Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1989, Qupperneq 9
LAUGARÐAGUR 28. OKTÓBER 1989.
9
selja í sæti. Stúkan í Laugardalnum
tekur um 3.200 manns í sæti og verði
ekki byggð ný verður það hámarks-
fjöldi áhorfenda á hverjum leik. Þetta
þykja knattspymuáhugamönnum
váleg tíðindi og hafa farið fram á það
við borgaryfirvöld að gerðar verði
endurbætur á áhorfendasvæðunum.
Júhus var spurður hvernig borgar-
yfirvöld hefðu hugsað sér að bregð-
ast við:
„Þessi samþykkt Alþjóða knatt-
spymusambandsins hefur þann
vanda í för með sér að við getum
ekki selt nema 3.200 manns inn á
landsleik að óbreyttu. Aftur á móti
hefur Evrópusambandið sett þá
reglu að aliir vellir skuh vera komn-
ir í það horf sem Alþjóöa knatt-
spymusambandið fer fram á um
aldamótin. Svo að Evrópukeppnir
félagshða og Evrópukeppni landshða
hafa rýmri möguleika.“
Sóttverður
um undanþágu
Júhus segir að þegar hafi/verið
hreyft við þessu máh innan borgar-
innar með þeim aðiljum sem máhð
heyrir undir. Arkitekt Laugardals-
vallar hefur verið fahð að gera frum-
teikningar að nýrri stúku á móti
þeirri eldri sem tæki 6-7 þúsund
manns í sæti. Júlíus segir að kostn-
aðurinn geti legið á bilinu 2-300 mihj-
ónir.
„Að sjálfsögðu mun ísland sækja
strax um undanþágu frá þessum
reglum og eðliiegt að það verði gert.
Jafnframt munum við gera ráðinu
grein fyrir hvað þetta muni kosta
okkur og leggja fram áætlun um það
hvemig við ætlum að leysa þetta
mál. Það er okkar skoöun að aðrar
þjóðir eigi ekki að hða fyrir félagsleg
vandamál í Bretlandi eða stríðandi
öfl í Suður-Ameríku. Við höfum ver-
ið blessunarlega laus við öll þau
vandamál sem fylgt hafa knattspym-
unni víða erlendis. Ef þessu verður
neitað verðum við að taka ákvörðun
samkvæmt því, annaðhvort að selja
ekki fleirum inn en reglurnar segja
tii um eða leysa þetta á annan hátt
en það verður ákveðið þegar að því
kémur.“
Handboltahöllin
ermál ríkis-
stjómarinnar
Fyrirhuguð bygging handbolta-
hailar hefur ekki verið rædd hjá
Reykjavíkurborg, sagði Júhus þegar
hann var spurður um handboltahöh-
ina umtöluðu.
„í fyrsta lagi hafa borgaryfirvöld
ekki gefið loforð eða vhyrði vegna
þessarar hugmyndar eins og tvær til
þrjár síðustu ríkisstjórnir. Hitt er
annað að borgaryfirvöld era fil við-
ræðu, óbundin vegna þessa máls. Ég
lít þannig á að ekki eigi að byggja
sérstaka handboltahöU heldur
íþrótta-, sýninga- og ráðstefnuhús í
víðtækum skUningi. Máhð er á frum-
stigi, htlar upplýsingar hggja fyrir
og því varla tímabært að ræða það
mikið í {jölmiðlum.
„Svona höll verður ekki bara hand-
boltahöh heldur alhhða íþróttasvæði
og ef hún á að vera tUbúin 1995 verð-
ur að hefja framkvæmdir strax á
næsta ári og ráðstafa verulegum fjár-
munum til þeirra."
Endurbætur á
hlaupabrautinni
Hlaupabrautin í Laugardainum er
gömul og úr sér gengin. Frjáls-
íþróttafólk hefur gagnrýnt fram-
kvæmdir borgarinnar og vill fá nýja
braut.
„Það er rétt að brautin er orðin
léleg og tartanlagið er ónýtt. Um
framtíð þessara mála er það að segja
að ég hef áhuga á að á aðaUeikvang-
inum verði byggð upp fijálsíþrótta-
aðstaða. Þetta hef ég rætt við forystu
KSÍ og við þær hugmyndir hafa ekki
verið gerðar athugasemdir. Fram-
kvæmdir munu kosta um fjörutíu tU
fimmtíu mUljónir. Þetta er eina
raunhæfa tiUagan til að koma upp
góðri fijálsíþróttaðstöðu í Reykja-
vík.“
Að sögn Júhusar þarf htið að taka
ofan af brautinni, svona 50 til 70
sentímetra, dreneringin er í lagi og
hún er vel þétt. Aðrar framkvæmdir
em minni háttar en þegar þetta verð-
ur komið í lag er aðstaða ftjáls-
íþróttamanna orðin vel viðunandi.
Sparkvellir
úr sögunni
Knattspyrnuáhugamenn hafa bent
á þá staðreynd að nýhðar í knatt-
spymulandsliði séu í meirihluta ut-
an af landi. Þeir benda á að fækkun
sparkvaUa og annarra opinna svæða
í borginni geri það að verkum að
krakkar fái ekki að leika sér í fót-
bolta-þegar þeim hentar. í flestum
tilfeUum verða krakkamir að vera
félagsbundnir til að fá tækifæri tíl
að leika knattspymu og eru bundnir
við sérstakan æfingatíma.
„Það er mikið af sparkvöUum víða
um borgina en eðhlega hefur opnúm
svæðum fækkað frá því sem var.
Borgin hefur lagt íjármuni í upp-
byggingu íþróttaaðstöðu í hverfun-
um og styrkir félögin með framlagi
upp á 80% á móti 20% frá félögunum.
ÖU félögin eru komin á sinn stað og
að mínu mati styrkir þessi leið félög-
in og um leið geta þau leikið á sínum
heimavelh og fá allan aðgangs-
eyrinn. Þetta þýðir líka að minna
álag verður á Laugardalsvelhnum
og því ætti hann að verða mun betri.
Ég er einnig þeirrar skoðunar að'tU-
koma gervigrasvaUarins hafi styrkt
stöðu knattspyrnunnar í Reykjavík.
Framtíðin er sú að lengja æfinga-
tímabUið í knattspyrnu með bygg-
ingu gervigrasvaUa víðar sem hugs-
anlega yrðu opnir. Þetta verður
nauðsynlegt vegna þess ’að opnu
svæðunum fækkar vegna annarra
framkvæmda. Aðalatriðið er það að
aUt þetta nái að virka saman, leikur-
inn, afreksfólkið og íþróttahreyfing-
in.“
Skíðaíþróttin er ein vinsælasta al-
menningsíþróttin og hefur Reykja-
víkurborg komið upp góðri aðstöðu
fyrir skíðafólk í BláfjöUum.Þegar vel
viðrar er mikU þröng á þingi í Blá-
fjöllum og dæmi eru þess að fólk
hafi hreinlega gefist upp í biðröðinni
við BláfjöU og snúið heim á leið. Júl-
íus var spurður hvort borgaryfirvöld
hygðu á einhveijar endurbætur eða
fjölgun skíðasvæða innan borgar-
markanna.
„Það er rétt að örtröðin er of mikU
á einstökum álagstímum en það er
engin ástæða að mæna sífellt á topp-
ana. Ef við gemm það þyrftum við
að byggja íþróttamannvirki sem
nýttust verr en þau gera. Við stefn-
um að því að bæta við stórri stóla-
lyftu í Bláfjöllum, sennUega í Kóngs-
gih, sunnan við þá stólalyftu sem
fyrir er. Kaldhæðnin í þessu er sú
að fjöllin í nágrenni borgarinnar em
ekki nógu há og þó við væmm öU
af vUja gerð getum við ekki breytt
því.“
Um Skálafelhð, þar sem skíðasvæði
KR-inga er, sagði Júlíus að í athugun
væri að borgin yfirtæki rekstur
skíðasvæðisins, ekki væri sann-
gjamt að leggja á íþróttafélag eins
og KR eitt sér slík fjárútlát í sam-
keppni við Bláfjöllin.
Almenningsíþróttir
Að sögn Júhusar em borgaryfir-
völd í sífehdum framkvæmdum til
að auka þátttöku almennings í íþrótt-
um.
„Almenningur hefur víða aðstöðu
til útiveru en margir vita ekki nægj-
anlega vel af því. Fyrir utan Blá-
fiaUasvæðið má benda á Heiðmörk,
Élhðaárdahnn, sundlaugarnar og
auðvitað Laugardahnn. í Laugar-
dalnum er fólk skokkandi, í sundi
og fótbolta á gervigrasinu og svo
framvegis. Borgaryfirvöld vUja
stuðla að aukinni þátttöku almenn-
ings og leggja í þann kostnað sem
nauðsynlegur er tU þess. Ég er aö
flestu leyti ánægður með þróun mála
í Reykjavík á Uðnum ámm. Mér
finnst borgarstjómin vera í stöðugri
sókn fyrir betri borg og hafa frum-
kvæði í flestum efnum. Það er ekkert
launungarmál að ég hef áhuga á að
helga þessum störfum krafta mína
áfram á næstu árum,“ sagði Július
Hafstein að lokum.
Komdu tll okkará
DAGANA
(JM HELGINA
Ljúfmeti af léttara taglnu
verður á boðstólum úr tilraunaeldhúsi Osta- og Smjörsölunnar.
Kynntu þér íslenska gæðamatíð
Nú hefur þú tækifæri til að kynna þér niðurstöður íslenska gæðamatsins
á ostunum sem voru teknir til mats nú í vikunni.
Ostameistaiamír
veiða á staðnum
og sitja fyrir svörum um allt sem lýtur að ostum og ostagerð
og bjóða þér að bragða á ostunum sínum.
Ostar á kynningarveiði
Ostarnir verða seldir á kynningarverði OSTADAGANA, notaðu tækifærið.
OPIÐ HUS
kl.1-6
laugaidag & sunnudag
að Bitruhálsi 2
Verið velkomin
OSTA- OG SPUORSALAN