Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1989, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 27. JÚLf 1989.
Fréttir
Nýbýlavegur í Kópavogi veldur íbúum viö Furu- og Grenigrund áhyggjum:
Vegurinn er lagður
mjög nærri húsunum
Miklar gatnagerðarframkvæmdir
hafa verið við Nýbýlaveg í sumar og
hefur vegurinn verið færður niður
fyrir, nær húsum er standa við
Grenigrund og Furugrund. Hafa íbú-
amir haft talsverðar áhyggjur af því
að verð fasteigna þar muni lækka,
þar eð gatan er komin nálægt húsun-
um.
„Það var alltaf vitað að þarna kæmi
vegur. Við gerum þetta eins huggu-
legt og við getum og vinnum í sam-
ráði við íbúana," sagði Stefán L. Stef-
ánsson, tæknifræðingur hjá Kópa-
vogsbæ.
Breytilegar áætlanir
Verkið er unnið í áfongum og er
stefnan núna að klára aðalgötuna frá
Furugrund og að undirgöngum aust-
an megin og húsagötuna frá Hjalla-
brekku og að undirgöngunum vestan
megin. Mun aðalgatan verða tengd
inn á húsagötuna hjá göngunum, til
bráðabirgða. Áætlað er að fram-
kvæmdum ljúki áriö 1991, en að sögn
Stefáns er ekkert farið að ræða svæð-
ið frá göngunum og að Birkigrund,
en þar mun helst vera tekið af görð-
um við Grenigrund.
Steingrímur Hauksson tæknifræð-
sem tilheyra
Túnbrekka
Nýbýlavegurinn
i ]T i H
irkigrúnd <
ílCJvÍ*
■ Hb ■
dvjrj HjHllabrekka
c
Furugrund
Þetta kort sýnir Nýbýlaveginn eins og hann er tyrirhugaður mílli Túnbrekku og Hjallabrekku.
Frá framkvæmdum við Nýbýlaveginn. Eins og sjá má kemur beygja á veginn þar sem aðalgötunni er sveigt upp
á húsagötuna. DV-mynd JAK
ingur sagði að Nýbýlavegurinn hefði
fyrst verið teiknaður um 1972, og
miðað viö umferðarspár sem þá voru
í gangi var ekki talin þörf á því að
hafa veginn eins breiðan og upphaf-
lega var gert ráð fyrir. Síöar var for-
sendunum breytt og nú er ætlunin
að á þessum kafla verði aðeins ein
akrein í hvora átt, en húsagatan
bætist við og mun hún hggja töluvert
fyrir ofan aðalgötuna. Sagði Stein-
grímur að einhveijar breytingar
yrðu á lóðarmörkum en eigendur
fengju allt slíkt bætt.
Áhrif á fasteignaverðið?
„Ég held að fasteignaverð á þessum
húsum muni ekki lækka, þó hefur
verið erfiöara aö selja hús sem
standa næst veginum. En þetta eru
mjög dýréir eignir, vel byggð hús sem
standa vel og ættu ekki að þurfa að
hða fyrir þetta," sagði Guðmundur
Tómasson, fasteignasah hjá Hús-
vangi.
Guömundur sagði aö hann hefði
séð teikningamar af Nýbýlaveginum
og hann hélt aö þegar gróðurbelti,
sem gert er ráð fyrir, verður komið
muni draga úr hávaða og mengun
sem götunni fylgir og ætti ekki að
hafa nein áhrif á íbúana.
Ámi Haraldsson hjá Fasteignamið-
stöðinni hélt hins vegar að verðmæti
þeirra eigna sem stæöu næst vegin-
um aö neðan myndi skerðast eitt-
hvaö. Aftur á móti átti hann von á
því að verð íbúða við Nýbýlaveginn
myndi hækka þar sem frágangur
þeim megin yrði nú betri og munaði
miklu um húsagötuna. Taldi hann
ómögulegt að segja fyrir um hversu
mikið verð íbúðanna við Fumgrund
og Grenigrund myndi lækka.
„Viö vitum ekki tíl þess að ekki sé
hægt að selja íbúðir á þessum stað,"
sagði Bjöm Þorsteinsson, bæjarritari
Kópavogs. „Hvort bærinn verður að
kaupa eða selja hefur ekkert verið
rætt. Teikningamar hggja fyrir, veg-
urinn sveigist eitthvað en mun
snerta lóðir að htlu leyti," sagði
Bjöm, en því hefur verið fleygt að
bærinn þyrfti aö kaupa íbúðir við
Fumgrund og Grenigrund ef þær
seldust ekki. Bjöm sagöi að það færi
eftir fjárhagsáætlun hveiju sinni
hvemig framkvæmdum við Nýbýla-
veginn myndi miða. Verkið væri
unnið í áfongum svo ekki þyrfti aö
lokaveginumoflengiíeinu. -GHK
í dag mælir Dagfari______________
Aðdáendaklúbbur Davíðs
Það bar við um síðustu helgi að
Þjóðviljinn hafði viðtal við Davíð
Oddsson borgarstjóra. Morgvm-
blaðið telur að viðtal Þjóðviljans
sé árangur af glasnost þeirra Sovét-
manna þótt Reykvíkingar hafi
reyndar aldrei orðið varir við að
Davíð hafi verið settur í einangmn,
né heldur hafi hann sjálfur verið í
fréttabanni. Davíð Oddsson hefur
ekki þurft að hafa áhyggjur af af-
skiptaleysi íjölmiðla og nú em þeir
jafnvel famir að skrifa um hann
ævisögur án þess að Davíð hafi
hugmynd um það sjálfur. Það hlýt-
ur að verða skemmtilegt fyrir borg-
arstjórann að lesa um ævi sína í
bókum eftir ókunna höfunda. En
þetta fylgir því að vera vinsæh og
frægur og í viðtalinu við Þjóðvilj-
ann tekur Davíð réttilega fram að
fuhtrúar minnihlutans í borgar-
stjóm séu yfirleitt ánægðir með
það sem hann gerir. Vinsældir
Davíðs ná langt út fyrir raðir
flokksmanna og eigin borgarfuh-
trúa og þetta veit Davíð. Það er
auðvitað ástæðulaust af honum að
gleyma þessum aðdáendum sínum
þegar um þá er spurt.
í staö þess að þakka Davíð fyrir
að hafa munað eftir sér í merku
og sögulegu viðtah hafa borgarfuh-
trúar minnihlutans bragðist
ókvæða við þessum vinsamlegu
ummælum borgarstjórans og láta
bóka í borgarráöi að þeir kannist
ekki við aö vera í aðdáendaklúbbi
Daviðs. Þetta lét Alfreð framsókn-
arfuhtrúi bóka og Sigurjón alla-
bahi lét bóka að hann væri sam-
mála bókun Alfreðs og svo kom
Elín frá Kvennaframboðinu og lét
bóka að hún væri sammála bókun
Siguijóns sem var sammála bókun
Alfreðs.
Síðast þegar fréttist' hafði Al-
þýðuflokkurinn líka einn borgar-
fulltrúa en apnaðhvort er hann
hættur að mæta í borgarráði af því
honum fmnst ekki taka því ehegar
þá að kratinn í borgarstjóm er
heiðarlegri en hinir minnihluta-
fulltrúamir og viðurkennir að
hann er ánægður með Davið.
Nú geta menn auðvitað bókaö það
sem þeir vhja í borgarráði, enda
em fundargerðir yfirleitt ekki th
sýnis fyrir almenning. Satt að segja
vita Reykvíkingar harla htið um
thvist minnihlutans í borgarstjóm,
nema þá þegar bókanir af þessu
tagi leka út og ef fólkiö vhl endhega
vera áfram í minnihluta þá getur
þaö vitaskuld látið bóka það. Það
hlýtur aö vera gaman fyrir Davíð
aö hafa nokkra sérvitringa í borg-
arráði með sér og gagnlegt líka því
þá getur hann verið ömggur um
að hann sé að gera rétt ef sérvitr-
ingamir em á móti því.
Allt er þetta gott og blessað og
skemmtileg sýndarmennska hjá
minnihlutafuhtrúunum að þykjast
vera á móti Davíð og neita því að
vera hrifnir af honum. Ef þeir vilja
vera aödáendur í felum þá er það
þeirra mál. En það getur enginn
álasað borgarstjóranum fyrir að
segja það sem honum finnst um
þessa vini sína í borgarstjóm, jafn-
vel þótt þeir hafi ekki hugrekki th
að endurgjalda vináttuna í bókun-
um sínum.
Þaö segir hins vegar nokkuð th
um ástandið í borgarstjóm Reykja-
víkur að minnihlutafuhtrúamir
þurfi að bóka það sérstaklega að
þeir séu ekki ánægðir með störf
borgarstjóra. Þegar minnihluta-
fulltrúar þurfa að bóka þaö í fund-
argerðir aö þeir séu ekki aðdáend-
ur borgarstjórans þá er orðiö harla
htið eftir af stjórnarandstöðu og
slagkrafti í minnihlutanum. Hér á
árum áður þurftu kjósendur engar
bókanir til að vita um meirihluta
og minnihluta í borgarstjóm. Þá
var slegist fyrir opnum tjöldum og
menn fóm ekki í felur með afstöðu
sína. Núna bóka þeir mótmæh sín
gegn því að vera í aðdáendaklúbbi
borgarstjórans hjá íhaldinu og
stjórnarandstaöan er fólgin í því
að bera af sér leynda aðdáun á
þessum sama borgarstjóra.
Næst þegar Davíð borgarstjóri
lætur hafa við sig viðtal í Þjóðvhj-
anum á hann að taka tillit th þess
að minnihlutafuhtrúamir verða að
þykjast vera á móti honum. Hann
á að segja að hann eigi aðdáendur
í felum en megi ekki segja frá þeim.
Davíð verður að vera góður við
vini sína í, minnihlutanum sem
ekki mega láta það spyijast opin-
berlega að þeir séu aðdáendur
borgarstjórans þegar þeir hafa at-
vinnu af því að vera á móti honum.
Annars ná þeir ekki kosningu og
þá fækkar í aðdáendaklúbbnum.
Dagfari