Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Side 27
ÞRIÐJUDAGUR 18: JÚLl 1989. 27 Afmæli Magnea Hjálmarsdóttir Magnea Hjálmarsdóttir, Tjamar- stíg 11, Seltjamamesi, er fimmtug í dag. Magnea er fædd í Nýjalandi í Garði og ólst þar upp. Hún var í námi í Héraðsskólanum í Skógum og Gagnfræðaskóla Vernáms í Rvík. Magnea vann við sameiginlegt fisk- vinnslufyrirtæki fjölskyldunnar, Ásgeir hf. í Garöi, 1966-1986, og hef- ur rekið íshöllina á Melhaga 2 í Rvík frá 1986. Magnea giftist 25. apríl 1957 Ólafi Ágústssyni, f. 26. febrúar 1935, kaupmanni. Foreldrar Ólafs: Ágúst Lúðvíksson, er látinn, ver^lunarmaður á Sólhóli á Djúpa- vogi, og kona hans, Stefanía Ólafs- dóttir. Böm Magneu og Ólafs eru: Stefania Sigrún, f. 14. desember 1957, sjúkraliöi á Seltjamamesi, gift Kristni Kristinssyni tölvufræðingi, Jómnn Sigríður, f. 8. september 1959, sambýlismaður hennar er Ingimar ísaksson, verkfræðinemi í Stokkhólmi, Kolbrún, f. 28. apríl 1963, verslunarmaður á Seltjarna- nesi, Sigrún, f. 16. september 1965, kaupmaður í Rvík, gift Lámsi Pet- ersen slökkviliðsmanni, og Jón Ágúst, f. 8. ágúst 1972. Systkini Magneu em: Kristmaim, f. 2. sept- ember 1937, stórkaupmaður í Rvík, kvæntur Guðríði Hafsteinsdóttur, Ásgeir Magnús, f. 12. janúar 1943, skipstjóri í Garði, kvæntur Sigur- jónu Guðnadóttur, Hjálmar Rúnar, f. 26. janúar 1946, vélstjóri í Garði, kvæntur Guðrúnu Eyvindsdóttur skrifstofumanni, Ragnheiður, f. 30. maí 1948, kennari á Akranesi, gift. Rögnvaldi Einarssyni kennara, og Jón, f. 13. september 1951, fiskmats- maður í Garði, kvæntur Kristjönu Óttarsdóttur. Foreldrar Magneu: Hjálmar Magnússon, f. 11. október 1913, d. 31. júlí 1984, vélstjóri í Garði, og kona hans, Sólveig Sigrún Odds- dóttir, f. 11. október 1916. Hjálmar var sonur Magnúsar, sjómanns í Garði, Sigurðssonar, útvegsb. í Ak- urhúsum í Garði, Sæmundssonar. Móðir Hjálmars var Magnea, systir Sylvíu, ömmu handknattleiks- mannanna Geirs og Arnars Hall- steinssona. Önnur systir Magneu er Friðsemd, amma Guðbjargar Bene- diktsdóttur, konu Eyjólfs Konráðs Jónssonar alþingismanns. Þriðja systir Magneu er Ólöf, móðir Ólafs G. Einarssonar, formanns þing- flokks Sjálfstæðisflokksins. Ejórða systir Magneu er Ingibjörg, móðir Sigurðar Briem, deildarstjóra í menntamálaráðuneytinu. Bróöir Magneu er Níls, faðir Ólafs, endur- skoðanda og fv. skattrannsóknar- stjóra, og Boga rannsóknarlögreglu- stjóra. Magnea var dóttir ísaks, verslunarmanns á Eyrarbakka, Jónssonar, b. á Vindási í Landsveit, Þorsteinssonar. Móðir ísaks var Karen ísaksdóttir Bonnesen, sýslu- manns á Velli í Hvolhreppi, og konu hans, Önnu Kristínar Ohlmann, sem fyrr var gift Christian Gynther Schram, langömmu Ellerts Kristó- fers, afa Ellerts B. Schram ritsjóra. Sigrún er dóttir Odds útvegsb. í Prestshúsum í Garði Jónssonar, b. á Keldunúpi á Síðu, Jónassonar, b. á Hruna, Oddssonar, b. í Þykkvabæ, Jónssonar, hreppstjóra í Þykkva- bæjarklaustri, Magnússonar, föður Þórunnar, ömmu Jóhannesar Kjarval. Móðir Jóns á Keldunúpi var Þuríður Jónsdóttir, b. í Hátún- um Jónssonar, og kona hans Þóra Oddsdóttir, systir Guðríðar, móöur Odds í Þykkvabæ. Móðir Ólafs var Guðrún Ólafsdóttir, b. á Núpi undir Eyjafjöllum, Jónssonar, b. í Drangs- hlíð, bróður Þorsteins, afa Jóhann- esar Kjarval. Annar bróðir Jóns var Eiríkur Sverrisen sýslumaður, langafi Maríu, móður Gunnars Thoroddsen forsætisráðherra. Jón var sonur Sverris, b. á Seglbúðum, Eiríkssonar, bróður Áma, langafa Eyjólfs, langafa Hilmars Jónssonar stórtemplars. Móðir Sigrúnar er Kristín, f. 19. ágúst 1888, dvelur á Hrafnistu í Hafnarfirði, dóttir Hreiöars b. í Hát- úni í Landbroti Bjarnasonar, b. í Efri-Vík í Landbroti, Pálssonar, og konu hans, Katrínar, systur Þor- láks, langafa Magneu, konu Sigur- bjarnar Einarssonar biskups. Ann- ar bróðir Katrínar var Þorleifur, langafi Guðrúnar, móður Þórhildar Þorleifsdóttur alþingismanns og Eggerts, tónlistarmanns og leikara. Katrín var dóttir Bergs, prests á Prestbakka á Síðu, Jónssonar og konu hans, Katrínar, dóttur Jóns Steingrímssonar eldprests, prófasts Magnea Hjálmarsdóttir. á Prestbakka, og konu hans, Þó- mnnar Hannesdóttur Scheving, sýslumanns á Munkaþverá. Móðir Kristínar var Júlíana Magnúsdóttir, b. á Hólmum í Meðallandi, Jónsson- ar, og konu hans, Guðrúnar Gis- surardóttur, móður Sigurðar, lang- afa Jóns Helgasonar, alþingismanns og fyrrv. ráðherra, Hjörleifs Gutt- ormssonar, alþingismanns ogfv. ráðherra, oglngólfs Guðbrandsson- arforstjóra. Ámi Guðmundsson Árni Guðmundsson múrarameist- ari, Drápuhlíð 47, Reykjavík, er sjö- tugur í dag. Árni fæddist í Viðvík í Viðvíkursveit og ólst upp í Smiðs- gerði í Hólahreppi. Hann lærði múr- verk á Akureyri og lauk sveinsprófi 1942 en meistari hans var Þórður Aðalsteinsson. Arni kvæntist 1. des- ember 1956, Önnu Áslaugu Guð- mundsdóttur, f. 10. maí 1924, d. 20. júlí 1982. Foreldrar Önnu vom Guð- mundur Sveinsson, b. í Litlalóni í Breiðuvík, og kona hans, Guðrún Helgadóttir. Böm Árna og Önnu eru Róbert Trausti, f. 24. apríl 1951, stjórnmálafræðingur, kvæntur Höra Hilmarsdóttur, f. 5. nóvember 1948; Anna Margrét f. 23. apríl 1960, bókbindari, gift Stefáni Jóni Sig- urðssyni, f. 31. mars 1952, bókbind- ara og kennara, og er dóttir þeirra Rúna Kristín, f. 7. aprfl 1988; Sigríð- ur Ólöf, f. 5. janúar 1967, stúdent. Bróðir Áma er Hafþór, f. 6. janúar 1918, lögfræðingur í Rvík, en kona hans var Sólveig Kolbeinsdóttir, f. 23. mars 1927, d. 5. ágúst 1984, og eignuöust þau þrjú börn. Foreldrar Áma voru Guömundur Benjamínsson, f. 5. mars 1883, d. 30. desember 1961, b. í Viðvík í Viövík- urhreppi í Skagafirði, og kona hans, Anna Jónsdóttir, f. 18. júní 1877, d. 6. júlí 1969. Guðmundurvar sonur Benjamíns, b. á Ingveldarstööum, Friðfmnssonaf b. áFjalli, Friðfinns- sonar, b. á Stóragerði í Myrkárdal, Loftssonar. Móðir Friðfinns á Fjalli var Herdís Jónsdóttir, b. í Skógum, Þorkelssonar, bróður Þórðar, lang- afa Sigurðar, föður Jóns alþingis- manns á Reynistað. Móðir Benja- míns var Una Benjamínsdóttir, b. í Kelduvík á Skaga, Sigurðssonar, eldri Sigurðssonar, bróður Sigurðar í Keflavík, langafa Valtýs Stefáns- Guðrún Jóna Guðmundsdóttir Guðrún Jóna Guðmundsdóttir frá Meira-Garði í Dýrafirði, nú til heim- ilis að elliheimilinu á Flateyri, er níræð í dag. Maður Guðrúnar Jónu er látinn en hann var Hallmundur Jónsson, f. 6.7.1898. Börn Guðrúnar og Hallmundar eru Marvin Hallmundsson, f. 3.10. 1931, kvæntur Ólöfu Árnadóttur, f. 17.4.1930, og Jónasína Hallmunds- dóttir, f. 21.11.1938, ekkja eftir Svein Hafberg, f. 21.4.1934. Guðrún Jóna Guðmundsdóttir. Til hamingju með sonar ritstjóra. Móöir Guðmundar var Elín Guðmundsdóttir, b. á Ing- veldarstöðum í Hjaltadal, Sigurðs- sonar, og konu hans, Önnu Björns- dóttur, b. í Löngumýri, Magnússon- ar. Anna var dóttir Jóns, b. á Ásgeirs- brekku í Skagafirði, Andréssonar, b. á Syðri-Bægisá, Tómassonar, b. á Syðri-Bægisá, Egilssonar, b. á Hjálmsstöðum, Tómassonar, b. á Tjömum, Egilssonar, b. á Guðrún- arstöðum, Sveinssonar, bróður Tómasar, fóður Tómasar á Hvassa- felli, ættíoður Hvassafellsættarinn- ar, langafa Jónasar Hallgrímssonar skálds. Móðir Jóns var Ingibjörg, systir Páls, afa Friðriks Friðriks- sonar æskulýðsleiðtoga, stofnanda KFUM og K. Ingibjörg var dóttir Þórðar, b. í Kjama í Eyjafirði, Páls- sonar, og konu hans, Bjargar Hall- dórsdóttur, ættfpreldra Kjarnaætt- arinnar. Móöir Önnu var Ástþrúð- ur, systir Kristínar, ömmu Þórarins Björnssonar skólameistara. Ást- þrúður var dóttir Jóns, b. í Fjósa- tungu í Fnjóskadal, Ámasonar, og konu hans, Ingiríðar Sigurðardótt- ur. Árni er erlendis þessa dagana. 85 ára Sigurlaug Guðlaugsdóttir, Ási, Áshreppi. 75 ára Sigurgeir Ingvarsson, Eyrarvegi 9, Selfossi, 70 ára Ingvar Sigurðsson, Stigahlíð 54, Reykjavík. Kristin Karisdóttir, Melgerði 28, Reykjavík. 60 ára Guðmundur Grimsson, Hraunteigi 21, Reykjavik. 50 ára Ólöf Ólafsdóttir, Túngötu 22, Tálknafirði. Þórunn Árnadóttir, Álfhólsvegi 147, KópavogL Óskar Harry Jónsson, Esjugmnd 43, Kjalarneshreppi. Elisabet Guðbjartsdóttir, Hlíöarvegi 22, ísafírði Elsa Kristjánsdóttir, Huldulandi 10, Reykjavík. Benedikt Steindórsson, Ásbúð 21, Garðabæ. 40 ára Guðrún Jóhannesdóttir, Víöimel 64, Reykjavik. Sigrún A. Einarsson, Stigahlíð 28, Reykjavík, Þór Bjarnason, Eiríksgötu 25, Reykjavík. Fanney VUbergsdóttir, Breiðvangi 64, Hafharfirði. Björn EUertsson, Uröarstekk 2, Reykjavík. Katrín Guðnadóttir, Nesbakka 3, Neskaupstað. Jóhanna Guðlaugsdóttir Jóhanna Guðlaugsdóttir, Eskihlíð 22A, Reykjavík, er níutíu og fimm ára í dag. Jóhanna er fædd að Ball- ará í Skarðshreppi og ólst þar upp tfl þrettán ára aldurs er hún flutti með foreldrum sínum að Stað í Stein- grímsfirði þar sem faðir hennar tók við prestsembætti. Jóhanna fór til Reykjavíkur 1919 þar sem hún hóf störf við verslun Ludvigs Storr og var þar verslunarstjóri. Síðar vann Jóhanna á Þjóðminjasafninu um tíma en síðustu árin sem hún var útivinnandi var hún bókavörður við Borgarbókasafn Reykjavíkur. Jóhanna giftist 1923 Kristni Sig- urðssyni, f. 27.júlí 18%, d. 1933, bryta á Gulífossi gamla auk þess sem hann vann við hótelstörf. Foreldrar Krist- ins vom Sigurður Ebenesersson og kona hans, Jóhanna M. Jónsdóttir. Sýnir Jóhönnu og Sigurðar em Jón- as, f. 28. september 1923, verkfræð- ingur, var búsettur í Bandaríkjunum um langt árabfl en býr nú á Ítalíu; Birgir, f. 19. aprfl 1926, prentari í Rvík, og Guðlaugur, f. 19. júlí 1930, flugumferðarstjóri í Rvík. Systkini Jóhönnu era öll látin utan Theodóra, f. 29. desember 1899, var gift Óskari Þórðarsyni, b. Hóli í Hvammssveit. Hin vora Jónas, f. 27. september 1887, skáld, síðast á Skag- en á Jótlandi, kvæntur danskri konu; Elínborg, f. 4. september 1889, lést uppkomin, ógift; Þórdís Guöný, f. 27. september 1891, lést uppkomin, ógift; Guðrún Sigríður, f. 10. febrúar 1893, borgarfulltrúi í Rvík, var gift Einari Björgvini Kristjánssyni bygg- ingameistara, móöir hæstaréttarlög- mannanna Kristins Guðlaugs og Einars og Sverris tannlæknis; Ingi- björg, f. 27. j úlí 1898, lést uppkomin, ógift; Ólöf, f. 27. júlí 1901, gift Thork- fl Hansen, síðar gift Hannesi M. Þórðarsyni kennara; Kristín Guðrún Borghildur, f. 10. nóvember 1902, lést í bemsku; Guðmundur Skúli, f. 18. maí 1904, forstjóri á Akureyri, kvæntur Guðríði Aðalsteinsdóttur; Kristjin Magnúsen, f. 9. september 1906, ritstjóri og hrl. í Rvik, kvæntur Bergþóru Brynjúlfsdóttur. Foreldrar Jóhönnu voru Guðlaug- ur Guðmundsson, f. 20. aprfl 1853, d. 20. mars 1931, prestur á Stað í Steingrímsfirði, og kona hans, Margrét Jónasdóttir, f. 16. desember 1867, d. 12. mars 1954. Jóhanna vár dóttir Guölaugs, prests á Stað í Steingrímsfirði, Guðmundssonar, b. í Syðri-Skógum í Kolbeinsstaða- hreppi, Gíslasonar. Móðir Guð- mundar var Þuríður Bárðardóttir, systir Halldóra, langömmu Daða, íoður Sigfúsar skálds. Halldóra var einnig langamma Þorsteins Víg- lundssonar skólastjóra, afa Árna Sigfússonar borgarfulltrúa. Móðursystir Jóhönnu var Ingi- björg, móðir læknanna Jónasar og Kristjáns og ömmu Sveins Jónsson- ar, formanns KR. Margrét var dóttir Jónasar, prests á Staðarhrauni, Guðmundssonar, bróður Einars á Botnastöðum, afa Einars Kristjáns- sonar húsasmíðameistara, manns Guðrúnar Guðlaugsdóttur. Jónas var sonur GuðmUndar, b. í Þverár- dal, Einarssonar, b. í Þverárdal, Jónssonar, b. á Skeggsstöðum, Jónssonar, ættfóður Skeggsstaða- ættarinnar. Móðir Jónasar var Margrét Jónasdóttir, b. í Gili í Svart- árdal, Jónssonar. Móðir Jónasar var Ingibjörg Jónsdóttir Harða- bónda, b. í Mörk í Laxárdal, Jóns- sonar, ættfóður Harðabóndaættar- innar. Móðir Margrétar var Ingi- björg Jónsdóttir, systir Einars í Þverárdal. Móðir Margrétar á Stað var Elín- borg Kristjánsdóttir, sýslumanns á Skarði á Skarðsströnd, Skúlasonar, sýslumanns á Skarði, Magnússon- ar, sýslumanns á Skarði, Ketilsson- ar. Móðir Magnúsar var Guðrún Magnúsdóttir, systir Skúla land- fógeta. Móðir Kristjáns var Kristín Bogadóttir, b. í Hrappsey, Bene- diktssonar og konu hans, Sigríðar Jónsdóttur. Móðir Sigríðar var Ragnheiður Gísladóttir, systir Jóhanna Guölaugsdóttir. Magnúsar amtmanns, föður Sigríð- ar, konu Ólafs Stefánssonar stift- amtmanns, ættforeldra Stephen- senættarinnar. Móðir Elínborgar var Ingibjörg Ebenezersdóttir, sýslumanns í Hjarðardal, Þorsteins- sonar og konu hans, Guðrúnar Þórðardóttur, prests í Skarðsþing- um, Ólafssonar. Móðir Guðrúnar var Kristín Bogadóttir, móðir Kristjáns Skúlasonar. Jóhanna tekur á móti gestum í dag í Víkingasal Hótel Loftleiöa kl. 16-18.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.