Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989.
13
dv - Lesendur
Kolólöglegur skyldutollur, segir hér um afnotagjald RÚV.
HVERVANN?
Vinningsröðin 16. júlí:
X1 1-1 2X-222-1 11 1
Heildarvinningsupphæð: 618.310 kr.
12 réttir = 513.185 kr.
5 voru með 12 rétta - og fær hver 102.637 kr. í sinn hlut.
11 réttir = 105.125 kr.
145 voru með 11 rétta - og fær hver 725 kr. í sinn hlut.
Ríkisútvarpið og þjónusta þess:
Þeir greiði sem nota
Arnór hringdi:
Ég hringi til að taka undir með
höfundi lesendabréfs sem birtist í
DV sl. fimmtudag (13. júlí) um rétt-
mæta gagnrýni á afnotagjöld Ríkis-
útvarpsins þar sem talað er um
„óþarfa plokk“ upp á 18 þúsund
krónur á ári af þeim mörgu sem ekki
vilja nýta þessa þjónustu.
Það má til sanns vegar færa aö
þessi þjónusta Ríkisútvarpsins var
góð og gild hér áður fyrr þegar eng-
inn annar íjölmiðill var í loftinu. Nú
er þetta löngu breytt og hver út-
varpsstöðin keppir við aðra um hylli
hlustenda. Einnig er nóg að hafa eina
sjónvarpsstöð og því óþarfi að eyða
skattpeningum almennings til að
halda úti slíku bákni sem íslenska
Ríkissjónvarpið er.
Flestir fréttamenn og aðrir sem
ráðast í vinnu til Ríkisútvarpsins og
ná einhverri færni eða eru það af
guðsnáö fara fljótlega þaðan til hinna
frjálsu útvarpsstöðva eða til Stöðvar
2. Ríkisútvarpið er því að meiru eða
minna leyti uppeldisstöð fyrir starfs-
fólk hinna Ijósvakamiðlanna. En
enginn segir að svo eigi að vera - og
enn kostað af opinberu fé. Fijálsu
stöðvarnar geta vel borið þann
kostnað sjálfar.
Margt aJF því dagskrárefni sem enn
er við lýði hjá Ríkisútvarpi og sjón-
varpi er úrelt og á engan rétt á sér
lengur og þaðan af síður að það sé
greitt af hinu opinbera. Tökum t.d.
veðurfréttir í útvarpi. Hver hlustar
á þær og hveijum eru þær til gagns?
Engum, ekki einu sinni sjómönnum.
Það sást best í verkfalli BSRB um
daginn. Enginn saknaði veðurfrétta
nema síður væri.
Ég skora á fjármálaráðherra og
aðra sem geta komið á breytingum
varðandi rekstur Ríkisútvarpsins aö
hlífa okkur sem ekki viljum þjónustu
RÚV við þvi að þurfa að greiða þann
skyldutoll sem afnotagjald fyrir Rík-
isútvarpið er (einkum fyrir sjón-
varp). Hann á engan rétt á sér lengur
og er jafnvel kolólöglegur ef grannt
er skoðaö.
Norður-Atlantshafsflugiö:
Hagstætt eftir altt saman
Urval
Timaiit fyrir alla
I Gerðu gott frí enn betra aktu Úrval með í ferðina
Ekki fara í frí án makans
- Sá sem er leiður á maka sinum eða óhamingjusamur i hjónabandinu
er miklu liklegri tíl að ráfa upp i ból annars staðar.
- Það „finasta" núna vestanhafs er að úða duftí i sig sem mglar dóm-
greindina og veldur vimu.
Alsæla - Sívaxandi vandamál
- Nú er búið að finná upp piilu sem framkallar drauma hjá sofandi fólki
og þykir hafa kollvarpað kenningum freuds og Jungs.
Draumapilla
, *
er aðdns s^nishom af því sem er að lesa í Uivali núna. Askriftarsíminn er
27022
Skipulögð fæðing
- Sovétmenn hafa nú komið á ákveðnu skipulagi tíi þess að hjálpa kon-
um með sigenga sjúkdóma að ganga með bóm og fæða þau.
-Flugmaður skrifar:
Nýlega hefur komið í ljós, svart á
hvítu, að Norður-Atlantshafsflug
Flugleiða hefur þá ekki verið eins
mikill dragbítur á starfsemi félagsins
og áöur var haldið fram.
í frétt í DV fyrr í þessum mánuði
(7. júlí) kemur fram að stefnubreyt-
ing er framundan hjá Flugleiðum að
því er N-Atlantshafsflugið varðar og
er ein ástæðan sögð sú aö mikill
veltusamdráttur hefur orðið hjá fyr-
irtækinu. Allir sem vildu vita vissu
að mest af veltufé félagsins kom ein-
mitt úr þessu flugi, milli Bandaríkj-
anna og Evrópu.
Þótt nokkur kostnaður hafi fylgt
N-Atlantshafsfluginu og einhver
tímabundinn halli skapast neitar
enginn þeirri staðreynd að mestallt
veltufé félagsins kom frá þessu flugi,
jafnvel talið að allt að 70% teknanna
hafi komið vegna þeirrar starfsemi.
Samdráttur farþegaflutninga Flug-
leiða í millilandaflugi, sem er nú all-
verulegur það sem af er árinu, stafar
nær eingöngu af þvi að ferðir Flug-
leiða til Bandaríkjanna hafa verið
lagðar niður, jafnvel til áfangastaða
sem hafði verið lagt mikið fé í til að
byggja upp og lofuðu mjög góðu í
stöðugu farþegastreymi.
Það má því segja með réttu að
mjólkurkýr Flugleiða hafi að stórum
hluta verið lömuð af ásettu ráði þeg-
ar fastar áætlunarferðir til ýmissa
borga vestra voru lagðar niður (eða
af ókunnugleika, ef miöað er við að
hinir erlendu ráðgjafar, sem lögðu
til að draga úr áherslu á Ameríku-
flugið, hafi verið einir að verki).
Hvað svo sem öðru líður virðast
vera á döfinni einhverjar stefnu-
markandi aðgerðir til þess að afla
Flugleiðum aukins veltufjár og er
áreiðanlegt að aukning í Ameríku-
flugi er þar mesti og áhrifaríkasti
kosturinn.
Frá Chicago í Bandarikjunum. Ein
þeirra borga sem Flugleiðir hættu
að fljúga til.
Hringið í síma
27022
milli kl. 14 og 16, eöa skrifið.
KAUPMEríM ATHUGIÐ!
HAFIÐ ÞIÐ OPIÐ
Á LAUGARDÖGUM
í SUMAR?
HELQARMARKAÐUR DV verður birtur á
fimmtudögum í sumar.
í HELQARMAKAÐI DV ,eru upplýsingar um
afgreiðslutíma verslana á fimmtudögum,
föstudögu'm og laugardögum, sértilboð og
annað það sem Kaupmenn þurfa að koma
á framfæri.
Þeir aðilar, sem áhuga hafa á að auglýsa
í HELQARMARKAÐL vinsamlega hafi sam-
band við auglýsingadeild DV fýrir kl. 16 á
þriðjudögum.
AUQLÝSIHQADEILD
Sími27022