Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLf 1989. Fréttir Kaupendur fá bakreikninga á ísafirði: Einbýlishús nægði ekki fyrir íbúð í blokkinni Vilborg Davíösdóttir, DV, fsafirði: Mikil óánægja er meðal íbúðar- kaupenda í Hlíf II, íbúðum aldraðra á ísafirði, vegna fjármagnskostnaðar sem þeim er nú gert að greiða. „Þegar ég geri samninginn í apríl 1988 er 78 fermetra íbúð okkar hjón- anna sögð kosta 3,8 milljónir en í dag er mér sagt að íbúðin haíi hækkað um 1,8 milljónir og sé núna verðlögð á rúmar 5,6 milljónir,'‘ sagði Her- mann Bjömsson, einn þeirra er hafði samband við DV. „Rúm milljón af þessari hækkun er sögð vera vegna hækkunar á bygg- ingarvísitölu en tæpar 750 þúsund krónur eru vegna fjármagnskostnað- ar sem er ekki útskýrður neitt nán- ar. Það eina sem þessir menn viður- kenndu var að þessi kostnaðar væri óeðlilega hár og kæmi að hluta til vegna óhagstæðra lána en gátu ekki sundurliðað hann. Og ekki nóg með það, okkur er gert að snara 1,1 millj- ón út þann 15. júlí. Við gerðum ráð fyrir að einbýlis- húsið okkar myndi dekka verðið þeg- ar við gerðum samninginn en það fást ekki nema 4,3 milljónir fyrir það. Við erum ánægð með íbúðina og alla þjónustu og það er gott að búa þama en þetta kemur mjög flatt upp á mann. Svo er ekki búið að ljúka öllu sem lofað var, m.a. vantar enn loftræstingu, teppi á gangana og fleira en það á víst að bæta úr því á næstunni.“ Reikningar vegna fjármagnskostn- aðar em misháir eftir stærð íbúða og eftir því hvað fólk var búið að borga inn á íbúðirnar, en flestir eru á bilinu 600-750 þúsund kr. Undan- tekningar eru þó á þessu, t.d. þeir tveir eigendur sem lánuðu Bsvf. Hlíf helming húsnæðislána sinna fyrir tveimur árum. Þeir greiða um 300 þúsund kr. vegna fjármagnskostnað- Hermann Björnsson, einn óánægðra íbúðarkaupenda í Hlíf II: „Gerðum ráð fyrir að einbýlishúsið dygði fyrir íbúðinni." DV-mynd BB, ísafirði ar. Hermann hefur greitt 1,6 milljón- ir inn á íbúð sína samkvæmt samn- ingi á síðastliðnu ári. „Ég hefði aldr- ei farið út í þetta ævintýri hefði ég vitað að það myndi vanta tæpar 2 milljónir upp á að einbýlishúsið myndi duga fyrir íbúðinni," sagði hann. Hús Hlífar, ísafirði, á miðri myndinni. DV-mynd BB, ísafirði ísaQöröur: Bærinn tekur yfir óseldu íbúðirnar - Byggingarsjóður ríkisins lánar 50 milljónir Vilborg Davíðsdóttir, DV, ísafirði: Nú hyllir loks undir laúsn fjár- hagsvanda Byggingarsamvinnufé- lagsins Hlífar á Isafirði og búist er við að gengið verði frá samkomulagi þar að lútandi í þessum mánuði. í samkomulaginu er gert ráð fyrir því að bæjarsjóður ísafjarðar eignist 49% af húseigninni í Hlíf II, þ.e. þrett- án óseldar íbúöir og allan kjallarann auk tengibyggingarinnar. Með þessu samkomulagi falla úr gildi fyrri sam- þykktir bæjarstjórnar um eignar- hlutdeild í Hlíf. 51% eignarinnar verður síðan í eigu íbúðareigenda og Byggingarsamvinnufélagið Hlíf verður væntanlega lagt niður. Þegar bæjarsjóður hefur eignast 49% eignarinnar hefur hann rétt á mun stærri styrk úr Framkvæmda- sjóði aldraðra og mun sá sjóöur leggja fram 50 milljón króna styrk. Byggingarsjóður verkamanna lánar 50 milljónir til viðbótar til 43 ára og á bæjarsjóður þá eftir aö greiöa 31 milljón fyrir eignina. 5 milljónir eru þegar greiddar en óvíst er hvort og hve mikið verður greitt til viðbótar á þessu ári. Allt er óvíst hvernig bæjarsjóði gengur síðan að selja íbúðimar þrettán og ólíklegt er að lokið verði við húsnæðiö í kjallar- anum á næstunni. Sfjórn Hlífar hélt fund fyrir skömmu meö íbúðareigendum og kynnti Baldur Ólafsson, starfsmaður stjórnarinnar, fyrir þeim uppgjör á íbúðarverði. íbúöimar hafa hækkað mikiö í verði, misjafnlega mikið eftir því hve mikið hefur verið greitt inn á þær og era flestir íbúðarkaupend- anna mjög óánægðir með háan fjár- magnskostnað sem þeim er gert að greiða, auk vísitöluhækkana. Framleiðslukostnaður á heyi Búreikningastofa landbúnaðarins hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna framleiðslukostnaðar á heyi sumarið 1989. „Búreikningastofa landbúnaðarins hefur áætlaö framleiðslukostnað á heyi sumarið 1989. Er miðað við kostnað undanfarið ár aö viðbættum hækkunum. Framleiðslukostnaðar- verð er þannig áætlað kr. 12,60 -12,80 á kg af heyi, fullþurm í hlöðu (9,40 1988). Verð á teignum er áætlað 10 - 15% lægra.“ -GHK Athugasemd vegna Sandkorns um atgang í Laxá í Kjós „Auðvitað er það oft þannig að þar sem mikið er veitt og staðurinn um- talaöur em menn með horn í síðu manna sem þekkja vel til og eru dug- legir að veiða. Veiðar em eins og hver önnur íþrótt. Sumum gengur vel og vita hvernig á að snúa sér í þessu meðan öðrum gengur miður vel. Það veiddist best í Laxá í Kjós í fyrra og hefur veiðst vel það sem af er sumri. Menn, sem hvergi hafa veitt og koma í Kjósina til að moka upp fiski, leita að skýringu ef veið- amar takast ekki eins og búist hafði verið við. Þá verða oft til skýringar sem alls ekki eru raunhæfar," sagði Skúli Jóhannsson í Tékk-Kristal, einn þriggja leigutaka Laxár í Kjós, viö DV. Skúli var ósáttur við skrif í Sand- komsdálki blaðsins í gær þar sem segir frá atgangi veiðiréttarhafa í ánni sem þekki hana eins og stofu- gólfið heima hjá sér og moki upp fiski svo verð veiðileyfa geti haldið áfram að hækka. Segir aö margir fari óá- ngæðir frá Laxá í Kjós vegna þessa. „Það em þrír leiðsögumenn við Laxá í Kjós. Það á hver að geta snúið sér til þeirra um aðstoð. Svo er einn staðarleiðsögumaður sem á að hafa tilfmningu fyrir hvernig bregðast á við þörfum veiðimanna, leiðbeina þeim um veiðistaði, hjálpa til með veiðarfæri og fleira. Ég held að þetta sé eina á landsins sem býður upp á slíka þjónustu en víða fer matráðs- kona eða gamall veiðvörður aðeins með veiðimönnum út á hlað og bend- ir fyrir næsta hól. Einn veiðiréttar- hafanna er við ána, hjálpar mönnum og veiðir sjálfur. Það virðist fara í taugar á mönnum. Þetta er ekki ann- að en rosakjaftasaga úr Kjósinni, sandkorn sem getur velt þungu hlassi ef marka má hringingar til mín.“ -hlh Tveggja tonna trilla, Sigurborg, var dregin vélarvana til hafnar i Reykjavík í fyrradag. Hafði vélin bilað þar sem trillan var stödd norður af Engey. Átti eigandinn ekki annars úrkosti en að senda upp neyðarblys til að gera vart við sig. Brá lögregla skjótt við og dró trilluna til hafnar á gúmmíbát. DV-mynd S Sandkom dv ÖUþekkjum viðþaðað komaaðlokuð- umdyrumfyr* irtækjaoglesa afmiðumað lokaðsévegna breytinga. Samlokudýrk- andi, sem mik- iðliefurverslaö viðNesti.kom aðlokaðri sjoppu við Miklubraut fyrir fáum dögum, í glugga sjoppunnar stóö að lokaö væri vegna brey tinga. Viö því var fátt að gera. Daginn cftir var maðurinn farinn að þjást af fráhvarf- seinkennum - enda ekki étið samloku í tvo daga. Hann ók að Nesti i von um að búið væri að breyta. Breyting- arnar frá deginum á undan voru umtalsverðar. Sjoppan var farin. Það var búið að slíta sjoppuna upp með rótum. Skárri eru það nu breyting- amar. Linir kratar og harðir frammarar? ll'ímanimiá laugardager merkilegfyrir- sögn, „Stendur ekkiákiotum." Mikiðbefúr veriðræuum ágreining inn- anríkisstjórn- arinnai' og mál- gögnstjómar- flokkannahafa tekiðþáttíað opinbera sunduriyndi einstakra ráð- herra. Efvilji erfyrir hendimálesa ýmislegt úr fyrirsögn Tímans. Sand- kornsritari viil iesa það úr fyrirsögn- inni að Tíminn sé að gera litiö úr Jónunum í ríkisstjórninni. Og um leið sé verið, á tvíræöan hátt, að auka „manngildi“ Steingríms H., Halldórs ogGuðmundar. Allt með eðli- legum seinkunum YfirmennFlug- ieiða gripu inníþeg- 'sfólkfé- íflugaf- greiðslunnií FlugstöðLeifs Eirikssonar gekkfrávinnu sinniámið- vikudaginn öi aðmótmæla vaktafyrirkomulagi- Deildarstjórar, skrifstofustjórar og framkvæmda- stj órar einstakra deilda hlupu til og af£reiddu brottiararfarþegameð mildum ágætum. Eftir tömina til- kynntu þeir að engin seinkun hefði orðið vegna setuverkfalls starfs- manna. Síðan bættn þeir við að sú seinkun, sem hefði orðið, væri vegna seinkunar sem kom á áætlunarflugið strax um morguninn. Sem sagt: Þrátt fyrir skærur flugafgreiðslufólksins var allt með eðlilegum seinkunum hjá Flugleiðum á miðvikudaginn. Ráðherrar með vind í höfðinu Ríkisstjómin héltleynilegan ogóformlegan fundíÞing- vallabænumá miðvikudag- inn. Fundaref- niðvargatiðá ijárlögunumog aðgerðirtil að stoppaíþað. Enginákveðin dagskrá var á flmdinum heldur var þarna um að ræða hugarfteöisfund eöa „brainstorming“, eins og ráð- herramir vilja kalla. Iægar þaö barst um þjóðfélagið að ráðherrarnir sætu á Þingvöllum í sameiginlegu hugar- flæðí var ekki laust við að sumir fengju í magann. Árangurfyrrifunda af þessu tagi heíur verið sjörailijarða aukin skattheimta, á annan tug miflj- arða í raillifærslu og útaustur í allar áttir. Heyrst hefur af nokkrum sem pökkuðu þegar niður í töskur og héldu út á Keflavíkurflugvöll í von um að komast sem fyrst - bara eitt- hvað. Umsján: Slgurjón Egilsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.