Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1989, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTOBER 1989.
Fréttir
DV
í kjölfar jarðskjálftans í San Francisco:
Gólfið gekk í bylgjum
- segir íslenskur listanemi, Soffía Böðvarsdóttir
„Það var eins og það gengi bylgja
yfir þiúsið, ég fann fyrir smátitringi
fyrst, en svo byrjaði gólfið að hreyf-
ast. Það var eins og byggingin væri
öll á hreyfingu," sagði Soffia Böðv-
arsdóttir, listanemi í nágrenni San
Francisco, í samtah við DV í morgun.
í gær, um fimmleytið að staðar-
tíma, gekk öflugur jarðskjálfti yfir
San Francisco og nágrenni með þeim
afleiðingum að a.m.k. tvö hundruð
og flmmtíu manns létust og fimm
hundruð særðust.
„Ég var ein heima þegar skjálftinn
reið yfir og mér brá nokkuð þegar
ég sá gólfið og veggina byrja að hreyf-
ast. Ég lagðist á fjóra fætur á gólfið
því þegar allt umhverfi manns fer á
hreyfmgu er eins og maður missi
nokkuð jafnvægisskyn. Mér fannst
þetta allt ganga fljótt yfir þó að í sjón-
varpinu hafi þeir sagt að skjálftinn
hafi varað lengi.“
Að sögn Soffiu datt sjónvarp og
útvarp út í gærkvöldi en var fljótlega
komiö í samband aftur. „Rafmagns-
laust varð í San Francisco en hjá
okkur blikkuðu ljósin aðeins.“
Að sögn Soffíu virðast htlar
skemmdir hafa orðið í Oakland, þar
sem hún býr. „En í San Francisco
kviknaði í á mörgum stöðum. Ég sé
yfir til San Francisco úr glugganum
hjá mér og sá þar að minnsta kosti
tvo stóra bruna."
„Ég hef aldrei lent í öðru eins. Þetta
var mjög óraunverulegt fyrir mig á
meðan á jarðskjálftanum stóð en eft-
ir á gerði titringurinn vart við sig.
Það greip ekki um sig mikh hræðsla
en þó smátaugatitringur."
Að sögn Soffíu hafa embættismenn
í Kalifomíu beðið fólk um að vera
sem minnst á ferh næsta sólarhring.
„Skólar eru opnir hér í Oakland en
í San Francisco skilst mér að þeir,
sem og flest annað, séu lokaðir.“
-StB
Jarðskjálftinn í San Francisco:
Kom greinilega fram
á skjálftamælum hér
- segir Ragnar Stefánsson j arðskj álftafræðingur
„Þeir eru orðnir svo fullkomnir,
þessir jarðskjálftamælar sem við
höfum, að þeir mæla jarðskjálfta
hvar sem er í heiminum. Jarðskjálft-
inn í San Francisco kom því mjög
greinilega fram á okkar mælum,
enda var hann um 7 stig á Richter,"
sagði Ragnar Stefánsson, jarð-
skjálftafræðingur á Veðurstofu ís-
lands, í samtah við DV í morgun.
Ragnar sagði að jarðskjálftarnir á
þessu svæði væru svokallaðir mis-
gengisskjálftar, kenndir við San
Andreas sprunguna, sem hggur um
Kyrrahaf en kemur á land rétt hjá
San Francisco og hggur þaöan til
suð-suðausturs meðfram Kyrrahafs-
ströndinni. Á þessari sprungu varð
jarðskjálftinn í gær og átti upptök sín
mn 80 kílómetra frá San Francisco.
Um það hvort hætta sé á að fleiri
Á þessari mynd má sjá San Andre-
as sprunguna sem liggur eiginlega
þvert yfir Kaliforníu. Upptök skjálft-
ans í San Francisco voru i sprung-
unni.
stórir jarðskjálftar fylgi í kjölfarið
sagði Ragnar aö ahtaf fylgdu eftir-
skjálftar. Og það væri alltaf hætta á
því að einhverjir þeirra yrðu stórir.
Þegar svona jarðskjálftar verða, eyk-
ur það líkur á að skjálftar fylgi í kjöl-
farið annars staðar á sprungunni,
ekki endilega á þeim stað sem fyrsti
skjálftinn á upptök sín.
„Sem dæmi um það má nefna aö
árið 1906, þegar mun stærri jarð-
skjálfti varð í San Francisco, eða 8,3
stig, urðu fleiri gífurlega mikhr jarð-
skjálftar á Kyrrahafsströnd Amer-
íku. Sá stærsti var í Kolombíu upp á
8,9 stig. Því má ganga út frá því að
þegar stórir jarðskjálftar verða á
þessu svæði fylgi fleiri í kjölfarið,"
sagði Ragnar Stefánsson.
-S.dór
Jónatan sendi athugasemdir til Hæstaréttar:
Varnarræðurnar eru
óþarflega særandi
- verður bara að hafa það, sagði Jón Steinar
„Vamarræður nefndra aðila og
óþarflega særandi ummæh um ein-
staka menn í umræddri
skýrslu. . . “ svo segir meðal annars
í athugasemd sem Jónatan Þór-
mundsson sendi Hæstarétti. Eftir að
Jón Magnússon hæstaréttarlögmað-
ur hafði kært tíl Hæstaréttar neitun
Sakadóms Reykjavíkur, þess efnis að
upplýsingaskýrsla Ragnars Kjart-
anssonar yrði lögð fram sem dóms-
gagn í Hafskipsmáhnu.
Jónatan segir einnig í athugasemd-
inni að Jón Magnússon og Ragnar
Kjartansson hafi með málatilbúnaði
sínum og vinnubrögðum gert áfram-
haldandi meöferð málsins erfiðari en
eðlilegt geti tahst og að hans mati
hafi þeir gerst brotlegir við lög um
meöferð opinberra mála.
Athugasemdimar sendi Jónatan til
Hæstaréttar. Verjendumir höfðu
orðið sér úti um eintak af athuga-
semdunum og þegar þeir sáu hvað
Jónatan hafði sett á blað virtist sem
þeim væri brugðið.
Jón Steinar Gunnlaugsson hæsta-
réttarlögmaöur sagði að ef málflutn-
ingur þeirra verkaði særandi á sér-
stakan saksóknara þá yrði bara að
hafa það. Við upphaf málflutnings í
Sakadómi í gær gerði Jón Steinar
athugasemdir við þau vinnubrögð
Jónatans að senda athugasemdimar
í Hæstarétt án þess að láta verjendur
fá eintak. Jón Steinar kallaði athuga-
semdimar leyniplagg.
Verjendurnir gerðu margar at-
hugasemdir við íjarveru Jónatans
Þórmundssonar þegar málflutning-
ur um frávísunarkröfurnar fór fram
í Sakadómi Reykjavíkur í gær.
„Ég tjái mig ekki um máhð viö fjöl-
miðla. Ég tel að það ekki við hæfi
meðan málið er fyrir dómstólum.“
- Ekki heldur athugasemdir verj-
endanna um að þú skuhr ekki hafa
verið viðstaddur?
„Það er náttúrlega alveg út í hött.
Ég stjórna mínum mönnum og þetta
er verkaskipting ákæruvaldsins,
meira hef ég ekki um máhð að segja,
vertu blessaður," sagði Jónatan Þór-
mundsson, sérstakur ríkissaksókn-
ari í Hafskips- og Útvegsbankamál-
inu.
-sme
Bj órmarkaðurmn:
Löwenbrau selst mest
Löwenbrau hefur selst langmest
hérlendis frá því leyft var að selja
bjór 1. mars síðasthðinn. Hann er
með um 37 prósent af heildarsöl-
unni, samkvæmt upplýsingum
Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins.
í öðru sæti er danski bjórinn Tu-
borg með tæp 15 prósent. Austurríski
bjórinn Kaiser er með 12 prósent af
markaðnum og bandaríski bjórinn
Budweiser er sömuleiðis meö um 12
prósent. í fimmta sæti er Egils Gull
með um 7 prósent. Sanitas Lageröl
er í sjötta sæti með um 6 prósent.
Þessar sex tegundir eru því með
samtals um 89 prósent af bjórsölunni
frá upphafi. Nokkrar nýjar bjórteg-
undir hafa komið inn á markaðinn
síðustu vikumar og fróðlegt verður
að sjá hvemig þær koma út við næsta
uppgjör. -JGH
Slökkviliðsmaður kannar rústir byggingar í San Francisco sem hrundi í
kjölfar jarðskjáiftans sem gekk þar yfir í gær. Talið er að a.m.k. tvö hundr-
uð og fimmtíu hafi látist og er óttast aö sú tala eigi eftir að hækka.
Símamynd Reuter
Jarðskjálftinn hækkar olíuverð
Jarðskjálftinn við San Fransisco í
gær hefur hækkað verð á hráohu í
Bandaríkjunum um 50 cent. Ástæðan
er sú að nokkrar ohuhreinsunar-
stöðvar em í nánd við San Fransis-
co. Hærra ohuverð vegna jarðskjálft-
ans kemur í kjölfar hækkandi olíu-
verðs síðustu daga.
-JGH
Á þriðja hundrað
íslendingar búa
í San Francisco
„Við vorum að telja saman hve
margir íslendingar búa á San Fran-
cisco svæðinu. Eftir því sem við kom-
umst næst em þeir eitthvað á þriðja
hundraöið. Við fengum ekki ná-
kvæma tölu en ég þori að fuhyrða
að þeir em vel yfir 200,“ sagði séra
Vigfús Þór Ámason, sem er alveg
nýkominn frá námi í San Francisco.
Hann sagði að margir íslendingar
væru við nám í San Francisco en
ótrúlega margir landar væra þar
heimihsfastir. Flestir námsmann-
anna em við nám í Berkeley háskól-
anum og búa á háskólasvæðinu svo-
nefnda. Það er ekki nema um 15 mín-
útna aksturs úr því hverfi að Bay
Bridge, brúnni sem verst fór út úr
jarðskjálftanum í gær.
Vigfús sagði að á meðan hann var
í borginni hefðu oft komið jarð-
skjálftakippir og að íbúar borgarinn-
ar væra vel meðvitaðir um þá jarð-
skjálftahættu sem alltaf vofir yfir
þeim.
-S.dór