voru tryggð hjá Sam- vinnutryggingum og Brunabót og hafa þessir aðilar báðir komiö á búið eftir brunann. „Ég er ekki bjartsýnn á þau mál, ekki neinir skalar til yfir svona hús eða dýrin og þá er spum- ing um mat á hverjum tíma,“ sagði Þrúðmar. Flugvirkjadeilan: Afdrifaríkur fundur í dag „Þetta getur orðið afdrifaríkur fundur í dagsagði Emil Þór Eyjólfs- son, formaður Flugvirkjafélags ís- lands, en fulgvirkjar munu eiga fund með forsvarsmönnum Flugleiöa seinnipartinn í dag. Að sögn Emils hefur afstaða Flug- leiða lítið breyst þá þrjá mánuði sem kjaradeilda flugvirkja hefúr staðið. Flugvirkjar hafa lagt fram kröfur um svipaðar hækkanir og flugmenn hafa þegar fengið. Flugleiðir hafa hins vegar hafnað því. „Það er eins og félagiö sé bundiö af ákvöröunum einhverra annarra," sagði Emil Þór og á þar við Vinnu- veitendasambandið. Flugvirkjafélagið fékk verkfalls- heimild fyrir um það bil mánuði. Þeir hafa neitað að vinna yfirvinnu en Emil Þór neitar að þaö sé tengt kjarabaráttunni. „Eina sem ég hef heyrt um minni yfirvinnu er bréf sem viö fengum frá forstjóranum þar sem hann óskaöi eftir að við myndum draga úr yfir- vmnu. - Kemur til greina að boða verkfall ef ekki gengur saman í dag? „Já, það getur vel gerst,“ sagði Emil Þór Eyjólfsson. Flugleiðir standa jafnframt í kjara- samningum við flugfreyjur. Þeirra mál hafa lítið þokast. Samningar flugfreyja hafa verið lausir síöan 1. janúar 1988. -gse Farkostur Damiens lætur lítið yfir sér en hann telur að hann nægi til hjól- reiða um fjallvegi landsins. Svifbúnaðinn veröur að flytja á bíl milli staða því hjólið ber hann ekki. DV-mynd JAK Franskur læknastúdent: Ætlar að hjóla og svífa um landið - hyggst svlfa fram af Hvannadalshnjúki Damien Bedague, 21 árs gamall læknastúdent, hyggst hjóla um ís- land og svífa fram af helstu fjöllum í sumarfríinu sínu. Damien er frá Grenoble og er á fjórða ári í námi. Hann lagði upp frá Reykjavík til Þingvalla á hjólinu sínu nú um helg- ina. Síðan hefur hann viðkomu aftur í Reykjavík áður hann hjólar til»Ól- afsvíkur, ísaijarðar, Akureyrar, Mý- vatns, Öskju og fleiri staða í óbyggð- um. Ferðina fjármagnar hann með styrk frá frönsku fatafyrirtæki, sem meðal annars framleiðir sportfatnað, og tekur myndir fyrir það. „Ég kynntist íslensku vegunum fyrir tveimur árum og veit hverju ég má búast við. Þá hjólaði ég um landið í hina áttina, frá Reykjavík og austur um firði og til Akureyrar," sagði Damien í samtali við DV. „Ég þekki veðrið héma og hvernig það getur orðið, því síðast lenti ég í snjókomu í Landmannalaugum um sumar.“ Hann áætlar að leiðin, sem hann mun leggja að baki, sé nálægt 2000 kílómetrar. Hann segist vera vanur hjólreiðamaður og hafa heillast af landinu þegar hann kom hér í fyrra sinnið. „Mér líkar auðnin, einveran og veðrið hérna á Islandi. Mér er alveg sama þótt hann blási eða rigni, það er bara betra. Ég er bara að gera þetta vegna ánægjunnar og fyrir mig.“ Hann ætlar sér einnig að svífa fram af nokkmm fjöllum og nefndi Snæ- fellsjökul, Herðubreið, Öskju, Hvannadalshnjúk og Heklu. Til þess notar hann ekki venjulegan svif- dreka heldur annað sviftæki sem er tiltölulega nýtt á meginlandinu. í þessu hefur hann oft svifið í frönsku Ólpunum og telur það næga æfingu, þrátt fyrir að ftöllin séu töluvert öðruvísi. Eina sem verður að hafa í huga'er aö vindurinn sé á móti og vindhraði fari ekki yfir 5 vindstig. „Auðvitað svíf ég ekki ef aðstæöur em slæmar, ég er enginn ofurhugi," sagði Damien og rildi að það kæmi fram að hann muni láta vita af sér áður hann heldur á fjöllin og hvenær hann sé væntanlegur niður aftur. „Ég verð alltaf einn og því verð ég að passa upp á öryggið. Eina íjallið, sem ég vil ganga með öðrum, er Hvannadalshnjúkur en ferðafélag- ana verð ég að finna þegar að því kemur.“ -JJ Gagnrýni stórkaupmaima á útvegsmenn: Ekki svaravert - segir Kristján Ragnarsson „Máliö snýst um hvernig staðið tflkynningu þar sem hún hafnar verði að útflutningsleyfum. Þeir því alfarið aö Landssambandinu vilja hins vegar gera innflutnings- verði falið vald til að úthluta út- deiidokkaraðeinhveijudeilumáli. flutningsleyfum. Tiiefni þessarar Mér finnst þetta ekki þess viröi að tílkynningar var áróðurherferð svara á nokkum hátt,“ sagði formanns Landssambandsins að Kristján Ragnarsson, fram- sögn nefhdarmnar. Kristján Ragn- kvæmdastjóri Landssambands út- arsson er bæði formaður og ffarn- vegsmanna. kvæmdastjóri Landssambands is- I DV á laugardag kom fram aö lenskra útvegsmanna. útflutningsdeild Félags islenskra .gse stórkaupmanna hefúr sent frá sér

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.