Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989. Fréttir Rúta meö 28 manns fór tvær veltur: Kraftaverk þykir að ekki varð stórslys Rúta frá Guðmundi Jónassyni, með 27 norræna jarðvísindamenn auk bílstjóra inannborðs, fór út af veginum við Lónakíl á Möðrudals- öræfum i gærmorgun. Fór rútan rúmlega tvær veltur og staðnæmd- ist um 40 metrum neðan við veg- inn. Bílstjóri og tveir farþeganna fremst í rútunni köstuðust út úr henni í veltunni og sluppu með minni háttar meiðsl. Einn farþeg- anna virðist hafa kastast út um hliðarrúðu og hlaut sá einhver inn- vortis meiðsl þannig aö flytja varð hann að Grímsstöðum á íjöllum og þaðan með flugi til Akureyrar. Annars urðu ekki alvarleg slys á fólki, einhverjir tognuðu og brák- uðu rifbein í veltunni, en farið var með alla í læknisskoðun á heilsu- gæslustöðina á Egilsstöðum. Að sögn lögreglunnar á Egils- stöðum var kraftaverki næst að ekki varð stórslys á fólki þegar rútan valt út af veginum. Tildrög slyssins voru þau að rút- an kom akandi niður tiltölulega bratta brekku austan í eystri fjall- garðinum við Lónakíl. Þegar kom aö því að taka vínkilbeygju til vinstri og hægja þurfti á ferðinni tóku bremsurnar ekki við sér og rútan hélt áfram út af veginum. Tveir bílar komu fljótlega að slys- inu og þar sem fjarskiptatæki rú- tunnar urðu óvirk óku þeir hvor í sína áttina til að gera lögreglu við- vart. Fóru tveir sjúkrabílar og tveir læknar strax á vettvang þar sem von var á hinu versta. Farþegar og bílstjóri sluppu hins vegar furðu vel, að sögn lögreglu. -hlh Elsti köttur landsins tvítugur - fyrsta læðan sem gerður var keisaraskurður á Elsti köttur landsins, Perla, í fanginu á ungri snót sem heitir Brynja Guðmundsdóttir. DV-mynd Hanna Elsti köttur landsins, svo vitað sé, er nú orðinn rúmlega tvítugur. Er þetta læðan Perla sem mun hafa komið í heiminn vorið ’69. Ekki er þetta í fyrsta skipti sem Perla kemst í fréttirnar því fyrir 16 árum, nánar tiltekið í júlí '73, var hún fyrsta læða landsins sem gerður var keisara- skurður á. Perla, sem er af kyni síamskatta, er alhvít og er annað augað blátt en hitt brúnt. Þessa dagana unir Perla hag sínum vel aö Lækjartúni 1 í Mosfellsbæ en þar hefur hún dvalið síðan ein dóttirin á heimilinu kom með hana heim sem kettling. Að vísu er hún orðin heyrnarlaus en sjónin ætti enn að vera í lagi því hún stekk- ur niður úr gluggum eins og ekkert sé. Svava Gunnarsdóttir, eigandi Perlu, sagði aö læðan heíði verið tek- in úr sambandi um leið og keisara- skurðurinn var gerður og því hefði hún vart gotið meira en 30 til 40 kettl- ingum. Það væri ef til vill þess vegna sem Perla væri svona langlíf því fæð- ingar tækju jafnt á ketti sem menn. -GHK Keisaraskxnföiðr' gé kefti í fyrsta siitn hérlenciis Þaó 5»riiT « jilijerrv.Tr* *á ttýf tkOhn fcelw*- m-urin tíiþM**4ói*rg* Itlt ÞetirB oi þoirro- *r> »r w1t*« til «4 kótlur T>*n $unni:i urulir oifi.a *hii- * l*ivdl fyrr *u r,ú l pmun Wftru. Þ*ð w*r ..Pvli'' nokr.vr, lli Tmimilla uc-p I nem vif jhori.-t k«H*r*ikiii'ði mánuíUg *f winjum dýf* lrbr.nl, fio#*rw»MI lngOl»v lyoi. «r (jótl yat, *0 frúrr Fréttin um Perlu sem birtist i Vísi þann 28. júlí 73. Tvær milljónir fyrir kjötflaQið: Hafnaði tilboðinu „Ég sagði þessum manni að það verð sem hann byði fyrir kjötið væri svo langt niöur úr öllu valdi að það kæmi ekki til greina að ganga að tilboði hans. Fyrr mynd- um við reyna að selja þetta kjöt á okkar hefðbundnu mörkuðum. Þetta verð er svo lágt að það er um helmingi lægra en Nýsjálendingar bjóða sitt kjöt á og selja þeir þó í gífgurlegu magni,“ sagði Stein- grímur J. Sigfússon landbúnaðar- ráðherra. Eins og DV skýrði frá í síðustu viku bauð bandarískt fyrirtæki 2 milljónir dollara í allar umfram- birgðir af íslensku lambakjöti. í viötali við blaðið kvartaði forsvars- maður fyrirtækisins, Mark Stein- berg, yfir því aö ráöherra hefði ekki sinnt tilboði hans. Steingrím- ur segir það vera misskilning. Hann hefði strax tekið fram að það kjöt sem ráögert væri aö selja út í ár væri þegar selt. Þegar heíði þeim fjármunum, sem ætlaðir voru til útflutningsbóta, veriö ráðstafað og gott betur. „Við þurfum margfalt þetta verð ef eitthvert vit á að vera í þessu. Ég held að mörgum íslenskum neytandanum þætti súrt í brotiö ef við hefðum gengiö að þessu tilboði. íslendingar hafa oft kvartað yfir því þegar kjöt er selt út fyrir lægra verð en neytendur þurfa að borga fyrir hér innanlands. En, Guð minn góður. Ef samanburöur á þessu til- boði og verði hér innanlands lægi fyrir er ég hræddur um að einhver myndi freistast til að leika sér að tölum," sagði Steingrímur. -gse Utanríkisráðimeytið: Lýsir undrun og óánægju - vegna vanþekkingar sovéska sendiráðsins Utanríkisráöuneytið lýsti í gær ráðuneytiö hafi fengiö þær upplýs- undrun og óánægju íslenskra ingarsemnorskstjómvöldhafium sfjórnvalda viö sovéska sendiráöið, þennan atburð og hefúr þaö jafn- vegna skorts hins síðarnefhda á framtóskaðeftirsamvinnuviöþau upplýsingum frá sovéskum stjóm- um úrræði til að fá upplýsingar hiö völdum um hinar tíðu bilanir í so- fýrsta frá sovéskum stjómvöldum, véskum kafbátum sem gefi til endurtaki slíkir atburðir sig. kynna að öryggisbúnaði þeirra sé Loks segir að utanríkisráðuneyt- verulega áfátt. Er þessi athuga- ið hyggist gera ráöstafanir til þess semd ráðuneytisins til komin aö gert veröi samkomulag við Sov- vegna fregna um eld í sovéskum étstjómina um það að upplýsingar katbáti i Barentshafi norður af um óhöpp af þessu tagi verði veitt- Noregi. Segir í frétt frá utanríkis- artafarlaust-Norskastjóminhefur ráöuneytinu aö sovéska sendiráðið nú um nokkurt skeið unnið aö gerö hafi í gær engar upplýsingar haft slíks samkomulags viö sovésku um máliö. ríkisstjómina. Segir ennfremur aö utanríkis- -JSS EM 1 bridge: Pólverjar og Frakkar á HM - Svíar sátu eftir með sárt ennið Um helgina lauk Evrópumótinu í bridge sem haldiö var í Turku í Finn- landi og höfðu Pólverjar sigur á góð- um lokaspretti. Frakkar náðu öðru sætinu af Svíum en Svíar höfðu lengst af leitt mótið. Tvær efstu þjóö- ir á EM í bridge öðlast rétt til þátt- töku á HM í bridge sem haldið verð- ur í Perth í Ástralíu. íslendingar höfnuðu í Eurovision- sætinu eða því sextánda af tuttugu og fimm, sem er heldur lakari árang- ur en náðst hefur undanfarin ár á alþjóðamótum. Svíar áttu góðan möguleika á öðra sætinu fyrir síð- ustu umferð, þar sem þeir áttu leik gegn Búlgaríu, en þeir töpuðu þeim leik 11-19 á meðan Frakkar fengu 16 stig gegn Hollendingum. Það nægði Frökkum til að komast tveimur stig- um upp fyrir Svíana. Alls tóku 25 þjóðir þátt á mótinu og lokastaða efstu þjóöa varð þannig. 1. Pólverjar 455 2. Frakkar 441,5 3. Svíar 439,5 4. Grikkir 430,5 5. Austurríkismenn 428,5 6. Danir 423 7. Hollendingar 422 8. V-Þjóðverjar 421,5 9. ítalir 412 16. íslendingar 353,5 Nýir Evrópumeistarar Pólverja heita Martens, Szyminovski, Balicki, Zmudzinski, Moszczynski og Kuklowski. -ÍS Hagvirki hefur fengið innhehntubréf: Ráðuneytið verður að meta veð í eignum - segir Kjartan Þorkelsson, fulltrm sýslumanns Aö sögn Kjartans Þorkelssonar, fulltrúa sýslumanns Rangárvalla- sýslu, hefur hann sent Hagvirki nýtt innheimtubréf í ljósi breyttrar sölu- skattsskuldar fyrirtækisins í kjölfar úrskurðar ríkisskattanefndar. Bréfið var sent í gær. Kjartan sagðist telja að ef Hagvirki ætlaði að leita til dómstóla yrði fyrir- tækiö að leggja fram bankaábyrgð fyrir skuldinni á meðan málið væri til meðferðar. Sagöist Kjartan þar styðjast viö skilning sinn á nýrri reglugerð fjármálaráöuneytisins. Ef ekki kemur til bankaábyrgð og Hag- virki vill leggja fram veð í eignum, eins og forstjóri Hagvirkis hefur þeg- ar nefnt, þá verði ráðuneytið að leggja mat á hvort slíkt nægi. -SMJ Stefán ræðir við stjórnina Stefán Valgeirsson, þingmaður innar. Mun áframhaldandi stuðning- Samtaka jafnréttis og félagshyggju, ur Stefáns við stjórnina vera undir hefur að undanfórnu rætt við ráð- því kominn að hún bæti það sem af- herra ríkisstjórnarinnar og krafist laga hefur fariö við framkvæmd aðgerða í vaxtamálum, húsnæðis- stjórnarsáttmálans.aðmatiStefáns. málum og málefnum loðdýraræktar- -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.