Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Blaðsíða 30
4? MÁNUDAGUR 3: JÚLÍ 1989. Afmæli Hannes Þ. Sigurðsson Hannes Þ. Sigurðsson fulltrúi, Rauðagerði 12, ReyKjavík, er sextug- ur í dag. Hannes Þorsteinn er fædd- ur í Reykjavík og lauk verslunar- skólaprófi í VÍ1948. Hann var í framhaldsnámi í Verslunarháskól- anum í Stokkhólmi 1949-1950 og hefur unnið í Sjóvátryggingafélagi íslands, nú Sjóvá-Almennum, frá 1. september 1950. Hannes var fulltrúi í sjódeild 1956-1966, deildarstjóri hennar 1966-1970, deildarstjóri sölu- deildar 1970-1984 og forstöðumaður markaðssviös 1984-1988. Hann hef- ur verið í stjóm Sambands slysa- tryggjenda á íslandi og iðgjalds- nefnd Sambands bmnatryggjenda á íslandi. Hannes hefur verið í stjórn Verslunarmannafélags Reykjavík- ur (VR) frá 1955, lengst af ritari, og varaformaður 1980-1983. Hann var í stjóm Landssambands ísl. verslun- armanna 1957-1959 og frá 1961 og varaformaður 1980-1987. Hannes var í stjóm Sambands slysatryggj- enda á íslandi til 1986 og var í fyrstu stjóm samtakanna Varúð á vegum 1963-1%7. Hann hefur verið fulltrúi LÍV í samstarfsnefnd norrænu verslunarmannasamtakanna frá 1961. Hannes var einn stofnenda Verslunarsparisjóðsins og Verslun- arbanka íslands og varamaður í bankaráði frá 1970. Hann var í stjóm fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Rvík 1974-1978 og formaður Hand- knattleiksráðs Rvíkur 1947-1948. Hannes var í stjóm Knattspymufé- lagsins Fram 1953-1957, í stjóm ÍSÍ 1955-1961 og frá 1970, lengst af rit- ari, varaforseti frá 1980. Hann var í stjóm Æskulýðssambands íslands 1962-1968 og 1976-1980, formaður 1966-1968 og í stjórn Æskulýðsráðs ríkisins 1976-1978. Hannes var knattspymudómari 1948-1977 og var þriðji íslendingurinn sem var viðurkenndur milliríkjadómari í knattspymu og var milliríkjadóm- ari 1961-1977. Hann var fyrstur ís- lendinga til að ávinna sér rétt til að bera merki FIFA alþjóöa knatt- spyrnusambandsins. Hannes var milliríkjadómari í handknattleik 1954-1979 og var annar tveggja ís- lendinga er fyrstir hlutu milliríkja- dómararéttindi 1954. Hann stóð fyr- ir fræðslunámskeiðum fyrir verð- andi dómara í knattspymu og hand- knattleik víðsvegar um land 1953- 1980. Hannes var formaður landS- liðsnefndar HSÍ1958-1962 og 1966- 1972. Hann hefur verið endurskoð- andi KSÍ frá 1953, Landsmálafélags- ins Varðar frá 1967 og Knattspymu- dómarasambandsíslands 1970-1982. Hann hefur verið sæmdur gull- merki VR1966, gullmerki ÍSÍ1967, HKRR1967, Knattspymufélagsins Fram 1968, KRR1975, KSÍ1979, Knattspymudómarasambands Isl. 1979, Knattspymuþjálfarafél. ísl. 1980, heiðursmerki HSÍ1977, silfur- merki ÍF1984 og heiðursoröu ÍSÍ 1979. Hannes skrifaði íþróttafréttir í Mbl. og Vísi 1951-1964 og var rit- stjóri Allt um íþróttir, tímarit, 1951-1953, íþróttablaðsins 1954, Af- mælisrits Verslunarmannafélags Rvíkur í tilefni 70 ára afmæh þess 1971 og í ritnefnd 75 ára sögu ISÍ 1985-1987. Hannes kvæntist 17. mars 1951 Jónu Margréti Erlingsdóttur. For- eldrar Margrétar em Erlingur Jóns- son, vélstjóri í Sandgerði, d. 1957, og kona hans, Helga Eyþórsdóttir. Böm Hannesar og Margrétar em, Sigurður, f. 27. júni 1951, skrifstofu- maður hjá Skipadeild SÍS, sonur hans er Hannes Þorsteinn; Kristín, f. 19. apríl 1956, snyrtifræðingur, gift Páh Kristjánssyni, markaðs- stjóra hjá Vöku og Helgafelli, börn þeirra eru Hannes Páh, Margrét Lálja og Sigriður Hrönn; Erhngur Rúnar, f. 21. júní 1962, skrifstofu- maður hjá ísl. aðalverktökum, kvæntur Hahdóm Hahdórsdóttur, börnþeirraem JensArnar,Heiða ' BjörgogRúnarlngi. Systkini Hannesar em Axel, f. 29, ágúst 1933, póstfulltrúi í Rvík, kvæntur Indu Dan Benjamínsdótt- ur; Margrét Kristín, f. 27. mars 1931, gift Ragnari S. Halldórssyni, stjóm- arformanniíSAL. Foreldrar Hannesar em Sigurður J. Þorsteinsson, d. 1946, stórkaup- maður í Rvík, og kona hans, Kristín Hannesdóttir. Sigurðurvar sonur Þorsteins, b., organista og fræði- manns á Eyjólfsstöðum, Konráðs- sonar, bróöur Eggerts, föður Hauks forstjóra Plastprents. Móðir Sigurð- ar var Margrét Jónasdóttir, b. á Eyjólfsstöðum, bróður (samfeðra) Jóhannesar Nordals, foður Sigurðar Nordals. Systir Jónasar var Stein- unn, móðir Jónasar Kristjánssonar læknis, afa Jónasar Kristjánssonar ritstjóra. Jónas var sonur Guð- mundar, b. á Kirkjubæ, Ólafssonar, bróður Páls, langafa Ólafs Ólafsson- ar landlæknis. Móðir Guðmundar var Sigríður Guðmundsdóttir, systir Skáld-Rósu. Móðir Jónasar var Ingi- björg Stefánsdóttir, systir Margrét- ar, ömmu Áma Pálssonar prófess- ors og Páls Steingrímssonar rit- stjóra. Móðir Margrétar var Stein- unn Steinsdóttir. Móðir Steinunnar var Sigríður Ámadóttir, b. á Ár- bakka, Ólafssonar, bróður Bjöms Olsens, ættföður Olsensættarinnar, Magnúsar Bergmanns, ættföður Bergmannsættarinnar sunnlensku, og Oddnýjar, móöur Guðrúnar Blöndal, ættmóður Blöndalsættar- innar. Hannes Þ. Sigurðsson. Kristín er dóttir Hannesar, b. í Stóm-Sandvík, Magnússonar. Móð- ir Hannesar var Kristín Hannes- dóttir, b. í Stóru-Sandvík, Guð- mundssonar og konu hans, Vigdísar Steindórsdóttur, b. í Auðsholti, Sæ- mundssonar, ættföður Auðsholts- ættarinnar. Móðir Kristínar yngri var Sigríður Jóhannsdóttir, b. á Stokkseyri, Adolfssonar, hrepp- stjóraá Stokkseyri, Petersens. Móð- ir Jóhannsar var Sigríöur yngsta Jónsdóttir, hreppstjóra í Vestri- Móhúsum, Þórðarsonar. Móðir Jóns var Guðlaug Jónsdóttir, b. á Grjótlæk, Bergssonar, hreppstjóra í Brattsholti, Sturlaugssonar, ætt- föður Bergsættarinnar. Móðir Sig- ríðar Jóhannsdóttur var Sigríöur Jónsdóttir, b. á Vestri-Loftsstöðum, Jónssonar og konu hans, Sigríðar Jónsdóttur elstu, systur Sigríðar yngstu. Hannes verður að heiman í dag. Jónas Stefánsson Jónas Stefánsson, bóndi að Stóm-Laugum í Reykjadal í Suöur- Þingeyjarsýslu, ogfyrrv. vömbif- reiðarstjóri, er áttræður í dag. Jónas er fæddur á Öndólfsstöðum í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu, ólst þar upp í foreldrahúsum og átti þar heima fram th þrítugsaldurs. Hann var í bamaskólanámi í heima- húsum og var síðan eitt ár við nám við Héraðsskólann á Laugum. Jónas hefur aha tíð verið bóndi en var auk þess vömbhstjóri 1932-1979. Hann flutti að Stóm-Laugum er hann kvæntist og hafa þau hjónin búið þar síðan, stóm og myndarlegu búi. Jónas hefur tekið mikinn þátt 1 söngstarfi í Reykjadal. Hann söng í . fjöldamörg ár í kirkjukór Einars- staðakirkju í Reykjadal, auk þess sem hann söng með Karlakór Reyk- dæla. Þá er Jónas mikih hestamað- ur og hefur hann tekið mikinn þátt í starfi Hestamannafélagsins Þjálfa í Reykjadal. Jónas kvæntist 12. júní 1943 Kristjönu Einarsdóttur, f. 18. janúar 1924. Foreldrar Kristjönu vom Einar Guðmundsson, b. á Stóm-Laugum, og kona hans, Hah- fríður Aðalgeirsdóttir. Böm Jónas- ar og Kristjönu em: Valgeir, f. 9. aprh 1944, kvæntur Ragnheiði Wa- age og eiga þau fimm dætur, Kristj- önu Olöfu, Jóhönnu, Margréti, Guðnýju Jónu og Örnu Björk; Hah- fríður, f. 24. október 1946, gift Bimi Hólmgeirssyni og eiga þau tvö böm, Emu og Eyþór Hemmert; Jakob Kristinn, f. 17. október 1950, kvænt- ur Guðrúnu Gerði Eyjólfsdóttur og eiga þau einn son, Ólaf; Aðalgeir Matthías, f. 11. nóvember 1953, kvæntur Ingveldi Karlsdóttur og eiga þau tvær dætur, írisi Elvu og Hallfríöi Láru; Einar Guðmundur, f. 26. maí 1957, en sambýhskona hans er Sigríður Sigvaldadóttir og eiga þau tvö böm, Jónas Hreiðar og Kristjönu Lálju. Systídni Jónasar em Jakob, Sólveig, Ása, Guðfinna, Jón, Sigurður, Haraldur, Friðrika og Valgerður. Af systkinum Jónasar em nú á lífi Sigurður, Haraldur og Friðrika. Systkinin vom öh alsystk- ini nema Jakob, elsti bróðirinn, sem var samfeðra hinum en móðir hans hét Bergljót Þorsteinsdóttir. Foreldrar Jónasar vom Stefán Jónsson, f. 1860, d. 1951, b. og jám- smiður á Múla í Aðaldal, á Reykjum Jónas Stefánsson. í Reykjahverfi en lengst af á Önd- ólfsstöðum, og kona hans, Guðfinna Kristín, f. 1868, d. 1953, Sigurðardótt- ir, b. á Amarvatni, Magnússonar. Föðurbróðir Jónasar var Jón, al- þingismaður á Múla, afi Jóns Múla og Jónsar Ámásona. Stefán var son- ur Jóns, skálds á Hehuvaði, Hin- rikssonar og kona hans, Friðrika Helgadóttir, b. á Skútustöðum, Ás- mundssonar, ættföður Skútustaða- ættarinnar. Jónas verður ekki heima á afmæhsdaginn. Guðrún Böðvarsdóttir Guðrún Böðvarsdóttir sauma- kona, th heimihs að Laugateigi 40, Reykjavík, er áttræð í dag. Guðrún fæddist að Hvammi í Dýrafirði og ólst upp á Þingeyri. Hún flutti th Reykjavíkur 1928 og hefur búið þar síðan. Guðrún lærði saumaskap hjá Guðbjörgu Guð- mundsdóttur að Skóiavörðustíg 3 í Reykjavik. Hún hefur stundað ýmis störf en þó lengst af saumaskap. Maður Guðrúnar er Guöjón Ein- arsson, skrifstofustjóri hjá Múla- lundi, f. 16.4.1904. Guðrún á tvö böm. Þau em Leó Garðar Ingólfsson, f. 19.11.1933, yfir- deildarstjóri hjá Pósti og síma, bú- settur í Reykjavík, og Sigríður Þóra Sigfúsdóttir, f. 8.10.1936, en hún starfar sem læknaritari í San Bem- andino í Kalifomíu í Bandaríkjun- um. Leó Garöar á tvær dætur, Þóm, f. 31.12.1962, búsetta í Danmörku, og Guðrúnu, f. 14.8.1964, búsetta í Reykjavík. Sigríður Þóra á tvo syni, Michael Fredrich Howehs, f. 11.2.1959, og Kenneth Lee Howehs, f. 3.9.1961. Sigríður er nú gift Sig Weissbein lækni. Systkini Guðrúnar: Leó Garðar Böðvarsson hstmálari, en hann lést 8.8.1921; Andrés P. Böðvarsson mið- ih, en hann lést 1931; Jóhanna Böð- varsdóttir, f. 31.1.1907, en hún lést í ágúst 1988. Andrés átti þrjár dætur, Ingu Svanfríði, Guðmundu og Guðríði. Inga Svanfríður er gift og búsett á Englandi, Guðmunda er hstmálari og Guðríður giftist th Bandaríkj- anna og lést þar. Jóhanna átti Erik Hákansson sem er útibússtjóri hjá Guðrún Böðvarsdóttir Útvegsbanka íslands hf. Foreldrar Guðrúnar vom Jóhann Böðvar Böövarsson, b. að Hvammi í Dýrafirði, d. í ágúst 1926, og Guð- munda Sólborg Olafsdóttir húsmóð- ir, f. 1867, d. 24.1.1921. 95 ára Helga Steimum Lúthersdóttir, Hjaröarhaga 38, Reykjavík. Hallfríöur Sigtryggsdóttir, Nökkvavogi 22, Reykjavík. 60 ára Dóróthea Danielsdóttir, Kleppsvegi 76, Reykjavík. Óttar Björnsson, Garðsá, Öngulstaðahreppi. 90 ára óiafur Pálsson frá Litlu-Heiði i Mýrdal, Hrafthstu við Kleppsveg, Reykja- vík. 50 ára 85 ára Kristján Árnason, Lönguhhð 22, Akureyri. Júiius Kristjánsson, Höfðagötu 27, Stykkishólmi. 40 ára 75 ára Ingvar Ingvarsson, Heiðarholti 6E, Keflavík. Hrefna Hilmisdóttir, Bröttugötu 39, Vestmannaeyjura. Eygló Eyjólfsdóttir, Kjalarsíðu 18B, Akureyri. óskar Björnsson, Flókagötu 1, Hafnarfirðl. Ormur Þórir Georgsson, íshússtíg 3, Keflavík. Hörður Hafsteinsson, Langeyrarvegi 14, Hafnarfirði. Kari Olgeirsson, Austurvegi 12, Hrísey. Jean Guichard, Hvassaleiti 31, Reykjavfk. örn Jóhannsson, Skógarlundi 5, Garöabæ. Guörún Möller, Tunguvegi 24, Reykjavík. Tryggvi G. BlöndaL Kambsvegi 1A, Reykjavík. 70 ára Magnús Ámason, Hringbraut 47, Reykjavík. Hulda Sigurjónsdóttir, Hverfisgötu 56, Hafnarfirði. Ragnhildur Jónsdóttir, Búðavegi 57, Búðahreppi. Helga Hjálmarsdóttir, Strandgötu 9, Akureyri. Leiðrétting Jóhann Karl, Spánarkonungur blaðinu. Marie Terese, kona Lúð- Langafi Jóhanns Karls, faðir Al- víks XIV. Frakkakonungs, var fonso XIII., Alfonso XII. f. 1857, d. dóttir Fehpe IV (Fihppusar) Spán- 1885, féll úr teikningunni af ættar- arkonungs. tré Jóhanns Karls í laugardags- Tilmæli til aímælisbama Blaðið hvetur afimælis böm og aðstand- endur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síð- asta lagi þremur dögum fyrir aftnælið. Munið að senda okkur myndir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.