Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Side 12
12 MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 1989. Utlönd í San Francisco i Bandarikjunum hafa sfuðningsmenn kinverskra námsmanna reist Frelsisgyðju eins og námsmenn í Peking gerðu á meðan á mótmælum þeirra stóð. Simamynd Reuter Li Peng sagður Ijúga Kínverskur námsmaður, sem farið hefur huldu höfðu frá því að upp- reisn námsmanna var bæld niður í Peking í júníbyijun, andmælti í morgun fullyrðingu Li Pengs forsæt- isráðherra um að hermenn hefðu þurft að skjóta á mótmælendur þar sem þá hefði vantað annan útbúnað til að bæla niður mótmælin. Náms- maðurinn sagði einnig að fjölda- handtökur færu nú fram um allt land. Á laugardaginn var það haft eftir Li í viðtali við Daniel Wong, leiðtoga Kínverja sem flust hafa til Kalifomíu í Bandaríkjunum, að kínversku her- mennirnir hefðu neyðst til að hefja skothríð þar sem þeir hefðu ekki haft nóg af táragasi og engar gúmmí- kúlur né vatnsþrýstibyssur. Opinberir fjölmiðlar í Kína skýrðu í fyrra frá myndun fyrstu óeiröa- sveitar lögreglunnar og sérstökum útbúnaði hennar. Ekki sást til þess- arar sveitar á Torgi hins himneska friðar 4. júni síðastliðinn þegar her- menn skutu á mannfjöldann. Kínversk yfirvöld segja að yfir tvö hundruð óbreyttir borgarar, þar á meðal þijátíu og sex námsmenn, hafi þá látið lífið ásamt tugum hermanna og lögreglumanna. Sjónarvottar og stjómarerindrekar telja hins vegar að nokkur þúsund hafi látið lífið. í morgun birti Dagblað alþýðunnar í Kína forsíðumyndir af tíu her- mönnum sem ýmist féllu eða vom brenndir í árásinni á torgið. Reuter Mótmæli í Hong Kong Reiðir stjómmálamenn í Hong Kong gerðu í morgun hróp að Sir Geoffrey Howe, utanríkisráðherra Bretlands, þegar hann kvað á fundi með þeim útilokað að breska stjórnin gæti tryggt nokkrum milljónum Hong Kong-búa rétt til að flytja til Bretlands og búa þar. Við komuna til Hong Kong í gær sagði Howe að Bretland væri traust- asti vinur Hong Kong en þúsundir íbúa nýlendunnar efndu til hóp- göngu tíl aö mótmæla því sem þeir kölluðu svik af hálfu breskra yfir- valda. Um tíu þúsund manns höfðu í gær safnast saman meðfram þeirri leið sem hann ók frá flugvellinum og um tíu þúsund gengu fram hjá bygging- unni, sem Howe dvelst í, til þess að leggja áherslu á kröfur sínar um að réttindi þeirra verði vemduð þegar nýlendan fer undir stjóm Kínveija 1997. Hrópuðu göngumenn slagorð um bresku stjómina og sögðust vilja eiga rétt á búsetu í Bretíandi jafn- framt því sem þeir kröfðust meira lýðræðis í Hong Kong. Breska stjórn- in hefur neitað aö tryggja Hong Kong-búum búsetu í Bretlandi. Þing- nefnd studdi þessa afstöðu stjómar- innar í skýrslu sem birt var á fostu- daginn. Rúmlega níutíu prósent af hinum sex milljónum íbúa Hong Kong em Kínverjar og rúmlega þijár milljónir þeirra eiga rétt á bresku Hong Kong vegabréfi. Það veitir þeim breskan þegnrétt en ekki rétt til búsetu í Bret- landi. Skipuleggjendur mótmælanna sögðu að búseturéttur í Bretlandi myndi ekki leiða til flöldaflutnings þangað frá Hong Kong. Vissan um að hann væri fyrir hendi myndi hins vegar veita þeim öryggiskennd. Reuter Þúsundir Hong Kong-búa efndu til mótmæla við komu Howes, utanríkisráð- herra Bretlands, til Hong Kong i gær. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.