Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1989, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1989.
Utlönd
San Francisco:
250 fórust í jarðskjálfta
Gífurlega öflugur jarðskjálfti gekk
yfir San Francisco borg og nágrenni
í nótt með þeim afleiðingum að a.m.k.
tvö hundruð og fimmtíu létu lífið og
fimm hundruð særðust að sögn tals-
manns neyðarskrifstofu Kaliforníu-
fylkis. Talið er tala látinna geti enn
hækkað. Skjálftinn mældist 6,9 á
Richterskvarða - nógu öflugur til að
valda alvarlegum skemmdum.
Skýjakljúfar svignuðu, eldar
kviknuðu víðsvegar í borginni og
fjöldi fólks lokaðist inni í rústum
bygginga og brúar sem hrundu.
Flestir fórust þegar kílómetralangur
kafli efri hluta Nimitz-hraðbrautar,
sem hggur frá Bay-brúnni, hrundi
með þeim afleiðingum að bifreiðar á
' neðri hlutanum féllu saman með fólk
innanborðs. Þá hrundi hluti Bay-
brúarinnar, sem tengir saman borg-
irnar San Francisco og Oakland, og
létust að minnsta kosti sex. Talið er
að allt að fjögur hundruð hafi særst
þegar vegurinn hrundi. Björgunar-
fólk vann að því í morgun að bjarga
fólki úr rústunum. Sérfræðingar ótt-
ast að óstöðugar bygginar kunni að
hrynja þegar eftirskjálftar ganga
yfir.
Björgunarmenn hjálpa fólki úr rústum hraðbrautar, I kjölfar jarðskjálfta sem reið yfir San Francisco í nótt.
Símamynd Reuter
Átta létust og um eitt hundrað slös-
uðust annars staðar í borginni, að
mestu í kjölfar hruninna bygginga.
Rafmagnslaust varð í borginni og
skall myrkur yfir hana tveimur
klukkustundum eftir að skjálftinn
reið yfir. Rúmlega milljón íbúa af
þeim rúmum tveimur milljónum
sem búa í San Francisco og nágrenni
sat því við týrur frá vasaljósum þeg-
ar rökkva tók. Að sögn borgarstjóra
San Francisco, Art Agnos, hafa
sjúkrahús enn rafmagn.
Miklar skemmdir urðu á Bay-brúnni og hrundi hluti hennar.
Símamynd Reuter
Gabriel
HÖGGDEYFAR
NÝ
STÓRSENDING!
SKEIFUNNI5A, SIMI: 91-8 47 88
Skelfing greip um sig meðal áhorfenda á heimsmeistarakeppni í hafna-
bolta sem var að hefjast er jarðskjálftinn reið yfir.
Símamynd Reuter
Talsmaður bandarísku jarðfræði-
stofnunarinnar sagði að upptök
skjálftans hefðu verið um áttatíu
kílómetra suður af San Francisco, í
San Andreas-sprungunni, í nágrenni
San Jose og Santa Cruz. Hann gekk
yfir á háannatímanum, rétt eftir
fimm að staðartíma í gærdag, en um
miðnætti að íslenskum tíma.
Vegna skjálftans, sem stóð yfir í
fimmtán sekúndur, varð að flytja um
sextíu þúsund áhorfendur burt af
leik í heimskeppninni í hafnabolta
sem var að hefjast. Nokkrir áhorf-
enda særðust.
Hermenn voru sendir inn í borgina
til að aðstoða við að slökkva mikla
elda sem brutust út víða, þar á með-
al kviknaði í fjölda lítilla báta og
snekkja við höfnina.
Lögregla segir að nokkuð hafi verið
um að þjófar hafi gripið tækifærið
og látið greipar sópa um búðarglugga
og hillur verslana.
Embættismenn áætla að skemmdir
nemi einum milljarði dollara. Reuter
San Francisco:
Ein „hættulegasta“ bovg Bandaríkjanna
San Francisco í Kaliforníu, sem
þykir ein af fallegustu borgum
Bandaríkjanna, er jafnframt ein sú
hættulegasta. í kringum hana hggur
San Andreas sprungan sem er
stærsta sprungan á jarðskorpunni.
Alvarlegir jarðskjálftar hafa orðið í
San Francicso frá 1869 og skjálftinn
sem varð 1906 lagði næstum borgina
í eyði.
í jarðskjálftanum 18. apríl 1906,
sem mældist 8,6 á Richterskvarða,
fórust yfir fimm hundruð manns.
Skjálftinn, sem reið yfir borgina í
gær, var þrjátíu sinnum öflugri en
skjálftinn sem varð á San Francisco
svæðinu í júni 1988. Þá svignuðu
skýjakljúfamir og vörur hrundu úr
hillum verslana. Skjálftinn 1988
mældist á milli 5 og 5,7 á Richters-
kvarða.
Fleiri öflugir jarðskjálftar hafa
gengið yflr Kaliforníu á þessari öld.
I Los Angeles reið skjálfti yfir San
Fernandodalinn í febrúar 1971. Sex-
tíu bg fjórir fórust í skjálftanum sem
mældist 6,5 á Richterskvarða. í mars
1933 fórust hundraö og sautján
manns í jarðskjálfta á Long Beach.
Reuter
Það er hressandi
að komast f nýtt
umhverfi
Amsterdam er engu
öðru lík. Þar finnurðu
örugglega eitthvað til
þess að lífga upp á
tilveruna. Allir eiga það
inni hjá sjálfum sér að
kynnast þessári
viðskiptum í mörg
hundruð ár. Þeir vita af
reynslunni hvað gildir
þegar fólk ætlar að
versla: góð vara, góð
þjónusta og umfram
allt gott og hagstætt
verð.
t>að er gott að
vera I Amsterdam
Hollendingar eru
gestrisnir, hlýlegir og
einstöku borg, enda er
það fátt sem þú finnur
ekki í Amsterdam.
Það er gott að
versla i
Amsterdam
Kaupmenn í
Amstcrdam /t -
hafa
verið
hjálpsamir. í
Amsterdam er auðvelt
að komast leiðar sinnar
og aldrei langt að fara.