Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1989, Síða 22
. 22
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBRR 1989.
Verð áfram
aðstoðarmaður Stefáns
, „Ég er starfsmaður Stefáns Val-
geirssonar ennþá og verð það áfram.
Mer hefur aldrei verið sagt að hætta,“
segir Trausti Þorláksson, hinn títt-
nefndi aðstoðarmaður Stefáns Val-
geirssonar. Eins og kunnugt er var
Trausti tekinn af launaskrá forsætis-
ráðuneytisins um sl. mánaðamót, þar
sem hann hefur verið í rúmt ár eða
frá myndun ríkisstjórnar Steingríms
Herrnannssonar haustið 1988.
„Ég var ekki tekinn af launaskrá.
Lausráðning mín náði ekki til lengra
tímabils. Hvað á að gera nú veit ég
ekki en eftir helgina mun ég ræða
þessi mál við rétta aðila. Ég á ekki
von á öðru en ég verði áfram í þessu
starfi," segir Trausti. „Ég var að fá
inn á borð til mín frumvarp um að
breyta eigi lögum í þá veru að flokkur
með einn mann á alþingi njóti sömu
réttinda og aðrir flokkar. Hvort það
skiptir einhveiju máli í þessu veit ég
ekki en ég starfa hér þangað til mér
verður sagt að hætta. Ég vissi fyrir
löngu að ég væri ekki á launaskrá þvi
ég gerði aldrei samning nema fram
til síðustu mánaðamóta. Þegar farið
var að tala um aðstoðarmann Stefáns
Valgeirssonar í fjölmiðlum var ég því
ekki á launaskrá hjá ríkinu.“
- En hjá Brunamálastofnun?
„Ekki heldur en hins vegar stendur
starf mitt þar opið því ég var einung-
is lánaður til þessa starfs um tíma.
Hvenær ég byija aftur hjá Bruna-
málastofnun veit ég ekki á þessari
stundu.“
í sjálfboöavinnu
- En telurðu þig geta verið launa-
lausan?
„Ég vona að ég lifi það af. Maður
hleypur ekki frá staifi þó eitthvað
blási á móti.“
- Hefur þú verið vel launaður?
„Ég myndi ekki segja það miöað við
alla þessa vinnu. En maður hefur líka
mikinn áhuga fyrir starfinu og vill
leggja talsvert á sig svo vel takist.“
- Finnstþérekkertundarlegtaðvera
allt í einu í sviðsljósi fjölmiðlanna?
„Nei, nei. Ég er ekkert banginn við
það. Ef ég væri það gæti ég ekki sinnt
þessu starfi. Maður þarf að leysa hin
margiúslegustu mál.“
- Af hveiju varst þú ráðinn í þetta
starf?
„Ég veit ekki hvað ég á að segja um
það. í mörg ár hef ég aðstoðað Stefán
Valgeirsson í hinum ýmsu málum.
Hann hefur sennilega haft góða
reynslu af þeim störfum og þess
vegna boðið mér þetta starf. Við erum
ekkert tengdir eða skyldir eins og
hefur verið látið liggja að í fjölmiðl-
um.“
- Ertu framsóknarmaöur eða stuðn-
ingsmaður Stefáns?
stofnun var að kanna tækjabúnað
slökkviliðanna víðs vegar um landið
og beitti ég mér mjög fyrir niðurfell-
ingu á söluskatti og aðflutningsgjöld-
um á búnaði til slökkviliða. Ég get
fullyrt að það hefur sparað sveitarfé-
lögunum stórfé og varð til þess að
slökkviliðin gátu byggt búnað sinn
mun betur upp en annars hefði verið.
Þetta var mjög þýðingarmikið mál í
mínum huga og tókst vel. Hjá Bruna-
málastofnun hef ég verið allt þangað
til ég var fluttur til innan ríkisins og
í þetta starf sem ég gegni nú.“
Áhugavert starf
- Ertu pólitískur?
„Já, ég hef alltaf haft gaman af
stjórnmálum. Ég hef fylgst vel með
en hef ekki haft nein sérstök afskipti
af þeim. Byggðamál eru mér sérstak-
lega kær og ég verst eins og ljón þeg-
ar þau eru annars vegar. Ætli það sé
ekki vegna þess að ég er ættaður úr
sveit.“
- Leist þér strax vel á að taka að þér
hlutverk aðstoðarmanns Stefáns?
„Mér leist mjög vel á starfið og var
tilbúinn að taka það að mér. Eg sé
ekki eftir því. Starfið er bæði lifandi
og skemmtilegt. Starfsfólk Alþingis,
þingmenn, ráðherrar og allt það fólk
sem ég umgengst daglega er allt sam-
an gott fólk og dreg ég engan þar
undan.“
- Áttir þú von á allri þessari umræðu
í kringum starf þitt?
„Ég átti ekki von á því og mér finnst
þessi umræða öll vera á afskaplega
lágu plani. Auk þess er ég hissa á að
íjölmiðlafólk skuli ekki leita sér ör-
uggari heimilda en raun er þegar það
skrifar fréttir. Margt af því sem sagt
hefur veriö er alrangt.“
- Getur þú nefnt dæmi þar sem rangt
hefur verið farið með staðreyndir?
„Ég veit ekki hvort maður á að vera
að nefna nokkur dæmi því til stað-
festingar. Þeir sem þekkja til min vita
að margt af þessu er rangt. Aftur á
móti er ég ekkert sár. Ég sef rólega
og þetta kemur mér ekki úr jafn-
vægi.“
- Hefur þessi umræða þá ekkert
snert þig?
„Hún hefur ekkert snert mig enda
varla svaraverð."
Ekki starf
fyrir einn mann
- Finnst þér ekkert athugavert við
að Stefán hafi aðstoðarmann?
„Nei, ég veit ekki hvernig Stefán
Valgeirsson á að geta komist yfir öll
þau störf, sem hann þarf að sinna
vegna þátttöku Samtakanna í ríkis-
stjórn, ef hann hefði ekki aðstoðar-
mann. Það væri líka alveg útilokað
fyrir okkur tvo að komast yfir allt
þetta ef við heföum ekki stóran hóp
manna úti í þjóðfélaginu sem hjálpar
okkur. Allt það fólk starfar í sjálf-
boðavinnu."
- íhveijuerstarfþittaðallegafólgið?
„Starfið er fyrst og fremst fólgið í
því að fara yfir öll þau frumvörp sem
koma frá ráðuneytunum og senda til
þessara vinnuhópa sem eru bæði í
kjördæminu og í Reykjavík. Síðan
þarf að kalla þau inn aftur og halda
fundi. Síminn þagnar aldrei frá
morgni til kvölds. Hann er stór fylgi-
fiskur stjórnmálamanna. Þá get ég
nefnt öll þau samskipti sem ég þarf
að hafa við ráðuneytin og þingmenn.
Þetta er mikil vinna. Menn hljóta að
átta sig á því að flokkur eins og Sam-
tök um jafnrétti og félagshyggju hlýt-
ur að hafa mikið umleikis þar sem
- segir Trausti Þorláksson
„Sú stefna, sem Samtök um jafn-
rétti og félagshyggju boða, fellur mjög
að mínum skoðunum. Ég hef kosið
Framsóknarflokkinn fram að þessu.“
Af tónlistarfólki
Trausti Þorláksson hefur verið
mikið í fréttum undanfarið en fæstir
þekkja manninn. Hann segist vera
fæddur á Gautastöðum í Skagafirði
en foreldrar hans voru Þorlákur
Magnús Stefánsson og Jóna Sigríður
Ólafsdóttir. „Við bjuggum á Gauta-
stöðum þar til ég var sjö ára. Þá stofn-
uðu foreldrar mínir nýbýli á jörð sem
nefnd var Gautland. Þar var mitt
æskuheimili,“ segir Trausti.
Hann er einn þrettán systkina en
þijú þeirra létust mjög ung. „Senni-
lega er Gautland þekktast fyrir
hversu mikið tónlistarfólk var þar á
bæ. Bræður mínir stofnuðu hljóm-
sveitina Gauta og spiluðu saman í
þijátíu ár. Auk þess sungu þeir með
karlakómum Vísi. Faðir minn var
organisti í tveimur kirkjum í Fljótum,
Baröskirkju og Hnappstaðakirkju í
meira en fimmtíu ár og kenndi söng
í skólum. Sem unglingur hafði ég
geysilega gaman af tónlist og hef enn-
þá. Ég fylgist alltaf vel með tónlistar-
straumum,“ segir Trausti. Hann hef-
ur sungið með Karlakór Reykjavíkur
í fjöldamörg ár og segist eiga góða
vini þar.
Trausti flutti ungur að heiman og
hóf störf hjá flughernum á Keflavík-
urflugvelli. Þar starfaði hann í fjögur
ár en þess má geta að Stefán Valgeirs-
són ók leigubíl á Vellinum á sama
tíma. Trausti segist ekki hafa þekkt
hann mikið þá en þeir vissu þó hvor
af öðmm. „Við kynntumst fyrir um
tuttugu og fimm árum og höfum ver-
ið góðir kunningjar síðan,“ segir
Trausti. „Okkar kunningsskapur
hófst í gegnum pólitíkina hjá Ste-
fáni.“
Sá um bíla Stefáns
Trausti nam bifvélavirkjun hjá 01-
íuverslun íslands eftir að hann hætti
á Vellinum. „Eftir námið setti ég upp
mitt eigið fyrirtæki, Vélverk, ásamt
kunningja mínum. Þetta var bæði
verkstæði og sala á varahlutum. Við
byggðum upp fyrirtækið í samein-
ingu ásamt fleiri hluthöfum og ég
starfaði við það þar tO fyrir tíu
ámm,“ segir Trausti en meðal við-
skiptavina hans var Stefán Valgeirs-
son. Trausti segist hafa gert við bíla
hans og séð um þá. Bifvélavirkjunina
lagði hann á hilluna árið 1979.
Þannig var ástatt hjá okkur félög-
unum í Vélverki að við ákváðum að
minnka fyrirtækisreksturinn. Við
leigðum Bifreiðaeftirliti ríkisins meg-
inhluta húsnæðis okkar á Bíldshöfða
því við vomm orðnir þreyttir á þessu
og vildum minnka við okkur. Mig
langaði að breyta til og sótti um starf
hjá Sameinuðu þjóðunum og fékk
það. Ég var starfsmaður í Miðausturl-
öndum nær í rúm fjögur ár.“
- Hvemig kom það upp að þú sóttir
um hjá Sameinuðu þjóðunum?
„Það er kannski erfitt að segja
hvemig mér datt það í hug. Ég hafði
áhuga á að víkka sjóndeildarhringinn
og var vanur viðskiptum við útlönd.
Vélverk var með geysimikinn inn-
flutning frá mörgum löndum.
Ég starfaöi fyrst í Jerúsalem en
starf mitt var fólgið í að sjá um bíla-
flota Sameinuðu þjóðanna og einnig
rafstöðvar. Starfiö var á vegum
gæslusveitanna," segir Trausti.
„Þetta var mjög skemmtilegur tími
og mér gekk virkilega vel í þessu
starfi. Lengst starfaði ég í Líbanon en
einnig í Jerúsalem auk samskipta við
gæslulið SÞ í Sýrlandi og Egypta-
landi. Ég var með fjölskyldu mina
með mér og við vomm öll mjög á-
nægð með veruna þama þessi fjögur
ár.“
Eiginkona Trausta er Guðbjörg Ing-
unn Magnúsdóttir og eiga þau fjögur
böm og sjö barnaböm. „Okkur leið
mjög vel og þetta var athyglisverður
tími. Við bjuggum vissulega á hættu-
svæði en við vorum í Líbanon þegar
ísraelar réðust þar inn árið 1982. Það
venst að umgangast vopnað fólk og
vera á hættusvæði. Ég held ekki að
við höfum nokkurn tíma verið hrædd
en það gerðist vitanlega margt alvar-
legt í kringum okkur. Fólk, sem vinn-
ur við störf sem þessi og býr á hættu-
svæði, er náttúrlega alltaf í einhverri
hættu. Þó manni sé ekki sama fyrstu
tvo mánuðina virðist þetta ástand
venjast furðu fljótt.
Vann fyrir
slökkviliðin
Eftir fjögurra ára vem á þessum
slóðum urðum viö að gera upp hug
okkar; hvort við ætluðum heim aftur
eða að ég yrði í þessu starfi fram á
eftirlaunaaldur. Vegna þess hversu
margt við áttum hér heima, sem erf-
itt var að slíta sig frá, héldum við
heim aftur. Þá hóf ég störf hjá Bruna-
málastofnun ríkisins þar sem ég er
deildarstjóri. Ég starfa þar bæði með
tækjabúnað og að námskeiðahaldi
ásamt ööm fyrir slökkviliðin.
Mitt fyrsta verk hjá Bmnamála-