Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1989, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1989, Page 18
Íþróttír Sígrí fagnað í mestu hjólreiða- keppni heims ár hvert, Tour de Fran- ce. Það er Bandaríkjamaðurinn Greg LeMond sem sigraði í karla- flokki eftir harða keppni við Frakk- ann Laurent Fignon. Símamynd/Reuter Severiano Ballesteros frá Spáni tókst ekki að verja titil sinn á British Open golfmótinu á dögunum en hann hefur þrívegis sigrað á mótinu. Á þessari gullfallegu golfmynd sést Baliesteros slá upp úr sand- gryfju og víst er að golfmyndir verða ekki miklu betri. Símamynd/Reuter TárÍn streymdu niður kini þessa ítalska hjólreiðamanns hann tók við verðlaunum sínum f ir einn hluta Tour de France hj reiðakeppninnar. Símamynd/Reu Mark Calcavecchia vann óvænt- an sigur á British Open golfmótinu um síðustu helgi. Hér sést hann smella kossi á sigurverðlaunin. Símamynd/Reuter 'Bestu íþróttamenn heims eiga yfirleitt ekki í fjárhagserfiðleikum og hnefaleikakappinn Mike Tyson er þar engin undantekning. Á dögunum barðist hann við Carl Williams um heimsmeistaratitilinn i þungavigt og tók það Tyson skamma stund að sigra andstæðing sinn. Don King, stuðningsmaður Tysons, sagði fyrir bardagann að hann myndi gefa Tyson 100 þúsund dollara ef hann rotaði Williams í fyrstu lotu. Það gerði Tyson og hér sést hann með peninga, jafnvirði um 5,5 milljóna króna. Símamynd/Reuter ÞeSSÍ skemmtilega og frábæra tennismynd var tekin af hinum unga og efnilegi Andre Agassi frá Banda- ríkjunum er hann lék listir sínar í móti á dögunum. Símamynd/Reuter BorÍS Becker frá Vestur-Þýska- landi hefur á þessu ári þénað sem svarar til tæpra 50 milljóna króna. Símamynd/Reuter „Niður með þÍQ, gæti Lee Trevino, einn þekktasti kylfingur heims, verið að segja á þessari mynd er hann horfir með tilþrifum á eftir pútti á British Open stórmótinu á dögunum. Trevino lék mjög vel fyrsta dag mótsins en gaf síðan eftir enda kappinn orðinn um 50 ára gamall. Símamynd/Reuter Evander Hoiyfieid, þeldökkur hnefaleikamaður frá Bandarikjun- um, sést hér með sigurlaun þau er hann fékk fyrir að sigra og rota Adil- son Rodrigues i 2. lotu í viðureign þeirra um bandaríska meistaratitil- inn. Símamynd/Reuter FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1989. stúfar Emil Thoxareaisen, DV, Eskifirði: Um næstu helgt fer fram opna lands- bankamótiö í golfi á Eskifiröi. Aö sögn mótsstjórans, Auðbergs Jóns- sonar, héraðslæknis á Eski- firði, vonast hann eftir góðri þátttöku, enda búinn aö panta þetta eina sanna „austfirska veður“. Það ætti því að vera kjörið fyrir þá sem stunda golf en búa sunnanlands að bregða sér austur í hlíðuna og leika golf. Spilaðar verða 36 holur og er mótið opið öllum sem áhuga hafa. Sérstök aukaverðlaun verða veitt þeim sem kemst næst holu í höggi á fióruin -brautum. Naumur sigur hjá Brasiliumönnum í sparkí Landslið Brasilíu er ekki sanníærandi þessa dagana og fyrir skemmstu sigraöi það lið Japans með eins marks mun, 1-0, á heimavelli Brasil- íumanna. Staðan í leikhléi var jöfn, 0-0, en sigurmarkiö skor- aði Bismarek á 74. mínútu. Ekki er hægt að segja að upp- selt hafi verið á leikinn því að aöeins þrjú þúsund áhorfendur lögðu leið sína á hann. Paul McGrath sefdur til Aston Vitla Graham Taylor, framkvæmdasfióri enska knattspyrnu- liðsins Aston Villa, tók mikla áhættu á dögunum er hann festi kaup á írska landsliðsmanninum Paul McGrath frá Manchester Un- ited. Kaupverðið var 400 þús- und pund en McGrath hefur lítiö getaö leikið með United að undanfómu vegna þrálátra meiðsla. Þá hefúr hann einnig átt við áfengisvandamál að stríða. Taylor sagði í gær að aliar læknaskýrslur sýndu að McGrath gæti heilsu sinnar vegna leikið knattspyrnu og sjálfur sagði McGrath: „Mér líöur ágætlega í hnjánum þessa dagana og svo lengi sem það ástand varir get ég leikið knatt- spymu.“ Aston Villa hefur einnig keypt Danann Kent Ni- elsen frá danska liðinu Brönd- by og var kaupverðið 500 þús- und pund. Brasilíumaöur til Bayer Leverkusen Porráðamenn Flam- engo í Brasilíu hafa lýst því yfix að fyrir- liöi liðsins og einnig brasilíska landsliðsins í knatt- spymu, Jorginho, hafi verið seldur til vestur-þýska félags- ins Bayer Leverkusen. Jorgin- ho, sem leikur stöðu hægri bak- varðar, fékk mjög gott tilboð frá Leverkusen sem hvorki hann né Flamengo gátu hafnað. „Við reyndum að halda í hann en tilboðið var einfaldlega of gott. Engu að síður erum við vonsviknir yfir því að hafa misst af Jorginhosagði Josef Berenzstejn, varaforseti Flam- engo. Sjálfur sagði Jorginho: „Þetta eru stórkostlegir tímar fyrir mig. Ég hef nýlega eignast mitt fyrsta bam og í kjölfarið kom þetta glimrandi tilboð frá Leverkusen. Félagi minn hefur leikið með Leverkusen og sagöi mér aö ég yrði ekki fyrir von- brigðum. Þessi ummæli vöktu hjá mér áhuga og ég hlakka til að læra þýskuna,“ sagði Jorg- inho sem er 25 ára gamall. Símamyndir frá erlendum íþróttaviðburðum:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.