Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1989, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1989, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1989. Fréttir Málflutningur um frávísunarkröfur í Hafskipsmálinu: Lýstu margoft eftir sérstökum saksóknara - sem var ekki viöstaddur 10 klukkustunda langan málflutning Viö upphaf málflutnings um frávís- unarkröfur í Hafskipsmálinu í gær óskaði Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður og veijandi Helga Magnússonar, fyrrverandi endurskoðanda Hafskips, eftir að gera bókun. Hann lét bóka að sér þætti eðlilegt að Jónatan Þórmunds- son, sérstakur saksóknari í málinu, léti verjendum í té gögn um málflutn- inginn og sem hann sendi dómstól- um. Eftir að Jón Steinar hafði lesið bókunina spurði Sverrir Einarsson dómsformaður Pál Arnór Pálsson hæstaréttarlögmann, sem er fulltrúi Jónatans, hvort þetta væri rétt. „Já,“ svaraöi Páll Arnór. Áður en málflutningur hófst vakti Jón Magnússon hæstaréttarlögmað- ur máls á því að sér þætti heppilegra að Jónatan Þórmundsson væri við- staddur málflutninginn. En Jónatan var ekki viðstaddur frekar en þegar tekist var á um framlagningu upplýs- ingaskýrslu Ragnars Kjartanssonar. Það átti eftir að heyrast oft í mál- flutningnum að veijendum þótti miður að Jónatan Þórmundsson var ekki viðstaddur. „Við getum ekki neytt hann til að mæta,“ sagði Sverr- ir Einarsson. Kröfur verjendanna eru byggðar á harðri gagnrýni, bæði á rannsókn Jónatans og ekki síður á rannsókn sem gerð var þegar Hallvarður Ein- varðsson var rannsóknarlögreglu- stjóri. Vanhugsað og ruddalegt Jón Magnússon, veijandi Ragnars Kjartanssonar, talaði fyrstur. Hann kom víða við í ræðu sinni sem stóð hátt á fjórðu klukkustund. Hann rakti gang málsins frá upphafi. Jón sagði meöal annars að rannsókn sú, sem Hallvarður Einvarðsson stýrði, væri óhæf. Rökin voru þau að þar sem Hæstiréttur hefði dæmt hann vanhæfan í málinu - sem ríkissak- sóknara - þá væri hann einnig van- hæfur sem rannsóknarlögreglusljóri - þar sem samkvæmt lögum giltu sömu ákvæði um hæfi saksóknara og rannsóknarlögreglusfjóra. Jón vék að þeirri beiöni lögregl- unnar, sem var samþykkt fyrir dóm- stólum, að hneppa forsvarsmenn Hafskips í gæsluvarðhald. Jón sagði þaö hafa verið vanhugsað og rudda- legt - og það versta sem gerst hefði í þessu máh til þessa. Þá rakti Jón ummæli sem höfö voru eftir Hall- varði í fjölmiölum. Hann sagðist leggja þann skilning í ummæli Hall- varðs að hann hefði frekar aukið við alvöru málsins en dregið úr. í ræöu Jóns kom fram að hann hefði farið fram á að Hallvarður sleppti að gefa út ákærur vegna hugsanlegs vanhæfis. Því hefði Hall- varður neitað og sama hefðu tveir fulltrúar dómsmálaráðuneytisins gert, þeir Þorsteinn Geirsson og Þor- steinn A. Jónsson. Þessum þremur mönnum kenndi Jón um að máhö hefur dregist í um tvö ár. Þá gagnrýndi Jón Hallvarð fyrir aö hafa birt ákærumar í Helgarpóst- inum. „Sá sem fyrir þessu stóð er nú æðsti maður ákæruvaldsins í landinu,“ sagði Jón Magnússon. Sálarháski og tímaskortur Þegar Jónatan Þórmundsson hafði tekið við máhnu sem sérstakur ríkis- saksóknari sagðist Jón hafa verið bjartsýnn. Hann sagðist hafa vonast til aö loks yrði unnið í málinu af festu. Hann sagði þær vonir hafa brugðist. Hann sagði að á fundi, sem Jónatan hefði átt með veijendum, hefði honum skihst að rætt yrði við alla aðila upp á nýtt - ný rannsókn væri fyrirhuguð. Til þess hefði aldrei komiö og að langmestum hluta væri byggt á þeirri rannsókn sem Hah- varður stýröi. Jón las tilvitnanir í viðtöl fjölmiðla Svala Thorlacius hæstaréttarlög- maður skoðar upplýsingaskýrslu Ragnars Kjartanssonar í bókabúð. Þegar hafnað var að skýrslan yrði málsgagn í Hafskipsmálinu var hún gefin út og er nú seld í tveimur bóka- búðum. Þar með er hægt að vitna í hana í málinu. „Hún er að verða uppseld," sagði Jón Magnússon. við Jónatan. Þar kom fram að Jónat- an hafði sett tímamörk um hvenær ákæru væri að vænta. Jón Magnús- son sagði Jónatan hafa fallið ítrekað á eigin tímamörkum. Eins líkti hann því við að Jónatan hefði veriö kom- • inn í sálarháska. Jón sagði þessar yfirlýsingar vera gjörsamlega út í bláinn og þetta sýndi að hinir mæt- ustu menn gætu lent í fiölmiðla- hremmingum. Jón gagnrýndi fleira. Hann tók meðal annars fram að af 26 rann- sóknarfyrirmælum, sem Jónatan sendi endurskoðendum sínum, hefðu aðeins 16 verið rannsökuð. „Það var þörf á að rannsaka aha þættina. Því ídómsalnum Sigurjón M. Egilsson lét hann þetta gott heita?“ spurði Jón og ítrekaði óskir sínar um aö Jónatan væri viðstaddur. Frumrannsókn fyrir Sakadómi Bæði Jón Magnússon og aðrir veij- endur töldu að frumrannsókn máls- ins væri nánast öll eftir. í máh þeirra kom fr£un að ef máhnu yrði ekki vís- að frá neyddust þeir til þess að fara fram á aö málið yrði rannsakað í Sakadómi Reykjavíkur - þrátt fyrir að rannsóknarlögregla ætti að sjá um þá hhð mála. „Ég held að Sakadómur hafi aldrei staðið frammi fyrir annarri eins rannsókn og í þessu máh - sém sagt stærsta framhaldsrannsókn til þessa. Sakadóm skortir bæði mann- afla og tæki til svona rannsókna. Dómurinn gerir sér grein fyrir því að þessi rannsókn fer fram - hún verður að fara fram - þar er engrar undankomu auðiö,“ sagði Guðmund- ur Ingvi Sigurðsson hæstaréttarlög- maður og veijandi Björgólfs Guð- mundssonar. Jón Magnússon rakti eitt hundrað atriði sem hann taldi að væru van- reifuð í máhnu. Aðrir veijendur tóku undir með honum. Páh Amór Páls- son, fulltrúi Jónatans, sagðist ekki ætla að rekja öh þessi atriði - enda sýndist honum að sumum þeirra væru gerð fuh skil í gögnum málsins. Allir veijendumir lýstu yfir harðri gagnrýni á bókhaldrannsókn máls- ins. Þeir sögðu reyndar að ekki væri um neina rannsókn að ræða og færðu rök fyrir máh sínu. PáU Amór sagði hins vegar að bókhaldiö hefði verið endurskoðað þó að ekki hefði verið farið ofan í hvert fylgiskjal. AUir veijendurnir komu mikið inn á gagnaskort að þeirra mati. Þeim þótti sem ekki hefði verið staðið að gagnaöflun sem skyldi. Ákært gagnalaust? Verjendumir sögðu það undarlegt að ákæmr heföu verið gefnar út að- eins fiórum dögum eftir aö rann- sóknarlögreglan skUaði af sér máls- gögnum. Þeir sögðu eðhlegt að fá svör við því hvort búið hefði verið að ákveða hveijir yrðu ákærðir áður en gögn málsins bámst til Jónatans Þórmundssonar. Páll Amór sagði að flest gögn hefðu verið komin til sak- sóknarans miklu fyrr - en formleg afhending gagna hefði verið fiórum dögum áður en ákærur vora gefnar út. Betra í vor PáU Arnór sagði í sinni ræðu að betra hefði verið :að frávisunarkröf- umar hefðu komið fram í vor. Hann sagði einnig að þáð væri saksóknara að ákveða ákærur og að hann gæti hæglega ákært þó aö ekki lægju öll gögn málsins fyrir. Þar var hann að svara gagnrýni þess efnis að mánuð- ir hðu frá því ákærur voru gefnar út og þar tU Jónatan Þórmundsson sendi frá sér málsgögnin. PáU Amór lét í ljós óánægju með orðaval Jóns Magnússonar og sagði að ef því Unnti ekki mætti hann bú- ast við hörðum viðbrögðum Jónat- ans Þórmundssoanr. -sme í dag mælir Dagfari Stefán Valgeirsson var reiður í þinginu í fyrradag. Hann var alveg voðalega reiður og þegar Stefán Valgeirsson er reiður þá mega aðr- ir fara að vara sig. Stefán var reið- ur út í Pálma Jónsson sem lét sig hafa það að standa upp utan dag- skrár í þinginu og skammast yfir því að Stefán skyldi hafa fengið aðstoöarmann. Veit ekki Pálmi Jónsson að Stefán þarf á aðstoðar- manni að halda? Stefán er lykU- maöur í ríkisstjórnarmeirihlutan- um, situr í ráðum og nefndum og þarf að lesa kynstrin öll af pappí- rum til að setja sig inn í mál. Mað- ur, sem flytur sig af einum fundin- um á annan, hefur ekki tíma til að lesa mál og sefia sig inn í þau. Þess vegna þarf hann aðstoð við að setja sig inn í málin. Aöstoðarmaðurinn er sem sagt til að sefia sig inn í máhn fyrir Stefán svo hann geti sett Stefán inn í máhn án þess að hann sefii sig sjálfur inn í þau. Þannig getur Stefán mætt á alla fundina og verið með í öllum ráð- um því hann hefur aðstoðarmann til að sefia sig inn í það sem Stefán þarf að setja sig inn í. Auðvitað kom í upphafi til greina að Stefán yrði ráðherra en hann valdi þann kostinn að vera ekki ráðherra og Pálmi á Stefán á fæti sparaði þar af leiðandi miklar fúlg- ur fyrir rhdssjóð. Pálmi Jónsson á að vera þakklátur Stefáni fyrir að vhja ekki vera ráðherra og eigin- lega er þetta með aðstoðarmanninn sparnaðarráðstöfun sem ástæða er til að hrósa. Dagfari getur ekki annað en fallist á þessa röksemd Stefáns Valgeirssonar um sjálfan sig. Það var mikið lán að hann skyldi ekki verða ráðherra. En af því að Stefán varð ekki ráð- herra þá er hann þingflokkur. Mað- urinn er að vísu bara einn í flokki og hefur ekki við aðra en sjálfan sig að ræða í flokknum en Pálmi Jónsson er búinn að vera nógu lengi á þingi og þekkja Stefán Val- geirsson nógu lengi til að skUja og vita að Stefán er heiU þingflokkur ef því er að skipta. Og þaö var ein- mitt þetta sem Stefáni sárnaði. Pálmi lét sem hann vissi ekki hvað Stefán er mikilvægur. Pálmi þóttist ekki vita að Stefán væri þingflokk- ur! Stefán getur trúaö svona ósvífni upp á ýmsa aðra en ekki Pálma sem á aö vita aUt um Stefán, eftir því sem Stefán sjálfur segir. Þetta verður geymt en ekki gleymt og Stefán ætlar að muna Pálma þetta. Hann ætlar við annað tækifæri að rifia upp feril Pálma Jónssonar og er ekki að efa að nú kemur aðstoðarmaðurinn í góðar þarfir við að setja Stefán inn í feril Pálma Jónssonar. Nú mun Pálmi eiga Stefán á fæti. / Þegar þingflokkur á borð við Stef- án Valgeirsson hugsar sfiómar- andstöðuþingmanni þegjandi þörf- ina má sá síðarnefndi fara að vara sig. Sérstaklega þegar Stefán setur sig inn í mál sem aðstoðarmaður hans hefur sett sig inn í til að Stef- án geti sett sig inn í þau. Það er haft eftir Bimi á Löngu- mýri að hann hafi eitt sinn sagt: „Eg og Stefán Valgeirsson eram tveir gáfuöustu menn þingsins." Þegar einhver ætlaði að fara að gera athugsemd við þessa yfirlýs- ingu bætti Bjöm við: „Ég meina samanlagt!" Þetta var eflaust hárrétt hjá Birni sem þekkti Stefán meðan þeir voru saman í þingflokki. Nú er Björn hættur á þingi en Stefán orðinn að þingflokki sjálfur og sUkir menn þurfa auðvitað aðstoðarmenn ef mæhkvarði Björns er notaður um gáfnafarið. Reiði Stefáns Valgeirssonar er réttlát ef tekið er tillit til þess hvað um hann yrði ef hann hefði ekki, aðstoðarmann til að setja sig inn í mál. Þá mundi Stefán ráfa á miUi funda og sjóða og þings án þess að vita nokkurn skapaðan hlut um það sem hinir eru að tala um. Hann þyrfti að fara að sefia sig inn í mál án þess þó að mega vera að því vegna fundanna sem hann þarf að sækja, vegna málanna sem hann þarf að setja sig inn í. Annaðhvort yrði Stefán að setja sig inn í mál án þess að komast á fundina eða fara á fundina án þess aö setja sig inn í málin. HeUir þingflokkar geta ekki hagað sér með þeim hætti og ríkissfiómin þarf á því að halda að Stefán sefii sig inn í mál tU að sjóð- imir geti starfað. Og svo eru menn að rífast út af þessu í þinginu. Manni getur nú sámað. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.