Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1989, Blaðsíða 3
3
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1989.
Fréttir
Bókun í útvarpsráði um þingfréttaritara Sjónvarps:
Ingimar fái annan mann sér við
hlið eða annar maður taki við
„Mér hefur verið hlýtt til einstakl-
ingsins Ingimars Ingimarssonar en
sem fréttamann um stjómmál tel ég
hann ekki starfi sínu vaxinn. Eitt
dæmi af mörgum: Ritstjóri tímarits
nokkurs hefur oftar en einu sinni
samið hugleiðingar frá eigin brjósti
um málefni stjómmálaflokka. Til að
auglýsa tímaritið vel og mikið sendir
ritstjórinn tímaritið til fréttastofu
ríkissjónvarpsins áður en tímaritið
fer á markað. Ingimar Ingimarsson
gleypir efnið hrátt án þess að leita
upplýsinga rnn sannleiksgildi hjá
þeim sem nafngreindir em. Semur
hann síöan frétt um skrif ritstjóra
tímaritsins og sendir út sem aðalfrétt
í fréttatíma sjónvarpsins. Til að bæta
gráu ofan á svart klingir hann út
með „frétt“ um svipað efni, fengna
úr Pressunni. Tímaritið fær þarna
fría auglýsingu en fréttastofa sjón-
varpsins situr uppi með slúðurfrétt.
Slík vinnubrögð era stórvítaverð. Að
þessi fréttamaður eigi einn að sjá um
fréttir af störfum Alþingis á komandi
vetri er ófært meö öllu enda hafa
þingmenn úr flestum flokkum kvart-
að mjög í mín eyru um fréttaflutning
Ingimars Ingimarssonar frá störfum
þingsins á síðastliðnum vetri. Þess
vegna er bókun þessi framkomin,"
sagði Magnús Erlendsson útvarps-
ráðsmaður í samtali við DV.
Á fundi útvarpsráðs 6. október
lögðu Magnús, tilnefndur af Sjálf-
stæðisflokki, og Rúnar S. Birgisson,
tilnefndur af Borgaraflokki, fram eft-
irfarandi bókun:
„í ljósi fenginnar reynslu af störf-
um þingfréttaritara Sjónvarpsins á
hðnum vetri teljum við með öllu
óviðunandi að Ingimar Ingimarsson
verði einn með þingfréttir á komandi
vetri. Förum við þess á leit við frétta-
stjóra að annar aðili verði settur við
hlið Ingimars eða hreinlega að annar
fréttamaður verði fenginn til þess að
hafa umsjón með þingfréttum og öðr-
um fréttum tengdum stjórnmálum."
Magnús sagði að á fundi útvarps-
ráðs á undan þessum fundi hefði út-
varpsráð samhljóða óskað eftir því
við fréttastjóra Sjónvarps að það
yrðu hafðir fleiri heldur en Ingimar
Ingimarsson í þingfréttum frá Al-
þingi í vetur. Fréttastjóri virtist hins
vegar ekki ætla að fara eftir þessu.
Trausttil Ingimars
Á síðasta útvarpsráðsfundi spurð-
ist Magnús Erlendsson fyrir um af-
stöðu Boga Ágústssonar til sam-
þykktar ráðsins frá fundinum á und-
an og þá sagði Pétur Guðfinnsson,
útvarpsráðsmaður og framkvæmda-
stjóri sjónvarps, að Ingimar nyti
fyllsta trausts sín og Boga Ágústs-
sonar. í framhaldi af þeim orðum var
bókun Magnúsar og Rúnars lögð
fram.
- ErþaðtímaritiðHeimsmyndsem
Magnús vísar til hér á undan?
„Já, það passar. Við reyndum hann
oftar en einu sinni að þessu í fyrra-
vetur og þingmenn hafa kvartað
mikið. Á annatímum Alþingis ræður
maðurinn bara ekki við þessi störf.
Útvarpið er með tvo fréttamenn á
Alþingi en Sjónvarpið bara einn.
Starfið er einum manni ofviða, sér-
staklega á annatímum." -hlh
Ingimar Ingimarsson fréttamaður.
Ingimar Ingimarsson:
Vísaí
fundar-
gerð út-
varpsráðs
„Ég hef það fyrir reglu að ræða
ekki svona hluti við aðra en mína
yfirmenn. Um bókunina vil ég ekkert
segja en vísa í fundargerð útvarps-
ráðs þar sem bókað er traust á mín-
um störfum, bæði haft eftir frétta-
stjóra og Pétri Guðfinnssyni," sagði
Ingimar Ingimarsson, fréttamaður á
Sjónvarpinu, við DV.
„Ég get hins vegar sagt að þeir
þingmenn, sem virðast hafa verið að
kvarta við Magnús Erlendsson, hafa
ekki kvartað við mig. Það eru tveir
þingmenn sem hafa komið að máli
við mig og það er hlutur sem gerist
alltaf í svona starfi. Sjálfur get ég
ekki sagt annað en að ég hef átt mjög
ánægjulegt samstarf við þingmenn
hér.“
-hlh
Bogi Ágústsson:
Ber fyllsta
traust til
Ingimars
„Ég ræði málefni einstakra starfs-
manna á fréttastofu ekki opinber-
lega. Hins vegar vil ég benda á fund-
argerð útvarpsráðs þar sem fram
kemur að ég ber fyllsta traust til Ingi-
mars Ingimarssonar," sagði Bogi
Ágústsson, fréttastjóri Sjónvarpsins,
viðDV.
-hlh
Mallorkaferðir
á makalaust
góðu verði
Nú býður Ferðaskrifstofan Atlantik vetrarferð-
® ir til Mallorka.
Þetta er nýr möguleiki sem nýtist afar vel.
Að sjálfsögðu er aðeins gist á fyrsta flokks íbúðarhótelum
Royaltur og allur aðbúnaður og þjónusta með Atlantik-sniði.
Eins og bestur verður á kosið. íslensk fararstjórn.
44DAGAR
Verð frá
kr. 55.545,-
58 DAGAR
Verð frá
kr. 72.170,-
156 DAGAR
Verð frá
kr. 151.750,-
|/\| A CCDFI f Við minnum einnig á sérstaka 15
dlJL/lFCJ!ftL/S daga jólaferð á frábæru verði.
FERÐASKRIFSTOFAN
dTKKVtlt
HALLVEIGARSTÍG 1 SÍMI 28388 OG 28580