Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1989, Side 8
8
FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1989.
Utiönd
Suður-kóresk flugvél brotiendir í Líbýu:
TaKd að 100 hafi lifað af
Talið er að milli áttatíu og eitt
hundrað farþegar hafi komist lífs af
þegar DC-10 flugvél suður-kóresks
flugfélags brotlenti utan flugvallar-
ins í Trípóh í Líbýu í morgun. Eitt
hundrað áttatíu og tveir farþegar og
átján manna áhöfn var um borö í
vélinni sem brotlenti við lendingu.
Vélin var að koma frá Seoul í Suður-
Kóreu og voru flestir farþeganna
kóreskir. Ástæður slyssins eru
ókunnar.
Að minnsta kosti fjórir létust þegar
vélin ruddist í gegnum fjögur íbúðar-
hús og skall á nokkrum bifreiöum í
námunda við flugvöflinn.
Samkvæmt fyrstu fréttum hinnar
opinberu fréttastofu í Líbýu, en út-
sendingar hennar nást á Kýpur, átti
slysið sér stað um hálfsexleytið í
morgun að íslenskum tíma. Fyrstu
fréttir herma að milU áttatíu og eitt
hundraö, þar með talinn flugstjóri
vélarinnar, hafi komist lífs af. Björg-
unaraðgerðir stóðu yfir í morgun.
Talsmaður suður-kóreska sendi-
ráðsins í TrípóU sagði að allir starfs-
menn þess heföu lagt af stað til flug-
vallarins strax og fréttist af slysinu.
Kvaðst hann ekki vita enn nákvæm-
lega hvað gerst hefði.
Suður-kóresk fyrirtæki eiga aðild
að nokkrum stórum byggingarfram-
kvæmdum í Líbýu og fljúga oft með
starfsmenn til landsins.
Reuter
BLOMADANSLEIKUR ’89
Hótel Örk
Hveragerði
laugardagskvöld 29.7.
Hver verður svo heppin
að hljóta titilinn blómadrottning 1989
og fá Evrópuferð með Arnarflugi?
Aldurstakmark 18 ár Snyrtilegur klæðnaður
í Fnllbúin hjólhýsi á tjaldvagnavexði j
[ Engin útborgun -12 mán. raðgreiðslur 1
Sýnum alla daga hin vinsælu PREDOM hjólhýsi og kerrur. Eigum takmarkað
magn afþessum sívinsælu hjólhýsum og kerrum sem selst hafa upp á skömmum
tíma undanfarin ár. Komið og kynnið ykkur þær nýjungar sem nu er boðið upp
á og tryggið ykkur hús í tíma.
Innifalið í verði: Svefnpláss fyrir 2 til 4, tveggja hellna eldavél, vaskur með
rennandi vatni os niðurfaluTinniljós, fataskápur, tvö borð
með sætum fyrir o manns, sÓlúga klósetklefi, burðarkassi
fyrirrafhlöður og gaskúta, sjáfvirkar bremsur, stuðnings-
tjakkar á öllum nomum, tvofalt gler, fullkominn ljósabún-
aður, fortjald og margt fleira.
Allt þetta á verði frá kr. 230.000.- fhver býður betur ?1
Vélar og Þjónusta Jámhálsi 2, súni 91-83266
NÚ ER VF.ÐRIÐ FYRTR H.IÓT.HYSTN !
Verð með fortjaldi kr. 230.000.-
SPÁNN ^
Miðjarðarhafið Sikiley
TUNIS >
Trípolí
ALSÍR
Flugvélin var
að koma frá
S-Kóreu og
hrapaði í
lendingu
DVJRJ
Suður-kóresk DC-10 vél brotlenti utan (lugvallarins í Trípóli í Líbýu.
Efnahagslegt
sjálfstæði Eystra-
saltsríkjanna?
Háttsettur sovéskur embættismað-
ur gaf í skyn í gær að ráðamenn í
Moskvu hefðu samþykkt áætlun um
aukið efnahagslegt sjálfstæði handa
Eystrasaltsríkjunum, Eistlandi, Lett-
landi og Litháen, frá og með 1990.
Anatoly Lukyanov, fyrsti varafor-
seti, hvatti efri deild til að sam-
þykkja áætlun lýðveldanna á fundi
hennar í dag. Sagöi hann nauösyn á
að leyfa ráðamönnum í lýðveldunum
þremur fjárhagslegt sjálfstæði frá og
meö 1. janúar næstkomandi.
Samkvæmt áætluninni hefðu ráöa-
menn í Eystrasaltsríkjunum yflr-
stjórn eigin fjárlagafrumvarpa sem
og samgöngumála, iðnaðar, verslun-
ar og náttúrulegra auðæfa.
Talið er að efnahagsleg sjálfstjóm
’í lýðveldunum auki enn við þær pól-
itísku umbætur sem nú eiga sér staö
þar. íbúar þeirra hafa farið fram á
aukið sjálfstæði í ákvarðanatöku er
varða þá og í gær söfnuðust um eitt
hundrað þúsund manns saman í
Riga, höfuðborg Lettlands, þar sem
þess var krafist aö lýðveldið tæki
þátt í sjálfstæðisbaráttunni. Reuter
Forsætisráðherra Eistlands, Indrek Toome, og leiðtogi kommúnistaflokksins
í lýðveldinu, Algiras Brazauskas, ræðast við. Simamynd Reuter
Howe vildi ekki inn-
anríkisráðuneytið
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, reyndi í gær að
draga úr skaöanum vegna uppstokk-
unar ríkisstjómar sinnar sem stjóm-
arandstaðan hefur lýst sem algjöru
klúöri. Bresk dagblöð hafa skýrt frá
því aö sir Geoffrey Howe utanríkis-
ráðherra hafi verið boðin staöa inn-
anríkisráöherra án vitundar Douglas
Hurd sem gegndi því embætti og hélt
því eftir uppstokkunina.
Howe hafnaði boði um innanríkis-
ráðuneytið eftir löng samtöl við fjöl-
skyldu sína og vini og þáði með hálf-
um hug hitt boð Thatchers, forystu
í neðri deild þingsins. Hann krafðist
þess einnig að fá stöðu aðstoðarfor-
sætisráðherra og formennsku nokk-
urra mikilvægra nefnda í þinginu.
Embættismenn, sem eru yflrleitt
fljótir til að vísa á bug ósönnum eða
óþægilegum fréttum, vildu hvorki
játa né neita fréttum blaðanna.
Stjómmálaskýrendur segja að upp-
stokkun stjómarinnar hcifi haft
slæm áhrif á samband Thatchers við
þrjá helstu samstarfsmenn hennar,
Howe, Hurd og Nigel Lawson fjár-
málaráðherra.