Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1989, Blaðsíða 6
22
FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1989.
Kvikmyndahúsin - Kvikmyndahúsin - Kvikmyndahúsin - Kvikmyndahúsin - Kvikmyndahúsin
Laugarásbíó:
Hneyksli
Laugarásbíó frumsýnir bresku
úrvalsmyndina Hneyksli (Scandal)
í dag. Hneyksli hefur vakiö mikla
athygli aUs staðar þar sem hún
hefur verið sýnd. Það er ekkert
undarlegt að fólk sé forvitið um
myndina, hún er byggð á einu
mesta hneykslimáh sem upp hefur
komið í Bretlandi, Profumo-mál-
inu, sem varð til þess að þáverandi
ríkisstjóm varð að hrökklast frá.
Aðalpersónumar í máli þessu eru
gleðikonumar tvær, Christine Ke-
eler og Mandy Rice Davis, læknir-
inn Stephen Ward og ráðherrann
John Profumo. Er myndin byggð á
endurminningum gleðikvennanna
tveggja sem og ótal blaðagreinum
sem hafa verið skrifaðar um máhð.
Aðalpersónan í myndinni er
Christene Keeler og er rakinn fer-
ih hennar frá því hún kemur til
London, kynni hennar af Ward sem
leiða til að hún kynnist ráðherran-
um John Profumo og einnig undir-
heimalýð Londonborgar. Þegar svo
blöðin komast í að ráherrann hafi
haldiö við Keeler um leið og rúss-
neskur njósnari hélt við hana fer
allt í bál og brand.
Ahar aðalpersónumar sem koma
við sögu em lifandi í dag og hafa
náð sér á strik aftur í lífinu nema
Ward læknir sem framdi sjálfs-
morð. Aðalhlutverkin í Hneyksh
leika Joanne Whalley-Kilmer sem
leikur Keeler, John Hurt leikur
Stephen Ward, Ian McKellan leikur
Profumo, Bridget Fonda leikur
Mandy Rice-Davis og Jerome
Krabbe leikur Ivanov. Leikstjóri er
Michael Caton-Jones.
-HK
John Cusack og lone Skye leika aöalhlutverkin í Láttu það flakka.
Bíóhöllin:
Láttu það flakka
Láttu það flakka (Say Anything)
er létt og rómantísk gamanmynd
sem Bíóhöhin fmmsýnir í dag.
Aðalpersónan er Lloyd Dobler sem
er ekki beint draumur ungra
stúlkna. Hvað sem því líður verður
hann hrifmn af fahegustu stúlk-
unni í skólanum, Diane Court. Ekki
aðeins er hún falleg, heldur er hún
gáfuð, besti nemandinn í skólanum
og þegar búin að fá thboð um skóla-
vist í Englandi.
Þaö er þvi engin furða að vinir
Lloyd skuh hrista hausinn þegar
hann tilkynnir þeim að hann æth
sér að kynnast henni. Ekki lítur
vel út fyrir Lloyd í byrjun en eftir
því sem samband Diönu við föður
sinn versnar dregst hún æ meira
að Lloyd sem er ávaht tilbúinn þeg-
ar á reynir...
Aðalhlutverkin em leikin af ung-
um leikumm sem em orðnir nokk-
uð þekktir. John Cusack er aðeins
tuttugu og tveggja ára gamall en
hefur leikið í tólf kvikmyndum frá
því, hann lék í sinni fyrstu kvik-
mynd, Class, þar sem hann lék á
móti Jacqueline Bisset. Hans
þekktustu myndir em The Sure
Thing, Eight Men Out, Sixteen
Candles, Stand By Me, One Crazy
Summer og Hot Pursuit.
Ione Skye leikur Diönu Court.
Hún er nítján ára og lék fyrst í
kvikmyndinni River Edge aðeins
sextán ára. Hún er dóttir söngvar-
ans þekkta, Donovan. Ione fæddist
á Englandi en ólst upp í San Fran-
cisco og varð ung fyrirsæta. Leik-
stjórinn Tim Hunter tók eftir henni
og valdi hana í kvikmynd sína, Ri-
ver Edge, og hefur hún síðan leikiö
í þremur kvikmyndum og tveimur
sjónvarpskvikmyndum.
-HK
Joanne Walley-Kilmer leikur gleðikonuna Christine Keeier.
Bíóborgin:
Náin kynni
Náin kynni (When I Fall in Love)
spannar tuttugu og fimm ár í lífi
þriggja sögupersóna, fótboltahetj-
unnar, unnustu hans og frænda.
Myndin byrjar 1956 sem er minnis-
stætt ár fyrir Gavin Gray (Denis
Quaid). Hann er valinn besti leik-
maður í háskólahði og á bjarta
framtíð fyrir höndum í atvinhufót-
boltanum. Sama ár er Babs Rogers
(Jessica Lange) kosin fegurðar-
drottning. „Hafðið þið nokkum
tíma sé jafnglæsilegt par“ er setn-
ing sem þau heyra oft. í bakgmnni
þeirra stendur frændi Gavin,
Donnie (Timothy Hutton), átján
ára efnilegur nemandi sem dýrkar
frænda sinn og unnustu hans. Fyr-
ir Donnie er þetta byrjunin á ævi-
langri dýrkun á þessum tveimur
manneskjum.
Gavin og Babs gifta sig og njóta
lífsins meðan allt leikur í lyndi en
atvinnuknattspyma er ströng
íþrótt og kallar á mikh meiðsli og
þrátt fyrir vilja verður Gavin að
hætta í íþróttinni og stendur þá
uppi atvinnulaus og kunnáttulaus.
Babs, sem hafði lifað áhyggjulausu
lífi, herðist við raunir mannsins
síns og meðan stjama Gavins
lækkar rís hennar á himni við-
skiptalífsins. Það er því fljótlega
hún sem fer að sjá fyrir fjölskyld-
unni. Á meðan hefur Donnie klárað
háskólanám með miklum ágætum
og er orðinn söguprófessor. Upp-
gör þeirra þriggja verður svo á
tuttugu og fimm ára skólaafmæh.
Leikstjóri Náinna kynna er Tayl-
or Hackford sem starfar jöfnum
höndum sem leikstjóri og framleið-
andi. Hann varð fyrst þekktur er
hann leikstýrði hinni vinsælu
kvikmynd An Officer and a Gentle-
man. Áður hafði hann leikstýrt
einni leikinni kvikmynd, The
Idolmaker.
Hann hóf samt feril sinn í sjón-
varpi við gerð heimildamynda fyrir
sjónvarp og gerði margar shkar
myndir er vöktu athygli. Þessi
gmnnur að leikstjómarferh hans
kemur í Ijós í hinni ágætu heim-
ildakvikmynd sem hann leikstýrði
um Chuck Berry, Hail! Haill Rock
’n’ Roh. Aðrar myndir sem hann
hefur leikstýrt eru Against All
Odds og White Nights. Þá var hann
framleiðandi að La Bamba.
-HK
Dennis Quaid og Jessica Lange i hlutverkum fótboltahetjunnar og fegurð-
ardrottningarinnar í myndinni Náin kynni.
Sýningar
Gallerí „einn-einn“,
Skólavörðustíg 4a
í dag kl. 18 opnar Sigríður Ásgeirsdóttir
sýningu á teikningum, unnum í Edinborg
árið 1985, og nokkrym grafíkmyndum.
Sýningin stendur til. 16. nóvember og er
opin alla daga kl. 14-18.
Gallerí List,
Skipholti 50B
Jbnína Magnúsdóttir, Ninný, sýnir í Gall-
erí List. Myndimar á sýningunni eru
unnar á fllsar með postulínslitum, olíu á
striga og krít á pappír. Sýningin er opin
virka daga kl. 10.30-18, laugardaga og
sunnudaga kl. 14-18. Henni lýkur 5. nóv-
ember.
J. Hinriksson,
Maritime Museum,
Súðarvogi 4
' jóminja- og vélsmiðjumunasafnið er
ipið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku-
daga, funmtudaga, föstudaga og laugar-
daga.
Gallerí Madeira,
Klapparstíg 25
Björgvin Pálsson sýnir Ijósmyndir. Sýn-
ingin er opin alla daga W. 8.30-18. Henni
iýkur föstudaginn 24. nóvember. Allar
myndimar em til sölu.
Gallerí Sævars Karls, -
Bankastræti 9
Þar stendur yfir sýning á verkum Áma
Páls. Sýningin stendur til 24. nóvember
og er opin á verslunartíma frá kl. 9-18.
Katel,
Laugavegi 20b
(Klapparstígsmegin)
Til sölu em verk eftir innlenda og er-
lenda listamenn, málverk, grafik og leir-
munir. ^
Hafnarborg,
menningar- og listastofnun Hafnar-
fiarðar
I Hafnarborg stendup nú yfir sýning á
verkum í eigu safnsins. Á sýningunni em
olíumálverk og vatnslitamyndir eftir
m.a. Kjarval, Ásgrím Jónsson, Finn Jóns-
son, Jón Stefánsson, Kristínu Jónsdóttur,
Júliönu Sveinsdóttur, Jón Engilberts og
Svein Þórarinsson. Sýningin er opin kl.
14-19 og lýkur henni mánudaginn 6. nóv-
ember.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún
Á Kjarvalsstöðiun standa yfir þrjár sýn%
ingar. Sveinn Bjömsson sýnir verk sín.
Þá stendur yfir sýning á verkum eftir
Arvid Pettersen í boði Listasafns Reykja-
víkur og stendur hún til 3. desember. í
vesturforsal sýnir Kristín ísleifsdóttir
u.þ.b. 80 skálar, vasa og ílát sem unnin
hafa verið í leir á sl. tveimur árum. Sýn-
ing hennar stendur til 12. nóvember. Sýn-
ingamar em opnar kl. 11-18.
Listgallerí,
Einarsnesi 34
Tryggvi Ámason sýnir grafíkmyndir. Á
sýningunni verða 25 nýjar grafikmyndir.
Sýningin er opin kl. 14-20 daglega til 12.
nóvember og er öllum heimill aðgangur.
Listasafn Einars Jónssonar
er opið alla dag' kl. 13.30-16 nema mánu-
daga. Höggmyndigarðurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Sýning í Odda,
nýja hugvisindahúsinu,
er opin daglega kl. 13.30-17. Þar em til
sýnis 90 verk í eigu safnsins, aöallega
eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Aö-
gangur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands,
Frikirkjuvegi 7
Mynd októbermánaðar er olíumálverkið
Svanir eftir Jón Stefánsson sem sýnd er
á umfangsmikilli yfirhtssýningu málar-
ans sem verður í safninu tfi 5. nóvember.
Listasafnið er ópin alla daga nema mánu-
daga kl. 11-17. Veitingastofan er opin á
sama tíma.
Leiðsögn í fylgd sérfræðings á fimmtu-
dögum kl. 13.30-13.45. Safnast er saman
í anddyri safnsins og er leiðsögnin öllum
opin og ókeypis.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar,
Laugarnestanga 70
Þar stendur yfir sýning á verkum er Sig-
uijón gerði á árunum 1960-62. Þetta em
aðallega verk úr jámi. Þá era einnig sýnd
aðföng og gjafir sem safninu hafa borist
undanfarin ár, þar á meðal myndir frá
árunum 1936-46 sem hafa verið í einka-
eign í Danmörku. Sýningin, sem mun
standa uppi í vetur, er opin laugardaga
og sunnudaga kl. 14-17 og öll þriðjudags-
kvöld kl. 20-22.
Mokka kaffi
v/Skólavörðustíg
Þessa dagana heldur Ásgeir Lámsson
myndlistarsýningu á Mokka-kaffi og er
þetta tíunda einkasýning hans. Á sýning-
unni em 20 myndir, flestar unnar með
gvass og akrílhtum og em þær allar til
sölu. Sýningin stendur fram eftir nóv-
embermánuði.
Nýhöfn,
Hafnarstræti 18
Valgerður Bergsdóttir sýnir verk sín í
Nýhöfn. Á sýningunni em stórar blý-
teikningar á pappír. Teikningamar em
flestar frá þessu ári og að hluta til unnar
á vinnustofu í Listamiðstöðinni Sveaborg
við Helsinki þar sem Valgerður dvaldist
í sumar. Sýningin, sem er sölusýning, er
opin frá kl. 14-18 um helgar og frá kl.
10-18 virka daga. Henni lýkur 15. nóv-
ember.