Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1989, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.1989, Page 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst,óháð dagbiað FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1989. Kærir ekki árásina: Lögreglan _ rannsakar málið samt Að sögn lögreglunnar í Kópavogi er ætlunin að rannsaka nánar lík- amsárás þá sem varð á Alfhólsvegi í fyrrinótt. Telur lögreglan að hér sé unglingaklíka að verki. Munu vera uppi ákveðnar hugmyndir um það hveijir hafi staðið að árásinni. Pilturinn, sem varð fyrir árásinni, er nú kominn heim til sín. í samtali við DV sagðist hann ætla að halda kyrru fyrir þar í nokkra daga að læknisráði. Averkar hans reyndust ekki eins alvarlegir og talið var í fyrstu. Hann ætlar ekki að kæra ár- ásina. * Pilturinn, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að hann hefði séð árásarmennina áður og taldi að þeir tilheyrðu unglingaklíku. Hann sagði að þeir hefðu ráðist að sér og hann hefði fengið hnefa í andlitið um leið og hann hefði orðið þeirra var. Eftir það hefðu þeir veist að sér með högg- um og spörkum. Rannsókn málsins er í höndum lög- reglunnar í Kópavogi en ekki Rann- sóknarlögregluríkisins. -SMJ * Margeir Pétursson: Slappaði af í bíói eftir sigurskákina Margeir Pétursson sigraði Danann og alþjóðlega meistarann, Erling Mortensen, í um fjögurra klukku- stunda langri skák á Norðurlanda- mótinu í skák í gær. Hann er nú efstur á mótinu með 6 Vi vinning. Helgi Ólafsson vann Jón L. Ámason í sinni skák og er nú í 2.-3. sæti ásamt Finnanum Yrjölá með 6 vinninga. Simen Agdestein 1 hefur hlotið 5'/2 vinning en Hansen og Larsen hafa 5 vinninga hvor. Að sögn Sigríðar Indriðadóttur, eiginkonu Margeirs, slappaði hann af eftir skákina í gær og fór í bíó. Margeir sagði að Yrjölá ætti eftir erfiða andstæðinga í þeim fimm um- ferðum sem eftir væru. „Hann á t.d. eftir Bent Larsen, Simen Agdestein og reyndar Margeir líka,“ sagði Sig- ríður. Ekki virðist þreyta hrjá Margeir þó svo hann hafi nýlega háð erfitt einvígi við Jón L. Amason um ís- landsmeistaratitilinn og tekið síðan þátt í 9 umferða móti í Bandaríkjun- um þar sem tefldar vora að jafnaði tvær umferðir á dag. í dag á Margeir ’ að tefla við alþjóðlega meistarann Tisdal frá Noregi og mun Margeir stýra svörtu mönnunum.-OTT LOKI Varla er formaður Borg- araflokksins að upplýsa flokksleyndarmál? H ■ ■ ■ ■ ■ Eq vgii ekki - segir Júlíus Sólnes, formaöur flokksins „Eins og málin standa nú er ekk- okkur nánast ekkert af þeim. Eins „,Ég er mjög ánægður með að ert slikt á döfinni. En ég veit ekki og ég hef margtuggið settum við fleiri og fleiri færast yfir á okkar hvaö verður,“ sagði Júlíus Sólnes, fram ákveðin skilyrði fyrir stjórn- skoðanir í þessum málum,“ sagði formaður Borgaraflokksins, um arþátttöku snemma i vor. Síðan Júlíus. hugsanlega inngöngu flokksins í höfum við ekkert skipt okkur af Samkvæmt heimildum DV mun ríkisstjóm Steingríms Hermanns- þessu rneir." Steingrímur boöa Júlíus á sinn sonar. - Steingrímur Hermannsson lýsti fund innan skamms þar sem Að sögn Júiíusar var lítið rætt þvi yfir 1 DV að htið bæri á milli ákveðið verður með hvaða hætti um stjórnarþátttöku á þingflokks- sín og ykkar varðandi afnám láns- innganga Borgaraflokksins í ríkis- fundi flokksins í gær. kjaravísitölu og lækkun matar- stjómina verður rædd. „Það var ekki mikið. Við höfum skatts sem eru ykkar helstu stefhu- -gse Mð sinnt þeim málum og skiptum mál. ■__ nvao verour : . ■: : :' : ■■■■= : ■ í rigningunni hér sunnanlands er jafngott að vera vel klæddur við heyskapinn. Slökkviliðsmenn voru í það minnsta í fullum skrúða í gær þegar þeir voru að hirða hey á lóðinni við Slökkvistöðina í Reykjavík og því vissir um að vökna ekki. DV-mynd S Veðrið á morgun: Þurrt fyr- ir sunnan Á morgun er gert ráð fyrir norð- an- og norðvestankalda á landinu. Norðan- og norðvestanlands verða víða skúrir en þurrt að mestu ann- ars staðar. Hitastigið verður mun lægra en að undanfórnu eða 6-9 gráður í byggð, kaldara annars staðar. Tveir Svíar grunaðir um þjófnað í Hagkaupi „Þeir hafa fundið eitthvað á sér og ætlað að koma sér úr landi. Svíinn, sem komst úr landi, var með svo mikla yfirvigt, um 18 kg, að hann varð aö skilja eina ferðatösku eftir, fulla af góssi,“ sagði Hinrik Hjörleifs- son, aðstoðarverslunarstjóri hjá Hagkaupi í Skeifunni, en um helgina komst upp mikill þjófnaður, sem tal- ið er að tveir sænskir piltar um tví- tugt hafi staðið fyrir, á varningi úr verslun Hagkaups. Þeir voru ráðnir þangað um áramótin og starfaði ann- ar í Kringlunni en hinn í Skeifunni. Annar pilturinn slapp úr landi um síðustu helgi en hinn var handtekinn skömmu síðar í Leifsstöð. Sá sem slapp var með mikinn farangur með sér og hafði 18 kg í yfirvigt. Þrátt fyrir það skildi hann úttroðna ferða- tösku eftir í flugstöðinni. Þar sem piltarnir bjuggu var æði skrautlegt um að litast að sögn Hag- kaupsmanna og góss út um allt - meðal annars töluvert af geislaspil- urum og svefnpokum. Ekki er vitað hve miklu var stolið eða andvirði þess en starfsmenn Hagkaups telja það allverulegt. Að sögn Þóris Oddssonar aðstoðar- rannsóknarlögreglustjóra hefur Svíanum, sem handtekinn var, verið sleppt. Hefur ekki verið sett ferða- bann á hann. Þá gerði RLR húsrann- sókn á heimili þeirra. Þórir sagði að málið yrði sent til Svíþjóðar með beiðni um frekari rannsókn af hálfu sænsku lögreglunnar. -SMJ íslandsbanki: Bankastjórar verða þrír Þrír bankastjórar verða við hinn nýja íslandsbanka - einn frá hverj- um hinna nýju eigenda - Iðnaðar- bankanum, Verslunarbankanum og Alþýðubankanum. Sjö menn koma til með að skipa nýja bankaráðið. Þau nöfn, sem hafa verið nefnd, eru Brynjólfur Bjarna- son og Haraldur Sumarhðason frá Iðnaðarbanka, Ásmundur Stefáns- son og Magnús L. Sveinsson frá Al- þýðubankanum , Gísli V. Einarsson og Jóhann Ólafsson frá Verslunar- bankanum. Þá er talið að Kristján Ragnarsson verði fuhtrúi Fiskveiða- sjóðs í bankaráöinu. SHteASHAcmn GÆÐI - GLÆSILEIKI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.