Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1989, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1989.
19
Dans-
staðir
Artún,
Vagnhöfða 11
Gömlu dansamir fostudagskvöld kl.
21-3 og laugardagskvöld kl. 22-3.
Hljómsveitin Danssporið leikur fyrir
dansi bæði kvöldin.
Casablanca,
Skúlagötu 30
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kyöld.
Danshöllin,
Brautarholti 22, s. 23333
Hljómsveitir á fjórum hasðum fóstu-
dags- og laugardagskvöld.
Duus-hús,
Fischersundi, sími 14446
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld.
Fjörðurinn,
Strandgötu 30, simi 50249
Hljómsveit leikur fyrir dansi á föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Danshúsiö Glæsibær,
Álfheimum, sími 686220.
Hljómsveit Hilmars Sverrissonar
leikur fyrir dansi um helgina.
Gömlu dansarnir með Reyni Jónas-
syni á sunnudagskvöld.
Hollywood,
Ármúla 5, Reykjavík
Hljómsveitin Gildran leikur fyrir
dansi föstudags- og laugardagskvöld.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 10, Reykjavik, sími
11440
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvald. Borgjrkrám^er opin til kl. 24
báoa dagana. Gömlu dansarnir
sunnudagskvöld. *
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími
82200
Dansleikir föstudags- og laugardags-
kvöld. Lifandi tónlist. Opið frá kl.
19-1.
Hótel Island,
Ármúla 9, simi 687111
Sýningin „Söngleikir og rokkóperur"
fóstudags- og laugardagskvöld.
Stjómin leikur fyrir dansi.
Ásbyrgi
„Kvöldið er fagurt", kabai'ettsýning
Hauks Morthens ásamt Erlu Þor-
steinsdóttur, Jóhönnu Linnet og
hljómsveit. Haukur Morthens og
hljómsveit leika fyrir dansi
Hótel Saga
Hin vinsæla skemmtun Ómars Ragn-
arssonar, Þjóðarspaug í 30 ár, sýnd á
laugardagskvöld. Hljómsveitin Eins-
dæmi leikur fyrir dansi.
Keisarinn
v/Hlemmtorg
Diskótek fóstdags- og laugardags-
kvöld.
Staupasteinn,
Smiðjuvegi 14D, S. 670347
Hljómsveit leikur fyrir dansi föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Tunglið og Bíókjallarinn,
Lækjargötu 2, sími 621625
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld.
Ölver,
Álfheimum 74, s. 686220
Opiö fimmtudags-, föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld. Hljóm-
sveitin Hrím leikur um helgina.
Hollywood:
Ungfrú Hollywood
Annað af þremur kynningar-
kvöldum ungfrú Hollywood-keppn-
innar verður í kvöld. Kynntar
verða stúlkur númer fjögur, fimm
og sex. Þá mun Síðan skein sól
kynna lög af væntanlegri hljóm-
plötu sinni. Er þetta í fyrsta skipti
sem Sólin kemur fram í langan
tíma. Fleira verður til skemmtunar
í Hollywood í kvöld, Jói Bach og
María sýna rokkdans og bifreiða-
íþróttakappar, sem Sam-útgáfan
styrkti til keppni í sumar, munu
mæta á staðinn.
Þriðja og síðasta kynningarkvöld
ungfrú Hollywood-keppninnar fer
fram í nóvemberlok. Urslit hggja
síðan fyrir í janúar á næsta ári.
Síðan skein sól kynnir lög af væntanlegri hljómplötu I Hollywood I kvöld.
Sálin hans Jóns míns eins og hún er skipuð I dag, talið frá vinstri. Magnús Stefánsson, Stefán Hilmarsson,
Friðrik Sturluson, Jens Hansson og Guðmundur Jónsson.
Sálin í Aratungu
Hljómsveitin Sálin hans Jóns
míns hefur nýlega lagt lokahönd á
ellefu laga breiðskífu sem væntan-
leg er á markað seinna í þessum
mánuði. Af því tilefni mun sveitin
á næstu vikum leika á dansleikjum
JC Bros
aðstoðar
Hallbjöm
Eins og alþjóð veit sendi Hall-
björn Hjartarson söngvari frá sér
nýja plötu sem eingöngu var gerð
með það í huga að hjálpa dóttur-
syni hans að komast í viðamikla
læknisaðgerð erlendis.
Félagar í JC Bros eru hrifnir
af slíku framtaki og hjartahlýju
og ætla því að aðstoða Hallbjörn
við að selja plötuna um helgina.
Þeir treysta á að til séu fjölmarg-
ir með sömu hjartahlýju og Hall-
björn og vonast til að vel verði
tekið á móti sölumönnum þeirra.
Þeir verða staðsettir víða um
borgina um helgina og munu
einnig ganga í hús.
og tónleikum víða um land. Á
föstudag mun Sálin leikaá dansleik
í félagsheimilinu Aratungu í Ár-
nessýslu og á laugardag kemur
sveitin fram við opnunarhátíð á
nýjum veitingastað þar sem áður
var Broadway. Á báðum þessum
stöðum mun Sálin leika efni af
nýju plötunni í bland við eldra efni
og gamalgróin soul- og rokklög.
Bachmann-Möller-Bernburg mun um helgina og næstu helgar leika á
nýjum veitingastaö, Mannþingi, sem er staðsettur viö Borgartún. Bach-
mann-Möller-Bernburg er skipað André Bachmann, Karii Möller og
Gunnari Bernburg. Vaflaust leika þeir meðal annars lög af nýrri plötu
með André Bachman, Til þín, sem inniheldur lög sem eiga vel við á
skemmtistaö sem þessum.
Heiti potturinn:
Tríó Ómars
Einarssonar
Að venju er djasskvöld í Heita
pottinum á sunnudagskvöld. í þetta
skiptið mun tríó Ómars Einarsson-
ar leika ásamt sérstökum gesti,
Guðmundi Ingólfssyni. Tríóið
skipa Ómar Einarsson, sem leikur
á gítar, Þórður Högnason leikur á
bassa og Jón Björgvinsson leikur á
trommur. Guðmundur mun svo slá
sína strengi eins og hann einn er
fær um.
Styrktarsjóður Húnvetninga:
Fjáröfhmar-
dansleikur
Magnús Ólafeson, DV, Húnaþingi
Hið árlega styrktarsjóðsball
veröur á Blönduósi næstkomandi
laugardagskvöld, 4. nóvember.
Dansleikur þessi er jafnan fjölsótt-
ur enda er hann aðalfjáröflunarleið
Styrktarsjóðs Húnvetninga. Á
dansleiknum er jafnan efnt til
happdrættis og fleira gert til þess
að afla fjár í sjóðinn.
Markmið Styrktarsjóðsins er að
veita Húnvetningum hjálp þegar
óvænta erfiöleika ber að höndum,
en þó fyrst og fremst að hjálpa í
erfiðum sjúkdómstilfellum þar sem
ekki er veitt næg aðstoð af hálfu
opinberra aðila. Einnig eru fjár
framlög veitt til þess að kaupa
lækningatæki eða gera aðstöðu
sem skapar bætta sjúkrahjálp og
heilsugæslu í héraði.
Það voru nokkur félög á Blöndu-
ósi sem stofnuöu sjóðinn 1974 og
skiptast fulltrúar þessara félaga á
um að vera í stjórn sjóðsins.
Veitingahúsið 22:
Tónleikar
Infemo 5
Félagsskapurinn Inferno 5 mun
standa fyrir tónleikum á efri hæð
Veitingahússins 22 annað kvöld.
Þar mun hljómsveitin Inferno 5
flytja „vitsmunalega tónlist með
hugvíkkandi heiöingjataktí". Þess
má geta að gemingaþjóriusta In-
femo 5 verður í fríi þetta kvöld
vegna velheppnaðs gemings í Holl-
andi nýverið. Allir em velkomnir
gegn vægu gjaldi.
Sjallinn á Akureyri:
Komdu í
kvöld
Dægurlagahátíðin Komdu í kvöld
hefur nú lokið sér af í Broadway,
enda sá staður ekki lengur tíl í
sömu mynd og áður og nú er kom-
ið að Akureyringum að líta þessa
miklu dægurlagahátíð. Verður
fyrsta sýning á henni í kvöld.
Dægurlagahátíð þessi er til heið-
urs Jóni Sigurðssyni bankamanni
sem staðið hefur í sviðsljósi ís-
lenskrar dægurlagatónlistar í
fimmtíu ár. Lög hans og textar hafa
lifað með þjóðinni svo áratugum ,
skiptír og mörg verið á hvers
manns vömm.
Margir af þekktustu dægurlaga-
söngvurum landsins taka þátt í
sýningu þessari, má þar nefna Ellý
Vilhjálms, Þuríði Sigurðardóttur,
Pálma Gunnarsson, Þorvald Hall-
dórsson, Hjördísi Geirsdóttur og
Trausta Jónsson, en hann er sonur
Jóns Sigurðssonar. Kynnir er út-
varpsstjórinn Bjarni Dagur Jóns-
son. Hljómsveit Ingimars Eydal sér
um undirleik í sýningunni og leik-
ur síðan fyrir dansi.