Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.07.1989, Blaðsíða 32
F RÉTT ASKOTI -Ð ÍÉ KZmjL áÉM EZ ' Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022 Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 18. JÚU 1989. Flugfreyjur: Fengu einar sokkabuxur Boðuðu verkfalli ílugfreyja, sem hefjast átti á miðnætti í gær. var frestað þegar samkomulag náðist í deilu flugfreyja og Flugleiða. Sam- komulagið felst í um 20 prósent launahækkun fram til 31. mars á næsta ári. Auk þess fá flugfreyjur einar sokkabuxur á mánuði frá félag- inu. Litlu munaði að þetta síðasttalda yrði þess valdandi að til verkfalls kæmi. Samkomulag hafði tekist um öll atriði að þessu einu undanskildu. Flugfreyjur höfðu gert kröfu um að fá borgaðar tvennar sokkabuxur en Flugleiðir neituðu. Það var Guðlaug- ur Þorvaldsson ríkissáttasemjari sem hjó á hnútinn seint í gærkvöldi. Hann lagði til að deiluaðilar hittust á miðri leiö og féllust þeir á það. -gse Akureyrarlögregla: Nýi bíllinn lenti strax I árekstri Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri: Ný bifreið, sem lögreglan á Akur- eyri tók í notkun um helgina, haföi ekki verið í notkun nema í um sólar- hring þegar hann lenti í árekstri og skemmdist talsvert. Þetta vildi þannig til að á sunnu- dagskvöld, þegar lögreglumenn á bif- reiðinni, sem er af Volvo-gerð, voru að aka eftir Drottningarbraut, mættu þeir bifreið sem ekið var á of miklum hraða. Þeir sneru strax viö og veittu bifreiðinni eftirför. Konu, sem ók bif- reiðinni, mun hafa brugðið mjög er hún sá blikkandi ljós lögreglubifreið- arinnar fyrir aftan sig og snarheml- aði með þeim afleiðingum aö lög- reglubifreiðin lenti aftan á bifreið hennar. Enginn meiddist við árekst- urinn en sem fyrr sagði er nýja lög- reglubifreiðin talsvert skemmd. Smygl í Katrínu VE Nokkuð af smyglvarningi fannst við tollskoöun um borð í Katrínu VE þegar hún kom til Vestmannaeyja í nótt. Fundu tollarar 51 flösku af sterku áfengi, 31 flösku af léttu víni, 6 karton af sígarettum og 2 sjón- varpstæki. Menn úr áhöfninni munu hafa viðurkennt að eiga varninginn. -hlh LOKI Fá flugþjónarnir þá föðurland? RMsstjómin: Bráðabirgðahjálp handa loðdýrum - fyllt upp í Qárlagagatið fyrst og fremst með innlendu lánsfé Fyrir ríkisstjórnarfundi í morg- bænda og fóðurstöðva mun grein- fremst í fjármögnun hallans á inn- un lá fyrir tillaga um bráðabirgöa- ina geta tórt til haustsins. Fram aö lendum lánamarkaöi. Fyrir ríkis- lausnávandaloðdýraræktarinnar. hausti er stefnt að samkomulagi stjórnarfundinumlágueinnigýms- í henni felst að ríkisstjómin mun um mun víötækari aðstoð sem ar niöurskuröar- og skattahækk- flýta ýmsum greiösium tii greinar- Stofnlánadeild landbúnaðarins, unartillögur sem ráöherramir innar og vinna með því tíma til aö Byggðastofnun og viöskiptabank- gátu valið um. Þrátt fyrir þessar násamkomulagiumendanlegafyr- amir munu taka þátt í auk ríkis- tillögur er ljóst að fyrst og fremst irgreiðslu. sjóös. verður fyllt upp i gatiö meö inn- Hérerfyrstogfremstáttviöend- Þá lá eimtig fyrir fundinum til- lendu lánsfé. Tillaga sem var í urgreiðslu á söluskatti að andvirði laga íjármálaráðherra um viðbrögö gangi í síöustu viku um hækkun um 70 tii 100 milljónir króna. Með viö 4,2 milljarða halla á ríkissjóði söluskatts hefur veriö hafnað. því að greiða þessa fjárhæð til á þessu ári. Þær felast fyrst og -gse Þeir lentu í „heyskap“ á Glerárgötunni á Akureyri, tveir menn eitt kvöldið, er heybaggar hrundu af bíl þeirra og þurfti snör handtök við að koma öllu í lag. DV-mynd gk Flugleiðir: Boðið 6,7 milljarða lán Flugleiöir hafa tryggt sér lánsrétt vegna kaupa þriggja nýrra flugvéla á næsta ári, aö jafnnvirði 6,7 millj- arða íslenskra króna. Þaö eru bankar í Bandaríkjunum og Japan sem standa að lánstilboðinu, að því er segir í frétt frá flugfélaginu. Mun það fjármagna 90% af kaupverði vél- anna. Á næsta ári munu Flugleiðir fá tvær 757-200 flugvélar til flugs á Norður-Atlantshafsleiðum og eina 737-400 flugvél til viðbótar þeim sem keyptar voru til landsins á þessu ári. Þá verður allur millilandafloti fé- lagsins innan við eins árs gamall. Við tryggingu lántökunnar hafa Flugleiðir ekki þurft aö leita eftir ábyrgðum frá ríkinu né öðrum. Þau yrðu tryggð með veði í vélunum. Kjörin á þessum lánum eru einnig góö og teljast svipuö og hefði fylgt þeim ríkisábyrgð. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort þessi lánsréttur til véla- kaupanna verður nýttur. Einnig kemur til greina að íjármagna þau með öðrum hætti, til dæmis í gegnum kaupleigu. -JSS Veðrið á morgun: Dumbungur vestanlands Ekki verða neinar breytingar á veöri á morgun. Hæg suðvestanátt verður ríkjandi með skýjafari og súld ööru hvoru vestan- og suðvest- anlands. Annars staðar verður víða léttskýjað. Hiti verður 9-12 stig í dumbungn- um en allt að 20 stig þar sem sólin skín. Smyglarinn eltur uppi Skipveiji á skipi sem liggur í Reykjavíkurhöfn var handsamaöur af tollgæslumönnum og lögreglu- mönnum eftir snarpan en stuttan eltingarleik í nótt. Maðurinn hafði komið frá borði og þar sem nokkur asi var á honum vildu tollgæslumenn ræða við hann. Sá lét sig hins vegar ekki og upp- hófst þá eltingarleikur. Var lögregl- an kölluö til aðstoðar og tókst þá fljótlega að stöðva manninn. Við leit í bílnum komu nokkrar áfengisflösk- ur í ljós sem maðurinn haföi haft meðsérfráboröi. -hlh Hlaup í Skaftá Hlaup hófst í Skaftá í gær og hefur veginum upp í Eldgjá og Skaftár- tungu verið lokað þar sem vatn flæð- ir yflr veginn. Suðurlandsvegur er ágætlega fær og ekki er búist við að hann lokist en að sögn manna hjá Vegagerð ríkisins er aldrei aö vita hvað gerist. Aö sögn Gylfa Júlíussonar, vega- verkstjóra í Vík, vex hægt og rólega í ánni. Búist er við aö hlaupið nái hámarki sínu í kvöld. Hlaup hafa komið í Skaftá um þaö bil annað hvert ár. Eitthvað var um ferðamenn í Eldgjá er hlaupið hófst, tvær rútur og einn eða tveir fólksbílar. Vega- gerðin lét sækja ferðalangana um leið og vitað var um hlaupið svo aö enginn ætti að vera á þessu svæði núna. -GHK Laun hækka minna en framfærsla Launavísitalan hækkaði um 0,6 prósent á júlí frá fyrri mánuði eða um 0,1 prósenti minna en fram- færsluvísitalan. Hækkun launavísi- tölunnar í júlí jafngildir 7 prósent hækkun á einu ári. Hækkun vísi- tölunnar undanfarna þrjá mánuði jafngildir hins vegar um 21,2 prósent hækkun. Á sama tíma hefur hækkun framfærsluvísitölunnar jafngilt 25,1 prósent hækkun. Launavísitalan er nú 106,3 stig. -gse Bænheitur prestur Kegina Thorarensen, DV, Gjögri: Messaö var í Árneskirkju 16. júlí. Séra Einari Jónssyni mæltist vel að vanda og bað Guð heitt og innilega um regn á túnin, vætu. Strax daginn eftir kom rigningarskúr svo ekki er annað hægt að segja en okkar ágæti prestur sé bænheitur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.