Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1989, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1989, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1989. Uflönd Tregða á verð- ■ m m ■■ ■ m brefamorkuðum Sala var treg á verðbréfamörk- uðum í Tokýo í morgun en síðdegis aö staðartjma hafði hún tekið kipp og um miðjan dag var Nikkei- verðbréfavísitalan skráö 0,34 pró- sentum hærri en þegar kauphöllin var opnuð. SÖlutregðuna má rekja til þess að verðbréf á Wall Street í New York lækkuöu í verði í gær vegna fregna um að viðskiptahalli Bandarikjanna hefði veriö meiri en buist hefði verið viö. Viöskiptahalli Bandaríkjanna í ágúst jókst um 31 prósent frá mán- uðinum áður. Var hann 10,77 millj- arðar dollarar og er það raesti haÚi það sem af er ári. í kjölfar þessara frétta lækkaði Dow Jones-vísitalan í kauphöllinni á Wall Street strax um sextiu stig. Hún náði sér þó á strik aftur og vannst veröfalhð frá á föstudag upp að einhverju leyti. Þegar viðskiptadeginum lauk var Dow Jones visitalan skráð rúmum átján stigum lægri en þegar kaup- höllinni var lokað á mánudag. Dollar lækkaði einnig í verði í gær, var skráður á 1,8660 vestur- þýskt mark eftir að hafa verið skráður á 1,8420 vestur-þýskt mark. Þegar mörkuðum var lokaö á mánudag var hann skráður á 1,8695 gagnvart markinu. í London lækkaði PTSE-vísitalan um rúm 27 Reuter Óvissa og tregða rfkir á verðbréfamörkuðum í kjölfar fregna um að viðskiptahalli Bandaríkjanna í ágúst væri meiri en gert var ráð fyrir. Símamynd Reuter Samband milli hvarfs Wallenbergs og Katynmorðanna? Samband getur verið á milli hvarfs sænská stjómarerindrekans Wallen- bergs og morðanna á tíu þúsund pólskum hðsforingjum í Katynskóg- inum við landamæri Póllands og Sovétríkjanna. Það fullyrða að minnsta kosti tveir heimildarmenn úr einum af hinum mörgu samtökum i Moskvu sem nú rannsaka Wallen- bergmálið. Sambandiö er á þann hátt að Wall- enberg var settur í sama fangelsi og þeir pólsku hðsforingjar sem af ein- hverjum ástæðum voru ekki teknir af lífi í Katyn, að því er heimildar- mennimir fuhyrða. Þeir segja aö nú á dögum sé enginn tekinn af lífi á laun í Sovétríkjunum. Sovésk yfirvöld geti þess vegna hvorki tekiö af lífi né sleppt Pólverj- unum og Wallenberg þar sem um- heimurinn myndi fá áfall af að heyra vitnisburð fanganna. Lausnin hafi orðið sú að einangra þá þar til þeir dæju eðlilegum dauðdaga. í tveimur sjónvarpsþáttum fyrr á þessu ári hafa sovéskir borgarar fengið fregnir af hetjulegum störfum Wallenbergs í Búdapest er hann bjargaði tugum þúsunda gyðinga undan nasistum. Sovéskir borgarar hafa jafnframt heyrt fuhyrt áð menn í Wallenbergfélögum í um tuttugu löndum séu þeirrar skoðunar að hann sé á lífi einhvers staðar í Sovét- ríkjunum. Viðtali við systur Wallenbergs var sjónvarpað 5. október síðastliðinn og síðan hafa mörg vithi sagst muna eftir Wallenberg, þar á meðal sov- éskir hermenn sem voru í Búdapest. TT Þessi austur-þýska fjölskylda var meðal rúmlega eitt hundrað sem fengu fararleyfi til Diisseldorf frá Varsjá i Póllandi í gær. Á skiltinu stendur „Þakka þér fyrir Varsjá." Simamynd Reuter Þrýst á austur- þýsk stjórnvöld Leiðtogi frjálslyndra demókrata, eins bandalagsflokks kommúnista í Austur-Þýskalandi, sagði í sjón- varpsviötali gær að nú væri kominn tími ákvarðana, jafnvel í dag eða á morgun. Mikih þrýstingur er á aust- ur-þýsk stjórnvöld tíl að kynna um- bætur af einhverju tagi til að lægja óánægjuöldur, bæði meðal stjóm- málamanna sem og almennings. Þolinmæðin er nær því á þrotum hjá andófsmönnum í A-Þýskalandi. Á mánudagskvöld fóru þúsundir manna í kröfugöngur m.a. í borgun- um Leipzig og Dresden. Mótmæhn fóru friðasamlega fram. Austur-þýski ríkissaksóknarinn tilkynnti í gær að embætti sitt myndi hefja rannsókn á kærum á meintu ofbeldi lögreglu á hendur almennum borgurum. Stjórnmálaráð kommúnistaflokks- ins kom saman til fundar í gær en að sögn -fréttaskýrenda var ekki tU- kynnt um neinar breytingar. Segja þeir það geta verið tU marks um ágreining innan flokksins. í gær hélt flóttamannastraumur- inn tíl Vestur-Þýskalands áfram og komu 124 Austur-Þjóðverjar loftleið- ina frá Varsjá í Póllandi til Dussel- dorf. Þessir rúmlega eitt hundrað flóttamenn eru þeir fyrstu af mörg- um sem búist er við að bætist við þann stóra hóp flóttamanna sem þeg- ar hefur komið vestur. Austur-þýsk stjórnvöld samþykktu á föstudag að Austur-Þjóðverjar í Póllandi fengju faraleyfi og hafa fimmtán hundruð þegar sótt um. Daglega bætast við eitt hundrað umsóknir. Reuter Breyting verður á afgreiðslutíma Alþýðubankans hinn 2. nóvember næstkomandi. Frá og með þeim degi verður hætt að hafa opið á milli kl. 17:00 og 18:00 á fimmtudögum. Afgreiðslutími Alþýðubankans verður því frá klukkan 9:15 til 16:00, mánudaga til föstudaga. Alþýdubankinn hf Þér standa til boða alls konar hótel, allt frá notalegum, ódýrum gisdhúsum upp í stór- fengleg fimm stjörnu hótel. Og hvert sem þú ferð í Amsterdam eru góðir veitingastaðir, kaffihús og krár, með alþjóðlegu yfirbragði. Og það er gott að skemmta sér í Amsterdam I Amsterdam eru 32 leikhús, 12 tónleika- salir, 50 bíó, fjöldi af diskótekum, dansstöð- um, djassbúllum og næturklúbbum, 40 söfn og 60 sýningarsalir. Helgar- og verslunarferðir til Amsterdam frá 31.130,-* kr. ARNARFLUG Söluskrifstofur: Lágmúla 7, sími 84477 Austurstræti 22, sími 623060 Keflavík, sími 92-50300 *Lágmarksverð til Amsterdam miðast við flug og gistingu fyrir einn, í fjóra daga og þrjár nætur í tvcggja manna herbergi, og að ferðin sé staðgrcidd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.