Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1989, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1989, Side 5
FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1989. 5 Reykjavíkurflugvöllur: Slökkviliðsbfll ók fyrir flugvél „Þaö var lítil flugvél í lendingu og bifreiö ffá slökkviliöinu ók í veg fyrir hana. Málið er í rann- sókn,“ sagði Guðmundur Matthí- asson hjá Flugmálastjóm. Á mánudaginn.mátti litlu muna að stórslys yrði á Reykjavíkur- flugvelli. Bifreið frá slökkviliðinu var ekið í veg fyrir vél frá Flug- skóla Helga Jónssonar sem var aö koma inn til lendingar. Sagði Guömundur aö þetta væri einfalt mál og niöurstöðumar ættu að liggja fyrir mjög fljótlega. Ekki væri annaö að gera en að hlusta á segulbandsupptökur af sam- ræðum milli flugturnsins og bif- reiðarinnar. Guðmundur Guömundsson slökkvihðsstjóri sagði að um mis- heym hefði verið að ræða. Öku- maður slökkviliösbflsins baö um leyfi til aö fara yflr brautina. Var honum sagt að bíða en hann hélt að hann hefði fengið leyfið og ók áfram með sjúkrabíl á eftir sér. , JMáliö er í rannsókn og við vilj- um ekki tjá okkur um þaö,“ sagði Jón Helgason hjá Flugskóla HelgaJónssonar. -GHK Rauðisandur: Initstæðu- eigendur tapa ekki fé sínu „Það er ekki rétt að innstæðu- eigendur í Sparisjóði Rauða- sandshrepps hafi tapað fjármun- um og kröfur þeirrar séu glatað- ar,“ sagði Siguröur Hafstein, framkvæmdasfjóri Trygginga- sjóðs sparisjóða, en það mátti lesa út úr frétt í DV i gær. Siguröur sagði að sparisjóðimir hefðu komið upp tryggingasjóðn- um, sem hefur yör á annað himdraö milljón króna að ráöa, einmitt til að bregðast viö málum sem þessum. Innstæður spari- sjóðseigenda væru alltaf tryggðar enda stæöi Tryggingasjóðurinn á bak við alla sparisjóöi og kröfur innstæðueigenda. Þegar Spari- sjóður Rauðasandshrepps hefði veriö færður undir Eyrasparisjóð hefði Tryggingasjóðurinn staðið þar að baki. Sigurður sagðist gera ráö fyrir því að Tryggingasjóðurinn færi í fjárkröfumál við sparisjóðsstjór- ann fyrverandi til að endur- heimta rýmun sjóöa Sparisjóös Rauðasandshrepps. Ekki hefði þótt rétt að hafa fjárkröfu með í sakamálinu sem nú hefur verið kveðinnuppúrskurðurí. -SMJ Borgarprest- arnir ekki bænheitir? Regina Hiotarensen, DV, Gjögil: Veðrátta hefur verið afar góð allan júlfmánuð hér í Ámes- hreppi, sól og hiti allt upp í 17 stig, svo þurrkar voru farair að há túnasjprettu. En 16júlí var messa í Árneskirkju og prestur- inn bað um rigningu. Daginn eftir gerði skúr og síðan hafa alltaf verið smáskúrir á hveijum degi. Ég spyr, eru blessaðir prestam- ir í henni Reykjavík ekki bæn- heitir eins og presturinn á Ströndum? í hinum miklu rign- ingum á höfuðborgarsvæðmu heföu þeir átt að biðja um betra veður en ekki hef ég heyrt þá biðja um sól í þeim útvarpsmess- um sem ég hef hlustaö á. Kannski er stressið svo mikið hjá þeim að iaö gleymist að þakka guöi fyrir góða veðrið þegar þaö er. Kannski betra að það rigni mán- uðum saman, þá gefst meiri timi til að útbúa kærur ef einhver seg- ir sannleikann. Fréttir Hagstofumenn fjöl- menna til Finnlands í byrjun ágúst mun átta til níu manna hópur frá Hagstofu íslands fara til Finnlands á ráðstefnu þar. „Á þriggja ára fresti er haldinn svokallaður stórhagstofustjórafund- ur og norrænt tölfræðingamót. Þar eru teknar ákvarðanir um samstarf- ið næstu þrjú árin. Það eru fjögur ár síðan það var haldið og ástæðan er sú að norrænt samstarf um hag- skýrslustarf er 100 ára á þessu ári,“ sagði Hallgrímur Snorrason hag- stofustjóri. Sagði Hallgrímur að kostnaður hagstofustjóra og aðstoðarmanns hans væri greiddur af Hagstofunni en kostnaður annarra af þeim sjálf- um með styrk frá Hagstofunni. Hall- grímur sagðist ekki vera búinn að taka saman hver heildarkostnaður- inn yrði en ferðakostnaður yrði ekki undir 250.000. Hallgrímur sagði að norrænar hag- stofur heföu mikiö samstarf, hag- stofustjórar hittust einu sinni á ári og einnig væru um 20 vinnunefndir sem hittust mismunandi oft. Sam- starfið væri Hagstofunni mjög mikil- vægt og sparaði peninga. „Við ferðumst ekki mikið hér. Nefndunum er stefnt saman á fund- inum svo að ferðimir nýtist, það taka allir þátt í a.m.k. einum nefndar- fundi. Þetta er ferð sem annars hefði dreifst á árið,“ sagði Hallgrímur. Jón Sveinsson, aðstoöarmaður for- sætisráðherra, sagði að ferð Hagstof- -unnar hefði ekki borið á góma þar á bæ. Hagstofan heyrir undir forsætis- ráöuneytiö. -GHK Gaseldavélarnar og gasofnarnir frá Super Ser eru komnir ^Woiís-búðin I J 1 »J Vagnhöfða 13, sími 67 23 23 JEPPAEIGENDUR! *+ + + * ^ + *+ + + ^ * * * 20% AFSLÁTTUR TIL 7. ÁGÚST t * Gildir ekki á pallbílahúsum 7* ★ ★★★★★★★★★★★★★★★★ ★ ★ ★'¥"* trailnSS UPPHÆKKUNARSETT i FLESTAR GERÐIR JEPPA: STÝRISDEMPARAR - FÓÐRINGAR - STÝRISARMAR - FJAÐRA-- HENGSLI - DEMPARAR - STUÐPÚÐAR OG DRIFSKÖFT GROUNDHAWG 36" RADIAL Einnig: 16/38.5 17/40-15 18.5/44-15 BFGoodrich Hjólbarðar, sem sameina ENDINGU, RÁSFESTU OG MÝKT • E 1 N N 1 G : • SPICER HJÖRULIÐS- • FELGUR t RANCHOFJAÐRIR + KR0SSAR • BLÆJUR DEMPARAR • VIÐG ERÐARSETT FYRIR t BRETTAKANTAR t KC-LJÓSKASTARAR RADIAIHJÓLBARÐA • HALLAMÆLAR t BENSiNBRÚSAROG • DRIFHIUTFOIL • L0FTMÆLAR (1-20 LBS) FESTINGAR • SPIL - STUÐARAR • RAFMAGNSVIFTUR t VARADEKKSFESTINGAR • FJORHJOLASPIL • DRIFL0KUR t TEPPI i BLAZERS100.FL. Á BLAZER S100.FL. t DRÁUARKR0KAR /#ALLT## I TOYOTA FRÁ DOWNEY: FJAÐRIR - DEMPARAR - FLÆKJUR - BLÖNDUNGAR - STÝRISDEMPARAR - BODDY UPPHÆKKUNARSETT - „HEAVY DUTY" KÚPLINGAR - AUKABENZÍNTANKAR - TVOFALDIR STUÐARAR - SÍLSRÖR - BRETTAKANTAR - OG MARGT FLEIRA BIDDU UM MYNDALISTA BRAHMA PALLBÍLAHÚS ss W A R N RAFMAGNSSPIL 0.7 - 2.5 - 4 - 5 — 6 TONNA A Útborgun samkomulag B Eftirstöðvar 6-12 mánuðir C Staðgreiðsluafsláttur Ath! Einnig driflæsingar í Suzuki 4.10 og 4.13. Drifhlutföll í 4.13. MAttt Vatnagörðum 14 Sími 83188

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.