Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1989, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1989, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTOBER 1989. Sviðsljós Ólyginn sagði... Jane Fonda hefur ekki verið karlmannslaus eftir að hún skildi við eiginmann sinn, Tom Hayden. Hefur hún sést með svo mörgum mönnum að kjaftablöðin bandarísku hafa ekki getað fylgt henni eftir og kalla þau nú ekki allt ömmu sína. Einn daginn birtu tvö dagblöð í Los Angeles fréttir af karlafari hennar og voru fréttimar ósam- hljóða. í einu blaðinu var sagt að hún hefði sagt upp sambandi sínu við sjónvarpskónginn Ted Tum- er og væri kominn með pólskan íjölbragðaglímumann. I hinu blaðinu var sagt að hún ætti í alvarlegu sambandi við þekktan blaðamann, Bob Scheer. Þar var einnig sagt frá þvi að fyrrverandi eiginkona Scheers stæði í ástar- sambandi við Tom Hayden. Mel Gibson hefur skipt um rakara. Eins og flestum er kunnugt er Mel Gibson sérstaklega vinsæll hjá ungum stúlkum sem elta hann hvert sem hann fer. Þessa staðreynd not- færði rakarinn hans sér og í hvert skipti sem hann klipti hárið á stjömunni passaði hann vel upp á að ekkert hár færi til spillis. þegar svo Gibson var farinn sett- ist rakarinn niöur og skipti hárlufsunum í jafna hluta og setti í þar til gerð box sem gátu orðið tíu talsins og seldi boxið á 100 dollara stykkið eða rúmar sex þúsund krónur. Gibson frétti af þessu tiltæki og nú leitar rakari hans sér að nýrri vinnu. Stefanie Powers hitti nýlega þann mann sem hún telur fremstan í heiminum, Lech Walesa. Hún var nýlega við upp- tökur á kvikmynd í Póllandi og í viðtali við blaðamenn sagöist hana ekki langa til neins meira en að hitta verkalýðsleiðtogann. Walesa frétti af þessu og var ekki lengi að koma á fundi með þeim. Fór mjög vel á með þeim. En hví skyldi bandarísk kvikmynda- stjama hafa svo mikinn áhuga á að hitta Lech Walesa. Jú, þótt fáir viti er Stefanie Powers pólsk og er skímamafn hennar Ste- fanie Federkiewicz. Meg Ryan: Varð fræg og rík án þess að þurfa að hafa fyrir því Sú kvikmynd sem vakti (yrst athygli á Meg Ryan var Promised land en þar lék hún frjálslynda stúlku sem kemur í ihaldssaman bæ. Meg Ryan er aðeins tuttugu og sex ára en er samt margfaldur milljóna- mæringur, á sitt eigið kvikmynda- fyrirtæki, er ein eftirsóttasta kvik- myndastjaman í dag og er hamingju- söm í sambýli með leikaranum þekkta, Dennis Quaid, og allt kom þetta upp í hendumar á henni án þess að hún þyrfti nokkuð að hafa fyrir hlutunum. „Það er furðulegt þegar ég lít til baka,“ segir þessi bláeygða fegurðar- dís hlæjandi. „Ég var alltaf að fá til- boð um leið og ég var búin að leika í einni kvikmynd." Og þegar hún segir sögu sína þá er sú saga ótrúleg, meira aö segja á mælikvarða Holly- wood. „Ég byrjaði leikferil minn þegar ég var á biaðamannaskóla, var boðið að leika í auglýsingum til að byrja með og smátt og smátt urðu tilboðin stærri og meiri peningar í boði svo ég ákvað að hætta blaðamannanám- inu um tíma og án þess að ég vissi af var ég kómin í tölu kvikmynda- leikara," segir Ryan. „Og það er að- eins nýlega sem ég hef gert mér grein fyrir hvað það er að leika.“ Hún og Dennis Quaid era búin að vera saman í þrjú ár og hún segir að það samband hafi komið jafneðli- lega og allt annað. Þau hittust þegar þau vora að leika saman í Inn- erspace. „Án þess að ég vissi af var ég komin í faðm hans og hef verið þar síðan.“ Quaid og Ryan kusu að búa eins langt frá Hollywood og þau gætu og keyptu sér stórt og glæsilegt hús í Paradísardal sem er í Montanafylki. Þar búa þau ásamt fjórum hundum. Dennis Quaid segir um Meg Ryan að það sé sjaldgæft að geta elskað konu og að sú kona sé einnig besti vinurinn en þannig er það með hann og Ryan. „Hin góða skapgerð Meg Ryan er uppeldinu að þakka. Hún ólst upp á góðu heimili í Connecticut þar sem siður var að setjast út á sval- ir á kvöldin og ræða málin í fullri alvöra. Það er enginn vafi að það sjálfstæði, sem einkennir hana, er úr þessu umhverfi," segir Dennis Quaid. Þetta virðist einnig vera samdóma álit þeirra sem unnið hafa með henni. John Goodman, sem vann með henni við Everybody’s All Am- erican, segir að Meg Ryan hafi gamla sál í ungum líkama. Ferill Meg Ryan sem leikkonu hef- ur aldrei risið jafnhátt og einmitt nú en nýjasta mynd hennar When Harry Met Sally hefur fengið mikið hrós gagnrýnenda sem og áhorfenda og er talaö um að hún komi til með að keppa um óskarsverðlaunin á næsta ári. Sjálf segir Meg að ekkert sé víst um að hún haldi áfram á sömu braut og hingað til. Hún hafi önnur áhugamál sem gætu orðið leiklistinni sterkari. Gjöfin hans Elvis Þótt Elvis Presley sé látinn fyrir nokkra er hann enn í fréttum þótt ekki séu það fréttir úr tónlistar- heiminum. Fyrir fimmtán áram var lítil fimm ára stúlka, Rhonda, með móður sinni á tónleikum hjá honum. Þegar tónleikunum var að ljúka benti Elvis á Rhondu og tókhana upp á sviðið og söng I Can’t Help Loving You. Þegar laginu lauk tók hann af sér hálsfesti sem hann bar alltaf og setti á hana og sagði að hún mætti eiga hana. Tahö er að hann hafi gert þetta vegna þess að hann stóð í skiln- aði við Pricillu og hafði ekki séð dótt- ir sína lengi. Rhonda hefur öragglega minnt hann á Lise Marie. Engar fréttir hafa borist af stúlk- unni fyrr en nú nýverið að Rhonda ákvaö að selja hálsmenið en faðir hennar var orðin atvinnulaus og átti litla möguleika á að fá vinnu. Það Rhonda þegar hún var timm ára og nýbúinn að fá festina dýrmætu gef- ins. kom í ljós þegar hálsmenið var rann- sakað að það var búið til úr 32 kar- ata gullkeðju sem á hékk 14 karata gullkross. í miðjum krossinum er demantur, umvafinn 14 dýrarm steinum. Skartgripurinn sjálfur er fimm þúsund dollara virði eða um 300.000 króna en þar sem Elvis var með þennan kross um hálsinn í ein fjórtán ár er verðmæti krossins geysilegt fyrir safnara sem ekkert spara til að eiga sem sem flesta hluti úr eigu goðsins. Rhondu, sem starfar sem af- greiðslukona, er gift prentara og á tveggja ára gamla dóttur, dreymdi samt aldrei um þaö verð sem boðið hefur verið fyrir hálsfestina en eitt tilboðiö hljóðar upp á eina milljón dollara sem era rúmar sextíu millj- ónir íslenskar. Rhonda í dag ásamt móður sinni með festina góöu sem hún selur nú til að bjarga foreldrum sfnum frá fátækt. Sjónvarpsáhorfendur ættu ekki Þau hafa nýlokiö viö að leika að vera í vandræðum með að saman í nýrri sjónvarpsmynd sem þekkja þessi tvö andlit ó myndinni. ber nafnið False Witness. Þetta er Þetta eru þau Phylicia Rashad, er sakamálamynd þar sem Rashad leikurmóöurinaíFyrirmyndarfóð- leikur metnaöargjaman aðstoðar- ur, en sá þáttur ætlar að verða vin- saksóknara sem á í útistööum við sælasti sjónvarpsmyndaflokkur- lögreglumanninnogelskhugasinn, inn í Bandaríkjunum þriöja árið i sem Thomas leikur, út af vitni sem röð, og Philip Michael Thomas sem hún krefst aö komi fýrir rétt en hefur leikið annan tveggja lög- hann neitar að segja til vitnislns. reglumanna i Míami Viœ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.