Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Page 13
MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 1989.
13
J
[
Lánamálabaráttan:
Stendur Svavar við sitt?
Þaö hefur ekki tíökast aö mikil
umfiöllun um lánamál fari fram
yfir sumartímann. Þrátt fyrir þaö
hefur samstarfsnefnd náms-
mannahreyíinganna staöiö í
fundahöldum og bréfaskriftum
vegna fjáhagsáætlunar Lánasjóðs
íslenskra námsmanna fyrir næsta
ár.
Ástæða þessa verður rakin hér á
eftir í sögulegu samhengi.
Lánin ^kert
í ársbyrjun 1986 höfðu námslánin
verið skert um 19% vegna vísitölu-
frystingar á hækkun námslána.
Allt frá þeim tíma hafa námsmenn
barist fyrir leiöréttingu skerðing-
arinnar og hækkun námslána. Gíf-
urleg hækkun húsaleigu og fram-
færslukostnaðar gaf heldur ekki
neitt tilefni til skerðingar náms-
lána.
Svavar mótmælir
Svavar Gestsson, sem þá var
þingmaður, mótmælti þessum
skerðingum harðlega og skrifaði
ófáar greinar um dugleysi ráða-
manna. Hann lýsti yfir furðu sinni
á þessum aðgeröum og krafðist
leiðréttingar skerðingarinnar án
tafar. Svavar lagði fram þingsá-
lyktunartillgur um afnám skerð-
ingarinnar og lagði á það ríka
áherslu að hvernig sem farið yrði
að því, jafnvel með töku erlendra
lána, yrði að bæta hag námsmanna
án tafar.
Svavar verður ráðherra
Þegar ríkisstjóm Steingríms Her-
KjaHarinn
Viktor B. Kjartansson
fulltrúi Stúdentaráðs HÍ
í stjórn Lánasjóðs
íslenskra námsmanna
mannssonar tók við í október 1988
tók Svavar við menntamálaráðu-
neytinu.
Þetta vakti mikinn fögnuð náms-
manna því nú fór sá maður fyrir
menntamálum sem einna harðast
hafði barist fyrir bættum hag
námsmanna.
Námsmenn beita þrýstingi
Eftir að Svavar varð ráðherra
kom annað hljóð í strokkinn. Hann
sagði að varla myndu námslánin
hækka á þessum vetri og að ólík-
legt væri að fá skerðinguna leið-
rétta. Námsmenn undu þessu ekki
og beittu töluverðum þrýstingi með
bréfa- og blaðaskrifum. Þessi þrýst-
ingur fór að skila árangri og fjöl-
miðlar sýndu málinu töluverðan
áhuga. Fyrirspurnir á Alþingi til
menntamálaráðherra um afnám
skerðingarinnar htu dagsins ljós
og ráðherra fór að hugsa sér til
hreyfings.
Ráðherra
skipar vinnuhóp
Það fór því svo að ráðherra skip-
aði vinnuhóp um málefni lána-
sjóðsins þar sem sæti áttu meðal
annarra námsmenn og fulltrúar
ríkisvaldsins. Hlutverk hópsins
var m.a. að gera tillögur um það
hvernig bæta mætti þá skerðingu
námslána sem námsmenn höfðu
orðið að sæta.
Vinnuhópurinn skilaði áliti í jan-
úar 1989 þar sem fram kom að leið-
rétta ætti skerðinguna í þrem
áfongum, 7,5% í mars 1989, 5% í
september og loks 6,5% í janúar
1990. Á móti þessum hækkunum
skyldi síðan tekið í auknum mæh
tilht th tekna námsmanna, þ.e. að
50% af tekjum kæmu th frádráttar
í stað 35% áður. Óttuðust nú sumir
námsmenn að þeir hefðu samið af
sér þar sem hækkun tekjutihits
skyldi koma th framkvæmda strax
en hækkanirnar á námslánunum
væru aðeins loforð ráðherra.
Dularfull
fjárhagsáætlun
Svavar lagði á það áherslu að
hann myndi standa við loforðin og
ríkti bjartsýni í herbúðum náms-
manna þegar hækkunin þann 1.
mars síðastliðinn varð að veru-
leika.
Samstarfsnefnd námsmanna
varð hins vegar uggandi þegar drög
að fjáhagsáætlun lánasjóðsins var
lögð fram á stjónarfundi LÍN í maí
síðastliðnum þar sem ekki var gert
ráð fyrir 6,4% hækkuninni í janúar
1990. Það vakti þvi undrun náms-
manna að ef ráðherra ætlaði að
beita öhu afli við að efna loforðin
gerði hann ekki einu sinni ráð fyr-
ir hækkuninni í fjárhagsáætlun
lánasjóðsins.
Námsmenn
krefjast svara
Samstarfsnefnd námsmanna-
hreyfinganna skrifaði því ráðherra
bréf og krafðist svara við því hvers
vegna ekki væri gert ráð fyrir
hækkuninni í fjárhagsáætlun lána-
sjóðsins. Ráðherra svaraði því til
að hann myndi standa við þær
breytingar á námslánum sem
koma ættu til framkvæmda á þessu
ári en aðrar breytingar væru háðar
samþykki Alþingis á fjárlögum fyr-
ir 1990.
Undarlegt svar
Þetta þykir okkur námsmönnum
undarlegt svar í ljósi þess að ekki
er gert ráð fyrir neinum hækkun-
um námslána í áætlunum sjóðsins
fyrir næsta ár. Það þýðir reyndar
að ekki virðist eiga að gera neinar
kröfur um aukið fé vegna hækkun-
arinnar í janúar í fjárlögum sem
aftur þýðir að það er engar hækk-
anir fyrir Alþingi að samþykkja.
Það er ófært fyrir ráðherra að
varpa ábyrgðinni alfarið á Alþingi.
Vissulega er fjárveitingavaldið í
höndum þess en ráöherra ber að
gera sínar tillögur og reyna aö fá
þeim framgengt. Það verður því að
teljast undarlegt að Svavar ætli að
leggja til aukið framlag th LÍN en
gerir ekki ráð fyrir þeim framlög-
um á fjárhagsáætlunum lánasjóðs-
ins.
Samstarfsnefnd námsmanna-
hreyfmganna mun fylgjast grannt
með þessu máli og gæta þess að
ráðherra efni gefm loforð, loforð
sem námsmenn hérlendis og er-
lendis reiða sig á.
Viktor B. Kjartansson
„Þaö vakti því undrun námsmanna aö
ef ráðherra ætlaði að beita öllu afli við
að efna loforðin gerði hann ekki einu
sinni ráð fyrir hækkuninni í fjárhagsá-
ætlun lánasjóðsins.“
TILLITSSEMI
í UMFERÐINNIER
ALIRAMÁL!
Það er ekki nög að næsti
ökumaður sé tillitssamur. Það
er mál okkar allra að sýna
tillitssemi.
SJÓVÁ-ALMENNAR
Þú tryggir ekki eftir á!