Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚLÍ 1989. íþróttir Hjólreiðar á franska vísu í klæði þess úr neðra. Hin heimsfræga hjólreiðakeppni, Tour de France, stendur yflr um þessar mundir. Er sú keppni einhver hin mesta í íþróttinni í heiminum. Enginn íþróttaviðburður dregur að sér jafnmikla athygli í löndum þeim sem veita knöpunum skika og vegi undir reiðhjól sín. í Tour de France eru margir kallaðir en fáir útvaldir. Keppnin er marg- þætt og skiptist í ákveðin stig sem markast af vegalengdum. í þessari þekktu keppni klæðist forystusauðurinn gulum jakka en það er kennimark þess sem hefur ráðin hverju sinni í hinum mörgu þáttum keppn- innar. í gær hvíldu knaparnir hjólhesta sína fyrir næsta áfanga. Þá hafði Banda- ríkjamaðurinn Greg LeMond gulu flíkina á öxlunum en hún er keppikefli hjólreiðamanna. LeMond er gríðarlega sterkur hjólreiðakappi og á að baki glæstan feril. Hann varð hlutskarpastur í Tour de France árið 1986 og ætlar sér að endur- taka leikinn nú. En það er margur fjallvegurinn og krákustígurinn enn ófarinn og því ómögulegt að segja til um hver hefur sigur á lokadegi. -JÖG Áhorfendur flykkjast gjarnan að vegarbrúnum þar sem knaparnir koma þeysandi á hjólhestum sínum. Hver á sinn uppáhaldsmann og hér hljóma hvatningarhrópin ótæpiiega. Símamyndir Reuter Hersingin hlykkjast ormi likust niður brattan fjallveg í Frakklandi. Með flöskuna í kjaftinum Hitar hafa verið miklir í Evrópu í sumar og ekki varð breyting þar á um síðustu helgi. Knaparnir í Tour de France fengu því aö kenna á blíð- viðrinu. Á myndunum til hliðanna má sjá hersinguna hlykkjast niður brattan fjallveg annars vegar og einn knap- anna súpa á þekktum drukk hins vegar án þess að beita höndunum en það er rétt eins gott að hafa þær á stýrinu í harðri baráttunni. -JÖG Hann hefur bara kókflöskuna í kjaft- inum, þessi, og hendur á stýri. Ayrton Senna, heimsmeistari f akstrf „formúla eltt“ blfrelða, býr sig undir akstur en f mörg horn þarf að Ifta þegar haldfð er f hann í aksturs- iþróttum. Símamynd Reuter Senna með hettuna Kappakstur á svonefndum „formúla eitt“ bílum þykir ein- hver hættulegasta íþrótt sem um getur. Lítið má útaf bera svo að ekki fari illa. Ökumenn sitja enda greiptir í sætið undir stýrinu í margfalt öflugri bílum en öku- menn hversdagsins geta látið sig dreyma ura að eignast eða aka. Það þarf að kanna margt áður en haldiö er í hann, eins og ráða má af myndinni hér til hliöar. Þar býr núverandi heirasmeist- ari, Brasilíumaðurinn Ayrton Senna, sig undir akstur. Hettan sem hann klæðist er úr sérstöku hitaþolnu efni sem getur ráöið úrslitum ef eldur verður laus í bifreið ökuþórsins en sú hætta er ávallt fyrir hendi. -JÖG • Freyr Sverrisson reynir hér hjólhestaspyrnu i leiknum í gærkvöldi. Freyr fékk a náðu Keflvikingar að sigra og eru þar með komnir í undanúrslit bikarsins. Mj ólkurbikarkeppnin: Keflvíkingar h - 3. deildar lið Þróttar féll með sæmd „Eg vissi að þetta yrði erfiður leikur og að þeir myndu koma grimmir til leiks. Það er aldrei auövelt að spila á móti neöri deildar liði og þess vegna er ég mjög án- ægður með sigurinn," sagði Ástráður Gunnarsson, þjálfari 1. deildar liös Kefl- víkinga, en Suðurnesjaliðið komst naum- lega áfram í undanúrslit mjólkurbikar- keppninnar eftir 3-2 sigur á 3. deildar liði Þróttar í gærkvöldi. Keflvíkingar voru mjög lánsamir á Þróttaravellinum við Sæviðarsund og það var ekki fyrr en 8 mínútum fyrir leikslok að Keflvíkingar náðu að skora sigurmark leiksins. 3. deildar lið Þróttar kom mjög á óvart með kröftugum leik og ekki var aö sjá neinn mun á liðunum. Keflvíkingar voru að vísu mun sterkari fyrstu 20. mínú- turnar og náðu þá að skora tvívegis, fyrst Kjartan Einarsson og síðan Óli Þór Magnússon. Þróttarar gáfust ekki upp og náðu að jafna fyrir hlé. Fyrst skoraði Sigurður Hallvarðsson með glæsilegu skoti og síðan Sverrir Pétursson. í seinni hálfleik voru Þróttarar sterkari og Keflvíkingar máttu þakka fyrir að fá ekki á sig mark. Þegar stundarfjórðung- ur var til leiksloka var Frey Sverrissyni vikið af leikvelli en þá loks fóru Keflvík- ingar í gang. Sókn þeirra bar árangur 8 Körfuknattleikur: Kani í sigtinu liði bikarmeistari - bæði sem leikmaður og l Ægir Mar Káiasan, DV, Suðumesjum: „Við erum búnir að fá nöfn fjögurra leikmanna sem koma til greina og þar af eru þrír frá 22 til 24 ára og einn er þrítug- ur. Sá síöasttaldi kemur helst til greina,“ sagði Gunnar Garðar Gunnarsson, for- maður körfuknattleiksráðs Njarðvíkur, en hann átti þar við nöfn þeirra leik- manna sem bandarískur umboðsmaður félagsins hafði aflað þar í landi. „Hann heitir Mike Clark og er sterkur miðvöröur, 2,07 á hæð. Hann er mjög góð- ur leikmaður og hefur leikið sem atvinnu- maður í ísrael, Sviss og á Ítalíu," sagði Gunnar. Kemureinnig til greina sem þjálfari „Þessi Mike Clark kemur einnig mjög

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.