Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1989, Qupperneq 30
L
42
LAUGARDAGUE 28. OKTÓBER 1989,
Lífestm
Lech:
Perla austurrískra skíðastaða
Inn á milli himinhárra fjalla á einu
fallegasta svæði Austurríkis kúrir
lítið, rólegt og rómantískt þorp. Stað-
urinn lætur ekki mikið yfir sér, er
eins og hálffeiminn í hinni hrikalegu
náttúrufegurð sem þama ríkir. Þetta
er hinn þekkti skíðastaður Lech.
.
skautasvæði eru svo að sjálfsögðu
einnig til staðar.
Þegar degi tekur að halla tekur
öðravísi afþreying við: sundlaugar,
gufuböð og nudd, rómantískar hesta-
sleðaferðir og góð veitingahús.
Að jafnaði dvelja um 8.000 ferða- byijar í desember og endar í apríl.
menn í Lech á degi hveijum. Flestir Dýrasti tíminn í Lech er um jólin,
dvelja í viku en margir í 2 vikur, páskana og yfir karnivaltíma þar-
einkum yfir jólin. Skíðatímabfiið lendra, þ.e. í byijun febrúar.
Allt sem skíða-
maðurinn girnist
Lech er í héraðinu Vorarlberg vest-
ast í Austurríki en Arlbergssvæðið
er eitt besta skíðasvæði Austurríkis.
Svæðið liggur mjög hátt og aldrei
þarf að óttast snjóleysi þar að vetrar-
lagi eins og víða annars staðar á
skíðasvæðum Evrópu.
Þorpið Lech er perla Arlbergs-
svæðisins. Staðurinn dregur nafn sitt
af samnefndri á sem rennur eftir
þorpinu miðju við hhð aðalgötunnar.
Byggðin er gamaldags, dæmigerö
fyrir alpaþorp, gerðarleg hús með
miklum þökum og hin fjögurra alda
^ gamla kirkja kórónar fegurðina.
Lech er dýr staður en þar er líka
að finna allt sem hugur skíðamanns-
ins gimist. Þar er mjög fullkominn
skíðaskóh með 200 kennurum þar
sem bæði er hægt að fá einkakennslu
og kennslu í hóp.
Skiðaaðstaðan er nánast fullkom-
in. Fjöldinn allur af skíðalyftum
gengur beint upp frá þorpinu sjálfu
og skíðasvæðið er svo fjölbreytt að
hægt væri að renna sér dögum sam-
an án þess að fara nokkru sinni í
sömu brekkuna.
Sói, snjór og fallegt umhverfi.
Fullurbær af
fólki í skíðagöllum
Dagur í Lech hður eins og á öðrum
skíðastöðum við skíðaiðkan frá kl. 9
á morgnana, þegar skíðalyftur eru
opnaðar, tfi um kl. 3-4 á daginn. Fólk
missir sjaldan úr dag á skíðunum,
enda alhr til þess komnir að njóta
skíðadvalarinnar til hins ýtrasta.
Þegar skíðadeginum lýkur safnast
fólk gjaman saman í skíðagöhunum
og skónum inn á kaffihús og bari
bæjarins. Þegar kvöldar velur svo
hver sér afþreyingu við hæfi. Sumir
fara á diskótek eða hanga á börunum
meðan þeir sem aldrei fá nóg af
íþróttaiðkan spila keilu eða tennis.
Veðrið í útlöndum
HITASTIG í GRÁÐUM
0111-10 1 tll 5 6 lll 10 11 til 15 1611120 20III 25 25 til 30 30atlg«fi>m.
Byggt á veöurtróttum VeÖurstofu islands kl. 12 á hádegi, föstudag
(5v
Reykjavík -1°
9
Þórshöfn 6°
Eins ogájólakorti
I þyrlu og fallhlíf
Hægt er að fara með þyrlum á af-
skekktari og erfiðari svæði og þeir
sem vfija prófa eitthvað spennandi
og nýtt spenna á sig nokkurs konar
fallhlíf og svífa niður af fjallstindun-
um með skíðin á fótunum. Bama-
skíðasvæði, gönguskíðabrautir og
Þaö er eins og að vera dottinn inn
í jólakort að koma til Lech. Snjórinn
leggst á greinar tijánna og húsþökin
eru hulin þykku snjólagi. Þorpið er
gamaldags og andrúmsloftið er ró-
legt og í því liggur sérstaða staðar-
ins. Þetta er ekki glansstaður, upp-
fuhur af diskótekum og fjöri, heldur
þægilegur, rómantískur staður þar
sem fólk kemur til að slaka á og hafa
það gott.
Osló 9° i -7 ^
Stokkhólmur 8°
Glasgotf 5°^ {j® Kaupmannahöfn 12°
HamborgJ2*-
London 17° ,
Luxemborg 17°
París 20° ^
Feneyjj
s3arcelonafe1°
rid19°^ -^Róm<
♦
»
* 3 . «
^^Mallorca 24°
Norður - Ameríka
Montreal 11°
#
Rigning V Skúrir *,* Snjókoma Þmmuvefiur = Þoka
Þaö þarf ekki aö fara langt til að komast í brekkurnar því lyfturnar ganga upp frá miðbænum.
Hamborg er horg ótal
möguleiko,
jafnt í verslun, andans
lystisemdum sem og afþreyingu.
Hamborg er verslunarborg þar
sem vöruúrval er meira en orð fá
lýst í stórverslunum,
sérverslunum og meðfram níu
yfirbyggðum verslunargötum.
Hamborg er paradís sælkera,
aðsetur innlendra og alþjóðlegra
matreiðslumeistara þar sem eru
flciri en 3000 veitingahús,
matsölustaðir og krár.
Hamborg er stórbrotin
menningorbörg'
frá alda öðli, sífrjór vettvangur
vísinda og lista. Óperan í
Hamborp, á sér mcjra en 300 ára
sögu og er í röð fremstu
óperuhúsa í álfunni. Þar eru
víðfraeg leikhús - að ógleymdum
ballettinum undir stjórn
John Neumeiers,
myndlistarsalir
og einstök söfn.
Og þess utan
er Hamborg
J