Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Side 8
8 MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 1989. \ , \ r i' m r ' i r ■' m T i é Viðskiptainál Viöræöur Landsbankans og Sambandsins: Þráttað um verð Samvinnubankans Formlegum viðræðum Landsbank- ans og Sambandsins hefur verið frestað um sinn eftir að búið var aö ákveða á bak við tjöldin að ganga frá samkomulagi um þessi mánaðamót. Það sem enn stendur á er sjálft verð Samvinnubankans. Hvað á bankinn að kosta? Eigiö fé bankans var um síðustu áramót um 600 milljónir króna en ljóst er að Sambandið, sem á um 53 prósent í bankanum, vill fá miklu meira fyrir hann og sam- kvæmt heimildum DV hafa Sam- bandsmenn sagt að það hafi lítinn tilgang fyrir Sambandið nema aliur bankinn fari á um 1400 til 1500 millj- ónir króna þannig að í hlut Sam- bandsins kæmu um 700 til 750 millj- ónir króna. Landsbankinn vill allan bankann Ljóst er að Landsbankinn hefur engan áhuga á öðru en eignást allan bankann. Hann hefur ekkert að gera við hlut Sambandsins fái hann ekki bankann að fullu. Sambandið á um 53 prósent í bankanum en önnur fyr- irtæki innan samvinnuhreyfmgar- innar stærsta partinn af afganginum. Loks eiga um 1500 einstaklingar af- ganginn. Kaupi Landsbankinn hlut sam- vinnuhreyfingarinnar mun hann ör- ugglega reka bankann fyrst um sinn sem sjálfstæðan banka. Á meðan hægt er að sameina bankana að fullu verður Landsbankinn að eignast hlut einstakhnganna. Hvaða verö þar fæst er ekki ljóst ennþá. Útibúin liggja vel saman Utibúanet Landsbankans og Sam- vinnubankans mun falla einkar vel saman og þvi verða engin vandræði að sameina útibú víða um land. Við Egilsstaðir: Austfirsk fyrir- tæki með útibú í Svíþjóð Eitt af þvl sem er til sýnis á atvinnusýningunni á Egilsstöð- um er beitingavél sem framleidd er hjá fyrirtækinu Létti í Feliabæ. Hún hefur nú verið framleidd í um eitt ár og eru 20 slíkar komn- ar í notkun. Hönnuður er Gunn- laugur Sigurösson i Neskaupstað. Vélin beitir um leið og línan er lögð og sparar mikla vinnu og slæma en oft er erfitt að £á beit- ingamenn. Og nú eru skemmtilegir hlutir aö gerast. Búiö er að semja viö fyrirtæki í Örebro í Svíþjóö um ffamleiöslu á þessari véi Mun framleiðsla hefiast þar von bráö- ar. Verður hún framleidd þar í þrem verksmiðjum sem síðar verða sameinaðir í eina. Nýjar viðartegundir Ýmsar nýjar viöartegundir var aö sjá í innréttingum á atvinnu- sýningunni á Egilsstöðum. Má þar nefiia kirsjubetjaspón á eld- húsinnréttingum frá Brúnás hf. og fleiri og birkirót og fuglsauga en Birkitré sf. sýnir spónlagðar hurðir með þeim tegundum. Mörg flelri trésmíðaverkstæði sýna skemmtilega hluti. Baldur og Óskar sýna prýðlsvel hannaða eldhúsinnréttingu og Einir í Fellabæ sýnir margar gerðir stiga fýrir íbúölr. Sverrir Hermannsson bankastjóri og Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sam- bandsins. Þeir eru oddamennirnir i viðræðunum þar sem allt snýst um það hvað Samvinnubankinn eigi að kosta. þetta nær Landsbankinn miklum spamaði. Þessi spamaður nýtist Landsbankanum sem kaupanda ein- ungis vegna þess að hann er banki. Vegna þess að útibúin hggja vel sam- an segja Sambandsmenn að Sam- vinnubankinn sé Landsbankanum meira virði en eha. Þetta sé við- skiptavild „good wih“ sem beri að meta. Sem mest verði afskrifað Það er fleira en útibúanet bank- anna sem er kveikjan að viðræðun- um um kaup Landsbankans á Scun- vinnubankanum. Aðalástæðan er auðvitað sú að Sambandiö er stór- skuldugt í Landsbankanum. Þess vegna snýst máhð um það hversu miklar skuldir Sambandsins verða afskrifaðar í Landsbankanum. Sam- bandið hefur mestan hag af því að sem allra mest verði afskrifað. Eflaust er hægt að reikna sig til út og suður í þeim efnum. Þaö sem Fréttaljós Jón G. Hauksson mestu skiptir er að viðræðumar eru meira á bókhaldslegu stigi en al- mennt gengur og gerist þegar tveir aðUar standa í kaupsamningi. Þetta er spuming um debet og kredit innan Landsbankans. Því meira sem bank- inn afskrifar af skuldunum því minna vandræðabam verður Sam- bandið innan Landsbankans. Kaup einkabankanna Þegar einkabankamir Iðnaðar-, Verslunar- og Alþýðubankinn keyptu Útvegsbankann borguðu þeir um 1465 mUljónir króna fyrir hluta- bréf að nafnverði um 770 miUjónir. Frá 1465 mihjónunum dragast um 400 mihjónir að mati viðskiptaráð- herra þannig að endanlegt söluverð er tahð vera í kringum 1 til 1,1 mUlj- arður að hans mati. Það er athyghsvert í umræðunum að undanfömu að Sverrir Her- mannsson, bankastjóri Landsbank- ans, hefur sagt opinberlega að Út- vegsbankinn sé miklu meira virði en það sem Jón Sigurðsson viðskipta- ráðherra hafi fengið fyrir hann og nefndi Sverrir að bankinn hefði átt að seljast á um 2,5 mihjarða króna. Fleiri hafa raunar gágnrýnt söluna eins pg Hahdór Guðbjamason, fyrr- um Útvegsbankastjóri og nú fram- kvæmdastjóri Samkorta, krítar- kortafyrirtækis Sambandsins, taldi að ríkissjóður hefði átt að fá um 2 mihjarða fyrir bankann. Það athygl- isverða í þessu sambandi er að Sverr- ir Hermansson, bankastjóri Lands- bankans, nefnir hærri tölu en Hall- dór, starfsmaður Sambandsins, um virði Útvegsbankans. Gróflega má ganga út frá því að Útvegsbankinn sé tæplega helmingi stærri en Sam- vinnubankinn. Sambandið stendur fast á sínu Eitt er víst að þrátt fyrir miklar skuldir Sambandsins, ekki síst í Landsbankanum, lætur fyrirtækið ekki Samvinnubankann á hvaða verði sem er. Enda eru sumir innan samvinnuhreyfingarinnar á því að mistök séu að selja Samvinnubank- ann þar sem hann eigi mikla mögu- leika sem hth bankinn innan um bankarisana þrjá, Landsbankann, nýja einkabankann og Búnaðar- bankann. Þess vegna bíða menn spenntir eftir því aö Sverrir og Guð- jón hittist á nýjan leik þegar viðræð- ur hefjast aðnýju. -JGH Sparisjóóshúsið i Keflavík sem Aðalverktakar hafa fest kaup á. DV-mynd Ægir Már „Urðum að selja“ - segir Tómas sparisjóðsstjóri 1 Keflavík Ægir Már Kárasan, DV, Suðumesjum: íslenskir Aðalverktakar hafa keypt Sparisjóðshúsiö í Keflavík fyr- ir 155 mihjónir króna, í því ásig- komulagi sem það nú er, eða rúmlega fokhelt. Stærð hússins er samtals 1700 fermetrar, þar af eru kjahari og tvær hæðir 1100 fermetrar en til við- bótar er rishæð. „Vegna lagabreytinga um bygg- ingaeignarstærð sparisjóða á bygg- ingartímabilinu urðum viö aö selja,“ sagði Tómas Tómasson sparisjóðs- stjóri í samtah við DV, „en við mun- um leigja fyrstu hæð og kjahara sem er að mestu leyti hannaður sem pen- ingageymsla. Þörfin fyrir húsnæði í Keflavík er heldur ekki eins mikh og áður vegna þess að við erum komnir með útibú í Grindavík, Garði og Njarðvík. Ráðgert er að flytja í nýja húsnæðið á næsta ári en gömlu byggingamar fjórar, sem við höfum starfað í hér í Keflavík, veröa seld- ar.“ Varðandi aðra hæðina og risiö hef- ur Keflavíkurbær hug á að semja við Aöalverktaka um að fá leigt fyrir bæjarskrifstofur, félagsmálaskrif- stofu, tæknidehd og bókasafn Kefla- víkur, ásamt skjalasafni. Tihaga þess efnis hefur verið lögð fram í bæjar- stjóm Keflavíkur af þeim Guðfmni Sigurvinssyni, Vilfijálmi Ketilssyni, Jóni Ólafi Jónssyni og Önnu Guð- mundsdóttur. Valur hættur hjáSS Valur Blomsterberg rekstrar- hagfræðingur er hættur sem markaðsstjóri Sláturfélags Suð- urlands og tekinn við sem fram- kvæmdastjóri Markaðsmiðlun- ar. Valur hóf störf hjá Sláturfé- laginu á síðasta ári. Markaðsmiðlun er th húsa viö Veghúsastíg 7. Fyrirtækið sérhæfir sig í póstmiðlun en þaö er auglýsingatækni sem felst í því að ná th viöskiptavina meö beinum bréfasendingum í stað almennra auglýsinga í fjölmiöl- um. Markaðsmiðlun mun þó einnig annast almenna auglýs- ingagerð. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 14-18 Úb Sparireikningar 3jamán. uppsögn 15-20 Vb.Úb 6 mán. uppsógn 16-22 Vb 12mán. uppsögn 18-20 Úb 18mán. uppsögn 32 Ib Tékkareikningar.alm. 3-9 Ab.Sp Sértékkareikningar 4-17 Vb.Ab Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1-2 Vb 6 mán. uppsögn 2,5-3 Allir Innlánmeð sérkjörum 27-35 nema Sp Ab Innlángengistryggð Bandarikjadalir 8-8,75 Ab Sterlingspund 11,75-13 Lb.Bb,- Vestur-þýskmörk 5,25-6 lb,Vb,- Sb Sb.Ab Danskar krónur 7,75-8,25 Lb.lb,- ÚTLÁNSVEXTIR (%) Vb.Sp lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 30,5-34,5 Sb Viöskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgenai Almennskuldabréf 33-37,25 Sb Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr-) 34,5-39 Lb Utlán verðtryggð Skuldabréf 7,25-8,75 Lb Útlán til framleiðslu Isl. krónur 27,5-37 Úb SDR 10-10,5 Lb Bandaríkjadalir 11-11,25 Allir Sterlingspund 15,75-16 nema Úb Allir Vestur-þýsk mörk 8,25-8,5 nema Úb Úb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 42,8 MEÐALVEXTIR Överötr. júlí 89 34,2 Verötr. júlí 89 7,9 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala júlí 2540 stig Byggingavísitalajúlí 461,5stig Byggingavísitala júlí 144,3stig Húsaleiguvísitala 5% hækkun 1 júli VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa veröbréfasjóða Einingabréf 1 3,997 Einingabréf 2 2,218 Einingabréf 3 2,609 Skammtímabréf 1,377 Lifeyrisbréf 2,010 Gengisbréf 1,783 Kjarabréf 3,959 Markbréf 2,097 Tekjubréf 1,752 Skyndibréf 1,205 Fjölþjóðabréf 1.268 Sjóðsbréf 1 1,918 Sjóðsbréf 2 1.534 Sjóðsbréf 3 1,355 Sjóðsbréf 4 1,219 Vaxtasjóðsbréf 1,3555 HLUTABREF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.. Sjóvá-Almennar hf. 300 kr. Eimskip 360 kr. Flugleiðir 175 kr. Hampiðjan 164 kr. Hlutabréfasjóður 128 kr. Iðnaðarbankinn 157 kr. Skagstrendingur hf. 212 kr. Útvegsbankinn hf. 135 kr. Verslunarbankinn 145 kr. Tollvörugeymslan hf. 108 kr. (1) Við kaup á viðskiptavixlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn. Ib=lðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.