Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1989, Síða 28
40 MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 1989. Neytendur DV kannar verð í stórmörkuðum: Bónus leiðir samkeppnina f Verð á 14 vörutegundum - 13-14% ódýrari en aðrir stórmarkaðir Mikligarður Hagkaup Fjarðarkaup Bónus Kjötstöðin Kaupstaöur Kjötmiðstöðin Verslunin Bónus í Skútuvogi, sem nú hefur reyndar opnað aðra sams konar verslun við Faxafen, hefur náð ótvíræðri forystu í samkeppni stór- markaða á Reykjavíkursvæðinu. Verð á algengum matvörum í Bónus er að jafnaði 13-14% lægra en hjá keppinautunum. Fjarðarkaup kemst næst Bónus en á þessum tveim versl- unum munar 8%. Þetta kemur fram í könnun sem DV gerði á verði 19 vörutegunda í sjö stærstu matvöru- verslunum í Reykjavík. Verslanimar, sem könnunin tekur til, eru í raun fleiri en sjö því Hag- kaup er á þrem stöðum og Mikligarð- ur á tveim stöðum. Því er hér í raun um tíu verslanir að ræða sem saman- lagt hafa um 70% matvöruverslunar á höfuöborgarsvæðinu á sinni könnu. Verðmunur á einstökum tegund- um reyndist víða vera mikill og meiri en oft áður í sambærilegum könnun- um sem DV hefur staðið fyrir. Mesti verðmunur reyndist vera á Svala en sex femur í pakka kosta 139 krónur í Kjötstöðinni en 99 krónur í Bónus. Munurinn er 40%. Gulur kaflipakki frá Braga kostaði mest 117,60 krónur í Kjötstöðinni en ■ minnst 89 krónur í Bónus. Munurinn er 32% eða jafnmikill og á 2ja kílóa poka af Komax hveiti sem kostaði mest 86 krónur í Miklagarði en minnst 65 krónur í Fjarðarkaupum. Kíló af sykri kostaði mest 68 krónur í Miklagarði en minnst 49 krónur í Bónus og í Fjarðarkaupum. Munur- inn er þama 39%. Almennt er aö muni 20-35% á verði einstakra vömtegunda eins og meö- fylgjandi tafla ber með sér. Rétt er að benda á aö Bónus hefur og tekið upp þá nýbreytni að slá af verði vöm- tegunda sem almennt em á sama verði alls staðar. Þannig kostar mjólkurlítri aðeins 60 krónur í Bónus og 10% lægra verð er þar á brauðum og ýmsu áleggi. Hins vegar era mun færri vörumerki í boði í Bónus en í öðrum stórmörkuðum. Vörutegund Mikligarður v. Sund Kjötstöðin Glæsibæ Hagkaup Skeifunni Kaupstaður íMjódd Fjarðar- kaup Kjötmiðstöðin Garðabæ Bónus Skútuvogi Munur hæstaog lægstaverði Cocoa Puffs, 17 oz 225 266 245 255 245 249 225 ’ 18% . Maggi-kartöflustapppa 57 68,40 65 59 60 66 59 20% Oramais, 'A dós 107 107 95 107 95 107 89 20% Kornax hveiti, 2 kg 86 82,50 78 81 76 65 32% Horrteblestkex 78 77,50 80 84 69 78 64 31% River hrísgrjón 63 63,20 58 63 57 64 55 16% Gunnars mayonnes 104 101,50 96 102 96 99 89 17% Colgate fluor tannkr., 75 ml 84 87,50 79 82 78 82 71 23% Sirfus Konsum, tvöf. 176 174 179 176 162 172 146 22% Nesquick kókóm., 400 g 194 185,20 175 194 175 175 10% Solgryn, 950 g 133 131,20 128 133 115 128 115 15% Libbystómats.,stór 93 89,80 89 93 89 79 17% Ora fiskbollur, stór 217 217,40 202 217 208 217 178 22% Sykur1 kg 68 57 59 56 49 59 49 39% Frón kremkex 93 97,50 91 93 91 96 71 37% Néscafé, Gull 202 219 202 211 200 9% Bragakaffi.gulur 102 117,60 103 107 103 105 89 32% Iva þvottaefni 102 107,40 95 104 95 102 91 18% Svali,6lpakka 139 144 115 119 99 40% . Samtals verð 14 tegunda semfengustallsstaðar 1639 1673,20 1575 1638 1523 1624 1391 Bónus hefur opnað nýja verslun í Faxafeni 14. Þar gildir sama verð og kemur fram i þessari könnun eða að jafnaði 13-14% lægra en í öðrum stórmörkuðum. DV-mynd Hanna Holtskjör: Keppir við stórmarkaðina Verslunin Holtskjör á Langholts- vegi 113 hefur gripið til óvenjulegs ráðs í samkeppni þeirri sem ríkir milli verslana í hverfinu. Þar hefur vömverð verið lækkað allmikið eða um 20-30% frá áður gildandi verði, að sögn Benedikts Ólafssonar kaup- manns. Neytendasíða DV leit inn í Holts- kjöri fyrir helgina og bar saman verðlagningu þar og annars staðar. Sé litið á verð 14 tegunda og það bor- ið saman við verð í stórmörkuðum kemur í ljós að verðið í Holtskjöri er 5,5% lægra en í Miklagarði við Sund. Sé verðið borið saman við verð Hagkaups er munurinn óverulegur eða 0,3% Holtskjöri í hag. -Pá Allt að 42% verðmunur innan sömu verslunar - 4 manna fjölskylda getur sparaö 114 þúsund á ári Allt að 42% verðmunur getur verið á samskonar innkaupakörfu innan sömu verslunar eftir því hvort keypt- ar era dýmstu eða ódýrustu vörum- ar. Þetta kemur fram í könnun sem Verðlagsstofnun lét gera fyrir helg- ina. Sett var saman innkaupakarfa sem í vom 45 algengar vömtegundir sem jafngilda neyslu 4 manna fjölskyldu í 3 daga. Tilgangurinn var að kanna verð innan sömu verslunar þar sem annars vegar væm valdar ódýmstu vörumar en hins vegar þær dýrastu. í könnuninni var horft framhjá hugsanlegum gæðamun milli ein- stakra vörumerkja. Mesti munurinn var 42%. Karfan með ódýrastu tegundunum kostaði 5.393 krónur en karfan með dýra teg- undunum kostaði 7.681 krónu. Mun- urinn er 2.228 krónur. Ef miðað er við ýtrasta verðmun innan verslunar á helgarkörfunni og reiknað með helgameyslu eins árs er munurinn á ársgrandvelh 114 þúsund krónrn-. Það er sú upphæð sem fjögurra manna fjölskylda getur sparað með því að velja fremur ódýr vörumerki en dýr. Niðurstaðan er sú að verðsaman- burður milli vörumerkja í sömu verslun getur reynst neytendum dijúg búbót ekki síður en verðsam- anburður milli verslana. -Pá Þaó er Helgi Kristjánsson, starfsmaður Sláturfélags Suðurlands, sem sýnir tilboðskjötið á myndinni. DV-mynd JAK Lambakjöt á lágmarksveröi Svona lítur innihald tilboðspakka hins opinbera út þegar búið er að sníða af kjötinu fitu og afskurð. Kjöt- inu verður ekið í verslanir í dag og á að vera falt öllum landsmönnum. Tvenns konar pakkar era í boði og kosta 365 kr. kg og 383 kr. kg. Hægt er að velja um pakka með heilu læri og afgangnum í sneiöum eða öllu í sneiðum eins og sést á myndinni. Tveir gæðaflokkar eru í boði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.