Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1989, Síða 1
Unnið að uppsetningu mynda á sýningu 27 grafíklistamanna í Norræna húsinu.
Norræna húsið:
íslensk grafík í tuttugu ár
Tuttugu ár eru liöin frá því félagiö
íslensk grafík var endurreist. í tilefni
af áfanga þessum verður haldin af-
mælissýning í Norræna húsinu. Á
sýningunni ggfur aö líta verk eftir
27 félagsmenn. í tilefni afmælisársins
hefur félagiö einnig staðið fyrir út-
gáfu sýningarskrár þar sem upplýs-
ingar er aö finna um hvem hinna
fjörutíu og sex meölima félagsins.
Auk þess hefur sjötta grafíkmappa
félagsins veriö gefin út. Bæöi sýning-
arskrá og grafíkmappa veröa til sýn-
is á samsýningu félagsins í Norræna
húsinu.
Þaö hefur verið fastur liður í starfi
félagsins íslensk grafík að halda
samsýningar annaö til þriðja hvert
ár þar sem gefur að líta þaö mark-
verðasta af grafíklist félagsmanna
hverju sinni. Ennfremur hefur félag-
ið staðiö fyrir útgáfu á grafíkmöppu
þau ár sem sýningin hefur ekki verið
haldin. Að þessu sinni kemur mapp-
an út á sama tíma og samsýningin
þar sem kynnt eru sex verk eftir jafn-
marga listamenn.
Sýningarskráin, sem nú hefur ver-
iö gefin út, er nokkuð frábrugðin
fyrri skrám þar sem um sjálfstætt
upplýsingarit er að ræða, ótengt
samsýningu félagsins í Norræna
húsinu. Þannig hefur félagið kynnt
verk félagsmanna með ýmsu móti
undanfarin tuttugu ár, þó sérstak-
lega í formi sýninga sem einkum
hafa verið haldnar á Norðurlöndum
en einnig í Bandaríkjunum og á meg-
inlandi Evrópu.
Ennfremur hefur félagiö staðið fyr-
ir kynningum á erlendri grafíklist á
íslandi. Má þar á meðal annars nefna
síðustu og viðamestu grafíkviðburð-
ina, Graphica Atlantica á Kjarvals-
stoðum 1986 og Norræna grafíkþrí-
árið í Norræna húsinu 1988.
Samsýning félagsins íslensk grafík
í tilefni 20 ára afmælisársins verður
opin daglega frá 14-19. Sýningunni
lýkur 19. nóvember.
Stutt mynd um dráp verður sýnd á pólsku kvikmyndavikunni, en hún var
einnig sýnd á nýafstaðinni kvikmyndahátíð listahátiðar.
Regnboginn:
Pólsk kvikmyndavika
Á vegum pólska sendiráðsins verð-
ur pólsk kvikmyndavika í Regn-
boganum dagana 4.-9. nóvember.
Kvikmyndavika hefst með sýningu á
Móðir King fjölskyldunnar sem er í
leikstjórn Janusz Zaorski, laugar-
daginn 4. nóvember kl. 14.00. Leik-
stjórinn verður viðstaddur frumsýn-
inguna.
Fimm aðrar kvikmyndir verða
sýndar. Ber þar fyrst að telja tvær
myndir eftir Krzystof Kieslowski
sem byggðar eru á boðorðum. fyrst
skal telja verðlaunamyndina Stutt
mynd um dráp sem byggð er á
fímmta boðorðinu, Þú skalt ekki
morð fremja. Sú kvjkmynd var ein
aðalmyndin á nýafstaðinm kvik-
myndahátíð. Hin myndin er Stutt
mynd um ást, sem er nýjasta kvik-
mynd Kieslowski. Er sú mynd byggð
á sjötta boðorðinu, Þú skalt ekki
drýgja hór.
Þá verður sýnd New York kl. fjögur
eftir miðnætti, leikstjóri Krysztof
Krauze, Svanasöngur, leikstjóri Ro-
bert Glinski og Málefni karla, leik-
stjóriJanKidawa-Blonski. -HK
Háskólabíó:
Fimm kórar
ogein
lúðra-
sveit
Tónlistarsamband alþýðu held-
ur þriðju hausttónleika sína i
Háskólabíói á morgun, laugar-
daginn 4. nóvember, en tónleikar
þessir eru haldnir annað hvert
ár.
Aö þessu sinni koma fram fimm
kórar og einlúðrasveit. Kóramir,
sem koma fram, eru Álafosskór-
inn, Grundartangakórinn, Rar-
ik-kórinn, Reykjalundarkórinn
og Samkór Trésraíðafélags
Reykjavíkur. Lúðrasveitin, sem
leikur, er Lúðrasveit verkalýðs-
ins.
Hver hópur mun flytja 15-20
mínútna efnisskrá en auk þess
munu allir hópamir flytja tvö lög
sameiginlega.
Danssýning í Iðnó
í Iðnó verður frumsýnd í kvöld
sýningin Pars Pro Toto - Fjögur
dansverk, en það mun vera í fyrsta
skipti sem sérstök danssýning er sett
upp þar. Að Paris Pro Toto standa
félagar úr íslenska dansflokknum og
fleiri.
Verkin fjögur eru eftir fjóra höf-
unda sem hafa óhkan bakgmnn.
Markmið sýningarinnar er að fanga
ólíka strauma nútímadansins í sjálf-
stæð verk sem mynda heild. Enda
er Pars Pro Toto komiö úr latínu og
þýðir hluti fyrir heild.
Fyrsta verkið, Orante 89, við tónhst
Sofia Gubaiduhna er eftir Sylvia Von
Kospoth sem kemur sérstaklega frá
Hollandi sem gestur þessarar sýn-
ingar.
Annað verkið er Laus Festa eftir
Ingólf Bjöm Sigurðsson við hljóð-
verk Páls Sveins Guðmundssonar,
síðan Vera eftir Lám Stefánsdóttur
við tónlist John Speight og loks Saga
úr Eden eftir Hany Hadaya við tón-
hst frá miðöldum eftir Oswald Von
Wolkenstein og fleiri.
Dansarar eru Auður Bjarnadóttir,
Birgitte Heide, Friðrik Thorarensen,
Björgvin Friðriksson, Helga Bern-
hard, Hany Hadaya, Guðmunda Jó-
hannesdóttir, Katrín Þórarinsdóttir,
Ingólfur Björn Sigurðsson, Lilja
Ingvarsdóttir, Lára Stefánsdóttir,
Margrét Gísladóttir og Ólafía Bjarn-
leifsdóttir. Einnig koma fram leikar-
arnir og hljóðfæraleikaramir Árni
Pétur Guðjónsson, Jón Aðalsteinn
Þorgeirsson, Richard Kom og Óskar
Ingólfsson.
Sýningar verða tíu talsins og er
síðasta sýning áætluð 25. nóvember.
Danshöfundarnir fjórir, Ingólfur Björn Sigurðsson, Lára Stefánsdóttir, Hany
Hadaya og Sylvia von Kospoth.
listasafn ASÍ:
Krítarmyndir
Veturliða
Myndlistarsýning Veturliða
Gunnarssonar verður opnuð í Lista-
safni ASÍ á morgun, laugardaginn 4.
nóvember, kl. 15.
Veturhði Gunnarsson er þekktur
málari sem sýnir nú fjölbreyttar krít-
armyndir sem opna okkur sýn inn í
síkvika veröld þorps og strandar.
Veturhði hefur gengið langar fjör-
ur og rissað niður andartaksstemn-
ingar við úfínn sjó. Mottó hans í
myndsmíðinni eru orð úr Þorpinu
eftir Jón úr Vör, „Enginn slítur þau
bönd sem hann er bundinn heima-
högum sínum. - Móðir þín fylgir þér
á götu er þú leggur af stað út í heim-
inn en þorpið fer með þér alla leið.“
Veturhði fæddist á Suðureyri við
Súgandafjörð 1926. Hann var við nám
í Handíðaskólanum þegar þar
kenndu Kurt Zier og Engilberts. Síð-
an lá leið hans til Kaupmannahafn-
ar. Þar var Veturhði á konunglegum
hstaháskóla og einnig Grafíska skól-
anum. Þá sótti hann einkatíma hjá
Jóni Stefánssyni.
Veturliði hefur haldið margar
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum. Eftir hann eru verk á fjöl-
mörgum listasöfnum. Veturliði er
einn af stofnendum félagsins íslensk
grafík sem stofnað var 1954. Sýning
Veturliða verður opin alla virka daga
kl. 16-20 og um helgar kl. 14-20. Sýn-
ingunni lýkur 19. nóvember.
Vetrliði Gunnarsson sýnir kritarmyndir í Listasafni ASÍ.